Dagur - 21.11.1997, Blaðsíða 9

Dagur - 21.11.1997, Blaðsíða 9
8- FÖSTUDAGUR 21.NÓVEMBER 1997 FRÉTTASKÝRING L VALGERÐUR JÓHANNS- DÓTTIR SKRIFAR Víti til vamaðar fyrir s a iiifylkinga rs i nna, segir þingflokksfor- maður Alþýðubanda- lagius, iiiii klofning- inn sem orðinn er inn- an Kvennalistans. Þetta auðveldar sam- starfsviðræðnr vinstri flokkanna, segir formaður Al- þvöuf lokksins, en for- sætisráðherra telur til bóta að Kvennalist- inn sé hættur að þykj- ast vera eitthvað ann- að en hann er. Kristín Ástgeirsdóttir tilkynnti við upphaf þingfundar á Alþingi í gær að hún hefði sagt skilið við Kvennalistann og yrði hér eftir (!þingmaður utan flokka". Ákvörðun hennar kom kannski ekki mjög óvart, enda nokkuð ljóst í hvað stefndi eftir að lands- fundur Kvennalistans samþykkti að taka þátt í samstarfsviðræð- um vinstri flokkanna, en um það hafði verið ákaft deilt í langan tíma innan samtakanna. Nokkr- ar af forvígiskonum Kvennalist- ans höfðu þegar sagt bless og brotthvarf Kristínar úr þing- flokknum staðfesti endanlega klofning samtakanna. Kristín kallar ákvörðun lands- fundar söguleg mistök, en/fylgj- endur samfylkingar kalla hana sögulegt tækifæri. Um það má deila en hinu verður ekki á móti mælt að klofningur Kvenhalist- ans markar ákveðin tímamót og Dagur innti stjórnmálamenn úr öllum flokkum eftir viðbrögðum. Saga simdnmgar „Þetta var ber- sýnilega mjög erfið ákvörðun en mér fannst hún gera þetta mjög myndar- lega,“ sagði Svavar Gests- son, formaður þingflokks Al- þýðubandalags- ins, um yfirlýs- ingu Kristínar á þingi. Hann seg- ist sem þingflokksformaður leggja áherslu á að hafa eins gott samstarf við bæði Kristínu og Svavar Gestsson. þingflokk Kvennalistans á þingi og hægt sé. Hitt sé aftur annað að niður- staðan á landsfundi Kvennalist- ans og afleiðingar hans hafi auð- vitað áhrif á samfylkingarviðræð- ur á vinstri vængnum. í sögu samfylkingartilrauna undanfar- inna 20 ára beri ekki mest á sam- vinnu heldur frekar sundrungu. „Eg get sem dæmi nefnt samtök frjálslyndra og vinstri manna sem komu hér inn með 5 þing- menn, en enduðu í 5 pörtum í lok kjörtímabilsins. Kvennalist- inn hefur haldið lengur út en nokkurt annað stjórnmálaafl til viðbótar við fjórflokkana og þetta er því ekki að öllu leyti sambæri- legt. Það minnir þó á að ef menn ganga of langt í að taka ákvörðun um samvinnu við aðra, verða þeir stundum viðskila við félaga sína. Þá sundrast það sem átti að sameinast öðru og hættan auðvitað sú að það sé verr af staðið farið en heima setið. Þetta var það sem mér var efst í huga á landsfundi Alþýðbandalagsins um daginn, að þar yrðu menn samferða með þann lágmarks- samnefnara sem hægt væri að ná saman um og það tókst." Víti til vamaðax Ymsir hafa haldið því fram að það sem er að gerast í Kvenna- listanum núna sé samskonar uppgjör og landsfundur Alþýðu- bandalagsins hafi frestað til næsta landsfundar. Svavar segir nokkuð til í því en spurning sé um hvort það sé alltaf þörf á slíku uppgjöri. „Það myndi þá snúast um að hve miklu leyti og hvernig flokkurinn ætti að vinna með öðrum flokkum og þar held ég að Alþýðubandalagið eigi að setja sér það að vera sem heilleg- ast að lokum með sem mest í farteskinu af þeim málefnum sem það leggur áherslu á. Ég tel að niðurstaða Kvennalistans - á Ulfljótsvatni eigi að vera okkur víti til varnaðar í þessum málum, bæði Alþýðubandalaginu og Al- þýðuflokknum.