Dagur - 19.12.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGVR 19.DESEMBER 1997 - 5
FRÉTTIR
Unglæknar hafa
ekki atkvæðisrétt
Unglæknamir sem
undanfarid hafa hætt
störfum geta ekki tek-
iö þátt í atkvæða-
greiöslunni nm miðl-
unartillögu Ríkis-
sáttasemjara.
Ríkissáttasemjari hefur lagt fram
miðlunartillögu í kjaradeilu
Læknafélags Reykjavíkur og
Reykjavíkurborgar, en samning-
ur þessara aðila frá því á dögun-
um var nýlega felldur naumlega.
MiðlunartiIIagan gerir ekki ráð
fyrir miklum breytingum og sam-
kvæmt heimildum Dags er þar í
engu eða litlum mæli hreyft við
yfirvinnuprósentunni.
Að sögn Þóris Einarssonar rík-
issáttasemjara fer miðlunartil-
lagan beint til félaganna og
verða atkvæði greidd í Læknafé-
lagi Reykjavíkur á morgun og
framyfir hádegi á laugardag. „Eg
vil ekkert um innihald miðlunar-
tillögunnar segja, annað en að
eðli málsins samkvæmt geta ekki
orðið miklar breytingar frá fyrri
samningi," segir Þórir.
Helgi H. Helgason, aðstoðar-
Iæknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
segir í samtali við Dag að búast
megi við því að miðlunartillagan
renni greiðlega í gegn, því allur
sá fjöldi unglækna sem sagt hef-
Borgi Nilsson, nýráóinn ríkissaksóknari.
Bogi ráðinn
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra skipaði í gær Boga Nils-
son ríkislögreglustjóra í stöðu
ríkissaksóknara. Bogi tekur við
embættinu um áramótin þegar
Hallvarður Einvarðsson lætur af
störfum.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn eru komnir ! kosningaham og vanda ekki R-listanum kveðjurnar I sambandi við fjármálastjórn
hans á kjörtímabiHnu. / það minnsta finna þeir meirihlutanum allt til foráttu borgarfulltrúarnir Árni Sigfússon, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson og Inga Jóna Þórðardóttir. - mynd: e.ól.
Blekkingar og
verul eikafjrríng
Uppgjöf. Auknar álög-
ur og skuldir. Hömlu-
laus útgjöld og haUa-
rekstur.
„Fjárhagsáætlun borgarinnar
einkennist af auknurn sköttum
og skuldum, stöðnun og upp-
gjöf,“ segir Arni Sigfússon, odd-
viti sjálfstæðismanna í bogar-
stjórn. Hann ásakar R-listann
um veruleikafirringu og blekk-
ingar.
A blaðamannafundi sem sjálf-
stæðismenn boðuðu til noldíru
áður en síðari umræða hófst um
fjárhagsáætlun ReykjaHkur í gær
kom fram að álögur á borgarbúa
hafa aukist um tæpan fjórðung
að raungildi frá 1993-1996. Það
samsvarar rúmum tveimur og
hálfum milljarði króna. Þar með
er talinn holræsaskattur og arður
af borgarfyrirtækjum. Þá gera
sjálfstæðismenn ráð fyrir því að
skuldir borgarinnar hafi aukist
um 4-5 milljarða króna á kjör-
tímabilinu.
Allt úrskeiðis nema blómin
Sjálfstæðismenn vísa því á bug
að fjárhagsáætlun borgarinnar
verði hallalaus á næsta ári frekar
en yfirstandandi ári. Þaðan af
síður að tekist hafi að koma
böndum á skuldasöfnunina eins
og R-listinn hefur haldið fram.
Máli sínu til staðfestingar vísa
þeir til fréttabréfs Hagstofu Is-
lands frá því í sl. mánuði. Sam-
kvæmt því var halli á rekstri
borgarinnar með því mesta sem
gerðist í fyrra meðal hinna stærri
sveitarfélaga, eða tæpur milljarð-
ur króna. Aðeins í Mosfellsbæ og
á Akranesi var hallinn meiri. Þeir
telja einnig að hallinn á rekstri
borgarinnar verði í ár 1,3 millj-
arður króna, eða 8,95% af skatt-
tekjum borgarinnar. Á næsta ári
verður hallinn nokkru minni,
eða rétt rúmur milljaröur, eða
6,7% af skatttekjum.
Að mati sjálfstæðismanna er
nánast sama hvar borið er niður
í Qármálastjórn R-listans. Allt
hefur farið úr böndum nema
einna helst innkaup á blómum.
