Dagur - 22.01.1998, Side 6
6 - FIMMTUDAGU R 2 2 . J A N Ú A 11 19 9 8
ÞJÓÐMÁL
Tkmar
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: stefán jón hafstein
eli'as snæland jónsson
Aóstoöarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Simar: 460 bioo og soo 7obo
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 KR. Á mánuði
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblad
Grænt númer: 800 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: creykjavik)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Simbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRi) 551 6270 (REYKJAVIK)
Stdrfelld hækkun
á verði iuatvnm
í fyrsta lagi
Lækkun matvöruverðs á Islandi er bara þjóðsaga. Dagur hefur
sýnt fram á það í fréttum síðustu daga að undanfarin ár hefur
verð á matvöru þvert á móti hækkað miklu meira en sem nem-
ur almennri verðbólgu í landinu. Og þar munar engum smá-
munum. Hækkunin á verði matvörunnar hefur verið meira en
tvöföld sú verðhækkun sem orðið hefur á öðrum vörum og þjón-
ustu í landinu. Ef síðustu þrjú ár eru tekin saman nemur hækk-
unin á verði matar um 12 prósentum. Aðrar vörur hækkuðu að-
eins um 5 prósent á þessu sama tímabili. Munurinn er sláandi.
f öðru lagi
Hvað þýðir þetta fyrir fólkið í landinu? Fyrst og fremst að sá
þáttur í framfærslu sérhverrar fjölskyldu sem er mikilvægastur
hefur hækkað Iangmest. Það á við um mörg algeng matvæli.
Mest er þó sláandi að skoða hækkunina á kartöflum, grænmeti,
ávöxtum og brauði - vörum sem eru hollar og nauðsynlegar á
hverju matborði. Kartöflur kosta nú 100 prósent meira en fyrir
þremur árum. Grænmeti og ávextir eru um 30 prósent dýrari.
Feitmeti hefur hækkað um 13 prósent. Brauð og kornvörur um
12 prósent. Mjólkurvörur og egg urn 11 prósent.
í þriðja lagi
Þegar Dagur leitaði skýringa á þessari óheillaþróun varð fátt um
svör hjá þeim sem eiga að fylgjast með því sem er að gerast á
þessu sviði. Ljóst er þó að þær vonir sem ýmsir bundu við lækk-
un matarverðs vegna GATT-samningsins hafa brugðist, enda
segir talsmaður landbúnaðarráðuneytisins í Degi í gær að
GA7T-samningurinn hafi þýtt hækkun en ekki lækkun vöru-
verðs. Sumir kaupmenn gagnrýna vinnubrögð fárra stórfyrir-
tækja sem eru ráðandi á smásölumarkaðinum og geti þess
vegna sett framleiðendum og heildsölum stól fyrir dyr. Verslun-
arrisarnir hafa líka byggt stórt hin sfðari ár. Ekki eru framtíðar-
áform sumra þeirra smærri í sniðum. Peningana fá þeir auðvit-
að með álagningu á vöruverð. Neytendur borga.
Elias Snæland Jónsson
Poliíísk
vettlingatök
Vettlingaræða Friðriks í afmæl-
isboði Davíðs hefur flogið eins
og besta fiskisaga um landið. í
vinahópi Garra telja menn að í
henni felist stórpólitísk tíðindi,
enda ekki á hverjum degi sem
ráðherrar segja svona brandara
um viðskipti sín við sjálfan
Davíð Oddsson. Sumir full-
yrða meira að segja að Friðrik
hafi verið að segja þessa sömu
skrítlu í þinginu fyrir jól þegar
hann var sagður hafa spurt
menn hvers vegna ráðherrar í
ríkisstjórninni yrðu að nota
belgvettlinga? „Það er
búið að slá svo oft á
puttana á þeim að þeir
komast ekki í fingra-
vettlinga," á Friðrik að
hafa sagt. En hvort sem
þetta er nú satt eða ekki
þá virðast belgvettling-
arnir fjármálaráðherr-
anum hugstæðir, fyrst
hann lætur verða af því
að senda samráðherr-
um sínum slíkt þarfaþing í
pósti. Gamanið er augljóst í
þessu, en öllu gamni fylgir jú
nokkur alvara.
Alvaran í
gamninu
Og það er einmitt „alvaran í
gamninu", sem vekur athygli
Garra og raunar fleiri. Friðrik
tekur þetta vettlingagrín nefni-
lega engum vettlingatökurr.