“ Sighvatur Björgvinsson. Skynsamleg ákvörðun Sighvati Björg- vinssyni, for- manni Alþýðu- flokksins, komu sviptingarnar í Kvennalistan- um ekki mjög á óvart. „Það voru skiptar skoðanir á landsfundi Kvennalistans um hvað gera skyldi. Mikill meirihluti tók þá afstöðu að taka þátt í samstarfs- viðræðum á vinstri væng og ég tel það skynsamlega afstöðu. Minnihlutinn var hins vegar á móti og vildi að sú regla yrði staðfest að minnihluti geti ráðið ferðinni í slíku máli. Það varð ekki og nú bregst hluti af minni- hlutanum á landsfundinum við með því að segja sig úr Kvenna- listanum," segir Sighvatur. Hann telur ekki að klofningur skaði samstarfsviðræðurnar. Þvert á móti. Sameiginlegt fram- boð eigi að vera markmið þeirra FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997 - 9 Renault 21 Nevada 4x4 '92 rauður ek. 96 þ. km. V: 890.000,- Toyota Touring 4x4 GLi '91 vínr. ek. 97 þ. km álf. V: 900.000,- Skoda Pickup m/húsi ’93. rauður ek. 73 þ. km VSK-btll 1 eig. V: 350.000,- Bflaskiptl • Bflasala- Nissan Altima 2400Í 16v A/T ’94 silfur ek. 21 þ. míl. sóll. álf. o.fl. o.fl. V: 1.650.000,- Hyundai Sonata GSSI A/T ’96 hvítur ek. 32 þ. km sóll. álf. krókur o.fl. V: 1.550.000,- Audi 100 2.0 E ’92 þlár ek. 75 þ. km innfl. nýr. V: 1.350.000,- Subaru Impreza A/T '93 rauður ek. 4 þ. km álf. sþoiler o.fl. V: 1.000.000,- MMC L-300 4x4 2.4i Minib. '92 grænn/beis ek. 115 þ. km. V: 1.250.000,- Vantar nýlega 4x4 bíla á skrá og á staðinn Minnum á vélsleða markað okkar, góð inniaðstaða. LR Discovery dísel turbo '93 grænn ek. 72 þ. km álf. sóll. o.fl. V: 2.200.000,-____ _ _ ( bílasaunnj Höldur ehf. B í L A S A L A við Hvannavelll, Akureyri Símar 461 3019 & 461 3000 Tvær Kristínar Kvennalistans, þær Kristín Ástgeirsdóttir og Kristín Einarsdóttir eru enn samherjar, nú á nýjum vettvangi. - mynd: bg viðræðna og það sé öllum fyrir bestu að það liggi íyrir hverjir geti hugsað sé það. Nú sé ljóst að Kvennalistinn mæti heill til leiks. „Og þær konur sem mæta fyrir Kvennalistann til þessara viðræðna og mikill meirihluti kvennalistakvenna er sammála um þetta markmið og það auð- veldar okkur og léttir allar við- ræður.“ Sögulegt tækifæri Jóhannna Sig- urðardóttir hef- ur staðið í sömu sporum og Kristín, því hún sagði sig iír Al- þýðuflokknum 1994 og var utan flokka um Sigurðardóttir. a síðasta ---- kjörtímabili. Hún segist skilja Krístínu vel og vita að þettu séu þung og erfið spor. Jóhanna er hins vegar ekki sammála Kristínu um að ákvörð- un landsfundar Kvennalistans hafi verið sögulegt mistök. „Ég tel að kvennalistakonur hafi tek- ið ákvörðun sem gefur þeim sögulegt tækifæri til að hafa áhrif á samfylkingu jafnaðar- manna þannig að málefni kvenna skipa þar verulegan sess. Þær geta líka haft áhrif á völd kvenna innan slíkrar samfylking- ar,“ segir hún. Jóhanna óttast ekki frekar en Sighvatur að klofningurinn