Dagur - 20.12.1997, Page 11
LAUGARDAGUR 20.DESEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Með vísmdin
í vasanum
Bandarísk þingnefnd
birti á íiinmtiidagiim
þúsundir blaðsíðna af
leyniskjölum frá tób-
aksframleiðendum í
Bandaríkjunum.
Þeir eru meðal annars bréf og
minnismiða sem sýna hvernig
Iögfræðingar þeirra hafa áratug-
um saman varið milljónum doll-
ara til að fá vinveitta vísinda-
menn til að bera vitni við réttar-
höld og dreifa athyglinni frá
þeim hættum sem fylgja reyking-
um.
Skjölin afhjúpa ekki beinlínis
neitt sem elcki var vitað áður í
stórum dráttum, en þau leiða í
ljós greinilegt langtíma munstur
í „viðleitni tóbaksiðnaðarins til
að finna vísindamenn sem eru
reiðubúnir til að grafa undan
þeirri hugmynd að reykingar séu
hættulegar, og afvegaleiða al-
menning," segir Henry A. Wax-
mann, þingmaður Repúblikana-
flokksins.
Leyniskjölin eru frá fjórum
áratugum, og er einkum um að
ræða bréfaskipti milli lögfræð-
inga tóbaksfyrirtækjanna þar
sem þeir Ieita leiða til að hafa
áhrif á niðurstöður rannsókna á
reykingum og reykingavenjum
ungs fólks, og velta fyrir sér þeim
lagalegu og stjórnmálalegu gryfj-
um sem forðast þyrfti í tengslum
við það.
„Vinveittir“ vísmdamenn
I Ijós kemur að tóbaksiðnaður-
inn hefur fjármagnað rannsóknir
„vinveittra" vísindamanna og
jafnvel staðið straum af fram-
færslu þeirra um lengri eða
skemmri tíma.
Sem dæmi má nefna að sam-
kvæmt minnisnótu frá 1967
lagði einn lögfæðinga tóbaksiðn-
aðarins til að efnt verði til rann-
sókna sem sýni fram á að reyk-
ingar séu góðar „fyrir marga“, og
megi nota niðurstöðurnar sem
„vísindalega staðfesta afvega-
leiðslu" til að draga úr áhyggjum
almennings. Lögfræðingurinn
skýrði frá því að ákveðinn „sér-
valinn" vísindamaður væri til í að
skrifa greinar í tímarit og koma
fram í sjónvarpi án þess að nefna
„sína eigin skoðun“, sem væri sú
að reykingar valdi sumum teg-
undum krabbameins og hjarta-
sjúkdóma.
Annað minnisblað frá 1967
sýnir hvaða áherslu tóbaksiðnað-
urinn lagði á að ná til ungs fólks.
Lögfræðingar eins fyrirtækisins
voru að velta fyrir sér að nota
„æskulýðshetjur“ á borð við sjón-
varpshljómsveitina vinsælu The
Monkees og fræga íþróttamenn
til að koma fram í sjónvarpsaug-
lýsingum. Fallið var frá því vegna
þess að talið var að andstæðing-
ar tóbaksiðnaðarins gætu reynt
að nota slíkar auglýsingar til að
koma höggi á tóbaksframleiðsl-
una. „Það gætu sem sagt orðið
boomerang-áhrif,“ sagði einn
þeirra sem kom að umfjöllun
málsins.
„Sýnir að fyrirtækjimiun er
ekki treystandi
í skýrslu frá 1983 var lagt til að
tóbaksframleiðendur legðu til
fjármagn til stofnunar baráttu-
samtaka fyrir réttindum reyk-
ingafólks, og í minnisblaði frá
1990 var rætt um sérstakt verk-
efni sem „beinir athyglinni að
ýmsum einkennum barna áður
en þau taka ákvörðun um hvort
þau eigi að byrja að reykja eða
ekki.“
I minnisblaði frá sjöunda ára-
tugnum er fjallað um kannanir á
sjónvarpsáhorfi, en þá höfðu
framleiðendur nýlega samþykkt
að draga úr sjónvarpsauglýsing-
um með þáttum þar sem börn og
unglingar eru meira en 45%
áhorfenda. Tóbaksframleiðend-
urnir voru búnir að komast að
því að þeir gætu staðið við þetta
Ioforð sitt en samt náð til áhorf-
enda á besta sjónvarpstíma þeg-
ar áhorf barna og unglinga er
39%
Tóbaksframleiðendur hafa í
lengstu lög reynt að koma í veg
fyrir birtingu skjalanna, en eftir
að þau voru birt almenningi á
fimmtudag sagði Bruce Reed,
helsti ráðgjafi Bandaríkjaforseta
í innanríkismálum, að „þessi
skjöl staðfesti að þörf sé fyrir víð-
tæka tóbakslöggjöf" og nokkrir
þingmenn sögðu þessar nýju
upplýsingar fyrst og fremst
sanna það að alls ekki sé hægt að
treysta framleiðendum.
