Dagur - 27.02.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 27.02.1998, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGVR 27. FEBRÚAR 1998 - 13 GOLF Verulegur niðurskurður á landsliðsmáliffium Fjármálin voru efst á baugi á Arsþingi GSI, sem haldið var í Garðabænum um síðustu helgi. Sambandið tapaði 2,7 milljón- um kr. á síðasta ári og til að mæta því var meðal annars skor- ið niður fé til landsliðsmála um þriðjung á þessu ári, sé miðað við framlög til þessa málaflokks á síðasta ári. Ónnur mál sem komu til kasta þingsins var fram- kvæmd næsta landsmóts þar sem skiptar skoðanir voru á lofti og þá samþykkti þingið einróma að heimila atvinnumönnum að keppa um verðlaun á opnum mótum í sumar. Eitt af stærri málum þingsins var tillaga frá stjórn GSI um að klúbbarnir greiddu 2200 krónur af hverjum félagsmanni eldri en fimmtán ára, í stað 1200 kr. áður. Sú tillaga fékk ekki hljóm- grunn, en í staðinn var samþykkt 1700 króna framlag frá hverjum félagsmanni golfklúbba, sem væntanlega mun færa samband- inu tíu til ellefu milljóna kr. tekj- ur á árinu. A móti kemur að sambandið fær ekki lengur tekj- ur af opnum mótum, né lands- móti, eins og tíðkast hefur. Eftir þessa afgreiðslu þingsins, var ákveðið að skera niður framlög til landsliðsmála, frá þeim áætl- unum sem Iágu fyrir þinginu. Ráðgert er að verja um átta millj- ónum króna til þeirra verkefna í ár, miðað við tólf milljóna fram- lag í fyrra. „Menn geta kannski lesið úr niðurstöðum þingsins að það hafi verið íjandsamlegt afreks- stefnu, en ég tel svo ekki hafa verið. Klúbbarnir voru þegar búnir að ganga frá sínum árs- reikningum og þetta var erfitt dæmi að leysa,“ segir Hannes Guðmundsson, forseti GSI. Hannes sagðist vera ánægður Hannes Guömundsson, forseti GSÍ. með að hluti af félagsgjöldum sé nú látinn standa undir rekstri sambandsins. „Ég er sannfærður um að þessi breyting mun-koma sambandinu til góða, það er erfitt að reka sambandið með óvissum tekjum af mótahaldi, þó ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með að upprunalega tillagan um 2200 kr. gjald hafi verið felld,“ sagði Hannes. Hann sagði stærsta verkefni sambandsins á árinu vera að rétta fjárhaginn við. Umræður um framkvæmd Landsmótsins eru árlegar á golf- þingi og þingið í Garðabæ var engin undantekning frá regl- unni. Eftir nokkrar umræður var tillaga Suðurnesjamanna um framkvæmd næsta landsmót samþykkt. Hannes sagði að stjórn GSÍ mundi skoða ýmsa möguleika á næsta sumri og væntanlega yrði unnt að fjalla bæði um landsmót 1999 (sem fram fer í Hafnarfirði) og árið 2000 á næsta þingi. „En á með- an meirihluti er fyrir því að halda landsmót í mörgum flokk- um, í stað eins karla- og kvenna- flokks, þá verður skipulagning landsmóts til umræðu á hverju einasta þingi.“ Joe til GA? Flest bendir til þess að Skotinn Joseph McKie, sem var kennari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á síð- asta sumri, taki við starfi Davíðs Georg Barnwells sem kennari Golfklúbbs Akureyrar. Norðan- menn hafa átt í viðræðum við kennarann að undanförnu og hann hefur lýst sig fúsan til að taka að sér starfið. Joseph mun væntanlega taka til starfa hjá GA f apríl, en í sama mánuði heldur Davíð Georg til Noregs, þar sem hann hefur ráðið sig í sumar. GSÍ næststærst GSI er frá síðustu áramótum orðið næst stærsta sérsambandið innan ÍSÍ, sé mið tekið af iðk- endafjölda. Kylfingar eru því orðnir fleiri en bæði hestamenn og körfuknattleiksmenn, en rúmlega sex þúsund manns stunda þessar greinar. Jóhaim sigraði á móti í Pattaya Jóhann Reynisson, kylfingur úr Nesklúbbnum, gerði sér Iítið fyrir í síðasta mánuði og sigraði á Meistaramóti golf- ldúbbs á Pattaya-svæðinu, en 115 keppendur frá ljöl- mörgum löndum voru á meðal þátttakenda í klúbbn- um sem telur 3.500 erlenda félaga. Jóhann Iék 36 hol- urnar á 153 höggum og var með lægsta skor mótsins auk þess sem hann sigraði einnig með forgjöf. „Eg náði „fugli“ á síðustu holunni, á meðan helsti keppinauturinn, Englend- ingurinn Laurie, þrípúttaði. Það réði úrslitum í mótinu, en reyndar hafði ég sjálfur lent f því að þrípútta sautj- ándu flötina," segir Jóhann, aðspurður um keppnina, sem frarn fór á Khao Khew- vellinum, sem hannaður var af hinum fræga Pete Dye, en völl- urinn