Dagur - 22.01.1998, Qupperneq 13
FIMM riJDAGllH 2 2 . J AN Ú A R 19 9 8 - 13
ÍÞRÓTTIR
L
Einvalalið í þraut
og stangarstokki
Þeir voru ekki margir sem höfðu
trú á tilraunum ÍR-inga til að
koma á fót alþjóðlegu innan-
hússmóti í frjálsum íþróttum fyr-
ir ári síðan, enda hafa áhuga-
menn frjálsra íþrótta ekki verið
þekktir fyrir að fjölmenna á
stærstu mót sumarsins hér inn-
anlands. Svo fór þó að eitt þús-
und áhorfendur mættu til að
fylgjast með mótinu í fyrra og IR-
ingar eru bjartsýnir að Stórmót
félagsins, sem haldið verður öðru
sinni á Iaugardaginn, verði vel
sótt.
Stjömuxnar áhugasamax
„Kostnaðurinn við þetta mót er
um tvær milljónir króna saman-
lagt og þá er allt tekið með, flug-
farseðlar og verðlaunafé og
greiðslur f)TÍr að taka þátt í mót-
inu. Flestir erlendu keppendurn-
ir sýndu málinu mikinn áhuga og
við áttum til að mynda ekki von á
því að það yrði samkeppni um að
komast í mótið, en sú hefur orð-
ið raunin. Til að mynda þurfti
Steve Fritz, sem var með fjórða
besta árangurinn í tugþraut á
síðasta ári, frá að hverfa," sagði
Vésteinn Hafsteinsson, skipu-
leggjandi mótsins. IR-ingar hafa
notið styrkja hjá íyTÍrtækjum og
að sögn Vésteins gengur dæmið
upp ef að eitt þúsund áhorfend-
ur greiða sig inn í Laugardals-
höllina. „Eg hef fundið fyrir tölu-
verðum spenningi hjá almenn-
ingi fyrir þessu móti og geri mér
góðar vonir um að dæmið gangi
upp fjárhagslega,“ segir Vésteinn
Stexkix þxautarmenn
Sjö erlendir keppendur voru með
í fyrra, en þeir verða tíu á mótinu
um helgina. Þungamiðja mótsins
verður án efa keppni í þríþraut
karla og í stangarstökki kvenna.
Jón Arnar Magnússon og Ólafur
Guðmundsson etja kappi við
Thomas Dvorak heimsmethafa í
tugþraut, Robert Zmelik heims-
meistara í sjöþraut og Banda-
ríkjamanninn Chris Huffins,
sem hefur sýnt miklar framfarir á
undanförnum misserum og er á
meðal bestu tugþrautarmanna
heims.
Vala Flosadóttir setti heims-
met unglinga í stangarstökki inn-
anhúss á Stórmóti IR í fyrra og
hún er nú að komast í sitt besta
form eftir meiðsl. Daniela Bar-
tova, sem sigraði á mótinu í
fyrra, verður með og einnig
Andrea Muller, fyrrum heims-
meistari, og Þórey Edda Elías-
dóttir úr FH sem hefur verið í
stórsókn að undanförnu.
Erlendu keppendumir
Alls verða 38 lxjálsíþróttameim með á Stór-
móti ÍR í frjálsum íþróttum á laugardaginn.
Tíu þeirra koma erlendis frá, en það eru eftir-
taldir:
Þríþraut karla: Thomas Dvorak (Tékklandi), Chris Huffins
(Bandar.), Robert Zmelik (Tékklandi).
Hástökk karla: Thomas Hansson (Svíþjóð), Vegard Hansen (Nor-
egO-
Stangarstökk kvenna: Daniela Bartova (Tékklandi), Andrea Muller
(Þýskalandi).
50 m grindahlaup kvenna: Ingeborg Leschnik (Þýskalandi), Latisha
Rivers (Bandar.).
Hiiffiiis spáð sigri
Þorsteinn Þórsson, fyrrum tug-
þrautarkappi úr IR, lagði mat á
tugþrautarmennina fjóra miðað
við árangur þeirra að undan-
förnu- og keppnisform. Sam-
kvæmt spá Þorsteins stendur
Bandaríkjamaðurinn Chris
Huffins uppi sem sigurvegari eft-
ir jafna keppni.
