Dagur - 04.12.1997, Síða 13
FIMMTUVAGUR 4.DESEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
Tveir með log-
gildingu frá ITFA
Ólafur Garðarsson. Eyjúlfur Bergþórsson.
Því má svo bæta við að skilyrði
Tveir íslendingar, þeir Ólafur
Garðarsson hæstaréttarlögmað-
ur og Eyjólfur Bergþórsson
heildsali, eru komnir með full
réttindi sem löggiltir umboðs-
mcnn fyrir knattspyrnumenn.
Þeir eru fyrstu íslendingarnir
sem gerast svokallaðir „FIFA
agents“; umboðsmenn með Iög-
gildingu alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins, en íslenskir leikmenn
hafa til þessa þurft að snúa sér til
erlendra umboðsmanna.
Ólafur sagðist búast við því að
Iitlar hreyfingar yrðu á knatt-
spyrnumönnum til erlendra liða
á næstu mánuðum, því aðalsölu-
tíminn væri liðinn. Leikmenn
eru varla söluvara nema þeir séu
í leikæfingu, og það eru þeir
kannski í einn til tvo mánuði eft-
ir að tímabilinu Iýkur hér á
landi,“ segir Ólafur, sem hyggst
vera með 15-20 íslenska knatt-
spyrnumenn á samningi þegar
fram líða stundir, en hann er
þegar kominn með tíu skjólstæð-
inga, sem hann hefur gert samn-
inga við. Ólafur er Seltirningur
og segist styðja vesturbæjarliðin
Gróttu og KR, sem hann lék með
í yngri flokkunum.
Eyjólfur Berg-
þórsson rekur
heildverslunina
Berg, en er
kannski best
þekktur fyrir
störf sín fyrir
knattspyrnu-
deild Fram, þar
sem hann hefur
verið stjórnar-
maður mörg
undanfarin ár.
„Ég hef verið að
íhuga þetta í tvö
til þrjú ár og lét
verða af þessu í
síðasta mánuði.
Það er nokkuð ljóst að þetta
kemur ekki í staðinn fyrir það
starf sem ég hef verið í, en ann-
ars verður framtfðin að leiða það
í ljós hvað gerist."
Eyjólfur sagði að fjöldi um-
boðsmanna í Þýskalandi og Bret-
landi væri um sextíu í báðum
löndunum og að sjö umboðs-
menn væru starfandi í Noregi,
en för margra íslenskra knatt-
spyrnumanna hefur verið heitið
þangað p undanförnum mánuð-
um.
þau sem FIFA setur til umboðs-
manna eru ströng, sérstaklega
hvað varðar tryggingar. Þeir sem
áhuga hafa á því að gerast um-
boðsmenn þurfa að leggja fram
bankaábyrgð að upphæð 200
þús. svissneskum frönkum (um
11 millj. fsl. króna) sem trygg-
ingu fyrir tjóni sem þeir kunna
að valda skjólstæðingum sínum,
eða knattspyrnufélögum.
- FE
Aldrei aftur með Bulls!
Scottie Pippen, stjörnuleikmað-
ur Chicago Bulls, hefur tilkynnt
liðinu að hann spili ekki með
þeim aftur. Hann hefur heimtað
að Bulls selji sig til einhvers ann-
ars liðs. Pippen hefur ekkert spil-
að með liði sínu f vetur vegna
meiðsla en hann á að vera klár í
slaginn eftir 2-3 vikur. Michael
Jordan og Phil Jackson þjálfari
eru allt annað en sáttir við fram-
komu Pippen. „Liðið vinnur ekki
titilinn án Scottie og skipið mun
því sökkva hægt og rólega en ég
yfirgef ekki sökkvandi skip eins
og rotta,“ sagði Jordan. „Það
hafði mikil áhrif á bæði það að ég
ákvað að vera eitt ár í viðbót að
Pippen yrði með liðinu og hans
mál væru komin í lag. Þetta er
Scottie Pippen.
