Dagur - 21.03.1998, Síða 10
X-LAVGARDAGVR 21. MARS 1998
MINNIN GARGREINAR
rD^tr
Bjðm Þórðarson
Björn Þórðarson var fæddur að
Steindyrum í Svarfaðardal 20.
febrúar 1902. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri hinn 3. mars 1998. Foreldr-
ar hans voru Guðrún Lovísa
Björnsdóttir frá Syðra-Garðs-
horni í Svarfaðardal f. 1. nóv-
ember 1862, d. 9. júni 1906 og
Þórður Kristinn Jónsson bóndi í
sömu sveit f. 15. júní 1858, d.
7. október 1941. Björn var
næstyngstur 10 systkina og lifði
hann þau öll. Systkinin voru
Dóróthea f. 6.5. 1882, d. 23.4.
1972, Jóhanna f. 16.8. 1884, d.
18.10. 1975, Svanhildur f. 1.1.
1887, d. 23.4. 1887, Sesselja f.
29.8. 1888, d. 10.9. 1942, Sig-
ríður eldri f. 4.5. 1891, d. 22.4.
1898, Gunnlaugf. 4.1. 1894, d.
29.4. 1996, Jón f. 1.12. 1896,
d. 16.3. 1995, Sigríður yngri f.
5.7. 1899, d. 21.7. 1912,Árnif.
3.6. 1906, d. 10.10. 1984.
Björn kvæntist 16.8. 1930
Sigríði Guðmundsdóttur frá
Bolungarvík f. 20.8. 1903, d.
26.12. 1983. Foreldrar hennar
voru Guðríður Hannibalsdóttir
f. 20.6. 1874, d. 20.6. 1921 og
Guðmundur Steinsson f. 16.10.
1874, d. 7.11. 1923.
Sigríður og Björn eignuðust
þrjár dætur. 1) Guðrún, hús-
móðir f. 23.11. 1930 gift Árna
Gunnarssyni, skrifstofustjóra f.
6.11. 1930. Dætur þeirra eru
Sigríður f. 24.5. 1960 gift
Helga Má Arthurssyni f. 19.2.
1951. Þau eiga tvö börn, Gunn-
ar Arthúr og Elínu Þóru. Auður
Þóra f. 21.3. 1962 gift Höskuldi
Björnssyni f. 17.11. 1961. Þau
eiga þrjú börn, Árna Björn,
Birgi Orn og Guðrúnu. 2) Erla,
hússtjórnarkennari f. 31.3.
1932 gift Erni Guðmundssyni,
kennara f. 3.10. 1924. Sonur
þeirra er Björn Arnarson f.
21.6. 1954. 3) Birna, handa-
vinnukennari f. 2.2. 1936, d.
15.6. 1985 gift Heimi Hann-
essyni, lögfræðingi f. 10.7.
1936. Börn þeirra eru Hannes
f. 25.3. 1960 kvæntur Guðrúnu
Sólonsdóttur, f. 20.4. 1962.
Þau eiga tvö börn, Heimi og
Jónu Vestfjörð. Sigríður f. 29.3.
1963 gift Erling Jóhannessyni f.
10.4. 1963. Þau eiga tvö börn,
Birnu og Kristin. Magnús f.
25.8. 1965 kvæntur Sigríði
Bjarnadóttur f. 24. 9. 1960.
Börn þeirra eru Kolbeinn Ingi,
Arnar Freyr og Unnur Birna.
Björn varð búfræðingur frá
Hólaskóla 1925. Stundaði
framhaldsnám við bændaskól-
ann í Ladelund á Jótlandi. Lauk
íþróttakennaraprófi frá Ollerup
á Fjóni vorið 1928. Hann vann
hjá Kaupfélagi Eyfírðinga á Ak-
ureyri í nærfellt 50 ár, verslun-
ar- og skrifstofustörf. Björn geg-
ndi um ævina fjölmörgum fé-
lags- og trúnaðarstörfum. Hann
var í stjórn Ferðafélags Akureyr-
ar í aldarljórðung og síðar kjör-
félagi; í stjórn Leikfélags Akur-
eyrar í áratug og heiðursfélagi
þess. Hann var í stjórn Skóg-
ræktarfélags Eyfírðinga í 20 ár
og meðhjálpari í Akureyrar-
kirkju í 25 ár. Auk þess starfaði
hann í ýmsum öðrum félögum í
lengri eða skemmri tíma. Útför
Björns Þórðarsonar var gerð frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn
12. mars 1998.
