Dagur - 13.12.1997, Blaðsíða 4
^nines
llANDj
GRÆNLAND
-HELLULAhí
(Baffin Islam
■ :-í-V '■
Torngatfjöll
MeMteví
MARKLAND
(Labrador)
*zm.s®m-
NYFUNG
(Newfot
Vintand
New Bamswíck
Tkitptr
20-LAUGARDAGUR 13 .DESEMBER 19 97
LIFIÐ t LANDINU
unum í miðaldamenningu Evr-
ópu.
Eitthvað enn? Já, siglingaafrek
og landafundir forfeðra okkar.
Fundur og landnám Færeyja, Is-
lands, Grænlands - og fundur
Vínlands hins góða. Um þessi
afrek er fjallað í þeim kafla Evr-
ópusögunnar sem gerir skil Vík-
ingatímabilinu - útþensluskeiði
norrænna þjóða. Ef þú flettir
upp í góðum Atlas um Ianda-
fundi og siglingaafrek er a.m.k.
eins Islendings ævinlega getið:
Leifs heppna. Aðrir verðskulda
að koma þar við sögu, en er
sjaldnar getið.
Þessi siglingaafrek eru heims-
söguleg. Vissulega höfðu ýmsar
fornþjóðir ýtt úr vör löngu áður.
En þær sigldu yfirleitt á innhöf-
um og með ströndum fram. Ut-
hafssiglingar um Atlantshafið og
fundur nýrra meginlanda flokk-
ast því undir meiri háttar upp-
götvanir mannsandans við að
færa út landamæri hins þekkta
heims. Til þess að vinna slík af-
rek þarf þrek, áræði og stað-
festu. Og tæknikunnáttu, sem
flokkast undir framúrstefnu-
tækni þess tíma.
Hvernig má það vera að Is-
lendingar — sem á hátíðastund-
um kaíla sig söguþjóðina - hafa
vanrækt þennan glæsilega kafla
þjóðarsögunnar jafn átakanlega
og raun ber vitni? Af seinni tíma
mönnum hefur Jón Dúason
helzt gert efninu einhver skil.
Hann fékk hins vegar litla
áheyrn hjá þjóðinni og er nú
flestum gleymdur og grafinn.
Það hefur því komið í hlut
Norðmanna að leggja rækt við
þessa sögu með rannsóknum á
siglinga- og Iandafundasögunni.
Það er Norðmaðurinn Helgi
Ingstad og kona hans sem með
fornleifarannsóknum sínum
fundu sjálfar „Leifsbúðir" á Ný-
fundnalandi, þar sem nú heitir
L’anse Aux Meadows. Leifsbúðir
eru nú þjóðgarður undir vemd
Kanadastjórnar. Þær staðfesta
sannleiksgildi Vínlandssagna um
búsetu norrænna manna í Am-
eríku og þar með sannleiksgildi
Vínlandssagna.
Mesta heimskona
sitinar tíðar
Þessi vanrækta saga er rann-
sóknarefni Páls Bergþórssonar,
veðurfræðings, í hinni nýju bók
hans, Vínlandsgátunni, sem Mál
og menning gefur út. Það er
fljótsagt að Islendingum er mik-
ill fengur að þessari bók. Höf-
undur bókarinnar er líka réttur
maður á réttum stað - og á rétt-
um tíma. Nú þegar íslendingar
eru loksins að byrja að velta því
fyrir sér, hvernig beri að minnast
fundar Vínlands hins góða um
næstu aldamót, þegar þúsund ár
eru liðin frá því að þessi afrek
voru unnin.
Páll dregur saman á einn stað
mikinn fróðleik um þetta efni,
auk þess sem tök hans á máli og
stíl gera efnið allt aðgengilegt og
áhugavert. Hann segir frá ferð-
um Bjarna Heijólfssonar, Leifs
heppna, Þorvalds bróður hans
Eiríkssonar, og ferð Þorfinns
karlsefhis og Guðríðar Þorbjarn-
ardóttur, móður Snorra, fyrsta
Evrópumannsins, sem borinn er
• - ' r , rné:> •.. >•> o«>*i >
og barnfæddur á meginlandi
Ameríku. Hann lýsir siglinga-
leiðum og siglingatækni. Hann
styðst við lýsingar hinna fornu
sagna á gróðurfari og staðhátt-
um og ber saman við umhverfið
eins og það kemur höfundi nú
fyrir sjónir. Og hann setur fram
vel rökstuddar tilgátur um, hvar
þau bar að landi og hvar þau
höfðu búsetu.
