Dagur - 20.11.1997, Qupperneq 10

Dagur - 20.11.1997, Qupperneq 10
26 - FIMMTUDAGUR 20.NÚVEMBER 1997 X^tnr hÍFIÐ í LANDINU BÍLAK Vöxtur oí? vel- gengni Júlíus Vifill segir að sala Opei hafi ekki fariö afstað med neirtni stórkostlegri sprengju. Olgeir Helgi Ragnarsson skrifar Opel bílarvoru sjaldgæf sjón hérlendis fyrír nokknim árum. Nú finnst manni á stundum að annar hver bíll sem maður mætir sé Opel, en markaðshlutdeild Opel hefur vaxið úr 0,1% í 7% hérlendis á þremur árum. Hvað gerðist? 1 byrjun árs 1993 keypti Ingvar Helgason hf. bíla- og véladeild Jötuns en það fyrirtæki var í eigu Sambands Is- lenskra samvinnufélaga. Við kaupin var stofnað fyrirtækið Bílheimar um starf- semi bíladeildarinnar, en véladeildin samein- aðist Ingvari Helgasyni hf. Bifreiðaumboðin sem fylgdu með í kaup- unura voru hinn evr- ópski Opel, amerískir bílar frá GM svo sem Chevrolet og Buick og japanskir bílar frá Isuzu. „Það er kannski óhætt að segja það núna að við höfðum horft hýru auga til bíla- og véladeildar Jötuns í nokkurn tíma áður en skilaboð bárust um að til stæði að selja Jötun sem lið í því að Sambandið hætti þess- ari starfsemi. Okkur var boðið fyritækið til kaups af því það Iá fyrir að við höfð- um áhuga og vildum auka vöruúrval okkar,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson einn framkvæmdastjóra Ingvars Helga- sonar hf. og Bílheima. Bræðurnir framkvæmdastjórar Júlíus Vífill er framkvæmdastjóri fyrir- tækjanna ásamt bræðrum sínum, Helga og Guðmundi Agústi. „Við bræðurnir og pabbi vinnum mikið saman og það hefur gefist vel. Við höldum t.d. fram- kvæmdastjórnarfundi vikulega og förum þá yfir stöðuna. Þetta eru vinnufundir enda reynum við að taka sameiginlegar ákvarðanir eins mikið og við verður komið, án þess að það hægi á starfsemi fyrirtækjanna." Júlíus Vífill segir það hafa verið stefnu Ingvars Helgasonar hf. í byrjun þessa áratugar að auka þjónustustig fyr- irtækisins með því að hefja sölu og þjónustu vinnuvéla og landbúnaðar- tækja. „Með'því að bæta við okkur véla- deild Jötuns hafa óskir okkar gengið eftir og viðskipti okkar við bændur og fyrirtæki hafa aukist, ekki bara með vél- ar og landbúnaðartæki, heldur einnig bílasala okkar til þessara aðila.“ Júlíus Vífill segir að strax hafi verið gerð ákveðin stefnubreyting varðandi innflutninginn. „Það var Ijóst að okkur fannst að innflutningur amerískra bíla myndi ekki verða uppistaðan í rekstri fyrirtækisins einfaldlega vegna þess að amerískir bílar eru svo lítill hluti af inn- flutningi nýrra bíla til landsins. Þar að auki eru flestir amerískir bílar undan- tekningalítið búnir stórum vélum og þar sem tollflokkun bíla miðast við vélar- stærð lenda amerískir bílar oftast í hærri tollflokkum en sambærilegri bílar frá Evrópu eða Japan. Þessi staðreynd veldur þvf að amerískir bílar eru ekki samkeppnisfærir í verðum og það er nú einfaldlega það fyrsta sem viðskiptavin- urinn skoðar. Hitt er svo annað mál að stærð vélar er hreint ekki æsldleg við- miðun við tollfloklíun. Það var þess vegna þegar í upphafí ákveðið að ein- beita sér að því að vinna upp Opel merkið á Islandi. Kannanir sýndu að nafnið var ekki vel þekkt meðal yngra og miðaldra fólks en að þeir sem það þekktu vissu að bílarnir voru þýsk fram- leiðsla og að hún væri vönduð. En þetta krafðist þolinmæði. „Það tók nálægt því ársfjórðung að ná öllum samningum í höfn. Tilfellið er að þó fyrirtæki séu seld er ekki sjálfgefið að birgjar sem þessi fyrirtæki hafa gert umboðsamn- inga við vilji íylgja í sölunni til nýrra eigenda," segir Júlíus Vífíll. Klárir í heyskapinn „Véladeildin var tilbúin í slaginn þegar bændur þurftu á sfnum tækjum og þjónustu að halda sumarið 1993 en það má segja að sala bíla hafi ekki raun- verulega hafist fyrr en seint á árinu 1993 og kannski ekki raunverulega fyrr en 1994.