Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 3

Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 3
Xk^MT' FIMMTUDAGUR 20 .NÓVEMBER 1997 - 3 FRÉTTIR Dómariiffi veitir Alþingi ákúrur Gagnrýni á störf Alþingis kemur fram i dómsnidurstödu i nýlegu skattsvikamáii. Al- þingi gætti að því að hafa samræmi í lögum. Dómari sendir Al- þingi tóninn. Segir ad refsiákvæði í lögum iiin virðisaiLkaskatt samrymist ekki grundvallarreglum refsiréttar eins og þær eru í lögum. Ólafur Kristinsson, dómarafull- trúi við Héraðsdóm Isafjarðar, veitti löggjafarvaldinu - Alþingi - harða ákúru í dómsniðurstöðu, þegar hann kvað upp 9 milljóna króna sektardóm í skattsvika- máli. Magnús Hauksson var ákærður fyrir, og játaði, að hafa nýtt í eigin þágu svipaða upp- hæð, sem hann hefði innheimt sem virðisaukaskatt. Brot Magnúsar átti sér stað á átján mánaða tímabili og síðari hluta þess tímabils höfðu tekið gildi lög sem hertu verulega á sektarákvæðum vegna undan- skots á virðisaukaskatti. Lögin kváðu á um að sektin skyldi vera minnst tvöföld en allt að tíföld sú upphæð sem stungið var und- an, en áður var sektin 15% upp- hæðar. Að h'kindum hefði hann verið dæmdur til eins til tveggja milljóna króna sektar samkvæmt eldri lögum. I báðum tilfellum stendur hin undanskotna upp- hæð eftir sem skuld. Samrýmist ekki gmndvallar- reglum refsiréttar Dómarinn segir að brotið sé stór- fellt og bendir á að samkvæmt hegningarlögum geti refsing varðað „varðhaldi eða fangelsi allt að sex árum“ og að heimilt sé að dæma fésekt að auki sam- kvæmt ákvæðum skattalaga. Síð- an segir dómarinn: „Tilvitnuð orð lagagreinarinnar staðfesta sldlning dómara þessa máls, að fésektir, hversu háar sem dæmd- ar eru, eru vægasta forrn refsinga að íslenskum lögum. Þannig er til dæmis fjögurra milljóna króna sekt vægari refsing en fimm daga varðhald. I ljósi þess fær áður- greint markmið löggjafans að herða refsingar við skattalaga- brotum með setningu laga nr. 42/1995 tæplega samrýmst grundvallarrcglum refsiréttarins. Hlýtur þetta að vera íhugunar- efni jafnt fyrir þá, sem koma að setningu skattalaga og þá, sem eiga að framfylgja þeim.“ Dóm- arinn segir því að ekki sé sam- ræmi milli ákvæða nýlegra virðis- aukaskattslaga og ákvæða hegn- ingarlaga. Magnús var sem fyrr segir sektaður um 9 milljónir króna, en þá hafði verið tekið tillit til þess að hann greiddi 3,7 milljón- ir upp í virðisaukaskattskuld sína. Sektina á hann að greiða innan fjögurra vikna, en vara- refsing hans er 12 mánaða fang- elsi og er líklegt að reyni á þá refsingu, því Magnús er til gjald- þrotameðferðar og eignalaus. Hann rak jrrifa- og löndunar- þjónustu á Isafirði. - fþg Finnur: kallar á nýjar reglur en vill ekki spá hvort tekjur bankastjóra minnki. Nýjar reglur umrísnu Risna og ferðakostnaður verður ekki hluti af launakjörum bankastjóra Landsbanka og Búnaðarbanka hf. heldur verða samdar almennar reglur sem gilda um alla starfsmenn bank- anna. Þetta segir Finnur Ing- ólfsson viðskiptaráðherra. Eins og fram kom í Degi í gær námu ferða-, risnu- og bílastyrkur rík- isbankanna frá 1993 samtals 1,3 milljörðum króna. Finnur segir að formönnum stjórna hlutafélaganna hafi verið falið að semja nýjar reglur um greiðslur risnu- og ferðakostn- aðar sem gilda eigi um alla starfsmenn jafnt. Þetta verði gert í