Dagur - 19.12.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 19 .DESEMBER 1997 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
í hinu nýja Sjó-
mannaalmanaki
Skerplu eru tæp-
lega 800 lit-
tnyndir afskip-
um á íslandi og
einnig sérstök út-
gerðarskrá.
Þórarinn Fridjónsson, rítstjóri Sjómannaalmanaksins, gefur út Sjómannaaimanak meö sérstakrí út-
gerðarskrá auk fjölda litmynda afskipum á íslandi.
Hafsj ór upplýsinga
Af hverju er Skerpla að gefa út
sérstakt sjómannaalmanak þegar
aðrir eru að því líka? Því svarar
Þórarinn Friðjónsson, ritstjóri
almanaksins, en hann er jafn-
framt framkvæmdastjóri útgáfu-
fyrirtækisins Skerplu.
„Skerpla hefur unnið talsvert
að útgáfu og upplýsingaþjónustu
íyrir sjávarútveg. Við höfum
lengi vitað að það vantaði á
markaðinn skipaskrá með mynd-
urn og það er gamall draumur
okkar að gefa út slíka bók.
I könnunum sem við gerðum
meðal skipstjórnarmanna kom í
ljós að þeir höfðu takmarkaðan
áhuga á að fjölga tegundum
bóka á markaðnum, frekar að
bæta þær sem fyrir eru. Við
erum með þessu að reyna að
koma til móts við markaðinn,"
segir Þórarinn.
Grundvallaralriði í siglinga-
fræði
Orðið almanak í heiti bókarinn-
ar vísar til siglingaalmanaks sem
er í bókinni, en það eru töflur
í bókinni er líka sér-
stök útgerðarskrá en-
hún hefurekki verið
til áður.
yfir gang sólarinnar. Eftir þeim
geta menn reiknað út staðsetn-
ingu sína og fleira. Þessar töflur
eru grundvallaratriði í siglinga-
fræði og þykja nauðsynlegar í
bók sem þessari, þó að nú sigli
skipstjórnarmenn eftir tölvu-
væddum búnaði um höfin. Að
öðru leyti má segja að sjó-
mannaalmanak sé handbók sjó-
mannsins. Þar er að finna t.d.
flóðtöflur, vitaskrár, upplýsingar
um fjarskipti og veður, öryggi á
sjó og lög og reglur, að
ógleymdri skipaskránni.
Aflvísir og logkra ftur
„Við erum með litmyndir af öll-
uni þilfarsfiskiskipum í flotan-
um,“ segir Þórarinn. „Einnig má
nefna að nú reiknum við út afl-
\asi flestra skipa, en aflvísir er
mælieining sem notuð er lil að
skýrgreina takmörk heimilda til
togveiða innan landhelginnar.
Jafnframt má benda á nýjung
sem felst í því að við setjum
fram reiknaðan togkraft skipa,
en hann er besta mælieining um
togkraft sem til er. Hvorki aflvís-
ir né togkraftur hafa verið birtir
fyrir flotann áður, svo hér er um
mikilsverða nýjung að ræða og
nauðsynlega lýrir skipstjórnend-
ur. I bókinni er líka sérstök út-
gerðaskrá, en hún hefur ekki
verið til áður. Þar eru ítarlegri
upplýsingar um útgerðirnar en í
skipaskránni sjálfri, m.a. er getið
allra skipa sem hver útgerð er
með, auk stærðar þeirra. Jafn-
framt eru skrár um ný og af-
skráð skip, vélar, skipaskrárnúm-
er, kallmerki og umdæmisstafi.
Auk þess er skrá um opna fiski-
báta og í henni birtum við m.a.
rúmtölu þeirra," segir Þórarinn
að lokum. VS
Einn í ellefubió
Haimerljótur,en
Nú var stemmningin góð í Borg-
arbíó á Akureyri. Það er afar
gaman í bíó þegar gestirnir
skemmta sér vel og hláturinn
tekur öll völd (hamimgjusamt).
Mynd vikunnar var ég búinn að
sjá í höfuðborginni fyrir nokkru
síðan. Hún var ekkert öðruvísi
hér á Akureyri. Hún var jafn
skemmtileg. Myndin heitir
Austin Powers og er með grín-
Ieikaranum Mike Meyers í aðal-
hlutverki. A móti honum leikur
engin smá „drottning“. Elisa-
beth Hurley heitir hún. Hún er
kannski betur þekkt sem
unnusta Hugh Grants (þetta er
ekki slúðurdálkur). Það geta all-
ir gengið að því vísu að þegar
Mike Meyers leikur í kvikmynd
þá er mikil della í gangi. En
þetta eru bara frábærar „dellur“
sem koma frá honum. Það er
hægt að hlæja og gjörsamlega
gleyma sér í bíó (þetta er
kannski full djúpt í árina tekið.
Nei, nei). Mike Meyers leikur
tvö ef ekki fleiri hlutverk í
myndinni. Hann leikur að sjálf-
sögðu njósnarann Austin
Powers sem er aðalpersóna
myndarinnar. Hann er að sjálf-
sögðu Ijósmyndari að hluta-
starfi. Og sannast það enn og
aftur að ljósmyndarar njóta mik-
illar kvenhylli eins og hann í
myndinni. Hann gerir sig afar
ófríðan (ekki þegar hann er ljós-
myndari) og veldur það oft
krampaköstum (sbr. blossar í
kvikmynd, sem sýnd var í
japönsku sjónvarpi á dögunum.
