Dagur - 04.12.1997, Blaðsíða 2

Dagur - 04.12.1997, Blaðsíða 2
2 - FIMMTUD A GUR 4.DESEMBER 1997 XhsguT' FRETTIR Ráðgjafahópur um öryggi barnaleikfanga sem settur var á fót að frumkvæði markaðsdeildar Löggildingarstofu. Stjórnandi hans og helsti talsmaður er Birna Hreiðarsdóttir, sem situr á vinstri hönd Drífu frá Neytendasamtökunum. - mynd: hilmar Sjötta hvert bam á slysadeild á árinu Leikföng eru eitt afþví sem veldur slysum á böm- u in en þau em iiiiklu al- gengari á íslandi en ann- ars staðar. Helmingur slysanna verður iuni á heimilunum. Nýleg athugun leikfanga á markaði leiddi í ljós að víða er pottur brotinn, þótt ástandið hafi batnað. Könnunin, sem ráðgjafarhópur um öryggi barna- ieikfanga gekkst fyrir, beindist einkum að öryggismerkingum leikfanga, há- FRÉTTAVIÐ TALIÐ vaða sem fór allt upp í 103 decibil og síðast en ekki síst smáhlutum sem hætta er á að börn geti gleypt. Kinder EGG og Nestlé Magic þykja sérstakt vandamál vegna smáhlutanna sem eru inni í þeim. Ameríkuþjóðir hafa t.d. bannað sölu þeirra, en það hefur ekki verið hægt í Evrópu, vegna þess að umbúðirnar uppfylla allar kröf- ur um merkingar. Innstu dúkkurnar í rússnesku „babúskunum" eru Iíka freistandi fyrir litla munna og það sama getur t.d. átt við um ávaxtailm- andi strokleður stóra bróður. Hætt- urnar geta þannig leynst við hvert fót- mál. Afar og ömmur og foreldrar barna undir Ijögurra ára aldri eru sérstaklega beðin að gæta varúðar við kaup á jóla- gjöfum og dóti í skóinn fyrir jólin. Sér- staklega er fólk beðið að gæta þess hvort hlutirnir séu CE merktir, hvað segir á umbúðunum um aldursmörk og hvort leikföngin framleiða óþolandi ogjafnvel heilsuspillandi hávaða. Slys á börnum eru miklu algengari á íslandi en í öðrum löndum, t.d. tvöfalt algengari en í Svíþjóð. Aætlað er að fjórða hvert barn slasist árlega hér á landi. Slysadeild Borgarspítalans tók t.d. á móti hátt á sjötta þúsund slösuð- um börnum, 0-14 ára, frá áramótum til októberloka á þessu ári. Helmingur þeirra hafði slasast á heimilum sínum. - HEI Nýútkoinið smásögusafn Davíðs Oddssonar heitir eins og alþjóð veit - Nokkr- ir góðir dagar án Guðnýjar og í heita pottmum velkjast menn ekki í vafa um livar forsætisráöherra hafi feng- _______ ið nafnið á bókina. Kristín Ástgeirsdóttir þmgkona hef- ur inargoft lýst því hversu mjög henni liafi létt eftir að hún ákvað að yfirgefa þingflokk Kvenna- listans. Það ku hafa verið orðið stirt á milli hennar og Guðnýjar Guðbjömsdóttur en undan- farið hefur Kristín átt „nokkra góða daga án Guðnýjar." í pottinum vakti mikla at- hygli að á mynd í Degi í gær frá bæjar- stjómarfundi á Akureyri voru þeir Sigurður J. Sigurðsson og Jakob Bjömsson augljóslega í miklum samræðum. Veltu menn því fyrir sér hvort þessar samræður boðuðu eitt- hvað um samstarf eftir sveitarstjómarkosning- ar, en sem kunnugt er stefna A-flokkamir og kvennalisti á sameiginlegt framboð... Eftir ísafjarðarsprenging- una á dögunum hafa tveir þekktir sjálfstæðismenn losnað, sem líklegt er talið að kynnu að hafa hug á