Dagur - 19.12.1997, Page 13
FÖSTVDAGUR 19.DESEMBER 1997 - 13
GOLF
L.
Hagnaður GR miui
miuni nú en í fyrra
Hagnaður Golfklúbbs Reykjavík-
ur nam rúmum 2,4 milljónum
króna eftir afskriftir á nýafstöðnu
Ijárhagsári og er því mun minni
en í fyrra, þegar hagnaður
klúbbsins var 11,9 milljónir. Að-
alfundur kiúbbsins var haldinn
sl. sunnudag og aðeins ein breyt-
ing varð á stjórn klúbbsins.
Regína Sveinsdóttir hætti í vara-
stjórn og Gestur Jónsson hrl. tók
sæti hennar.
Óhætt er að segja að síðasta ár
hafi verið ár hinna miklu fram-
kvæmda hjá GR, þar sem fram-
kvæmdir klúbbsins á Korpúlfs-
stöðum námu 45,7 milljónum á
árinu, en af þeim kostnaði tekur
Reykjavíkurborg á sig 32,4 millj-
ónir. Rekstrartekjur klúbbsins
námu 48,3 milljónum króna, en
gjöldin tæpum 46 milljónum.
„Eg held að þetta sé viðburða-
ríkasta árið f sögu klúbbsins frá
upphafi. Þegar sýnt var að lands-
mótið yrði
hjá okkur
kom strax
upp sú hug-
mynd að
reyna halda
það á
tveimur
völlum og
þar af leið-
andi flýtt-
um við
fram-
kvæmdum,
bæði við völlinn og húsið,“ sagði
Garðar Eyland, formaður GR.
„Framkvæmdirnar eru nú að
baki og ljóst að næsta ár verður
mun rólegra. Við munum nota
það til að snyrta og betrumbæta.
Klúbburinn hefur ráðist í miklar
framkvæmdir á síðustu fimm til
sex árum og ég held það sé í lagi
að hvíla sig í eitt ár og safna
kröftum áður en blásið verður í
seglin að nýju,“ sagði Garðar.
Af ársskýrslu klúbbsins má
ráða að Landsmótshaldið hefur
ekki verið tekjulind fyrir klúbb-
inn, eða eins og einn fundargesta
orðaði það: „Þeir einu sem græða
á Landsmótinu eru Golfsam-
bandið og veitingasalarnir."
Helstu tekjur klúbbsins eru
sem fyrr af félags- og vallargjöld-
um sem skiluðu klúbbnum 30,5
milljónum. Félagsgjöld námu lið-
lega 27 milljónum, en meðlima-
fjöldi í klúbbnum hækkaði úr
900 í eitt þúsund. Þetta er í
fyrsta skipti í mörg ár sem svo
mikil fjölgun er á meðlimum, en
félagatalan hefur lengi staðið í
stað, þar sem vallaraðstaðan hef-
ur ekki boðið upp á fjölgun. Aðra
sögu er að segja nú, með tilkomu
1 8 holu vallar á Korpúlfsstöðum.
Búast má við því að stærsti
klúbbur landsins, verði enn fjöl-
mennari á næstu misserum.
Garðar Eyland,
formaður GR.
Aldrei fleiri með
holu í höggi
Fjöldi þeirra sem farið hafa holu
í höggi er kominn upp í 66 á ár-
inu og hafa aldrei verið fleiri á
einu ári. Dagur hefur birt lista
yfir þá 59 kylfinga sem fyrst
skráðu afrek sín hjá GSI. Þeir
sem á eftir komu eru eftirtaldir.
Pine Valley, eða Furudalur var valinn besti golfvöllurinn eins og svo oft áður.
Furudalur emt
í fyrsta sætinu
60. Douglas Cavaguara
9. hola, Húsatóftavelli, Grindav.
61. Sveinn Bjarnason, GH
5. hola Katlavelli, Húsavík
62. Kristín Tryggvad., GKJ
17. hola, Dunes, Bandarfkjunum
63.Sigtryggur Sigtryggsson, GR
2. hola Korpúlfsstaðavelli
64. Sigurjón Sverrisson, GK
10. hola Hvaleyrarvelli
65. Stefán Pétursson, GK
5. hola Setbergsvelli
66. Óskar B. Ingason, GO
11. hola Grafarholtsvelli
Einherjaklúbburinn mun halda
hóf fyrir Einherja á Hótel Borg
þann 30. þessa mánaðar.
