Dagur - 04.12.1997, Blaðsíða 8
8- FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1997
ro^tr
FRÉTTIR
Lífeyrir gæti þrefaldast
Sjóðir m/ábyrgð laungreiðenda
Sameignasjóðir
Séreignasjóðir
1991
1992 1993 1994 1995
1996
Frá 1991 hafa almennir sameignarsjóðir náð hæstri raunávöxtun öll árin nema eitt,
samkvæmt útreikningum / Seðlabanka.
Hrein raunávöxtun allra lífeyris-
sjóðanna var nær 8% í fyrra og tæp
7% að meðaltali sl. fimm ár - og
yfirleitt mest hjá almennu sam-
eignarsjóðunum.
„Verði raunvextir til langframa
7% myndi ellilífeyrir frá 67 ára
aldri geta verið um þrefaldur sá
lífeyrir sem nú er lofað,“ segir
Bjarni Þórðarson tryggingafræð-
ingur í viðtali við SAL-fréttir. En
þar var þeirri spurningu varpað
fram hvort 3,5% spá um framtíð-
arvexti væri ekki allt of varfærin og
hvað gerðist ef ávöxtun lífeyris-
sjóðanna yrði til muna meiri um
einhvern tíma. Verði 7% vaxtastig
viðvarandi um nokkurt skeið
mundu menn væntanlega, að máti
Bjarna, skoða það hvort hefja
megi töku lífeyris mun fyrr eða
jafnvel beina sparnaðinum til ann-
arra þarfa. Benda má á að meðal-
ávöxtun SAL-sjóðanna hefur verið
um 7,4% á ári síðustu fimm ár.
3,5% nægja fyrir núverandi
réttindum
Félag Islenskra tryggingastærð-
fræðinga, Samband almennra líf-
eyrissjóða og Landssamband líf-
eyrissjóða hafa komið sér saman
um hvaða forsendur skuli nota
sem grundvöll að tryggingafræði-
legum athugunum á fjárhagsstöðu
sjóðanna. Þar er gert ráð fyrir að
3,5% vextir verði notaðir sem spá
um framtíðarávöxtun sjóðanna.
Að sögn Bjarna virðist 3,5% raun-
ávöxtun til langrar framtíðar
standa nokkurn veginn undir
þeim lífeyri sem SAL-sjóðirnir
miða nú við.
Viðbótaræviáriii kosta 17%
hærri iðgjöld
Auknar ævilíkur hafa einnig mikil
áhrif. Meðalævilengd íslenskra
karla hefur til dæmis aukist úr
70,7 árum á síðari hluta sjöunda
áratugarins í 76,3 ár á fyrri hluta
þessa áratugar. Að sögn Bjarna
hefur þessi lenging þau áhrif að
iðgjaldsþörf, fyrir 25 ára sjóðfé-
laga vegna ellilífeyris frá 67 ára
aldri, hefur hækkað um 17% - þ.e.
miðað við 3,5% meðalvexti, en
vaxtahækkun í 4% gæti nokkurn
veginn vegið þetta upp. Þetta sýn-
ir glöggt hvað jafnvel brot úr prós-
enti getur haft mikil áhrif á ávöxt-
un til langframa.
Um 40% lífeyrisms vegna
annars en elÚ
Heilsufar þjóðarinnar, t.d. fjölgun
öryrkja, er einnig áhrifavaldur. Af
þeim 9,3 milljörðum sem sjóðirnir
greiddu í lífeyri á síðasta ári fóru
þannig einungis rúm 60% í ellilíf-
eyri. Um 19% fóru í örorkulífeyri,
önnur 19% í makalífeyri og af-
gangurinn í barnalífeyri, sam-
kvæmt tölum frá Seðlabanka.
Seðlabankinn upplýsir einnig að
allir nema 6 fullstarfandi sam-
eignarsjóðir, án ábyrgðar annarra
(ríkisins), eigi fyrir áföllnum
skuldbindingum sínum. En hina
sjóðina 6 vanti kringum 5 millj-
arða, eða kringum 6% upp á að
eiga fyrir áföllnum skuidbinding-
um sínum. — HEI
Jolagjóf að eigin vali
er besta gjöfiri þessi pl
Gjafakortin fást í Byggt & Búið og gilda í öllum verslunum Kringlunnar
nema ÁTVR. Verðgildi 2.500 kr., 5.000 kr. og 10.000 kr.
-'.•A