hefur meðal annars verið notaður undir úrtökumót fyrir asísku mótaröðina. „Völlurinn er 27 holur og skiptíst í A, B og C-hluta og ég verð að segja að ég hef aldrei kynnst jafn hröðum flötum eins og voru í C-hlutanum. Rennslið var ótrúlegt og líkast því sem það væri verið að pútta á marmara. Ég Jenti í því að Ijórpútta á mót- inu og vissi til þess að einn ís- lendinganna var með fimmpútt á hringnum," sagði Jóhann. Spilað var af fremri teigum fyrri daginn, Jóhann Reynisson. en aftari teigum þann síðari, en þá mældist völlurinn 5.800 metrar og það mátti sjá muninn á skori flestra keppendanna á milli daga. Jóhanni gekk hins vegar betur á lengri vellinum, því þá lék hann á 73 höggum, en 78 höggum fyrri daginn. Nokkrir Islendingar náðu í aukaverðlaun á mótinu. Kristinn Helgason var með lengsta upp- hafshöggíð í B-forgjafarfloldd og Einar Jóhannsson var næstur holu eftir upphafshögg. Þá varð Steindór Eiðsson í 5. sæti með forgjöf í B-forgjafarflokki. Lágt verðlag Jóhann hefur farið til Thailands árlega á síðustu sex árum til að leika golf, en ferðirnar hafa átt vaxandi vinsældum að fagna og fyrir þremur árum byrjuðu Sam- vinnuferðir Landsýn á að gangast fyrir hópferðum þangað yfir veturinn. „Ég held að það sé hvergi í heiminum hægt að fá annað eins fyrir peninginn," og dæmi sínu til stuðnings bendir hann á að hótelnótt- in hafi kostað hann andvirði 600 kr. ísl. með morgunmat. A Pattaya svæðinu er líka hægt að kynnast mörgum fyrsta flokks völlum, en meðal þeirra sem hannað hafa velli á svæðinu eru Jack Nicklaus, Astralinn Peter Thomson, Gary Player og Nick Faldo svo einhverjir séu nefndir. Jóhann nefnir það að hann hafi eitt sinn leikið á Grand Cypress-vellinum á Flór- ída og hafi þá þurft að punga út 10 þúsund kr. ísk, sem ekki er óalgengt verð fyrir hring á fyrsta flokks velli í Bandaríkjunum. Jó- hann segir að í Thailandi sé hægt að spila á velli í sama gæðaflokki fyrir 1100 krónur og er þá kylfusveinn innifalinn f yerðinu. Um ljörtíu kylfingar frá Islandi voru í Thailandi þegar mest lét í janúar og í byrjun febr- úar, en þeir síðustu komu heim fyrr í þessum mánuði. m PATTAYA SP0RTS CLUB Reynisson oyerpowers Khao Kheow to win by one over Lauri Pattaya Sports Club Golf Chainpionship Plavcr HCP Nrt Á myndinni frá vinstri: Hreinn Halldórsson, Phil Smith, framkvæmdastjóri sérleyfa Nevada Bob og Hans Henttinen, sem verður framkvæmdastjóri hinnar nýju verslunar. Lofa betri kjörum Þann 4. apríl næstkomandi mun golfbúð frá Nevada Bob taka til starfa hér á landi í 350 fermetra verslunarhúsnæði í Nethyl 2 í Reykjavík og verslunin verður því sú stærsta á landinu sem sér- hæfir sig í golfvörum. Að sögn Hans Henttinen framkvæmda- stjóra mun nýja verslunin bjóða upp á fjölbreytt úrval af golfvör- um og kylfingar munu eiga þess kost að reyna áhöld í sérstökum æfingabás og á púttflöt. Um 360 búðir með nafni Nevada Bob eru starfræktar í heiminum og fram- kvæmdastjórinn lofar því að verslunin muni bjóða upp á lægsta verð á hverjum tíma. Stefnt er að því að verslunin verði opin alla daga vikunnar á mestu annamánuðunum. JARÐIR TIL LEIGU Hjá jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins eru neðangreindar jarðir lausar til leigu frá komandi fardögum: 1. Eyri í Mjóafirði, ísafjarðarbæ; (á jörðinni eru 10 ha ræktun, íbúðarhús b. 1962, geymsla, vóla-/verkfærageymsla, Ijárhús með áburðarkjallara, reykhús og hlaða). Greiðslumark sauðljár 46,7 ærgildi. 2. Hæringsstaðir, Svarfaðardalshreppi, Fyjafjaröarsýslu; (á jörðinni eru 30,2 ha ræktun, íbúðarhús b. 1947, fjós með áburðarkjallara, hlaða, véla-/verkfærageymsla og hesthús.) Veiðihlunnindi í Svarfaðardalsá. 3. Leiti, Borgarhafnarhreppi, Austur-Skaftafellssýslu; (á jörðinni eru 23,5 ha ræktun, íbúðarhús b. 1939, (jós, tvö ijárhús, hesthús, þrjár hlöður og votheysgryíja). Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560 9750. Grænt síma- núiner: 800 6800. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu land- búnaðarr áð uneytisins. Umsóknir berist jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 7, 150 Reykjavík fyrir 15. mars 1998. Landbúnaðarráðuneytið, 26. febrúar 1998. Árangur Jóhanns fór ekki framhjá staðarblaðinu i Pattaya.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.