Iimiaðstaðan tek-
in í notkun í
janúar
Stefnt er að því að æfingaað-
staða fyrir kylfinga að Korpúlfs-
stöðum verði tekin í gagnið í
næsta mánuði. Unnið hefur ver-
ið að viðgerðum á Korpúlfsstöð-
um að undanförnu og byrjað
verður á því að setja upp aðstöð-
una eftir áramótin. Sigurður
Pétursson golfkennari verður
þar með aðstöðu og hægt verður
að pútta, slá í net eða fara í golf-
hermi. Tveir æfingastaðir verða
reknir á Reykjavíkursvæðinu í
vetur, Golfheimur tók til starfa
að nýju f byrjun nóvember að
Vatnagörðum.
Stærstu golftímarit veraldar,
bandarísku tímaritin Golf Digest
og Golf Magazine, völdu bestu
golfvelli heims fyrir skömmu.
Urslitin komu ekki á óvart, Pine
Valley, eða Furudalur, eins og
völlurinn mundi kallast í ís-
lenskri þýðingu, var í fyrsta sæt-
inu, eins og svo oft áður undan-
farin ár. Alit manna á vellinum
er nokkuð sérkennilegt fyrir þær
sakir að ekkert stórmót hefur
verið haldið á vellinum í mörg ár.
Hannes Þorsteinsson, golfvallar-
hönnuður, skoðaði Pine Valley í
fylgd bandarískra og evrópskra
vallarhannaða og hreifst mjög af
vellinum.
Pine Valley er í New Jersey
fylki í Bandaríkjunum, mitt á
milli stórborganna Philadelphiu
og Atlantíc, en það sem Hannes
segir að hafi komið sér mest á
óvart sé kyrrðin á vellinum sem
byggður er inn í miðjum furu-
skógi og fjarri mannabyggð.
„Þetta er örugglega einn fal-
legasti völlur sem ég hef séð,
gamalgróinn og þroskaður og
umhirða vallarins er ailtaf fyrsta
flokks. Þetta er dæmigerður
heiðar\'öllur með miklu lands-
lagi, furuskógum og sandglomp-
ur eru mjög áberandi á vellin-
um,“ sagði Hannes.
Það gæti reynst erfitt fyrir fs-
lendinga að spila á vellinum.
Meðlimir í Pine Valley klúbbn-
um hafa heimild til þess að bjóða
með sér félaga, en hins vegar
þarf að panta rástíma með
margra mánaða fyrirvara.
Pine Valley hefur alltaf haft
orð á sér fyrir að vera mjög erfíð-
ur. Flatirnar eru slegnir vel nið-
ur á hveijum einasta degi og
sandglompur spila stórt hlut-
verk. Hannes sagðist minnast
tveggja þeirra; „Hells half acre“,
sem er stórt sandsvæði sem þek-
ur eina brautina og „Devil’s ass-
hole". Síðanefnda glompan þykir
bera nafn með rentu, þar sem
hún er tveggja mannhæða há, en
aðeins tjórir metrar að flatar-
máli.
Eitt af sérkennum vallarins er
sá að fjórða hola hans Iiggur að
vallarhúsinu. Ein af þekktari
sögum tengdum vellinum er af
einum meðlima klúbbsins sem
náði að leika fyrstu íjórar hol-
urnar á fimm höggum undir
pari. Sagan segir að hann hafi
komið við í klúbbhúsinu til að
róa taugarnar og drekka í sig
kjark. Glösin urðu hins vegar full
mörg og holurnar urðu ekki
fleiri.
Afqreiðslutími
verslana
Verslanir á Akureyri verða opnar
sem hér segir í desember 1997,
umfram venju:
Föstudaginn 19. des. frá kl. 09-22
Laugardaginn 20. des. frá kl. 10-22
Sunnudaginn 21. des. frá kl. 13-18
Mánudaginn 22. des. frá kl. 09-22
Þorláksmessu 23. des. frá kl. 09-23
Aðfangadag 24. des. frá kl. 09-12
Landbúnaðarráðuneytið
Tollkvótar vegna innflutnings á blómum
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu verðlagningu og
sölu á búvörum, sbr. breytingu með lögum nr. 87/1995 og með vísan
til reglugerðar dags. 17. desember 1997, er hér með auglýst eftir um-
sóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning:
Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollnúmer: kg. % kr./kg
0602.9093
Aðrar pottaplöntur til og með 1 m á hæð 01.01.-30.04.’98 2.500
30 0
0603.1009
Annars (Afskorin blóm) 01.01.-30.04.’98 5.500 30 0
Skriflegar umsóknir skulu sendar bréfleiðis eða með símbréfi til land-
búnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, og skulu hafa
borist fyrir kl. 15 mánudaginn 29. desember 1997.
Hákon Aðalsteinsson
áritar bók sína „Það var
rosalegt" í versluninni í
dag frá kl. 2-4.
B0KABÚÐ
JONASAR