eitthvað að klikka núna og
Pippen er að koma sér í slæma
stöðu," sagði Phil Jackson, þjálf-
ari Chicago Bulls. Það er hins
vegar hægt að skilja gremju
Scottie Pippen gagnvart Chicago
Bulls vel. Pippen er án efa einn
besti leikmaður NBA deildarinn-
ar í dag og í fyrra var hann valinn
í hóp 50 bestu leikmanna NBA
frá upphafi. Hins vegar er ekki
hægt að segja að Iaun hans séu í
samræmi við það. Pippen mun fá
2.7 milljónir dala fyrir þetta
timabil og er í 122. sæti yfir
launahæstu leikmenn deildar-
innar! Orðrómur um að Pippen
sé á leið til L.A. Lakers verður
enn háværari en samningur
Pippen rennur út í vor og þá get-
ur þessi frábæri leikmaður samið
við hvaða lið í deildinni sem er,
eða það lið sem býður best!
Snöggur
eftir kjálka-
brot
Björgvin Björgvinsson, lands-
liðsmaður í handknattleik, er
byrjaður að æfa aftur með KA-
liðinu eftir slæm meiðsli. Björg-
vin tvíkjálkabrotnaði í leik með
íslenska landsliðinu gegn Lith-
áen í Kaplakrika nú fyrir stuttu.
Björgvin spilar að vísu ekkert
með KA-liðinu fyrr en eftir ára-
mót.
Hilmar Bjarnason og Leó Örn
Þorleifsson hafa einnig átt við
meiðsli að stríða en ekki er gert
ráð fyrir þeim fyrr en á næsta ári
heldur. Þessi meiðsli lykilmanna
hafa að vísu ekki haft nein gríð-
arleg áhrif og þeir hafa unnið
síðustu tvo leiki sína í deildinni
sannfærandi, gegn ÍBV og Vík-
ing. Fróðir menn segja að end-
urkoma hins „síunga“ Erlings
Kristjánssonar hafi þessi góðu
áhrif á aðra í liðinu! — JJ
Aðalfundur
Skúlagarðs hf.
Aðalfundur í hlutafélaginu Skúlagarður hf. fyrir árið 1996
verður haldinn á 3. hæð í Hafnarstræti 20, Reykjavík,
fimmtudaginn 11. desember 1997 kl. 16.
1. Dagskrá er samkvæmt samþykktum félagsins III. kafla,
grein 3.4.:
a) Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár.
b) Rekstrar- og efnahagsreikningur félagsins
fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda félagsins.
c) Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps
félagsins á reikningsárinu.
d) Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins:
1. Tillaga um heimild til stjórnar um að auka hlutafé
félagsins um allt að 20 milljónir króna.
e) Ákvörðun um þóknun til stjórnar og endurskoðenda.
f) Kosning stjórnar.
g) Kosning endurskoðenda.
h) Önnur mál.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Bóka- og Byggðasafn
N-Þingeyinga við Kópasker
Staða bókavarðar við bókasafnið er laus til umsóknar
frá 1. janúar 1998.
Tölvukunnátta er æskileg.
Upplýsingar gefur Helga, sími 465 2135 og
Brynjar, sími 465 2240.
Samtök sykursjúkra á
Akureyri og nágrenni
Jólafundur
verður haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
laugardaginn 6. desember nk. og hefst kl. 15.00.
Veitingar í boði félagsins. Allir sykursjúkir,
aðstandendur þeirra og velunnarar
félagsins velkomnir.
Stjórnin.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 8. desember 1997 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Ásta Sigurðardóttir og Þórarinn B. Jónsson til viðtals á
skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Atvinna í boði
Okkur vantar röskan starfskraft
til starfa á Degi.
Um er að ræða krefjandi starf í prófarkalestri,
innslætti og frágangi efnis. Viðkomandi þarf
að hafa fullkomið vald á íslenskri tungu, góða
almenna tölvukunnáttu og öryggi og hraða
í innslætti á tölvu.
Áhugasamir vinsamlega sendið umsóknir með
helstu upplýsingum um menntun og fyrri störf í
afgreiðslu Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri,
merkt Próförk fyrir 13. desember.