að láta til sín taka í öðrum sveitarfélögum fyrir næstu Kristján Þór Júlíusson. kosningar. Það er Kristján Þór Júlíusson sem nú þykir h'klegur sem foringi sjálfstæöismanna á Akur- eyri og Þórunii Gestsdóttir sem sumir segja að komi til álita sem viðbótar kona inn á sjálfstæð islistann í Reykjavík.... Jakob Bömsson bæjarstjóri á Akureyri Þríðjungur rekstrargjalda Akureyrarbæjar á árínu 1998 fertil fræðslumála, eða um 735 milljónirkróna, sem er hærra hlutfall en mörg undanfarín ár. Bygging íþróttamaimvirkj a eitt af forgangs verke fnuniini „Nokkur óróleiki hefur verið undanfarin misseri í kringum skólastarf á Akureyri, þá aðallega vegna sameiningar tveggja skóla í Brekkuskóla. Það hefur verið stefna meiri- hlutans á þessu kjörtímabili að efla skóla- starfið en vandkvæði við að fá réttindakenn- ara til starfa hafa aukið á vandann. Skólarn- ir hafa líka búið við bráðabirgðalausnir í húsnæðismálum, og þar má helst nefna Giljaskóla, sem hefur verið í leiguhúsnæði en flyst í nýtt húsnæði um áramót. Bæjar- stjórn hefur verið að samþykkja tillögur skólastjórnenda um vlðbætur og aukið og bætt skólastarf. Unnið er að hönnun nýrrar álmu við Síðuskóla, sem verður tekin í notk- un í byrjun skólaársins 1999/2000 en reynt er að finna svigrúm til að flýta þeirri áætl- un.“ - Nú stendur til að hækka sorphirdu- gjald? „Sorphirðugjald verður hækkað úr 2000 krónum í 3000 krónur, m.a. til að fjármagna nýtt gámasvæði við Réttarholt, sem tekið verður í notkun á morgun (í dag) klukkan 13.00, en kostnaður við það á þessu ári nemur um 10 milljónum króna. Starfsmað- ur verður á svæðinu til leiðbeiningar á flokkun. Með bættri meðferð á sorpi og minnkandi urðun hafa verið lögð á aukin sorphirðugjöld. Það byrjaði á Akureyri með pokagjaldi en sveitarfélög hafa verið að leggja allt 10 þúsund krónur á íbúð. Starf- semi Sorpsamlags Eyjafjarðar hefur aukist umtalsvert og móttaka spilliefna að sama skapi.“ Yfirbyggður knattspyrnuvöllur hefur talsvert verið i umræðunni. Verður byrjað d þeirri framkvæntd á næsta ári? „Það get ég ekki staðfest og verður ekki ákveðið fyrr en við gerð þriggja ára áætlun- ar í byrjun næsta árs. Við erum með stóra framkvæmd í íþróttamálum sem er sund- laugin sem enn þarf fjármagn en það er mikill áhugi fyrir yfirbyggingu yfir knatt- spyrnuvöll sem og skautasvell. lþróttaað- staða við Glerárskóla er góð, en síðri annars staðar og til lengri tíma munu íbúar ekki sætta sig við þá mismunun nemenda. Bygg- ing íþróttamannvirkja verður því áfram eitt af forgangsverkefnunum en það er mjög kostnaðarsamt. En við sjáum fram á fleiri kostnaðarsamar framkvæmdir, t.d. Iagningu Borgarbrautar sem kostar um 400 milljónir króna en fæst endurgreidd og byggingu rannsóknahúss við Háskólann á Akureyri er lagðar hafa verið til 10 milljónir króna, sem endurgreiðast f formi leigu á 25 árum. Meirihlutinn hefur metnað til að bæta og auka þjónustuna við íbúana, halda aftur af kostnaðarhækkunum og sýna ábyrga fjár- málastjórn.“ — gg

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.