Dagur - 04.12.1997, Síða 12
12- FIMMTUDAGUR 4.DESEMBER 1997
ÍÞRÓTTIR
Dalglish vill kaupa
Kenny Dalglish, framkvæmda-
stjóri enska úrvalsdeildarliðsins
Newcastle, mun líklega ganga frá
kaupum á Matt Janzen, nítján
ára gömlum framherja hjá Carl-
isle, á næstunni. Bjarni Guðjóns-
son fær þá aukna samkeppni, en
hann hefur ekki fengið tækifæri
með aðalliði félagsins, þrátt fyrir
mildl forföll sóknarmanna. Búast
má við því að Kenny Dalglish
muni taka tékkheftið upp oft á
næstunni, því hann hefur fengið
vilyrði frá stjórn félagsins um
kaup á leikmönnum fyrir tíu
milljónir sterlingspunda.
Cruyff á spítala
Hollendingurinn Johan Cruyff,
fyrrum þjálfari Ajax og
Barcelona, er enn undir læknis-
hendi vegna hjartaóreglu sem
hann varð fyrir í síðustu viku. I
fréttatilkynningu frá spítalanum í
gær var sagt að hann væri á bata-
vegi og þyrfti líklega ekki að
gangast undir aðgerð. Cruyff er
fimmtugur að aldri og var þríveg-
is valinn knattspyrnumaður Evr-
ópu.
Juveutus skoðar Palace
Italska félagið Juventus hefur
hug á því að kaupa tíu prósenta
hlut í Lundúnarliðinu Crystal
Palace. Sendinefnd á vegum ítal-
ska klúbbsins mun á næstu vik-
um kynna sér alla innviði klúbbs-
ins. Ef að kaupunum verður, má
búast við því að ungir ítalskir
Ieikmenn verði settir 'í læri hjá
Lundúnarliðinu.
Puhl í ónáð hjá UEFA
Einn þekktasti knattspyrnudóm-
ari heims, Ungverjinn Sandor
Puhl, er fallinn í ónáð hjá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, eftir
dómgæslu hans í leik Feyenoord
og Manchester United í Meist-
arakeppninni. I yfirlýsingu frá
Knattspyrnusambandi Evrópu,
UEFA, segir að Puhl hafi ekki
gripið til viðeigandi ráðstafana
þegar Paul Bosveldt braut á Den-
is Irwán, leikmanni Manchester
United. Leikurinn þótti grófur,
sérstaklega af hálfu hollenska
liðsins. Þess má geta að Puhl
dæmdi í úrslitakeppni síðustu
heimsmeistara- og Evrópu-
keppni.
HANDBOLTI
Haukar umiu FH
Islandsmeistarar Hauka höfðu
betur í leik sínum við nágrann-
ana úr FH, þegar liðin mættust í
1. deild kvenna í handknattleik í
gærkvöld. Leikið var í Kaplakrika
og Haukastúlkur höfðu betur,
24:30.
Þá lagði Valur Fram að velli,
með eins marks mun í Fram-
heimilinu, 18:19 og Grótta/KR
gerði góða ferð til Eyja, þar sem
Iiðið sigraði ÍBV .
Staðan er nú þessi:
Stjarnan 11 8 2 1 270:222 18
Haukar 11 7 2 2 288:254 16
Grótta/KR 10 6 2 2 196:190 14
FH 10 5 2 4 230:228 12
ÍBV 10 4 1 5 230:238 9
Víkingur 11 4 1 6 262:272 9
Valur 11 2 2 7 206:225 6
Fram 11 0 2 9 219:272 2
Stórsigur fyrir ís-
lenskan körfubolta
„íslenska liðið var
miklu betra en ég
bjóst við,“ sagði þjálf-
ari króatíska lands-
liðsins, Medvedec,
„liðið lék virkilega
góðan vamarleik sem
setti mína menn út af
laginu og leikmenn
liðsins búa yfir mikl-
um hraða og snerpu
og þeir eiga framtíð-
ina fyrir sér.“
Það var erfið fæðingin að fyrstu
körfu Islendinga í landsleiknum
við Króata en eftir að íslensku
strákarnir komust af stað áttu
þeir í fullu tré við gestina sem
reyndar voru jafn hikandi og ís-
lensku strákarnir í byrjun. Eftir 8
mínútna leik var staðan 10:12
fyrir Króata og íslenska Iiðinu
virtist fatast flugið og Króatarnir
sigu fram úr og komust í 10:17
um miðjan fyrri hálfleik. Hittni
Islendinga var mjög slæm á þess-
um kafla og gestirnir náðu góðu
forskoti, komust í 17:30. Þá fór
Helgi Jónas Guðfinnsson fyrir al-
vöru í gang og lék fantagóða vörn
sem setti Króatana úr jafnvægi
auk þess sem Guðjón Skúlason
kom inn á í lok hálfleiksins og
skoraði strax 3ja stiga körfu og
hélt íslendingum inn í leiknum.
