Dagur - 07.02.1998, Qupperneq 17

Dagur - 07.02.1998, Qupperneq 17
LAUGARDAGVR 7. FF.BRÚAR 199 8- 33 LÍFIÐ í LANDINU Skipulagður fótbolti „KSÍþarf að setja sér langtíma markmið til að ná betri árangri i alþjóðaknattspyrnu, “ segir Rolf R Ingvaldsen, sem er einn af mönnun- um á bak við norska „knattspyrnuundrið". mynd: hilmar. Norðmenn og íslend- ingarvoru fyrir nokkrum árum álíka sterkirá knattspymu- vellinum. Nú em frændur vorir langtum fremri. Ástæðan er skipulögð vinna þjálf- ara og leikmanna. Rolf P. Ingvaldsen er norskur prófessor í tauga- og íþróttasál- fræði og einn af þjálfurum knattspyrnustórveldisins Rosen- borg. Dagur hitti Rolf að máli og spurði hann fyrst hver væri lyk- illinn að uppgangi norskra íþróttamanna. „Ef við snúum okkur að skíð- unum fyrst þá er Ingimar Sten- mark upphafspunktur þess mikla skíðaáhuga sem nú er í Noregi og víðar á Norðurlönd- um. Stenmark var mjög fjölhæf- ur og mikill íþróttamaður. Skíðaþjálfarar í Noregi horfðu á hvernig Stenmark gerði hlutina, en tóku ekki eftir af hverju hann gat gert þá. Ingimar Stenmark var alhliða íþróttamaður, í mjög góðu líkamlegu úthaldi, sérlega lipur og hafði þann líkamlega styrk sem til þurfti auk tækninn- ar. I dag hafa norskir þjálfarar lært að greina vandamálin. Þeir vita að það eru margir hlutir sem þurfa að fara saman í þjálfuninni. Þol, kraftur og lip- urð eru grundvöllurinn sem þarf þegar farið er að æfa tæknilegu atriðin. Þegar þessir hlutir fóru allir saman hjá norska skíðafólk- inu skilaði það sér í Olympíu- og heimsmeistaratitlum.“ Norska fótboltaundrið Fyriri 10-15 árum síðan stóðu íslenska og norska knattspyrnan jafnfætis. Nú er himinn og haf á milli. Norska landsliðið og Ros- enborg eru skýrustu dæmi þess. „Mikil uppbygging hefur átt sér stað í norskri knattspyrnu. Við fundum 10 efnilegustu og bestu leikmenn landsins í hverri stöðu. Þá höfðum við 110 norska leikmenn til að byggja á. Þessir leikmenn voru vel á sig komnir og þjálfaðir í öllum grundvallaratriðum knattspyrn- unnar. Hlaup með bolta, send- ingar á ferð, móttaka bolta á ferð, skot í skrefinu og öll þau atriði sem prýða þurfa framúr- skarandi knattspyrnumann voru kjarninn í þjálfuninni. Lykilat- riði hvers leikmanns er að geta tekið á móti boltanum á hlaup- um og kunna að vinna úr send- ingunum. Kjarninn í þessu starfi öllu var og er vinnan með unglingana. Það má passa sig á því að af- skrifa ekki unga leikmenn of snemma. Það er aldrei hægt að segja til um það hvort Ieikmaður verður góður eða ekki eftir tvær til þrjár æfingar og leiki. Sumir þurfa eitt eða jafnvel tvö tímabil til að sanna sig. Um það eru fjölmörg dæmi.“ Tveir góðir en ólíkir þjálfarar Velgengni norska landsliðsins og stórveldisins Rosenborg er eink- um tveim mönnum að þakka. Það eru landsliðsþjálfarinn Egil „Drillo" Olsen og fyrrum þjálfari Rosenborg, Nils Arne Eggen. „Egil Olsen þjálfaði landsliðið og tók ekki mikla áhættu í Ieik sínum. Hann byggir allt á varn- arleik, sem ekki er skemmtilegt fyrir áhorfendur. Liðið fær á sig fá mörk en skorar líka lítið af mörkum. Nils Arne er alger andstæða Drillo. Hann leggur ofuráherslu á sóknarleikinn. Sóknin hefst hjá markmanni og þaðan gengur boltinn hratt fram í fremstu víg- línu þar sem leikmenn reyna að afgreiða hann í net andstæðing- anna. Liðið skorar mikið en fær að vísu frekar á sig mörk. Um þetta snýst einfaldlega fótbolt- inn og sé rétt á málum haldið skilar þetta árangri. Samt er kerfið þannig að einstaklings- framtakið