Þetta hljómar miklu líkara því
að þarna sé á ferðinni kald-
hæðnishúmor þess sem er að
hætta í pólitík. Og ólíkt hinum
kaldhæðna „biskupshúmor" er
eiginlega ekki hægt að mis-
skilja kaldhæðnina hjá fjár-
málaráðherra. Hann virðist
greinilega búinn að fá nóg af
V__________________________
puttaslætti og bregður á það
ráð að gera grín að málinu á
þennan hátt, frekar en að sitja
og þegja þunnu hljóði áfram.
Ekki er ólíklegt að það hafi
fyllt mælinn að Davíð lét sér
vel líka að vera heiðursgestur á
skattaráðstefnu endurskoð-
enda í síðustu viku en hvorki
Friðriki né neinum fulltrúa
hans var hleypt þar inn.
Boxhanska fyrir
Halldór?
Garri heyrir að fram-
sóknarmenn og stuðn-
ingsmenn þeirra telji
ómaklegt hjá Friðriki
að stilla framsóknar-
ráðherrum upp rétt
eins og búið væri að
brjóta þá undir húsaga
Davíðs á sama hátt og
sjálfstæðisráðherrana.
Þeir kannast ekki við að
Davíð hafi lamið á
putta sinna manna og því séu
fingravettlingar fullboðlegur
handabúnaður fyrir alla fram-
sóknarmenn. (Raunar megi
hafa fingur margra vettling-
anna í styttra lagi vegna þess
hve algengt sé að menn hafi
sagað eða sneytt framan af
fingri í Framsóknarflokknum) .
Garri heyrði það á skotspónum
í gær að einhverjir framsóknar-
menn hefðu í hyggju að fá ráð-
herrana til að skila belgvett-
Iingum Friðriks og fá í staðinn
hoxhanska. Það væri í það
minnsta hentugri búnaður fyr-
ir Halldór Ásgrímsson ef
ástandið á stjórnarheimilinu er
eins og „alvaran sem fylgir
gamninu" gefur til kynna.
GARRI.
JÓHANNES
SIGUKJÓNS
-• / SON
/1 skrifar
y
Er Lada falsaður Ferrari?
„List er ekki fölsun,“ segir í fyrir-
sögn í Degi í gær. Og er reyndar
ekki verið að fjalla um falsaða
myndlist, sem mjög er til um-
ræðu þessa dagana, heldur til-
\dtnun í Guðrúnu Helgadóttir
um harnabækur.
Hinsvegar ætti þessi setning
að hafa töluvert vægi í umræð-
unni um stórfelldar falsanir á fs-
lenskri myndlist, en allir eigend-
ur listaverka eru nú með böggum
hildar og þora varla að líta á
Kjarvalana og Svavarana sína á
veggjum uppi, af ótta við' mynd-
irnar séu falsaðar og hugsanlega
ntálaðar af einhverjum Olafi eða
Inga úti í bæ, en ekki af Kjarval
eða Svavari Guðnasyni.
Ólafur úti í bæ
En skiptir það einhverju máli
hver málaði myndirnar? List er
ekki fölsun og annað hvort eru
„listaverkin“ list eður ei. Ef gest-
ir og gangandi hafa notið þess að
List er ekki fölsun,
sagði Guðrún Helgadóttir um
barnabækur. Góð barnabók eftir
Guðrúnu Helgadóttur er jafn
góð þó í Ijós komi að hún er eft-
ir Gunnu á Grundarfirði en ekki
Guðrúnu nöfnu hennar, rithöf-
Falsaður Ferrari
Nú hafa menn
mismunandi þekk-
ingu á hlutum.
Þannig gætu bílasalar selt mér
Lödu og sagt vera Ferrari eða
Benz. Þeir gætu sem sé falsað
Ferrari-bílinn án þess ég hefði
hugmynd um það, af því að ég
geri engan greinarmun á því sem
Felix eða Guð-
bergur?
Guðrún Helgadótt/r.
horfa á stórkostlegt listaverk eft-
ir Svavar Guðnason í 30 ár og
vart getað vratni haldið yfir botn-
lausri snilldinni í verkinu, hvern-
ig má þá vera að
það sé allt í einu
orðið klessuverk ef í
Ijós kemur að ein-
hver Olafur úti í bæ
málaði það? List er
jú ekki fölsun, og
frábært verk er frá-
bært hvort sem það
er málað af Picasso,
Svavari Guðna eða
undinn fræga, þó lakari bók eftir
þá síðarnefndu myndi væntan-
lega seljast meira.
