Dagur - 13.12.1997, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1997 - 37
LÍFIÐ í LANDINU
Landsferðlr með byr í seglin
Björn
Þorláhsson
skrifar
Lokið er tveim-
ur kvöldum í
þriggja kvölda
sveitakeppni
Bridgefélags Reykjavíkur. Eftir 9
umferðir af 12 er staðan þannig
að sveit Landsferða (samruni
Landsbréfa og Samvinnuferða)
er efst með 171 stig. Sveit
Granda er í öðru sæti með 160,
sveit Erlu Sigurjónsdóttur kem-
ur sterk inn í þriðja sætið með
156 stig og sveit Búlka er í
fj'órða sæti með 154 stig. Mót-
inu lýkur nk. miðvikudagskvöld.
Páll og Skúli leiða
Fyrri umferð í KEA hangikjöts-
tvímenningnum var spiluð 9.
desember. Páll Þórisson og
Skúli Skúlasson náðu 68,06%
skori, sem færði þeim góða for-
ystu umfram þá sem berjast í
næstu sætum. Þeir félagar
hyggja sér vísast gott til jóla-
hangikjötsins, en ekki er sopið
kálið enn eða etið ketið... Staða
efstu para:
1. Páll-Skúli 294 (68,06%)
2. Magnús Magnússon-
Sigurbjörn Haraldsson 256
(69,26%)
3. Páll Pálsson-
Þórarinn B. Jónsson 254
(58,80%)
4. Kristján Guðjónsson-
Haukur Harðarson 252
(58,33%)
5. Hilmar Jakobsson-
Ævar Armannsson 247
(57,18%)
6. Björn Þorláksson-
Reynir Helgason 234
(54,17%)
Síðari umferðin fer fram nk.
þriðjudagskvöld.
LeiMIétta Magnúsar
Athyglisvert spil kom upp síð-
asta spilakvöld og þar brá Magn-
ús Magnússon á Ieik:
Austur/allir
* G852
* DT53
* 7
* KT83
♦ D3
VÁ976
♦ DGT654
♦ 6
♦ K96
♦ Á9832
*Á954
* AT74
* KG84
♦ K
♦ DG72
Mismunandi var hvort austur
opnaði í spilinu eða ekki. Bók-
stafstrúarmenn f Standardkerf-
inu trúa því t.d. sumir að opnun
lofi 12 punktum og þar sem
Magnús Magnússon og Sigur-
björn Haraldsson sátu í AV og
Reynir-Björn NS gengu sagnir
þannig:
norður austur suður vestur
pass lgrand! 3tíglar pass
4 tíglar ? allir pass
Leikflétta Magnúsar að vekja
á 15-17 punkta grandi með
kónginn blankan í tígli og aðeins
14 punkta sló andstæðingana út
af Iaginu. Reyndar er ekki sjálf-
gefið að AV komist inn í sagnir á
jöfnum hættum eftir það og
hefði orðið háðulegt að vetjast
einu grandi í spili þar sem hálf-
slemma vinnst með því einu að
finna tígulkónginn blankan.
Vestur gat ekki sagt 2 tígla, þar
sem þeir hefðu sýnt hálit og
varð því að stökkva í 3 sem gat
verið mjög áhættusamt þar sem
suður átti eftir að segja í spilinu.
Tapslagir eru 7-8. Austur átti
e.t.v. að lyfta í 5 tígla en það er
þó eldd sjálfgefið. Tígulbúturinn
gaf sem vonlegt var heldur lélegt
skor en þó ekki mikið síðra en
að komast í geimið ódoblað.
Þeir sem „hörkuðu" sér í 5 tígla
fengu nefnilega flestir á sig
dobl!
Anton og Stefán í úrslitin
I undanúrslitum bikarkeppni
Norðurlands eystra sigraði sveit
Stefáns Vilhjálmssonar sveit
Sparisjóðs Norðlendinga með
yfirburðum og sveit Antons Har-
aldssonar sigraði sveit Stefáns
Pálssonar. Úrslitaleikurinn verð-
ur að líkindum spilaður í næstu
viku og munu sigurvegararnir
svo keppa við sigurvegarana frá
Norðurlandi vestra.
Jólablað
Á Aðfangadag, 24. desember, gefur Dagur út 32 síðna Jólablað.
r
I blaðinu verða birtar jólakveðjur frá fyrirtækjum og einstaklingum.
Þeir sem áhuga hafa á að birta jólakveðjur er vinsamlega
beðnir að panta þær sem fyrst.
Símar augl
eru 460 6191 og
glýsingadeildar
91 og 460 6192.
Sameindalíffræðisamtök Evrópu
Rannsóknastyrkir EMBO í sameindalíffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology Org-
anization, EMBO) styrkja vísindamenn sem starfa í Evrópu og (srael
til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rannsóknastofnanir á sviði
sameindalíffræði. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
Professor Frank Gannon, Executive Secretary, European Molcular
Biology Organization, Postfach 1022.40, D-69012 Heidelberg,
Þýskalandi.
Límmiði með nafni og pósfangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum.
Umsóknarfrestur um langdvalarstyrki er til 15. febrúar og 15. ágúst,
en um skammtímastyrki má senda umsókn hvenær sem er.
Upplýsingar og eyðublöð er einnig að finna á veffangi
EMBO: http://www.embo.org/
AKUREYRARBÆR
Búsetu og öldrunardeild
Forstaða sambýlis fatlaðra
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns sambýlis fatlaðra hjá
Búsetudeild Akureyrarbæjar. Leitað er eftir starfsmanni með
menntun á félags- eða uppeldissviði og/eða reynslu af starfi með
fötluðum. Starfið er laust frá 1. febrúar 1998.
Laun skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið veitir Björn Þórleifsson, deildarstjóri í síma
460 1410.
Einnig veitir starfsmannastjóri Akureyrarbæjar upplýsingar um
launakjör í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 1998.
Starfsmannastjóri.
ÚTBOÐ
RARIK óskar eftir tilboðum í:
RARIK 97011 Bygging aðveitustöðvarhúss Brennimel,
Hvalfjarðarströnd.
Útboðsgögn verða seld á aðalskrifstofu RARIK, Rauðarárstíg 10,
Reykjavík og skrifstofum RARIK Hamraendum 2, Stykkishólmi og
Sólbakka 1, Borgarnesi, frá og með miðvikudeginum 17. desember
1997. Verð fyrir hvert eintak er 5.000 kr.
Skila þarf tilboðum á aðalskrifstofu RARIK Rauðarárstíg 10, 105
Reykjavík, fyrir kl. 14 mánudaginn 12. janúar 1998. Tilboðin verða þá
opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem óska að vera nærstaddir.
Verkinu á að vera að fullu lokið 8. júní 1998.
Vinsamlega hafið tilboðin f lokuðu umslagi, merktu:
RARIK-97011 Bygging aðveitustöðvarhúss Brennimel.
^RARIK
Rauöarárstíg 10-105 Reykjavík
Sími 560-5500 - Bréfasími 560-5600
Flytjum um helgina!
Opnum mánudaginn
15. desember
á nýjum stað að Hjalteyrargötu 2
LIMMIÐAR NORÐURLANDS
Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri
Sími 462 4166 • Fax 461 3035