Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 5

Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 20.KÓVEMBER 1997 -S rpjgftr FRÉTTIR Blöndal með blekkingar? Formaðiir BSRB segir samgöngurádherra ástunda hlekkinga- leik og undirbúa sölu Pósts og síma úr landi. Ogmundur Jónasson, formaður BSRB, segir Halldór Blöndal stunda ljótan blekkingaleik varð- andi einkavæðingu Pósts og síma og segir líklegt að selja eigi Póst og síma til erlendra aðila Iíkt og gerst hefur með danska Landsímann. Ögmundur minnir á að ráðherrann hafi margsinnis lýst því yfir í ræðum og í fjölmiðl- um að ekki stæði til að selja fyr- irtækið, en nú tali hann um söl- una sem nauðsynlegan millileik. „Millileikur gagnvart hverjum?" spyr Ögmundur Jónasson og bætir því við að ráðherrann sé augljóslega að reyna að blekkja þjóðina. Formaður BSRB segir þennan feril í einkavæðingunni vel þekktan, menn segi eitt en geri svo annað. Ögmundur: minn/r á að ráðherra hafí lofað því að selja ekki Póst og síma, en nú sé allt annað hljóð í strokknum. „Tal um að senda út hlutabréftil þjóðarinnar eru bara molar til að friðþægja". Hugmyndafræði og fjármagn Aðspurður um hvers vegna ráð- herra ætti að vilja selja Póst og sírna erlendum aðilum sagði Ög- mundur það tengjast hugmynda- fræði. Ráðherrann og skoðana- bræður hans teldu einfaldlega að það þjónaði hagsmunum fyrir- tækisins að tengjast alþjóðlegu símakerfi og að gerast hluti af því. „Við segjum hins vegar að það þjóni notendunum ekkert. Það eru hins vegar fjármagnseig- endurnir og peningavaldið sem hagnast enda er dregið út úr þessum rekstri gígantískt fjár- magn,“ sagði Ögmundur. Danir flytja út arð Hann benti á að talið væri að frá danska Landsímanum færu um 600 milljónir ísl. króna til Bandaríkjanna á ári. „Það getur vel verið að við förum svo að þenja okkur þegar næst á að hækka eða þegar þjónusta við fá- menna staði er lögð niður. Hins vegar verður ekkert á slíkt hlust- að úti í Chicago þar sem ákvarð- anirnar verða teknar,“ sagði for- maður BSRB ennfremur. „Málið snýst um trúverðug- leika stjórnmálanna, það snýst um lýðræði, peninga og hag al- mennings," sagði Ögmundur Jónasson. Smábátar fá bónus Landssamband smá- hátaeigenda hefur samið við sjávarút- vegsráðherra um fjölgun sóknardaga og fleiri hreytingar á fiskveiðistj ómarlög- unum. „Stærsti ávinningurinn er að fá íleiri daga. Þetta var algjörlega óviðunandi ástand. Þetta bjargar ekki öllum félagsmönnum. Það eru fyrirsjáanleg vandræði hjá nokkrum, en samkomlagið verð- ur að minnsta kosti til þess að mun fleiri ná að komast fýrir horn en annars hefði verið,“ seg- ir Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri Landssambands smábáta- eigenda, um nýgert samkomulag sjávarútvegsráðherra um veiðar smábáta. Frumvarp sem byggir á þessu samkomulagi var kynnt í þing- flokkum ríkisstjórnarinnar í gær. Samkvæmt því Ijölgar sóknar- dögum handfærabáta úr 26 í 40 og línubáta úr 20 í 32. Þeir sem vilja geta flutt sig úr sóknardaga- kerfinu yfir í þorskaflahámarkið, þar sem tekið verður mið af veiðireynslu þeirra 1992-1994. Jafnframt stendur krókakörlum til boða að úrelda báta sína og greiðir Þróunarsjóður 80% af vá- tryggingarverðmæti þeirra. Örn býst við að fleiri sóknar- dagabátar færi sig yfir í aflahá- markskerfið nú en síðast þegar boðið var upp á slíkt. Heildar- kvótinn sé að aukast og smábáta- eigendur telja sig eiga betri möguleika þar núna, en áður. „Eg get ímyndað mér að yfir 100 bátar færi sig yfir.