hafi slæm áhrif á samstarfsviðræð- urnar framundan. „Það er Ijóst og hefur komið fram að einstakl- ingar sérstaklega innan Alþýðu- bandalags og Kvennalista eru ósáttir við að fara í sameiginlegt framboð. Þeir hafa auðvitað full- .an rétt til að hafa sína skoðun á því, en ég hef ekki trú á að þarna sé um það stóran hóp að ræða að það trufli þennan samfylkingar- ferill." Kistulagning og jarðarför „Þetta er at- burður sem hef- ur átt sér langan aðdraganda. Þegar Kvenna- listinn fór í B- listann á sínum tíma, fór kistu- lagning fram en útförin dróst,“ segir Davíð Oddson, forsæt- isráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, um klofning Kvennalistans. „Mér sýnist að þær konur sem fóru úr Alþýðuflokki og Alþýðu- bandalagi yfir í Kvennalista séu nú að fara heim aftur. Það sem þær sögðu við kjósendur sína á sínum tíma um að þetta væri ekki félagshyggjuflokkur, eins og við héldum fram, var rangt. Þær hafa blekkt kjósendur sína í 1 5 ár og til verulegra bóta að hætta því.“ Davíð segist ekki hafa hug- mynd um hvort þessar sviptingar auki eða minnki líkur á samfylk- ingu vinstri flokkanna. Skoða- kannanir bendi til þess að Kvennalistinn hefði hvort eð er ekki fengið mikið fylgi og óvíst að hann hefði komið nokkrum konum að á þingi, jafnvel þótt nýafstaðnar sviptingar hefðu ekki orðið. „Ég er ekki viss um að hér sé um merka breytingu að ræða, frekar en þegar Þjóðvaki gekk inn í Alþýðuflokkinn eftir að hann hætti að vera til.“ Valgerður Sverrisdóttir. Keinur ekki á óvart „Þetta kemur ekki á óvart vegna niður- stöðunnar á landsfundinum og á reyndar lengri aðdrag- anda. Ég skil Kristínu ákaf- lega vel. Hún er ---- mjög sönn í sinni afstöðu til Kvennalistans og tel að hún hafi tekið þessa ákvörðun að vel yfir- lögðu ráði,“ segir Valgerður Sverrisdóttir. „Auðvitað er það áfall fyrir vinstri flokkana að Kvennalistinn skuli ekki koma sameinaður til þessa leiks. Ég geri ráð fyrir að þau haldi áfram við sitt verk, en hef verið mátulega trúuð á að það leiði til árangurs." Því hefur margoft verið haldið fram að framsóknarmenn hafi biðlað mjög til Kvennalistans í vetur og reyndar haft sérstakan augastað á Kristínu Ástgeirsdótt- ur. Valgerður segist ekki ætla að ganga hart að henni í þeim efn- um. „Hún þekkir ákaflega vel okkar stefnumál og starf hér í þinginu og hefur átt málefna- lega samleið með okkur í mörg- um málaflokkum. Mér finnst eðlilegt að hún hafi sinn tíma til að hugsa sinn gang. Það væri ákaflega mikilvægt fyrir okkur ef hún tæki þá ákvörðun að starfa frekar með okkur, en hún lýsti því yfir að hún yrði áfram í stjórnarandstöðu en myndi láta málefni ráða og við skulum bara sjá hvernig þetta þróast.“ SET ehf. Eyravegur 41-45, 800 Selfoss SET vatnsrör úr PE og PP efni eru framleidd í öllum víddum frá 16 til 500 mm að þvermáli. Rörin henta vel í vatnsveitur, hitaveitur, snjó- bræðslu, ræsi o.fl. Röraverksmiðja SET á Selfossi hefur yfir að ráða fullkomnustu tækni sem völ er á við framleiðslu á plaströrum og leggur áherslu á vöruvöndun og góða þjónustu við íslenska lagnamarkaðinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.