Eg var að Iesa nýjustu bók
Guðbergs Bergs-
sonar á dögunum.
Og tel hana tví-
mælalaust lista-
verk og ógleyman-
lega. En bókin
væri nákvæmlega
jafn góð þó hún
væri eftir Felix
Bergsson en ekki
Guðberg.
rúllar á fjórum hjólum, átta mig
í hæsta lagi á stærðarmun á rútu
og Trabant. Þessvegna læt ég
sérfróða menn á þessu sviði ráð-
leggja mér þegar ég kaupi bíla.
Eg á sem sé ekki skilið að eiga
bíla sem eru listaverk á borð við
Ferrari.
En ég þykist heldur ekki hafa
vit á bílum. Og geng ekki um
með stórkostlegar yfirlýsingar
um hvað bíllinn minn sé mikið
meistaraverk - ekta Ferrari.
Eigendur myndlistar sem
skynja ekki mun á verkum eftir
Svavar Guðnason og eftirmynd-
um eftir Olaf úti í bæ, eru í sömu
sporum og ég á bílaplaninu, þeir
eiga ekki skilið að eiga Svavar.
Nema því aðeins að hugsanlegt
sé að myndirnar eftir Olaf úti í
bæ séu jafngóðar og myndirnar
hans Svavars. Að verkið skipti
öllu máli, en ekki hver málaði
það. Að verðgildi þess sé aukaat-
riði, listgildið allt.
-Thyur
Er rétt að hækka leik-
skólagjöld á Akureyri
um 10%?
Sigfríðui Þorsteinsdóttir
bæjarfnlltrín Framsóhiarfloldts.
„Já, ég tel það
rétt. Spurning
er þó hvort við
eigum að skoða
betur hvernig
einstakir hópar
koma út í sam-
anburði við
önnur sveitarfé-
lög í þessum efnum og skoða
málið betur ef Akureyrarbær
kemur illa út. Við eigum að
ganga hreint til verks og standa
eldd öðruvísi að málum í ár en í
annan tíma, þó kosningar séu í
vor. Forsendur í þessu máli mið-
ast við að Akureyrarbær er einna
fyrstur sveitarfélaga að ganga frá
fjárhagsáætlun - og minni ég á
að annarsstaðar geta leikskóla-
gjöld einnig hækkað við gerð
fjárhagsáætlana þar eða þá síðar
á árinu. En við ættum að skoða
almennt hvernig Akureyri stend-
ur í ýmsum öðrum málaflokkum
borið saman við önnur byggðar-
lög landsins.“
Elín Hanna Jónsdóttir
formaðurHólmasólar - foreldrafélags
leikskðlaits Klappa við Brekkugötu.
„Nei, það er
ekki rétt. Þetta
er Ijórða árið í
röð sem leik-
skólagjöld
hækka og launa-
vísitalan og ann-
ar rekstrar-
kostnaður leika-
skólanna gefa ekki tilefni til
þessarar hækkunar, að mínu
mati."
Valgeröur Hrólfsdóttir
bæjaifulltriíi Sjáflstæðisflokks.
„Við gerð fjár-
hagsáætlunar
fyrir áramót
koraum við
sjálfstæðismenn
með tillögu þar
sem við vildum
hækka dagvist-
unargjöld um
6% og síðan um 4% á ntiðju
þessu ári. En í ljósi upplýsinga,
sem komu fram á bæjarstjórnar-
fundi í gær, þriðjudag, um að
Ieikskólagjöld í öðrum sveitarfé-
lögum væru lægri en hér í bæ,
studdum við tillögu Sigríðar
Stefánsdóttur um að fresta
hækkunum að svo komnu máli -
eða á meðan málin yrðu könnuð
nánar. Þessi tillögu felldi meiri-
hluti bæjarstjórnar.“
Gísli Bragi Hjartarson
bæjaifulltníi Alþýðufloldts.
„Þetta mál er í
skoðun og reyn-
ist það rétt að
forsendur og
upplýsingar,
sem voru lagðar
til grundvallar
við þessa hækk-
un, hafi verið
rangar verður hækkun leikskóla-
gjalda endurskoðuð. Samþykkt
hækkun tekur gildi I. febrúar, en
reynist forsendur hennar rangar
verður hún leiðrétt og fólk fær
endurgreitt."