Björn Þórðarson, tengdafaðir
minn, komst nærri því að lifa bil-
ið milli tvennra aldamóta, þeirra
sem fáir geyma nú lengur í minni
og hinna sem eru í þann veginn
að ganga í garð. Þetta er
dijúglangur tfmi í mannlegu sam-
hengi og má nota ýmsa mæli-
kvarða til að átta sig á því. Björn
minntist þess gjarnan að hann átti
sama fæðingardag og Samband ís-
lenskra samvinnufélaga, 20. febr-
úar 1902. Það átti hins vegar fyrir
honum að liggja að lifa Samband-
ið allmörg ár, þótt hann hefði
áreiðanlega talið það líklegt til
lengri lífdaga og unnt því þeirra
vel.
Eins og eðlilegt er um mann
sem lifði næstum alla öldina má í
ævi Björns greina ýmislegt af því
sem hefur markað breytingaferil
þjóðfélagsins hér á landi á tuttug-
ustu öld. Foreldrar hans bjuggu
búi sínu í Svarfaðardal en þegar
móðir hans dó frá stórum hópi
barna leystist heimilið fljótlega
upp. Björn var þá aðeins Ijögurra
ára. Hann ólst upp þar í dalnum,
að mestu hjá vandalausum. Hann
átti heimili á Tjörn frá sautján ára
aldri og minntist áranna þar löng-
um með ánægju. Eins og önnur
börn í Svarfaðardal naut hann
þess að skólahald varð þar með
skipulegum hætti fyrr en víða
annars staðar, m.a. reist sérstakt
skólahús skömmu áður en Björn
komst á skólaskyldualdur. Hann
fór síðan í Hólaskóla og varð bú-
fræðingur þaðan eftir tveggja ára
nám. Að því loknu fór hann til
Danmerkur og var þar í tvö ár við
nám og störf á sviði landbúnaðar
og íþrótta. Eftir heimkomuna til
tslands starfaði hann eitt ár við
kúabúið á Vífilsstöðum. Á þeim
tíma kynntist hann konuefni sínu,
Sigríði Guðmundsdóttur frá Bol-
ungarvík. Þau gengu í hjónaband
árið 1930 og stofnuðu heimili sitt
á Akureyri. Björn hafði þá ráðist
til starfa lijá Kaupfélagi Eyfirð-
inga og á vegum þess vann hann
síðan alla sína löngu starfsævi,
lengst á skrifstofu félagsins.
Þegar Björn og Sigríður voru að
byrja búskapinn voru kreppuár í
landinu. Þá var mikils virði að
hafa örugga vinnu. Þótt efnin
væru ekki mikil festu þau hjón
fljótlega kaup á íbúð í nýlegu húsi
við Oddagötu á brekkutungunni
norðan við Grófargil og þar stóð
heimili þeirra alla tíð síðan. Úr
gluggum íbúðarinnar á efri hæð-
inni þar sem þau bjuggu er útsýn
yfir Pollinn og út Eyjafjörð. Þar er
oft svo morgunfagurt að maður
heldur að engin sjón geti orðið
fallegri, þangað til kvöldið kemur
og býður jafnvel enn betur með
sólarlaginu við fjarðarmynnið.
Þannig var hin ytri umgjörð um
ástríka sambúð þeirra Sigríðar og
Björns í meira en hálfa öld og
æskuheimili dætra þeirra þriggja.
Ég þekkti ekki heimilisbraginn
þar á fyrri árum en af Iöngum
kynnum síðar þykist ég fara nærri
um að hann hafi fallið dável inn í
þá umgjörð sem ég var að reyna að
lýsa. Ávallt frá því ég kom þar fyrst
hefur mér fundist þetta hús á
Brekkunni einhver eftirsóknar-
verðasti staður heim að sækja. Ég
var ekki einn um þá afstöðu. Ekki
síst munu barnabörn þeirra hjóna
telja það meðal sinna bestu stun-
da er þau fengu færi á að dveljast
hjá ömmu og afa á Akureyri, og
þau tækifæri voru mörg og óspar-
lega notuð. Hlýleiki Sigríðar, róse-
mi Björns og umhyggja þeirra
beggja setti mark sitt á þennan
notalega griðastað.
