Dagur - 04.12.1997, Blaðsíða 10
10- FIMMTUDAGUR 4.DESEMBER 1997
rD^tr
Atvinna
ÓSKUM EFTIR AÐ RÁÐA STARFSMENN í
P LASTVER KS M I Ð J U □ KKAR , N Ú ÞEGAR , Tl L
FRAMLEIÐSLUSTARFA.
Um er að ræoa tímabundna ráðningu.
Upplýsingar hjá framleiðslustjora í
SÍMA 462 22 1 1 EÐA Á STAONUM.
Tryggvabraut • Akureyri
HREINSIÐ
LJÓSKERIN
REGLULEGA
yUMFERÐAR
RÁÐ
FRÉTTTR
Lyfj avcrö aliiieniit
lækkað frá í vor
Meira en helmings
iiiuiiur er á hæsta og
lægsta verði flestra
lyfja og allt npp í
helmings iiiiiniir eða
meira ekki ðalgengur.
Mörg hundruð króna verðmunur
er á milli apóteka í flestum til-
fellum á algengustu lyfjum, sam-
kvæmt nýrri verðkönnun Sam-
keppnisstofnunar sem kannaði
nýlega verð á 32 algengum lyfj-
um í jafn mörgum apótekum. I
Ijós kom m.a. að öll þessi lyf,
utan þrjú, höfðu lækkað umtals-
vert í verði frá því sams konar
könnun var gerð í mars sl. Þótt
lækkun hafi orðið á hámarks-
verði nokkurra lyfjategunda á
þessu tímabili telur stofnunin
skýringuna einnig að finna í
þeirri samkeppni sem ríkir nú
orðið á lyfjamarkaðnum.
Mimurijtm allt aö 3.000 kr.
á einu lyfi
Munur á hæsta og lægsta lyfja-
verði, milli apóteka, er í flestum
tilfellum um og yfir 50% og það-
an af meiri, og allt upp í 185% á
Hýdramíl töflum, sem kostuðu
frá 176 til 501 kr. Mestur mun-
ur í krónum talið var á Roaccut-
an hylkjum, sem kostuðu frá 0
og upp í 3.000 kr. og á Nicotin-
ell forðaplástri þar sem verð-
munurinn var tæplega 2.400 kr.
Lægsta verðið var lang oftast
að finna í apótekunum í Iðufelli,
á Smiðjuvegi, á Suðurströnd og í
Hafnarfjarðarapóteki, sem öll
selja lyf á sama verði. Breiðholts-
apótek, Borgarapótek og Lyfja-
búð Hagkaups voru líka í þó
nokkrum tilfellum með lægsta
verð. - HEI
\A\
KÓPAVOGSBÆR
Hamraborg 14a
- kynning á viðbyggingu
(Verslunin Nótatún og íslandsbanki)
Stækkun grunnflatar og breytt lóðamörk.
Verslunin Nóatún og íslandsbanki hafa óskað eftir heimild
fyrir stækkun á húsnæði sínu í Hamraborg 14a og hefur
bæjarráð Kópavogs samþykkt að eftirfarandi breytingar
(viðbyggingar) verði kynntar opinberlega:
a. Stækkun verslunarhúsnæðis á jarðhæð í Hamraborg
14a um 14,3 fm. og,
b. að gert verði sameiginlegt anddyri, 3,75 fm., fyrir versl-
unarhúsnæðið og útibú íslandsbanka í Hamraborg 14a.
Uppdráttur sem sýnir fyrirhugaðar breytingar:
Lóð fyrirtækjanna verður stækkuð sem þessu nemur.
Meðfylgjandi uppdráttur sýnir fyrirhugaðar breytingar.
Þeir, sem hafa eitthvað við þessar breytingar að athuga,
eru vinsamlega beðnir að senda skriflegar athugasemdir
til Bæjarskipulags Kópavogs, Fannborg 2, 200 Kópavogi,
fyrir 8. janúar 1998.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Ástkær dóttir okkar og systir,
BRYNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR,
Oddgeirshólum,
sem andaðist á Landspítalanum miðviku-
daginn
26. nóv., verður jarðsungin trá Selfosskirkju
laugardaginn 6. des. kl. 13.30.
Margrét Einarsdóttir, Magnús Guðmundsson,
Harpa, Elín og Einar.
Yfir hringtorgid
- mynd: pjetur
Sigurður Skarphéðinsson gatna-
málastjóri segir að það hafi
aldrei verið gert ráð fyrir öðru en
ökumenn gætu keyrt yfir nýja
hringtorgið sem er á gatnamót-
um Nótatúns og Hátúns. Til að
draga úr umferðarhraða á þess-
um stað hafa hinsvegar verið sett
upp biðskyldumerki. Kostnaður
vegna hringtorgsins, sem er á
mörkum þess að geta staðið und-
ir nafni, var um 2 milljónir
króna. Ekki er gert ráð fyrir að
byggja fleiri álíka hringtorg í
borginni á næstunni. — GRH
GLÆSILEG
MORJÆII
HÖnmm
Leðuriðjan Atson Laugavegi 15 Rvík.
Veiðimaðurinn Hafnarstræti 5 Rvík.
SuNNEVA DESIGN HVANNAVÖLLUM 1R AK.
Drykkja bama
huliii foreldrum
Foreldrax vita lítið
um áfengisdrykkju
bama sinna. Staðfest
í köimimiiiii. Sam-
starfsnefnd um af-
brota- og fíkniefiia-
vamir.
Svo virðist sem vitneskju for-
eldra um áfengisdrykkju barna
sinna sé áfátt. I könnun sem
gerð var sl. sumar kom fram að
43% foreldra sem áttu börn í 10.
bekk töldu að barn þeirra hefði
drukkið áfengi af einhveiju tagi.
Það eru helmingi færri en kann-
anir sýna að hafa gert það.
Þetta kemur fram í yfirlits-
skýrslu Vímuvarnanefndar
Reykjavíkurborgar um starfsemi
nefndarinnar á tímabilinu frá
október 1995 til desember í ár
sem lögð hefur verið fram í borg-
arráði. I skýrslunni er lagt til að
skipuð verði samstarfsnefnd um
afbrota- og fíkniefnavarnir sem
taki við verkefnum Vímuvarna-
nefndar vegna þess að starfstími
hennar er útrunninn.
1 umræddri könnun sem
Rannsóknarstofnun uppeldis- og
menntamála gerði ásamt Gallup
voru foreldrar m.a. spurðir á
hvaða aldri unglingar mættu
byrja að drekka áfengi. Um 6%
foreldra töldu að unglingar
mættu aldrei drekka áfengi, 4%
að þeir mættu byrja 14-15 ára,
29% að 16-17 ára væri hæfilegur
aldur, 47% töldu 17-19 ára hæfi-
legan aldur og 14% sögðu að
unglingarnir ættu að vera 20 ára
og eldri þegar þeir byrja að neyta
áfengis.
I skýrslunni er vakin athygli á
því að þessi viðhorf foreldra séu
umhugsunarverð í Ijósi þess að í
grunnskólakönnun Rannsóknar-
stofnunar uppeldis- og mennta-
mála, RUM, frá því sl. mars hafa
rúmlega 80% nemenda í 10.
bekk drukkið áfengi. I annarri
könnun sem RUM gerði árið
1995 kom fram að 60% nem-
enda í 10. bekk höfðu orðið
drukknir af völdum áfengis.
- GRH