“ Hann segir erfitt að spá fyrir um það hvort margir kjósi að hætta og úrelda báta sína, en menn eigi kannski meiri mögu- leika nú en áður á að fá aðra vinnu. -VJ Pétur ÞórJónasson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar. Ekki persónuleg óvild í Eyj afir di Ef Hæstiréttiir dæmir sveitarstjóm í hag í jaiiúar úk. keinur upp flókin staða varðandi framtíð Möðrufells. Ekki var óvild um að kenna að sveitarstjóri og aðrir forráða- menn Eyjafjarðarsveitar tóku ekki á móti Matthíasi Eiðssyni hrossabónda sem fékk afhent langþráð lyklavöld að Möðrufelli í fyrradag. Að sögn sveitarstjóra, Péturs Þórs Jónassonar, sáu til- hlýðilegir aðilar sem voru vel heima í málunum um að af- henda lyklana en Matthías átti von á hreppstjóra eða sveitar- stjóra. „Það ríkir engin persónuleg óvild af hálfu sveitarstjórnar til Matthíasar. Þótt ákveðin mála- ferli standi yfir er engin ástæða til að þau hafi áhrif á persónuleg samskipti okkar. Þetta snýst um aðra hluti,“ segir Pétur Þór. Matthías hefur kallað ráðamenn í Eyjafjarðarsveit „heimaríka hjá- guði“ eftir að sveitarstjórn hefur leitað allra leiða til að meina Matthíasi kaupin með því að neyta forkaupsréttar. Óljóst er með framhaldið ef sveitarstjórn vinnur nú málið sem rekið er fyrir Hæstarétti. Það fær flýtimeðferð og mun dómur að líkindum falla f janúar. Þá verður Matthías hins vegar húinn að breyta búinu að líkind- um, en hann hyggst skipta út nautgripum sem fylgja jörðinni og rækta hross í þeirra stað. „Ég get ekki svarað því hvað verður um Matthías ef við vinnum mál- ið. Þá er komin upp flókin staða,“ segir Pétur Þór. — BÞ „Vilhjálmi hlýtur að líður illa“ Lögreglan hefur lítið aðhafst í kæru Vilhjálms Inga Arnasonar gagnvart Neytendasamtökunum um brot á höfundarrétti hugbúnaðar. Formaður Neyt- endasamtakanna segir að samtökin hafi haft frum- kvæði að því að bjóða lögreglunni upp á skoðun gagna og upplýsingar, enda sé ekkert að fela. „Eg vísa því ásökunum Vilhjálms Inga algjörlega á bug,“ segir Drífa Sigfúsdóttir, formaður Neytendasam- takanna. „Mér finnst þetta bara bera vott um að Vilhjálmi Inga líði illa. Hann á erfitt með að fóta sig og er á rangri leið, aum- ingja maðurinn. Bestu ráðgjafar landsins segja að þessi tölvumál séu í Iagi hjá okkur,“ segir Drífa. — BÞ Drífa Sigfúsdóttir. Tollari dæmdur fyrir stuld á pundum Kristófer Kristófersson hefur verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyr- ir stuld á 52 þúsund pundum eða um sex milljónum króna í tollpóst- stofunni við Armúla, þar sem Kj-istófer starfaði sem tollgæslumaður og umsjónarmaður fíkniefnahunds. Eiginkona Kristófers og vinkona hennar fengu báðar skilorðsbundinn fjögurra mánaða dóm fyrir hylmingu, en eiginmaður vinkonunnar var sýknaður af ákæru um sama. Peningasendingin var frá Jyske Bank í Danmörku til Landsbankans og barst til tollpóststofunnar 24. nóvember í fyrra. Hvarf pakkans var tilkynnt til rannsóknarlögréglu, en á tollpóststofunni unnu um 40 manns og lítils öryggis gætt, segir í dómsniðurstöðunum. Eftir frum- skýrslur var af hálfu rannsóknarlögreglu ekkert gert frekar í rnálinu fyrr en 22. febrúar sl., að kunningjakona ákærðu veitti upplýsingar sem leiddu til handtöku þeirra. Kristófer varð margsaga við yfirheyrslur hjá lögreglunni, neitaði í fyrstu, játaði síðan en dró játninguna til baka. Hann ber að hann hafi sem umsjónarmaður fíkninefnahunds verið að viðra hundinn í Hafn- arfjarðarhrauni og hundurinn fundið þar í gjótu pakka með pundun- um og maríjúana. Komust dómararnir að þeirri niðurstöðu að sagan væri fjarstæðukennd og höfnuðu henni alfarið. - FÞG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.