Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 4
é -FIMMTVDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
ÍS stofnar nýtt fyrirtæki
Islenskar sjávarafurðir hafa stofnað fisk-
sölufyrirtæki, sem á að kaupa og selja sjáv-
arafurðir fyrir eigin reikning, en það mun
ekki stunda umboðssöluviðskipti. Nýja fyr-
irtækið heitir Isborg. Það er alfarið í eigu
ÍS og á að leggja sig sérstaklega eftir við-
skiptum við framleiðendur sem eru utan
sölusamtaka.
Framkvæmdastjóri ísborgar er Birgir Örn
Arnarson, sem stýrt hefur söludeild ÍS í
Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS Beykjavík. Benedikt Sveinsson, lorstjóri ÍS,
og stjórnarformaðurísborgar. er stjórnarformaður nýja fyrirtækisins.
Nærri 300 milljónir
í endurbætur
Stórtækar breytingar eru fyrirhugaðar á tveimur skipum Básafells,
Orra IS og Sléttanesi ÍS. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi fyr-
irtækisins. Aætlað er að breytingarnar kosti hátt í 300 milljónir
króna, en þar vega þyngst endurbæturnar á Orra, sem talið er að
kosti 200-250 milljónir. Skipinu á að breyta í fullkomið rækju-
vinnsluskip, en nú er aðeins hægt að heilfrysta fisk um borð. Sext-
án manna áhöfn Orra hefur verið sagt upp og liggur skipið í höfn
meðan beðið er tilboða í breytingarnar.
SVR á Kjalames
Strætisvagnar Reykjavíkur hófu reglubundnar ferðir á Kjalarnes um
síðustu helgi, en borgin og Kjalarnes verða sem kunnugt sameinuð í
eitt sveitarfélag. I fréttatilkynningu frá SVR segir að ferðirnar séu
verulegur ávinningur fyrir Kjalnesinga og aðra sem þangað eigi er-
indi. Ferðum Ijölgi og boðnar verði kvöld- og helgarferðir, sem ekki
var áður. Fargjöld lækka einnig frá því sem áður var, úr 250 kr. fyrir
fullorðna í 120 og úr 170 í 60 fyrir unglinga og í 25 krónur fyrir börn.
Hlutafé í Poly-Ice aukið
Iðnþróunarsjóður hefur aukið hlutafé sitt í Poly-Ice Mexico og á nú
fjórðungs hlut í fyrirtækinu. Poly-Ice er dótturfyrirtæki J. Hinriks-
sonar ehf, og stofnað í Mexíkó í fyrra. Það framleiðir og selur tog-
hlera og skyldar vörur fyrir rækju og bolfiskveiðar í Mexíkó. J. Hin-
riksson hefur í áratugi selt framleiðslu sína á erlendum mörkuðum,
m.a. til Norður og Suður Ameríku og var tilgangurinn með stofnun
dótturfélagsins sá að bæta samkeppnisstöðuna á þessum mörkuðum.
Hlutafé í Poly-Ice var aukið í síðasta mánuði og tók Iðnþróunar-
sjóður þátt í því og á nú 25% í fyrirtækinu.
• *
siávar 97/
fréttir 4
Handbók Sjávarfrétta
Handbókin Sjávarfréttir ‘97/’98 er
komin út en útgefandi er Fróði hf.
Handbókin Sjávarfréttir hefur
komið út árlega í upphafi hvers
fiskveiðiárs en hún fylgir áskrift að
vikublaðinu Fiskifréttum, en hún
er einnig boðin til kaups. Bókin
hefur að geyma nýja skipaskrá,
kvótaskrá, þjónustuskrá og útflytj-
endaskrá auk margvfslegs annars
fróðleiks. M.a. má nefna ástand
fiskistofna og ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar, aflaþróun síðustu
áratugi, veiðar íslenskra skiþa utan
lögsögu, sölu á fiskmörkuðum o.fl.
Skipaskrá Sjávarfrétta er einnig
fáanleg á tölvudiski og fylgir kvóta-
skráin með. I skipaskránni eru upp-
lýsingar um öll íslensk þilfarsfiski-
skip ásamt heimilisiöngum, símanúmer, faxnúmer og kennitölur út-
gerða þeirra. Einnig er sérstök skrá yfir opna báta ásamt upplýsing-
um um eigendur þeirra. Ritstjóri er Guðjón Einarsson. — GG
' KKtixatH*,*, .mw Mu«w »x>«u*ru.
’ AMMOT »6l w A MMUðUU KYtítk
IM l H3U A KWW*.
* KYOTA WW V* Jön. vmwm
Kápumynd Sjávarfrétta ‘97/'98.
Viðbygging ráðhúss-
ins var samþykkt
Byggingauefnd Akur-
eyrar hefur samþykkt
viöbyggiiigu vestau
við Geislagötu 9, ráð-
hús Akureyrar.
Jafnhliða því verður 1. hæð
hússins, sem áður hýsti slökkvi-
lið bæjarins, innréttuð fyrir
skrifstofur bæjarins og afgreiðsl-
an þá færð á þá hæð. Stigahús á
göflum hússins verða síðari
byggingaáfangi. Bygginganefnd-
armennirnir Óddur H. Halldórs-
son bæjarfulltrúi og Guðmundur
Friðfinnsson segjast harma að
bygginganefnd hafi ekki verið
kynntar teikningar af húsinu fyrr
en 15. október sl. og Iétu bóka.