Arðgreiðslur borgarfyrirtækja
hafa aukist á valdatíma R-listans
og hömlulaus aukning hefur orð-
ið í rekstrarútgjöldum. Sem
dæmi benda þeir á að framlög
borgarinnar til SVR hafa aukist
um 66% frá árinu 1993 á sama
tíma og farþegum hefur ekki
fjölgað. Sömuleiðis hafa framlög
borgarinnar til félagsmálastofn-
unar aukist um 58% í miðju góð-
ærinu. — GRH
Þórir Einarsson.
ur upp störfum og hætt hafi ekki
atkvæðisrétt gagnvart miðlunar-
tillögu. „Miðlunartillagan virðist
litlu breyta um stöðuna hjá
unglæknum. Þar er ekkert hreyft
við yfirvinnuprósentunni og ann-
að tekur litlum breytingum. Mér
sýnist að þeir hafi allt eins getað
lagt fram lakari tillögu frá því
sem var, því þótt vitað sé um
óánægju meðal sérfræðinga þá
var munurinn það lítill í fyrri at-
kvæðagreiðslu að það munar
talsvert um atkvæðismissinn hjá
þeim unglæknum sem sagt hafa
upp,“ segir Helgi. Ríkissátta-
semjari staðfestir að gagnvart
miðlunartillögum embættisins
hafi einungis þeir atkvæðisrétt
sem starfandi eru. — FÞG
Eldsneyt-
isgjaldið
rættí
ílugráði
Ábendingar Samkeppnisráðs um
innheimtu eldsneytisgjaldsins
voru ítarlega ræddar á fundi
Flugráðs í gær. Engin ákvörðun
var tekin, en nú er beðið ákvörð-
unar í samgönguráðuneytinu um
framtíð innheimtunnar.
Samkeppnisráð lagði að sam-
gönguráðherra að annað hvort
innheimta gjaldið af öllum sem
fá eldsneyti á Keflavíkurflugvelli,
eða leggja gjaldið niður. Ráðið
telur það raska samkeppni að
Flugleiðir komist hjá því að
greiða gjaldið, á sama tíma og
það er þungur kostnaður hjá
samkeppnisaðilum. Á fundi
Flugráðs var talsvert rætt um
fréttir Dags af máli þessu og um
yfirlýsingar Halldórs Blöndals í
garð flugráðsmanna. — FÞG
REYKJAVÍK
Gegn einelti og
ofbeldi
Fjölskylduþjónustan Miðgarður í
Grafarvogi fær 1,5 milljón króna
viðbótarfjárveitingu frá borginni
til átaks gegn einelti og ofbeldi í
hverfinu. Peningarnir verða
einnig nýttir til að koma á fót
sérstökum stuðningi við börn
sem búa við erfiðar heimilisað-
stæður.
Svæðaskipulag
höfuðborgar-
svæðis
Borgarráð hefur samþykkt að
láta vinna svæðaskipulag fyrir
höfuðborgarsvæðið. Skipulagið
verður unnið í samvinnu við bæj-
aryfirvöld í Hafnarfirði, Garða-
bæ, Bessastaðahreppi, Kópavogi,
Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og
Kjalarnesi. I því skyni verði sett á
fót samvinnunefnd um gerð
svæðaskipulagsins. Gert er ráð
fyrir að verja 10 milljónum króna
í aðkeypta vinnu og annan
kostnað á árinu 1998. Sú fjár-
hæð skiptist á milli sveitarfélaga
í hlutfalli við íbúafj'ölda.
ístak fær
Listahúsið
Innkaupastofnun hefur lagt til
að gengið verði að tilboði Istaks
hf. í brot og uppsteypu í Lista-
safni borgarinnar í Hafnarhús-
inu. Borgarráð hefur samþykkt
erindið með fyrirvara um sam-
þykki bygginganefndar. Istak átti
lægsta tilboðið f framkvæmdirn-
ar, tæpar 40 milljónir ltróna sem
er 54,55% af kostnaðaráætlun.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarráðsfulltrúi sjálfstæðis-
manna, sat hjá við afgreiðslu
málsins vegna andstöðu við
stefnu meirihlutans í málefnum
Hafnarhússins.
Bætt þjónusta við
fjölskyldur
Borgarstjórn hyggst verja 14,6
milljónum króna vegna þróunar-
verkefnis við Mosfellsbæ um
Fjölskylduþjónustuna Samvist.
Þessi tvö bæjarfélög hafa ásamt
félagsmálaráðuneytinu staðið
fyrir sameiginlegri tilraun um
rekstur ráðgjafaþjónustu fyrir
fjölskyldur í vanda. Á milli 300-
400 einstaklingar - fjölskyldur
hafa leitað eftir aðstoð hjá Sam-
vist á árinu.
Iinira starf
grunuskólans eflt
Ætlunin er að verja 36 milljón-
um króna úr borgarsjóði til sér-
stakra verkefna til að bæta innra
starf grunnskóla borgarinnar. 1
því sambandi verður varið 27
milljónum króna umfram starfs-
áætlun Fræðslumiðstöðvar til að
skapa viðbótarstundir svo hægt
sé að sinna nemendum betur í
samræmi við mismunandi náms-
lega stöðu. Þá starfi námsráð-
gjafi í skólum með Ijölmennar
unglingadeildir. Gerð verður til-
raun f fjórum skólum með næð-
isstund og hádegishlé fyrir nem-
endur 1 .-4. bekkjar og námskeið
verða haldin fyrir foreldra 6 ára
barna. — GRH