Dagur - 22.01.1998, Síða 12
12- FIMMTUDAGUR 22.JANÚAR 1998
Leikfélag
Akureyrar
Á ferð með
frú Daisy
eftir Aifred Uhry
Hjörlum mannanna svipar
saman t Atlanta og á Akitreyri.
Úr leikdómum:
„Sigurveig ... nær hæðum ... ekki
síst í lokaatriðum í nánum sam-
lcik við Þráin Karlsson.’4
Haukur Ágústsson í Degi.
„Það er ótrúlegt hvc Þráni tekst
vel að komast inn í persónuna.“
Sveinn Haraldsson í
Morgunblaðinu.
„... einlæg og hugvekjandi
sýning sem fyllsta ástæða er
til að sjá.“
Þórgnýr Dýrfjörð í
Ríkisútvarpinu.
Sýnt á
Renniverkstæðinu
að Strandgötu 39.
8. sýning
24. janúar kl. 20.30
9. sýning
31. janúar kl. 20.30
V
Söngvaseiður
6. mars verður Samkomu-
húsið við Hafnarstræti
opnað gestum eftir gagngera
endurnýjun á áhorfendasal
með frumsýningu á þessu
hugþekka verki þeirra
Rodgers og Hammersteins.
AðalhJutverk:
Þóra Einarsdóttir
Hinrik Olafsson
Hrönn Hafliðadóttir
Jóna Fanney Svavarsdóttir.
4
Markúsar-
guðspjall
Einleikur Aðalsteins Berg-
dal.
Frumsýning á Renniverk-
stæðinu um páska.
Gjafakort í leikhúsið.
Gjöf sem gleður.
Kortasala í miðasölu
Leikfélagsins,
í Blómabúð Akureyrar
og á Café Karólínu.
Sími 462 1400
er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar
ÍÞRÓTTIR
Fram og Valur í
bikarúrslit karla
Leið Framara var létt í
bikarúrslitaleikiim í
Laugardalshölliimi.
Sigurður Sveinsson
skoraði aðeins 4 mörk
og lét verja frá sér 2
vítaköst.
Það er skemmst frá því að segja
að Framarar tóku leikinn í sínar
hendur frá fyrstu mínútu og
komust í 6-0 á fyrstu 7 mínútun-
um. Eftir það voru Kópavogsbú-
ar í eltingarleik þar sem þeir
náðu aldrei tilsettu marki og
munurinn á liðunum var allan
tímann frá 5 og upp í 7 mörk.
Þess má geta að Sigurður Valur
Sveinsson skoraði sitt fyrsta
mark eftir 16 mínútur og það var
meira en HK-liðið þoldi að þessu
sinni. Staðan í hálfleik var 16-9,
Safamýrarliðinu í vil.
HK-menn virtust vakna eilítið
af doða sínum í byrjun seinni
hálfleiks og breyttu stöðunni úr
16-9 í 16-11. Eftir það hófst
sama hjakkið aftur og Framar-
arnir leiddu með 5-6 marka
mun.
Þegar staðan var 19-14 settu
Framarar endanlega í 5. gír og
skoruðu næstu 8 mörk. Þá loks
náðu HK-menn að svara fyrir sig
en fengu viðstöðulaust 3 mörk á
sig frá Frömurum og skyndilega
var staðan orðin 30-17. Eftir
þetta voru endanlega allar víg-
tennur dregnar úr HK-mönnum
sem játuðu sig sigraða, 34-22.
Bestu menn Fram í þessum
leik voru markamaðurinn, Reyn-
ir Þór Ragnarsson, sem varði 18
skot, og Sigurpáll Arni Aðal-
steinsson sem skoraði 8 mörk og
Sigurður Helgi Pálsson sem
skoraði 4 mörk.
Hjá HK var það Alexander Arn-
arsson sem var skástur og skoraði
8 mörk og þá átti Sigurður V.
Sveinsson einnig góða spretti
með frábærum sendingum sem
gáfu af sér mörk.
Háspenna í Eyjum
Sigfús Sigurðsson tryggði Vals-
mönnum sæti í úrslitaleiknum
með því að skora sigurmarkið
gegn IBV í Eyjum í gærkvöld.
Hálf mínúta var til Ieiksloka þeg-
ar Sigfús skoraði 23ja mark Vals-
manna og Eyjamönnum tókst
ekki að svara fyrir sig í lokin.
Valsmann voru sterkari til að
byrja með og komust í 6-3 en
leikurinn jafnaðist undir miðbik
fyrri hálfleiksins og jafnt var á
flestum tölum allt til loka. Eyja-
menn náðu forystunni, 22-21,
þegar 4 mínútur voru til leiks-
loka en náðu ekki að bæta við
marki á þeim tíma. Jón Kristjáns-
son skoraði flest mörk Vals, 7
talsins, 4 þeirra út vítum, og
Zoltan Belany gerði 5 mörk fyrir
Eyjamenn, öll úr vítum.
Oánægja þjálfara
með lafir á útskrift
Kurr er meðal þjálfara sem sóttu E-stigs nám-
skeið til Þýskalands 1995. Útskrift hefur eim
ekki farið fram vegna þess að nokkrir þjálfar-
anna voru reknir úr starfi meðan á verkefna-
vinnu stóð.