„Við erum mjög ósáttir við
margt varðandi útfærslur á þess-
um teikningum t.d. hvað varðar
útlit viðbyggingar, lausn á flótta-
leiðum og með viðbyggðum
stigahúsum, færslu á aðalinn-
gangi til norðurs og hækkun á
gólfi 1. hæðar með tilheyrandi
skábrautum utanhúss sem
skerða gönguleiðir o.fl. Þar sem
við teljum afstöðu meirihluta
bæjarstjórnar vera að breyta ekki
þessum teikningum og því til lít-
ils fyrir undirnefnd að setja sig
upp á móti vilja meirihluta bæj-
arstjórnar, þá tökum við ekki
þátt í afgreiðslu þessa máls.“ Á
fundi bæjarstjórnar Akureyrar á
þriðjudag var ákvörðun bygg-
inganefndar samþykkt en sér-
stök atkvæðagreiðsla var um
fundargerðina þar sem Oddur
sat hjá.
Oddur Halldórsson segist ekki
vera ósáttur við að byggt sé við
húsið og hann sé eldd fylgjandi
því að byggt sé nýtt ráðhús og
það sé skoðun meirihluta bæjar-
stjórnar. Það breyti hins vegar
ekki því áliti hans að vinnuað-
staða starfsmanna bæjarins sé
langt frá því að vera góð og af
þeim ástæðum séu bygginga-
framkvæmdir nauðsynlegar, en
ekki sé þó sama hvernig viðbygg-
Sjálfkjörið í nýja aust-
firska sveitarstjóm
Sjálfkjörið verður í
sveitarstjöm hins
nýja sveitarfélags á
vesturhluta Fljóts-
dalshéraðs.
Það eru íbúar þriggja hreppa,
Tungu-, Jökuldals- og Hlíðar-
hrepps, sem hafa samþykkt sam-
einingu og jafnframt var ákveðið
að kjósa til sveitarstjórnar 13.
desember nk. Aðeins einn listi
barst, frá fráfarandi sveitar-
stjórnum, og því er sjálfskipað í
sveitarstjórn hins nýja sveitarfé-
Iags. Samkomulag varð um að
þrír sveitarstjórnarmenn kæmu
ofan af Jökuldal og tveir úr
hverju hinna sveitarfélaganna og
var búið að ákveða sætaröð fyrir-
fram.
I sveitarstjórn verða sjö aðal-
menn og eru þeir í þessari röð:
Arnór Benediktsson Hvanná frá
Jökuldalshreppi, Sigurður Jóns-
son Kirkjubæ frá Tunguhreppi,
Guðgeir Ragnarsson Torfastöð-
um frá Hlíðarhreppi, Sigvaldi
Ragnarsson Jökuldalshreppi, Ás-
mundur Þórisson Tunguhreppi,
Stefán Geirsson Hlíðarhreppi og
Sigrún Benediktsdóttir frá Jök-
uldalshreppi. Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga styrkir ráðningu
sveitarstjóra í allt að fjögur ár
þar sem sveitarstjóri hefur ekki
verið ráðinn áður. Auglýst verður
eftir honum um næstu áramót,
en hann fær þó ekki ráðningu
nema fram yfir sveitarstjórnar-
kosningar í vor, en líldegt er að
hann yrði endurráðinn.
Jón Steinar Elísson, oddviti
Tunguhrepps, segist ekki hafa
átt von á mótframboði frá þeim
sem kært hafa sameiningarkosn-
ingarnar í tvígang, frekar frá öðr-
um hópi, en ekkert hafi orðið af
því. Dreift hefur verið áskorun
til kosningabærra manna í hinu
nýja sveitarfélagi þar sem óskað
er eftir tillögum að nafni á það.
Tillögur liggja fyrir um miðjan
desember en búast má við að
kosið verði í vor milli þeirra
nafna sem mesta hylli njóta.
Ibúatala hreppanna þriggja var
1. desember 1996 alls 320
manns en þeim hefur fækkað
síðan þá um 20. Ástæðan er sú
að stærsta atvinnugreinin er
sauðfjárrækt sem heldur hefur
dregist saman og byggðin liggur
að mestu of fjarri atvinnusvæð-
um, eins og t.d. Egilsstöðum, til
þess að hægt sé að sækja þangað
vinnu daglega. — GG
Trillukarl vildi ekki lögmaun
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
vísað frá dómi stefnu Garðars H.
Björgvinssonar, trillukarls, gegn
sjávarútvegsráðuneyti, ríkissjóði
og sjávarútvegsnefnd Alþingis,
en Garðar vill fá 10 milljónir
króna úr Þróunarsjóði sjávarút-
vegsins vegna úreldingar á bátn-
um Rakkanesi.
Garðar var óánægður með
dugleysi lögfræðinga og flutti
mál sitt sjálfur. Meginástæða
frávísunarinnar var að kröfur
Garðars væru svo óljósar að
ófært væri að byggja á þeim
dómsorð. Rökstuðningi þótti
ábótavant, sumar kröfur fráleitar
og/eða vanreifaðar, auk þess sem
óskyldum málum sé blandað inn
í stefnuna, svo sem gagnrýni á
kvótakerfið. Enn fremur hafi
Garðar átt að stefna Þróunar-
sjóði sjávarútvegsins, sem lýtur
sjálfstæðri stjórn.
Garðar segir að hann hafi ver-
ið beittur þvingunum til að úr-
elda trillu sína. Hann fékk sjö
milljónir króna fyrir nýjan bát-
inn, sem hann segir 14 milljóna
króna virði. Þar sem hann hal'i
aðeins fengið um 4 milljónir eft-
ir skatt vill hann fá 10 milljónir
til viðbótar. Hann lýsti yfir að
hann hygðist taka bátinn í notk-
un á stefnudegi, þótt úreltur
væri. — FÞG