Dagur - 06.12.1997, Page 12

Dagur - 06.12.1997, Page 12
12 -LAUGARDAGUR 6.DESEMBER 199 7 VÉLBOÐA mykjudreifarar P'’**T*P Stærðir: 4 -12 þús. lítra Flotdekk, hæöamælir, vökvadrifiö lok á lúgu, Ijósabúnaöur. VÉLBOÐI HF. Sfmi 565 1800 Hafnarfiröi. MJöggott verð og greiðstukjör við allra hæfl. Hefur þú kynnt þér kosti skjámyndakerfa AIMAX skjámyndakerfin eru auðvel í uppsetningu AIMAX skjámyndakerfin hafa einstaklega góðan svartíma AIMAX eru ódýrustu skjámyndakerfin á markaðnum Ódýrasta AIMAX skjámyndakerfið kostar einungis 39.600 (án VSK.) Lágt verð á hugbúnaði opnar nýja notkunarmöguleika Til dæmis hentar AIMAX vel í sjálfvirka hitastýringu í fjölbýlishúsum, íþróttahúsum, opinberum byggingum o.fl. Grand Hótel Reykjavík 10 og 11 des.1997 Kl. 9.00 til 17.00 Verði námskeiðsins er haldið í algjöru lágmarki og er kr. 25.000. Innifalið í þátttökugjaldinu er matur, kaffi, námskeiðsgögn og aógangur að tölvu. Fiskislóð 94 Reykjavík Sími: 561-8600 Fax:561-8606 Mjy Best Frietids Wedditig Meft íótta og vinfœfofta kvikmyadm í Baad.ankjKav.rn i íkmar fem leið. jv.lia. Robert áfarnt fleiri ftórleikvrvm fer á koftvm í óhor- gaalegri myad fem aílir verba öí fjá. ÍÞRÓTTIR Framarar rukka KR vegna Ríkharðs Fram krefur KR um hluta af leigupening- iiJiiiin frá Grikklandi. Málið þæfðist í sjö mánuði hjá KSÍ áður en úrskurður lá fyrir. Framarar segja KR fela hluta leigutekn- anna. Framarar hafa staðið í deilum við knattspyrnudeild KR, nánast allt þetta ár, vegna leiguhagnaðar KR af Ríkharði Daðasyni, frá því hann lék með Kalamata í Grikk- landi síðasta vetur. Forráðamenn Fram töldu félagið eiga rétt á hluta leigutekna KR, þar sem Ríkharður hafi leikið allan sinn feril með Fram áður en hann gekk í raðir KR-inga. Framarar vísuðu málinu til félagaskipta- nefndar KSI, sem tók málið fyrir á fundi sínum 18. september sl. Þar var KR-ingum gert að greiða Fram hlutdeild af leigutekjunum í réttu hlutfalli við Iengd samn- Ríkharður Daðason. ingstíma Ríkharðar við félögin. KR-ingar bentu hins vegar á að hvergi í lögum eða reglugerðum KSI væri að finna ákvæði um greiðslu félagaskiptagjalds vegna leigutekna á leikmanni. Þar af leiðandi ætti Fram ekkert tilkall í hluta leigugjaldsins og því hefur engin greiðsla verið innt af hendi KR. Ólafur Helgi Árnason, formað- ur knattspyrnudeildar Fram, sagði það rétt að búið væri að úr- skurða að KR greiddi fyrir Rík- harð. „Ef KR hefur tekjur af Rík- harði, hvort sem um er að ræða sölu- eða leigutekjur, eigum við rétt á hluta af því. Við eigum eft- ir að fá endanlegt uppgjör frá KR. Þetta er bara búið að taka langan tíma. Félagaskiptanefnd- in hefur verið með þetta mál í sjö eða átta mánuði.