Útkoman úr þessari spá Þor-
steins birtist hér á eftir og í
sviga er stigagjöfin fyrir hverja
grein.
Jón Arnar Magnússon
50 m grind
Kúluvarp
Langstökk
Samtals stig:
Chris Huffins
50 m grind
Kúluvarp
Langstökk
Samtals stig:
6,80 sek (987)
15,50 m (820)
7,55 (947)
2754
6,70 sek (1018)
15,50 m (820)
7,65 m (972)
2810
Robert Zmelik
50 m grind
Kúluvarp
Langstökk
Samtals stig:
Thomas Dvorak
50 m grind
Kúluvarp
Langstökk
Samtals stig:
6,75 sek (1003)
14,50 m (759)
7,45 m(922)
2684
6,75 sek (1003)
15,70 m (833)
7,60 m (950)
2796
Forstöðumaður óskast
að leikskólanum Bergheimum,
Þorlákshöfn.
Ölfushreppur auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns
leikskólans Bergheima, Þorlákshöfn, frá og með 1. mars 1998.
Leikskólinn Bergheimar er í dag tveggja deilda leikskóli með um
75 hálfsdagspláss en í byggingu eru 2 deildir, um 210 fm sem
teknar verða í notkun á vori komandi. Starf leikskólastjóra felur
m.a. í sér faglega og rekstrarlega stjórnun leikskólans, koma að
framtíðarstefnumótun í dagvistunarmálum og móta stefnu í endur-
bótum á eldri byggingum skólans og fleira.
Upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri Ölfushrepps í síma 483
3800.
Umsóknum skal skilað fyrir 27. janúar nk. á skrifstofu
Ölfushrepps, Selvogshbraut 2, 815 Þorlákshöfn.
SKÓGRÆKT RÍKISINS
Forstöðumaður
Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins óskar að ráða forstöðumann.
Forstöðumaður fer með stjórn og ber ábyrgð á framkvæmdum
rannsóknasviðs Skógræktar ríkisins, faglega og fjárhagslega.
Samhæfir störf sérfræðinga og annarra rannsóknamanna.
Ber ábyrgð á samskiptum út á við varðandi rannsóknir.
Menntun, doktorspróf í náttúruvísindum.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar.
Upplýsingar veita Árni Bragason, forstöðumaður,
í síma 566 6014 og Jón Loftsson, skógræktarstjóri,
í síma 471 2100.
Hitaveita Reykjavíkur
óskar eftir að ráða í
eftirtaldar stöður:
Stöðu deildarstjóra á rekstrarsviði og stöðu
umsjónarmanns rafbúnaðar.
Helstu verkefni deildarstjóra á rekstrarsviði eru:
• Umsjón með rekstri dælustöðva.
• Val á búnaði í dælustöðvar.
• Umsjón með kerfislýsingum.
Leitað er að vélaverkfræðingi eða véltæknifræðingi með
starfsreynslu.
Helstu verkefni umsjónarmanns rafbúnaðar eru:
• Skipulagning og umsjón með raforkunotkun
Hitaveitunnar.
• Umsjón með rekstri háspennubúnaðar á Nesjavöllum.
Umsjón alls rafbúnaðar Hitaveitunnar.
• Umsjón iðntölva.
Leitað er að rafmagnsverkfræðingi eða raftæknifræðingi með
starfsreynslu.
Hitaveita Reykjavíkur
Hitaveita Reykjavíkur annast öll þrep jarðhitavinnslu frá rann-
sókn til dreifingar og sölu á heitu vatni. Hitaveitan er stærsta
jarðvarmaveita í heimi og er leiðandi fyrirtæki á sviði jarðhita-
vinnslu og dreifingar heits vatns til húshitunar. Hitaveita
Reykjavíkur er stærsti kaupandi raforku frá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og á Nesjavöllum er í byggingu 60 MW raforku-
ver. Boðið er upp á góða starfsaðstöðu og skapandi vinnu.
Athygli er vakin á því að það er stefna borgaryfirvalda að
auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum
borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja.
Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
Hitaveitunnar í síma 560 0126.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir fyrir
1. febrúar nk. til starfsmannastjóra
Hitaveitu Reykjavíkur, Grensásvegi 1.