Dagur - 07.02.1998, Síða 10
26 - LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
IMgur
LÍFIÐ í LANDINU
Rita Hayworth i Gildu. Gilda var hættuleg
kona og þvíþótti sígarettan hæfa henni.
Eitt mesta skað-
ræðiskvendi
hvíta tjaldsins,
Cruella de Viile,
með munnstykki
sem sýttdi að þar
fðrkona sem lét
engan stöðva sig.
unni.
Samblatid af
kvcnleika og karl-
mennsku, Mar-
leneDietrich í
jakkafötum og
með sígarettu.
Sharon Stone í
Basic Instinct,
rétt áður ett liún
sýnirMichael
Douglas að hún
erekki í nær-
buxum.
Ein fræga ástar-
sena kvikmynda-
sögunnar. Paul
Henreidermeð
tværsígaretturí
munnisínumog
kveikiríþeim.
Olivia de Haviil-
attd lék tvíbura-
systuríTheDark
Mirror. Það er að
sjáifsögðu vonda
systirinsem
heldurá sígarett-
'
jungnakrabba 57 ára gamali 9 * "
Varaforseti Bandaríkjanna AI
Gore hefur gagnrýnt reykingar
í kvikinyndum og forsetafrúin,
Hilary Clinton, hefur sömu-
leiðis lýst yfir áhyggjum sínum
og furðar sig sérstaklega á því
að Leonardo DiCaprio hafi
keðjureykt í hlutverki Rómeós.
Kannanir sýna að 80 prósent
þeirra kvikmynda sem gerðar
voru á árunum 1991 og 1996
sýndu aðalkarlleikarann með
sígarettu í munni. Kvikmynda-
mógúlar bregðast við gagnrýn-
inni og heita því að draga úr
reykingum á hvíta tjaldinu.
Ekki eru allir jafn hrifnir af
hugmyndinni og segja að A1 og
Hilary væri nær að einbeita sér
að því að bæta siðferðisþrek
forsetans á kynlífssviðinu frem-
ur en veitast að sígarettunni
sem hefur gegnt margvíslegu
hlutverki í kvikmyndum.
Sígarettan er karlmennsku-
tákn. Töffaramir reykja. Það á
jafnt við um höfuðtöffarann,
Humprey Bogart, uppreisnar-
manninn Marlon Brando og
taugaveiklaða töffarann, James
Dean. Sígarettan er haldreipi
undirmálsmannsins og undir-
strikar taugabilun hans. Geof-
frey Rush handlék sígarettuna
snilldarlega í Shine og sú notk-
un undirstrikaði svo ekki var
um villst veilumar í karakter
persónunnar. I Room with a
View hélt Daniel Day Lewis á
sígarettunni á þann hátt að
enginn var í vafa um að þar var
uppskafningur á fljúgandi ferð.
Góðu stúlkurnar reykja ekki í
kvikmyndum. Hver man eftir
að hafa séð Doris Day grípa til
sígarettunnar? Sígarettan var
og er vörumerki tálkvendisins.
Sharon Stone hélt á sígarettu
þegar hún glennti út lærin fyrir
Michael Douglas í Basic In-
stinct og opinberaði fyrir hon-
um og milljónum kvikmynda-
húsgesta að hún var ekki í nær-
buxum. Aratugum áður hafði
Marlene Dietrich svifið um
kvikmyndatjaldið í allri sinni
dýrð og sígarettan var aldrei
Ijarri. Dietrich var bisexual og
sígarettunni var ætlað að und-
irstrika hið kynferðislega frjáls-
ræði hennar. Munnstykki
Audrey Hepburn í Breakfast at
Tiffanys gæddi persónu hennar
glæsileika og gerði mönnum
ljóst að þar færi kona sem
óhrædd færi eigin leiðir. Julia
Roberts keðjureykti í My Best
Frien’s Wedding og það hæfði
óþekkum og yfirspenntum
karakter hennar vel. Munn-
stykki Cruellu De Vil í teikni-
mynd Disneys gerði persónu
hennar hins vegar óhugnanlega
og Cruella var yfirleitt umvaf-
inn hrollvekjandi reykingaskýi.
Rómantíkin blómstrar á hvíta
tjaldinu þegar karlleikarinn
kveikir í sígarettu fyrir kven-
Ieikarann. Þegar Humphrey
Bogart gaf Laureen Bacall eld í
The Big Sleep varð sú athöfn á
við djarfan ástarleik. Ein fræg-
asta ástarsena allra tíma er
Iokaatriði myndarinnar Now
Voyager. Paul Henreid setur
tvær sígarettur í munn sinn,
kveikir í þeim báðum og réttir
síðan aðra þeirra að Bette Dav-
is sem setur hana í munn sér.
Kvikmyndahúsgestir stóðu á
öndinni af hrifningu.
Það er ólíklegt að sígarettan
sé að renna sitt skeið á enda á
hvíta tjaldinu. Líklegt er þó að
draga muni mjög úr notkun
hennar. Kannski verður þróun-
in á þann veg að skúrkarnir
einir sjáist púa. Um leið er
sigarettan orðin að illmennsku-
tákni.