En leiddi ekki til varanlegs
skaða) áhorfandans. Tennurnar
voru svakalegar. Og ekki langar
mig í kött. Eg á ekki til orð.
Kötturinn í myndinni sem lék
aðaldýrahlutverkið var hreinn
viðbjóður. Hann var hárlaus en
samt var honum strokið fram og
aftur. Ohhhhh.
Austin Powers er frábær
skemmtun. Það er gott að geta
sleppt öllu pjatti og þessu „list-
ræna“ þegar kvikmyndahús er
heimsótt. Geta sleppt sér í vit-
leysunni og haft gaman af. Einn
áhorfandi kom að máli við mig
(Davíð Hreiðarsson) í lok mynd-
ar og hafði þetta um myndina
að segja. „Snilld." Svo mörg
voru þau orð.
I lokin langar mig að mæla
með tveimur myndböndum sem
komin eru í útleigu (það er
nefnilega móðins nú að mæla
með þegar maður tekur sig há-
tíðlega og gerist „kvikmynda-
gagnrýnandi"). Privat parts og
When we where kings eru
hreint frábærar myndir.
SMÁTT OG STÓRT
Stórhöfðasvíta hin nýja
Nokkuð var ort á Alþingi í fyrra þegar Ami
Johnsen boðaði að hann hefði samið svítu, sem
Sinfóníuhljómsveit íslands myndi leika inn á
segulband. Nú
hefur Arni fengið
hljómsveitjna til að
leika þetta inn og frumflutti Stór-
höfðasvítuna af segulbandi á Stór-
höfða um síðustu helgi að viðstödd-
um nokkrum frændum og vinum.
Meðal gesta var Arni frændi Sigfús-
son borgarfulltrúi. Strax tóku hag-
yrðingar í Alþingishúsinu við sér og
ortu um atburðinn.
Fyrsti þáttur
Jón Kristjánsson orti:
Á Stórhöfða voru stólar bomir
stemmningin hún var engu lík,
komnir á staóinn félagar fornir
og frændi var mættur úr Re) kjavtk.
Lítið var þar um birtu og blíðu
beljaði tónlist í eyrum sltk,
úr bjarginu allir fuglar flýðu
ogféð hrökklaðist niður í vtk.
Hrekkjalómar þeir súpu suðu
sumirfengu að lokum ts.
Kerlingum út t bjargið buðu
þá beljaði stormurinn upp t ,fís.“
Annar þáttur
Sighvatur Björgvinsson orti:
Frændumir Johnsen t höfðann háa
með hellu t eyrunum vóru
en lundarnir skitu úr lofti á þá,
um leið og þeir kvöddu ogfóru.
Svo tæmdist aðjúllu hvert fuglabjarg
jafnvel fýllinn sat ekki kyrr,
því likt og annað eins andskotans garg
aldrei heyrðist þarfyrr.
Þriðji þáttur
Blaðamaður Dags orti:
Lokuðust björg og læstust dyr,
lurtdinn grét með ekka,
hurfu torfur, tæmdist byr
og templarar fóru að drekka.
Espaðist Kári, ýrðist haf
ærðist lús á skinni.
Músin sagði: Guð mér gaf
griðstað í holu minni.
Margir dagar með Guðnýju
Mikið hefur verið rætt niður á Alþingi
um þann atburð þegar forsætisráð-
herra kaus að skrópa við atkvæða-
greiðslu um fjárlög vegna þess að
hann var að lesa upp úr bók sinni
Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar á
veitingastaðnum Grái kötturinn.
Sumir gerðu grín og gaman úr öllu
saman en öðrum var ekki skemmt.
Nokkrir þingmenn voru að ræða sín í
milli um þetta mál. Þeirra á meðal
var húmoristinn Jón Kristjánsson.
Hann þagði lengi og hlustaði en
spratt svo upp og sagði: „Eg er í alls-
herjarnenfnd með Guðnýju Guðbjörnsdóttur. Eg ætla að skrifa
bók sem á að heita Margir góðir dagar með Guðnýju og ég ætla
að gefa hana út fyrir næstu jól og lesa upp úr henni á Rauða
ljóninu en ekki Gráa kettinum."
Orðaskil
Hún er stundum skrýtin gagnrýnin á það sem kallað er nú-
tímatónlist og textaflutningur. I Stúdentablaðinu er ung stúlka
að gagnrýna nýútkominn geisladisk sem ku heita Quarshi. Gagn-
rýnin hefst á þessa leið: „Eg er textafrík og þess vegna fékk ég
áfall þegar ég byrjaði að hlusta á diskinn sem ég hef af óljósum
ástæðum verið beðin að gagnrýna. Eg heyrði ekki orðaskil. Það
er ljóst af æstum röddum Quarshidrengjanna að þeim er mikið
niðri lyrir. Hér fer greinilega hrelld æska sem hefur ýmislegt að
segja.!!“