Dagur - 07.02.1998, Page 16

Dagur - 07.02.1998, Page 16
32 — LAUGARDAGUR 7. F E B R Ú A R 1998 Ðagur LÍFIÐ í LANDINU ................... I.IHIII1.. . —————— JÓHANNESARSPJALL ■ Konur ekki lengur heilagar kyr Konur eru sem betur fer ekki lengur heilagar kýr á Islandi eins og þær hafa ver- ið í vissum skiln- ingi undanfarinn aldarfjórðung eða svo. Á þess- um tíma, eða allt frá upphafi jafn- réttisbaráttu rauðsokka, hefur engum heilvita karlmanni dottið í hug að sproksetja konur í ræðu eða riti eða hafa uppi andóf gegn stöðugum alhæfingum þeirra um hið ömurlega karlkyn. Málflutningur margra kvenna á þessu tímabili hefur oftar en ekki verið á þeim nótum að helsta hlutverk og yndi karlmanna á þessari jörð væri að gera konum allan þann óskunda sem þeir gætu. Ein kynslóð karlmanna hefur mátt taka á sig vammir og skammir og axla byrðamar af sví- virðilegri framkomu karla við konur sl. 10.000 ár eða svo. Við erum karlrembusvínin og pung- rotturnar sem hýrudrögum konur á hárinu (en ekki asnaeyrunum) í atvinnulífinu og njörfum þær nið- ur í eldhúsinu. Við erum þrösk- uldarnir og ljónin í vegi hinna frjáisbomu kvenna og komum í veg fyrir að þær fái að njóta sín heima og heiman. Þúsund ára misrétti Það er kannski ekki furða þó þorri karlmanna þjáist af sektar- kennd á háu stigi. Enda náttúr- lega ekkert smáræði að þurfa að standa ábyrgir fyrir öllu misrétti sem konur hafa verið beittar á jörðinni í þúsundir ára. Og enginn vinnandi vegur hefur verið að losna við þessa sektarkennd með því að tjá sig um málið, lýsa skoðunum sínum í þessum efnum í ræðu og riti, því konur hafa verið heilagar kýr, hinar ósnertanlegu. Og því miður hafa margir karlar sem tregt hefur verið tungu að hræra, brugðist við með því að snerta konur með hnúum og hnefum á heimilinu. Slíkt er auðvitað síðasta úrræði hinna getulausu og er ófyrirgefanlegt. Fótakefli kvernia Á þessum tíma hafa konur vaðið fram sem boðberar jafnréttis og réttlætis, undir gunnfánum hins eina sannleika, vammi firrtar en undirokaðar af þrælahöldurum allra tíma, karlmönnum. Og karlar hafa setið undir áróðrin- um hnípnir og þögulir. Einstaka maður hefur maldað í móinn, auðvitað viðurkennt ríkjandi misrétti, en einnig sagt sem svo að hugsanlega væri konum hollt að líta í eigin barm, e.t.v. væri það undir þeim sjálfum komið að hluta hvernig komið væri þeirra persónulegu og þjóðfé- Iagslegu högum. Og nú stendur hrópandinn ekki Iengur einn í eyðimörkinni. Kórinn er orðinn margradda og ekki hreinræktaður karlakór, heldur blandaður og hann syng- ur lagið: Konur eru fótakefli kvenna. Konuin verstar Konur eru sem sé konum verst- ar. Konur kjósa ekki konur. Ef svo væri þá væru jafnmargar konur í sveitarstjórnum og á al- þingi og karlmenn. Konur treysta sem sé ekki konum til ábyrgðarstarfa, þær standa ekki saman. Af þeirri einföldu megin- ástæðu að konur eiga það sam- eiginlegt með karlmönnum að þær eru ekki allar eins, hugsa öðru vísi, hafa mismunandi skoðanir á málum. Konur hefðu líka, á sl. 25-30 árum, getað alið upp syni sína í anda jafnréttis og innrætt þeim kvenótta og góða siði. Fátt bendir til að það hafi tekist og hinir ungu synir kvenna, jafnvel einstæðra kvenna, eru hugsan- lega enn meiri karlrembusvín en feður þeirra. Kynstudningur? Nýlega hefur verið mikil um- ræða það misrétti sem konur þurfa að búa við á sviði íþrótta þar sem öllu fjármagni sé varið í karlaíþróttir. Þetta er rétt. En íþróttir karla eru margfalt vin- sælli en íþróttir kvenna. Hvers- vegna? Ekki endilega vegna þess að karlar séu betri íþróttamenn, heldur vegna þess að konur koma ekki til að horfa á kynsyst- ur sínar í íþróttum. Hversvegna streyma konur ekki þúsundum saman á landsleiki kvenna í handbolta og fótbolta eins og karlar gera þegar karlalandsliðin eru að spila? Konur styðja sem sé ekki konur í íþróttum frekar en á öðrum sviðum, í menning- arlífi eða pólitík. Og þetta er ekkert undarlegt. Það hefur aldrei verið nein heildarsamstaða karlmanna í þessu landi í nokkrum málum. Og engin ástæða til að ætla að slíkt gerist hjá konum. Það er feillinn í allri umræðunni und- anfarinn aldarfjórðung. Fólk skiptist sem sé ekki endilega fyrst og fremst í karla og konur. Fólk er einstaklingar, Reykvík- ingar, Akureyringar, frímúrarar, íþróttafrík, sjómenn, læknar, ríkt, fátækt. Fólk er sem sé mis- munandi á fleiri vegu en kyn- ferðslega. Það er nú allt og sumt. Jóhannes Sigurjónsson skrífar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.