“ Júlíus Vífill segir að sala Opel hafi ekki farið af stað með neinni stórkostlegri sprengju. „Hægt og sígandi hefur sala þeirra verið að aukast úr 0,1% árið 1993 upp í það að vera 7% í ár. Það munu seljast á þessu ári á átt- unda hundrað Opel bílar. Sameiginleg hlutdeild okkar fyrirtækja í bílainnflun- ingum er um 25%. Opel, Isuzu og Saab sem eru til sölu hjá Bílheimum hafa því verið hrein viðbót við okkar bflainn- flutning. Þeix sjá ekki eftir því Ymsir af starfsmönnum Jötuns komu til starfa hjá okkur og þekking þeirra og viðskiptasambönd fylgdu því með hin- um nýju vörumerkjum. Þetta var okkur mjög mikilvægt. Síðan hafa aðrir bæst í hópinn eins og gengur og myndað liðs- heildina sem er lífæðin í fyrirtækjun- um.“ Hann segir þetta hafi verið unnið í góðu samstarfi við Opel erlendis: „Fyrst og fremst var það þannig að það þurfti að sannfæra þá hjá Opel úti í Russelheim um að þetta væri spenn- andi verkefni fyrir þá að standa með okkur í. Við gerðum þeim grein fyrir því að við mundum ekki ná árangri nema þeir sjálfir mundu koma að því dæmi. Það fór svo að þeir ákváðu að slá til og þeir sjá ekki eftir því.“ Það er gamall og góður siður að koma með eitthvað smálegt með sér ef manni er boðið í heimsókn. Þetta þarf ekki að vera neitt mjög mikið, t.d. einn kexpakki, heimabakað brauð, nokkrir ostar eða eitt- hvað slíkt. Þetta er sérstaklega gott að gera ef maður kemur óvænt í heimsókn og viðkomandi á kannski ekkert með kaff- inu og finnst það óþægilegt. Svo líður manni oft betur að koma með eitthvað með sér. HVAÐ Á ÉG AÐ GERA Sæl Vigdís. Ég bý í Iitlu þorpi úti á landi og mig langar til að vita hvort það er hægt að fá fjölskylduráðgjöf einhvers staðar þó maður húi ekki á staðnum sem ráðgjöfin er veitt. Og líka hvar helst er að leita eftir slíku. Fjölskylduráðgjöf er stundum veitt á heilsugæslustöðvum og félagsmála- skrifstofum, fyrir utan þá sem prakt- isera á stofum. Sjálfsagt er mest um slíkt á stærri stöðum eins og Reykjavík og Akureyri. Það er ekkert skilyrði að búa á staðnum, það er hægt að hringja í þessa staði og jafnvel fá einhverja ráðgjöf í gegnum síma. Prófaðu bara að hringja í einhvern þeirra félagsráð- gjafa sem þú finnur í símaskránni og hann mun vafalítið leiða þig áfram. Vigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í símanu kl. 9-12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080 Pdstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgata 31 Ak. Netfang: ritstjori@dagur.is GrUlaður lax Pciprilm, 2 rauðar, 2 grænar og 1 gul 4 laxaflök, beinlaus og roðflett, um 200 g hvert 2 hvítlauksrif 'á rauðlaukur 150 ml balsamedik 100 ml olífuolía salt, pipar, dill, basil og koriander. Skerið paprikuranr í tvennt og hreinsið fræin úr þeim. Setjið á bökunarplötu og burstið með olíu. Bakið við 200°C þar til þær eru gylltar. Takið úr ofninum og geymið. Kryddið laxinn og burstið með olíu. Látið hann í ofninn í um 5 mín. Skerið hvítlaukinn smátt, einnig laukinn og setjið krydd samanvið í skál ásamt olíu, ediki, salti og pipar. Afhýðið paprik- una og skerið í strimla. Látið í olíublönd- una í 5 mfn. Setjið paprikuna á disk og fiskinn ofaná. Skreytið með fersku basil og berið fram með Chiabatta brauði. Ráðagóða homið Til mín hringdi lesandi sem kannaðíst vel við það vandamál að eiginmað- urinn væri lengi í burtu vegna vinnu. Hún sagðist Ieysa málið þannig, að þegar eiginmaðurinn kemur heim af sjónum, sem eru kannski 3 dagar í einu og svo er hann 30-40 daga í burtu, þá lætur hún börnin taka sér frí í skólanum, gjarnan eitt í einu, til að þau fái hvert fyrir sig heilan dag með pabba sínum. Hún tekur sér sjáf frí frá vinnu að minnst kosti einn dag og reynir að nota fyrsta kvöldið handa þeim tveim einum. Ein dætra þeirra var með sífelldan maga- verk í skólanum þá daga sem pabbi hennar var heima, þar til þetta ráð var tekið upp, en þá hvarf það vandamál.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.