I því efni sæta mestum tíðind-
um rökstuddar kenningar hans
um að Vínland hið góða sé á
þeim slóðum þar sem nú er hin
franska Québec; að Þorvaldur,
bróðir Leifs, hafi látið lífið á
Cape North nyrzt á Breton-eyju,
fyrir norðan Nova Scotia; og að
Þorfinnur karlsefni hafi siglt
suður fyrir Cape Cod og inn í
ármynni Hudson-fljótsins þar
sem er að finna eyjaklasa í ár-
mynninu, Long Island og Staten
Island - þar sem nú er sjálf New
York borg. Á þessum sama stað
reis síðar hin volduga frelsis-
stytta og breiddi út faðm sinn
gagnvart Iandflóttamönnum
gamla heimsins af seinni kyn-
slóðum.
Við vissum alltaf að Guðríður
Þorbjarnardóttir var mesta
heimskona sinnar tíðar. Hún var
.'« .«« « . v«t r. v. V.) , frsr k = v. \*
í bókstaflegum skilningi víð-
förlasta kona miðaldasögunnar:
Fædd og uppalin á Islandi; bú-
sett á Grænlandi; búsett á meg-
inlandi Ameríku þar sem hún ól
Snorra, fyrsta Evrópubúann sem
þar fæddist; sneri aftur til
Grænlands og þaðan til íslands;
vitjaði ættingja og eigna í Nor-
egi. Og fór á efri árum í suður-
göngu til páfans í Róm til að fá
aflausn synda sinna. Hún sneri
að lokum aftur heim á leið þar
sem hún dó í friðsælli elli. Þetta
allt þóttumst við vita. En hitt er
ekki lakara að vita að heimskon-
an mikla hafi fyrst evrópskra
kvenna stigið fæti á Manhattan.
Hvað dvelur íslenzka kvik-
myndagerðarmenn að færa sam-
tímanum sögu þessarar óviðjafn-
anlegu og stórbrotnu konu á
hvíta tjaldinu?
Páll Bergþórsson rekur þessa
sögu. Höfundurinn leggur dóm
á sannleiksgildi Vínlandssagna
og annarra fornra heimilda.
Hann beitir sérþekkingu sinni
sem veðurfræðingur við að
Ieggja mat á upplýsingar sagn-
anna um gróðurfar og staðhætti
og ályktar af því um loftslag,
strauma og ísrek á siglingaleið-
Kristján Eldjám og Helge Ingstad ræða málið við fornleifauppgröftinn ÍLAnse aux Meadows.
Myndin er ú bók Páls Bergþórssonar.
Hvað er það sem íslendingar
sem þjóð hafa helzt unnið sér
til frægðar, sem lifir i vitneskju
annarra þjóða, eftir meira en
þúsund ár? Stofnun Alþingis
árið 930 og tilvist þjóðveldis-
ins, réttarríkis án ríkisvalds,
sem stóðst í meira en þrjár ald-
ir, á sama tíma og lénsveldi
ruddi sér til rúms annars staðar
í Evrópu. Bókmenntaarfur Is-
lendinga, skráður á eigin þjóð-
tungu, frá Ara til Snorra. Þess-
ar gullaldarbókmenntir hafa
öðlazt viðurkenningu erlendra
fræðimanna sem einn af tind-
Um Vínland
hið góða
Leið Leifs Eir/kssonar til 1/ínlands.
Leifur Eiríksson
ÞJ OÐLEIKHUSIÐ
Stóra sviðið kl. 20
Hamlet
William Shakespeare
Frumsýning á annan i jólum
26/12
uppselt
2. sýn. Id. 27/12
örfá sæti laus
3. sýn. sud. 28/12
nokkur sæti laus
4. sýn. sud. 4/1
nokkur sæti laus
5. sýn. fi. 8/1
nokkur sæti laus
6. sýn. föd. 9/1
nokkur sæti laus
Grandavegur 7
Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð; Kjartan
Ragnarsson og Sigríður M.
Guðmundsdóttir
þrd. 30/12
nokkur sæti laus
Id. 3/1
Fíðlarinn á þakinu
Boch/Stein/Harnick
föd. 2/1-Id. 10/1
Sýnt í Loftkastalanum
kl. 20:00
Listaverkið
Yasmine Reza
Id. 3/1 - Id. 10/1
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
mád. 15/12
Kvennakórinn
Vox Feminae
undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur flytur Maríusögur
og Ijóð ásamt vinsælum
jólalögum.
Gjafakort
gjöf sem gleður.
Miðasalan er opin mánud,-
þriðjud. 13-18, miðvikud,-
sunnud. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10
virka daga.