“ Samkvæmt heimildum Dags greinir félögin á um hve háar leigutekjurnar voru. Fram segir KR hafa fengið mun meiri tekjur af Ríkharði en þeir vilja vera láta þrátt fyrir að samningur KR og Kalamata hafi verið lagður fyrir félagaskiptanefndina. Ekki náðist í þann aðila hjá KR sem fer með málið. —GÞÖ Kristinn fer upp unt 24 sæti í rásröoinni Kristinn Björnsson, skíðamaður frá Olafsfirði, verður með rás- númer 25 á öðru heimsbikarmóti vetrarins í svigi, sem fram fer í Sestriere á Italíu þann 15. þessa mánaðar. Kristinn var með rás- númer 49 á fyrsta mótinu f Park City, en góður árangur hans þar lyftir honum upp um 24 sæti og það kann að skipta gífurlegu máli. Þeir sem eru með há rás- númer, eins og Kristinn var með í Park City, þurfa að kljást við erfiðari aðstæður, grafnar brautir sem gefa mun minna rennsli. Með í Evrópu- bikaruum Kristinn hefur dvalist í Lil- lehammer síð- ustu daga, en heldur á næstu dögum til Aust- urríkis, þar sem hann verður væntanlega með á Evrópubikar- móti í svigi, sem fram fer í Obereggen þann 13. þessa mánaðar. Kristinn mun nota það mót sem undirbúning fyrir mótið á Ítalíu. Skíðasam- bandið hefur fengið heimild til að senda þrjá keppendur á mótið og er það í fyrsta skipti sem Is- lendingar fá að senda svo marga keppendur til leiks. „Árangur Kristins í Park City og betri staða Islands á alþjóðavettvangi er ástæðan fyrir þvf að sögn eins forráðamanns Skíðasambands- ins. Búist er við því að þeir Haukur Arnórsson og Arnór Gunnarsson verði jafnvel á með- al keppenda, en þeir hafa báðir hug á því að keppa á Evrópubik- armótum í vetur. — FE 160 íslendingar á Anfield í dag Um 160 íslendingar héldu snemma í morgun til Liverpool, þar sem ætlunin er að fylgjast með leik Liverpool og Manchest- er United. Gífurlegur áhugi er fyrir Ieiknum, þrátt fyrir að hann geti varla talist einn af úrslita- Ieikjum ensku úrvalsdeildarinnar og uppselt var á leikinn nær strax eftir að sala hófst á miðum í haust. Þess má geta að leikurinn verður sýndur í beinni útsend- ingu á Stöð 2, en hann hefst kl. 11.15. Islenskir áhangendur ensku úrvalsdeildarliðanna láta sér fátt fyrir brjósti brenna þrátt fyrir fjarlægðina og Liverpool klúbb- urinn á Islandi varð sér út um eitt hundrað miða í haust og þrátt fyrir að hver þeirra kostaði tíu þúsund kr. voru fljótt komnir biðlistar eftir fleiri miðum. Ferðaskrifstofunni Samvinnu- ferðum-Landsýn tókst að ná í 60 miða til viðbótar frá umboðs- manni og þrátt fyrir að verð þeirra miða væri sextán þúsund krónur, seldust þeir allir upp, en þess má geta að dagsferðin sem SL gengst fyrir í dag kostar 15.300 kr. og er því aðeins ódýr- ari heldur en miðinn á leikinn. Ferðaskrifstofan fer með 360 ís- lenska ferðalanga til Liverpool í dag. Rúmlega 200 þeirra munu þó ekki fylgjast með leiknum á Anfield Road, en á hinn bóginn munu nokkrir af þeim 160 ís- lendingum, sem fylgjast með leiknum í Liverpool, ætla sér að sjá annan leik í úrvalsdeildinni um eftirmiðdaginn. Miðaverð á þá leiki er öllu hóflegra, eða 30 pund, eða sem samsvarar þrjú þúsund ísl. krónum. -FE Um helgina Karfa 1. deild kvenna Laugardagur ÍR-IS kl. 14 Keflavík-Grindavík kl. 16 Urvalsdeild Sunnudagur Haukar-KR kl. 20 Valur-Keflavík kl. 20 UMFG-ÍR kl. 20 Þór-Njarðvík kl. 20 Skallagr.-ÍA kl. 20 Tindastóll-KFÍ kl. 20 Boccia Norðurlandsmótið £ boccia verð- ur haldið í Iþróttahöllinni á Ak- ureyri í dag og hefst mótið kl. 11. J---------------^ 0RÐ DAGSINS 462 1840 ^_______________r

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.