getur notið sín innan þess. Þess vegna er árangur Ros- enborg í Evrópukeppninni engin tilviljun. Real Madrid fékk að kynnast því. Æfa sig í að skora mörk Nils Arne þjálfar alla þættina jafnhliða. Allar æfingar eru með bolta. Leikmenn eru löngu hættir tilgangslausum lang- hlaupum á vegum úti. Styrkur, úthald, knatttækni og leikskipu- lag verða að haldast í hendur og það næst best sé boltinn nýttur á æfingum. Hjá Rosenborg fer mikill tími í að æfa sig í að sækja og skora mörk. Þetta er gert á kerfis- bundinn hátt en ekki með tilvilj- unarkenndum sendingum. Hver einasta hreyfing hvers einasta Ieikmanns er þræl skipulögð. Leikmennirnir \áta alltaf hver af öðrum og hvað hver og einn á að gera. Liðið vinnur sem heild. Leikmennirnir eru ekki að gera neitt annað en það sem þeir eru búnir að gera hundrað sinnum á æfingum. Þess vegna þarf ekki stjörnuleikmenn í hverja stöðu heldur góða og trausta leikmenn sem geta unnið sarnan." Iimárásm í England Öll toppliðin í Englandi hafa Norðmenn í Ieikmannahópum sínum. Hvernig má þetta vera? „Norskir knattspyrnumenn eiga tiltölulega auðvelt með að aðlaga sig enska fótboltanum. Svo freistar England þeirra. Miklir peningar eru í enska bolt- anum og því eftirsóknarvert að komast að hjá enskum liðum. Þeir eru vel þjálfaðir, duglegir og vinnusamir og því er gott að hafa þá í liðum." Nú er enski boltinn er mjög ólíkur fótboltanum sem Rosen- borg Ieikur og önnur norsk lið eru að reyna að ná tökum á. „Það er rétt. Ensku liðin leika oft illa skipulagðan og tilvdljun- arkenndan fótbolta. Þjálfararnir gera lítið að |)ví að byggja leik- menn sína upp. Þeir gera ráð fyrir að þeir séu full þjálfaðir og þeir geti lítið bætt sig. Þetta sést best þegar norskir landsliðs- menn, sem leika í Englandi, koma í landsleiki. Þá eru þeir yf- irleitt lakari en þegar þeir héldu til Englands. Eg held að mikið vanti upp á að enskir þjálfarar séu nægilega vel menntaðir. Þegar ensk lið lenda á móti vel skipulögðum liðum eru þau í vandræðum." íslendinganýlenda í Noregi Nánast er hægt er að tefla fram heilu landsliði með leikmönnum sem leika með norskum liðum. Hvað er það í fari íslensku leik- mannanna sem hrífur Norð- menn? „Þegar bestu norsku leik- mennirnir fara í víking verður til gat sem þarf að stoppa í. Bestu íslensku leikmennirnir falla vel inn í norskan fótbolta. Þeir eru svipaðir okkar knattspyrnu- mönnum en oft illa þjálfaðir. Þeir eru oft í góðu úthaldi en það skortir mikið á knatttækni þeirra. Þessu höfum við kynnst hjá Rosenborg. Þeir geta tekið við bolta í kyrrstöðu en geta undantekningalítið ekki tekið á móti bolta á hlaupum. Þarna skortir á þjálfun þeirra. Þeir sem gera sér grein fyrir þessu og vilja bæta sig geta staðið sig vel í Noregi." Framtíð íslenska fótboltans Hvað þurfa Islendingar að gera til að bæta árangur sinn í alþjóð- legri knattspyrnu? „Hér þarf fyrst og fremst að setja sér langtímamarkmið. Knattspyrnusambandið þarf að hafa forgöngu um það og ákveða hvaða stefnu á að taka. Síðan þurfið þið miklu fleiri og betur menntaða þjálfara. Fræðilegi þáttur þjálfunarinnar skiptir miklu máli. Þjálfarar koma og fara og því þarf grundvöllurinn fyrir starfi þeirra að vera stöðug- ur. Þar kemur að hlut KSI. Það verður að vera aðgangur að miklu fræðsluefni. Annars verð- ur stöðnun og við hver þjálfara- skipti þarf alltaf að byrja á byrj- unarreit í stað þess að byggja á því sem fyrir er.“ GÞÖ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.