Stór hópur knattspyTnuþjálfara
sem sóttu E-stigs námskeið til
Hennef í Þýskalandi í nóvember
1995 hefur enn ekki verið út-
skrifaður af námskeiðinu vegna
þess að ekki hafa allir skilað inn
lokaritgerð sinni og þar með end-
anlega lokið námskeiðinu.
Akveðið var í upphafi að allur
hópurinn útskrifaðist saman og
því er enn beðið eftir að síðasta
ritgerðin berist. Oánægja er
meðal þjálfaranna á þessum
seinagangi þar sem E-stigið er
Iokaáfangi í þjálfaranáminu og
því þurfa þeir enn að bíða eftir
því að fá fullkomin þjálfararétt-
indi að sögn eins þjálfarans sem
enn bíður eftir útskriftinni.
Brottreknir þjálfarar tefja
Gústaf Björnsson, sem sér um
menntunarmálin hjá KSI, sagði
að ástæða þessarar tafar væri sú
að nokkrir þjálfaranna hefðu ver-
ið reknir úr starfi meðan á verk-
efnavinnunni stóð og það hafi
kippt fótunum undan því starfi
sem lokaritgerð þeirra átti að
fjalla um. Formlega lauk nám-
skeiðinu í janúar 1996 og skil á
lokaverkefni um áramótin 1996 -
1997 og útskriftin átti að vera í
kjölfarið. Sú útskrift hefur því
tafist um eitt ár.
„Það er alveg rétt að það hafa
ekki allir skilað inn lokaverkefni
sínu af þessu námskeiði," sagði
Gústaf Björnsson. „Það er einn
sem á eftir að skila af sér verk-
efni og hann lendir í því í miðju
verkefninu að vera sagt upp
störfum. Þar með hrundi verk-
efnavinna hans. Sem betur fer
fór hann til starfa hjá öðru félagi
þar sem hann setti í gang svipaða
rannsókn. Þegar hann hefur lagt
lokahönd á það verður allur hóp-
urinn búinn og útskrift getur far-
ið fram.“
Gústaf sagði að vegna þess hve
atvinnuöryggi þjálfaranna væri
ótryggt hefði mátt búast við ein-
hverjum töfum. - GÞÖ
Tveir Færeyingar til Leifturs
Nú er Ijóst orðið að Færeyingarn-
ir í Leiftursliðinu verða tveir en
ekki þrír eins og til stóð í upphafi.
Landsliðsmarkvörðurinn Jens
Martin Knudsen frá Götu og
sóknarmaðurinn Uni Arge frá
HB-68 í Þórshöfn munu skrýðast
Leiftursbúningnum á næstu Ieik-
tíð. Margir fleiri útlendingar eru í
sigtinu hjá Páli Guðlaugssyni,
sem hyggst styrkja liðið enn frek-
ar með tveim til þrem erlendum
Ieikmönnum. Þar með gætu út-
Iendingarnir í Leiftursliðinu orð-
ið 5-6 á næstu leiktíð. — GÞÖ
Úrslit gærkvöldsins
Karfa — 1. deild kvenna
ÍR-KR 33:98
Keflavík-ÍS 78:53
Víkingur mætir Stjöriniiiiii
Það verða Víkingur og Stjarnan
sem leika til úrslita í bikarkeppni
kvenna. Víkingsstúlkur lögðu
Gróttu/KR að velli, 20-18, eftir að
hafa haft yfir í leikhléi 9-7. í hin-
um leik undanúrslitanna, hafði
Stjarnan yfirburði gegn IBV í
Garðabænum. Eyjastúlkur veittu
aðeins viðnám á fyrstu mínútun-
um, 6 mörkum munaði í leikhléi,
11-5, og lokatölur urðu 25-17.
ERLENT
Verdur McManaman
sektaður?
Alþjóða knattspyrnusambandið
hyggst rannsaka þátt Simon Full-
er, umboðsmanns Steve
McManaman, í viðræðum hans
við spænska liðið Barcelona.
Fuller, sem er fyrrverandi um-
boðsinaður bresku popphljóm-
sveitarinnar Spice Girls, hefur
ekki löggilt réttindi sem umboðs-
maður á vegum FIFA. Ef alþjóða
knattspyrnusambandið kemst að
þeirri niðurstöðu að Fuller hafi
farið inn á verksvið umboðs-
manna, geta bæði McManaman
og Barcelona átt yfir höfði sér
háar sektargreiðslur.
Toppliðiu uunu!
Tveir leikir fóru fram í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gær-
kvöld ogurðu úrslit Ieikja þessi:
Groþwallstadt - Lemgo 24:26
Kiel - Wallau Massenh. 25:17
ítalska bikarkeppnin
4-liða úrslit; stðari leikir:
Inter-AC Milan
AC Milan vann samanlagt 5:1
Roma-Lazio
Fyrri leikinn vann Parma 4:1
Nilfisk
14,990,-
rviögerða og—i
vðroliluíötijónusto