Jón Arnar Ingvarsson lék mjög góðan varnarleik I gærkvöld. mynd: bg
Staðan í hálfleik var 29:41 fyrir íslendingar hófu seinni hálf-
Króata. leikinn hörmulega og áður en
áhorfendur vissu af var staðan
orðin 31:52. Þá kemur Friðrik
nokkur Stefánsson frá Isafirði
inn á og gladdi áhorfendur með
frábærri troðslu. Það virkaði vel á
íslenska Iiðið sem tók heldur bet-
ur við sér og skoraði 14 stig í röð,
og 18:2 á 7 mínútna kafla. A
skömmum tíma breyttist staðan
úr 31:53 í 57:58. Það var fyrst og
fremst góður varnarleikur og frá-
bær leikstjórn Helga Jónasar
Guðfínnssonar sem lagði grunn-
inn að þessum stórkostlega kafla
í íslenskum körfubolta.
Það voru Helgi Jónas, Jón Arn-
ar, Friðrik Stefánsson, Guð-
mundur Bragason og Teitur Ör-
lygsson sem fóru á kostum á
þessum leikkafla en þreytan sagði
til sín eftir þessa gríðarlegu bar-
áttu og Króatar sigu aftur fram úr
og sigruðu að lokum 74:82.
Helgi Jónas Guðfinnsson sagði
eftir leikinn að þetta hefði verið
frábær leikur af þeirra hálfu. All-
ir hafí lagt sig fram 100% og rúm-
lega það, auk þess sem það var
mjög gaman að Ieika þennan leik.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, sagði að þessi leik-
ur hafi verið stórsigur fyrir ís-
lenskan körfubolta, það hafi ver-
ið frábært að sjá Helga Jónas al-
gjörlega virðingarlausan gagnvart
andstæðingum sínum, stýra lið-
inu að þessum hagstæðu úrslit-
um.
Tveir stigahæstu menn Islend-
inga voru Helgi Jónas Guðfinns-
son með 20 stig og Guðmundur
Bragason með 14.
Karim Yala reynir hér gegnumbrot I gegnum vörn Valsmanna. mynd: brink
UMFA efst í j ólafríiim
Afturelding stöðvaði fimm leikja
sigurgöngu Stjörnunnarí 1. deild
karla í handknattleik og Mos-
fellsbæjarliðið trónir því á toppi
deildarinnar, að minnsta kosti
fram til 6. janúar, þegar keppnin
hefst að nýju.
Skúli Gunnsteinsson og Einar
Einarsson, Ieikmenn Aftureld-
ingar, fengu blómvendi fyrir að
vera leikjahæstu menn Stjörnu-
Iiðsins. Þeir Skúli og Einar voru
ekki á þeim buxunum að þakka
fyrir örlætið og gerðu heima-
mönnum lífíð leitt, þrátt fyrir að
leika án lykilmanna eins og Berg-
sveins Bergsveinssonar og Páls
Þórólfssonar. Staðan í leikhlé var
8:12 og Afturelding náði mest sjö
marka mun, 14:21.
Atli Hilmarsson fékk að sjá
rauða spjaldið á Akureyri, þegar
heimamenn máttu játa síg sigr-
aðan gegn Val í hörkuleik. Vals-
menn voru með undirtökin
lengst af, höfðu þriggja marka
forskot í leikhléi. Munurinn var
orðinn sex mörk þegar skammt
var til Ieiksloka. Dómarar Ieiks-
ins voru arfaslakir og frumsýning
þeirra í KA-heimilinu var ekki
sniðug! Guðmundur var hins
vegar frábær í marki Valsmanna
og varði 23 skot. Einar Örn var
bestur í jöfnu liði Valsmanna og
skoraði 8 mörk.
Víkingar koma hafnfirskum -
áhorfendum á Strandgötunni í
opna skjöldu með því að halda í
við Hauka.
Urslit leikja urðu þessi:
HK-Breiðablik 33-24
KA-Valur 20-25
ÍR-ÍBV 29-28
Stjarnan-UMFA 18-23
Fram-FH 26-20
Haukar-Víkingur 28-27