samvinnu við Ríkisendur- skoðun sem er endurskoðandi bankanna. Finntir vill engu svara um það hvort heildartekjur banka- stjóra Iækki við þessar breyting- ar - V| Þremeiuiingar í gæsluvarðhald Þrír menn hafa verid handteknir vegna misþyrmingar á midaldra öryrkja i íbúð við Kleppsveg aðfaranótt þriðjudags og voru i gær úrskuröaöir í gæsluvarðhald til 28. nóvember. Þremenningarnir eru sterklega grunaðir um fólskulegt ofbeldi, svo mjög að jaórar við tilraun til manndráps. Sameiuast uppsveitir? Hugmyndir um sam- einingu átta sveitarfé- laga í uppsveitum Ár- nessýslu. Sveitar- stjómarmenn að hugsa málið. Tekin verður ákvörðun á næstu vikum urn bvort stefna skuli að sameiningu átta sveitarfélaga í uppsveitum Arnessýslu. Sam- ráðshópur sveitarstjórnarmanna úr öllum sveitarfélögunum vinn- ur að skoðun á málinu og á ákvörðun að liggja fy'rir í næsta mánuði. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Skeið, Gnúpverja- hreppur, Hrunamannahreppur, Biskupstungur, Laugardalur, Þingv'allasveit, Grímsnes og Grafningur, en sameining tveggja síðasttöidu sveitarfélag- anna var reyndar samþykkt fyrir skömmu. Samanlagður íbúa- fjöldi þessara átta sveitarfélaga er 2.300 manns. Sigurður lngi Jóhannsson, formaður framkvæmdanefndar í þessu máli, segir að fyrir miðjan desember ættu menn að gefa ákveðin svör um vilja sinn í þess- um efnum. A sama tímapunkti yrðu menn að gefa upp hvort og hvenær þeir vildu að sameining- artillaga af einhv'erju tagi yrði sett fram. — SBS Um 400 milljónir munaðarlausar Margur virðist ríkari en hann hyggur, því 400 milljóna útdregin hús- bréf liggja nú óinnleyst einhvers staðar. Utdregnum og innleysanleg- um húsbréfum sem ekki hafa komið inn hefur fjölgað mjög núna undanfarna mánuði. Þessi bréf, sem líklega liggja einhvers staðar í skúffum eða bankahólfum, bera nú hvorki vexti né verðbætur lengur. Lántakendur hafa á hinn bóginn verið miklu duglegri að borga af Ián- unum sínum í ár, þannig að v'ansldl hafa verið miklu minni alla mán- uði ársins. — HEI Rafveita AJmreyrar með 19% gjald- skrárlækkun á sjö árum Rafv'eita Akureyrar hyggst ekki hækka gjald- skrá veitunnar um áramót þegar gjaldskrá Landsvirkjunar hældtar um 1,7%. Þetta var samþykkt á stjórnarfundi veitunnar í gær. Gjaldskrá Rafveitu Akureyrar hefur lækkað að raungildi um 19,09% á síðustu sjö árum mið- að við gjaldskrá Landsvirkjunar. Gjaldskrárhækkun Landsvirkjunar mun því ekki létta pyngju Akureyringa um næstu ára- mót, frekar en pyngju Reykvíkinga og e.t.v. Hafnfirðinga. Ekki var kunnugt um ákvörðun fleiri rafv'eitna í gær. — GG Sveitamenn þvingaðir til að slíta rætur „Heilsugæsla og öll sjúkraþjónusta úti á landi er búin að vera í upp- námi um langt skeið, en stjórnvöld halda áfram að saxa niður það sem fyrir er. Fólki er haldið á vonarvöl og það er meðvituð stefna stjórn- valda. Stjórnvöld eru meðvitað að svelta landsbyggðarmenn til að slíta rætur sínar með aðgerðaleysi og fálmkenndum aðferðum sem gengið hafa undir nöfnum byggðastefnu," segir Fljörleifur Guttormsson, þingmaður Alþýðubandalags á Austurlandi, um byggðamál í samtali við Dag. Þingmenn hafa mjög ólíka afstöðu til hvort bregðast skuli við fólks- flutningum frá landsbvggðinni og þá hvernig. — BÞ Sjd fréttaskýringu bls. 8-9.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.