Vilja sátt um framtíðar-
stefnu
Tóbaksfyrirtækin neita að ræða
einstök skjöl í safninu, en hvöttu
þingið til að hrinda í framkvæmd
samkomulagi stjórnarinnar og
tóbaksframleiðenda og báðu
Bandaríkjamenn um að „læra af
atburðum fortíðarinnar, en ekki
vera með þá á heilanum, og við-
urkenna gildi þess“ að ná fram
sátt um framtíðarstefnu meðal
þjóðarinnar.
Samkomulagið sem gert var í
sumar felur í sér að tóbaksfram-
leiðendur greiði tæpa 370 millj-
arða dollara gegn því að fallið
verði frá málaferlum gegn þeim
vegna þess skaða sem tóbaks-
reykingar hafa valdið. Þá kveður
samkomulagið á um að mikið
verði dregið úr tóbaksauglýsing-
um. I yfirlýsingu tóbaksframleið-
endanna segir að þessar greiðsl-
ur og þær takmarkanir sem sam-
komulagið setur á starfsemi tób-
aksfyrirtækja væru brot á banda-
rísku stjórnarskránni ef þær
væru lagðar á „einhliða af ríkis-
stjórninni" þess vegna væri ekki
hægt að ná þeim fram „nema
með samkomulagi sem fyrirtæk-
in fallast á.“
Þá segir í yfirlýsingunni að það
ætti ekki að koma neinum á
óvart „þótt tóbaksfyrirtæki hafi
þurft á ráðgjöf lögfræðinga að
halda og leitað eftir henni.“
Richard Daynard, prófessor í
lögfræði i Boston, sagði hins veg-
ar að þessi skjöl sýndu „að þessir
náungar vissu í aðalatriðum
strax á sjötta áratug aldarinnar
að framleiðsla þeirra yrði við-
skiptavinum þeirra að bana. Allt
sem þeir voru að gera miðaðist
að því að hámarka söluna og
gróðann þrátt fyrir það.“
-The Washington Post og Los
Angeles Times
HEIMURINN
Sigraði í íjörðu tilraun
SUÐUR-KÓREA - Kim Dae-jung, sem verið hefur einn ákafasti tals-
maður stjórnarandstöðunnar um áratuga skeið, bar sigur úr býtum í
forsetakosningunum í Suður-Kóreu á fimmtudag. Þetta er í fjórða
sinn sem hann býður sig fram til forseta, og jafnframt er þetta í fyrsta
sinn sem frjálsar kosningar valda stjórnarskiptum í landinu. 1 gær hét
hann því að koma á efnahagsumbótum í Iandinu, og vinna náið með
Alþjóða gjaldeyrissjóðnum til þess að vinna bug á efnahagskreppunni
sem nú ríkir þar.
ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í endurmálun á fasteignum ÍTR og
Borgarbókasafna.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri á kr. 1.000,-.
Opnun tilboða: fimmtud. 15. janúar 1998, kl. 11:00 á sama stað.
bgd142/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í endurmálun í leikskólum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri á kr. 1.000,-.
Opnun tilboða: fimmtud. 15. janúar 1998, kl. 14:00 á sama stað.
bgd 143/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í endurmálun í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri á kr. 1.000,-.
Opnun tilboða: þriðjud. 20. janúar 1998, kl. 11:00 á sama stað.
bgd 144/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í nýbyggingu og viðgerðir á Háteigsskóla.
Helstu magntölur eru:
Steypumót: 3.700 m2
Steinsteypa: 700 m3
Þakpappalögn: 1.850 m2
Utanhússklæðningar: 1.120 m!
Viðgerðir á steyptum útveggjum: 570 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr. skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: þriðjud. 20. janúar 1998, kl. 14:00 á sama stað.
bgd 145/7 HFfl innkaupastofnun
RHYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 • 121 Reykjavfk
Sími 552 5800 Bréfsfmi 562 2620
Netfang: isr@rvk.is
AÐALGEIR ÓLAFUR JÓNSSON
frá Hóium,
Eiðsvallagötu 9, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 22. desember kl. 13.30.
Systkinabörn og aðrir vandamenn.
Bróðir okkar,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON,
tæknifræðingur,
til heimilis að Slátervegen 3, Kristianstad, Svíþjóð,
lést þann 5. þessa mánaðar.
Jarðarförin hefur farið fram.
Klara, Guðjón, Guðrún og Gyða Guðmundsbörn.
Þökkum öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og
langafa,
BJÖRGVINS JÓNSSONAR,
Hlíðarvegi 2, Kópavogi.
Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Ólína Þorleifsdóttir,
Hansína Ásta Björgvinsdóttir, Ingvi Þorkelsson,
Þorleifur Björgvinsson, Inga Anna Pétursdóttir,
Jón Björgvin Björgvinsson, Halldóra Oddsdóttir,
Eyþór Björgvinsson, Ágústa Benný Herbertsdóttir,
Ingibjörg Björgvinsdóttir, Stefán Baldursson,
Elín Ebba Björgvinsdóttir, Sigurður St. Jörundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.