Björn kunni starfi sínu vel og
stundaði það af kostgæfni og
stakri reglusemi. Því fór þó fjarri
að áhugamál hans væru öll við
það bundin. Hann var sérlega fé-
lagslyndur maður og starfaði um
langan aldur í ýmsum félögum á
Akureyri. Þeirra á meðal var Leik-
félag Akureyrar þar sem Björn var
lengi í stjórn, þótt ekki muni hann
hafa komið fram á leiksviðinu. I
Ferðafélagi Akureyrar starfaði
hann einnig lengi af miklum
áhuga. Hann var oft fararstjóri í
ferðum á vegum félagsins um
byggðir og óbyggðir og í ritnefnd
tímarits þess Ferða. Hann naut
þess ríkulega að ferðast um land-
ið, nær og fjær, fótgangandi eða á
hestbaki um fjöll og fimindi og
akandi um byggðir. Hann átti
margar góðar minningar um ferð-
ir sínar og samferðamenn og það
var gaman að heyra hann rifja þær
upp. Þar kemur allt til, að hann
gerði sér far um að fræðast sem
best um þá staði sem hann kom á,
var stálminnugur og kunni vel að
segja frá. En ekki var síður
skemmtilegt að vera í för með
honum, fræðast af honum um það
sem fyrir augu bar og lúta rögg-
samri leiðsögn hans. Hann hefði
aldrei látið sér til hugar koma að
fara svo fram hjá byggðu bóli að
hann reyndi ekki að gera sér grein
fyrir nafni þess, enda var óvíða
komið að tómum kofunum hjá
honum í þeim efnum. Áhuga sín-
um á ferðalögum hélt Björn til
hinstu daga og lét ekki fótfúa
aftra sér frá að eiga frumkvæði að
þeirn þegar færi gafst.
Björn var kirkjurækinn og gegn-
di um aldarfjórðungs skeið með-
hjálparastarfi í Akureyrarkirkju.
Hann var í góðu vinfengi við
prestana sem hann átti þar sam-
starf við og sinnti þessu hlutverki
af sömu alúð og öðru sem hann
tókst á hendur.
Eftir að Sigríður lést, fyrir rúm-
um fjórtán árum, bjó Björn einn í
íbúðinni við Oddagötu, þótt hann
hefði mislanga vetursetu í Reykja-
vík. Fyrir norðan naut hann mik-
ilsverðs stuðnings frænku sinnar
Sigurveigar Árnadóttur og hin síð-
ustu ár veitti Helgi Siguijónsson
frá Torfum honum margvíslega
aðstoð sem ekki verður fullþökk-
uð.
Björn Þórðarson var sterk-
byggður maður og vörpulegur og
bar með sér þá reisn að það var
prýði að honum hvar sem hann
fór. Allt hans fas einkenndist af
traustleika og hugarró og hann
brá ekki gjarnan vana sínum að
nauðsynjalausu. Hann var glað-
legur í viðmóti og mannblendinn,
vel að sér og fróðleiksfús. Ég hygg
að hann hafi talið sig mikinn
hamingjumann. Hann hélt fullum
sálarkröftum til efstu dægra og
auðnaðist að lifa svo fram í háa
elli að hafa ánægju af lífinu og
vera sínum nánustu til gleði.
Slíkrar ævi og slíks manns er gott
að minnast.
Árni Gunnarsson
Heiðursmaðurinn Björn Þórðar-
son er fallinn í valinn. Tvíburi við
Sambandið, sem lifði það. Fram-
sóknarmaður allt frá því Jónas frá
Hriflu bjó flokkinn til. Flokks-
maður, sem hafði síðustu árin
áhyggjur af þeim pólitíska félags-
skap, sem hann var lentur í. Var
enda aðdáandi Steingríms og mat
mjög leiðtogahæfileika hans. Póli-
tískur áhugi Björns var ósvikinn
og hann harður á sínu fyrir hönd
síns flokks. Stuttu eftir kosningar
1991, eða þegar ljóst var, að
nokkrir alþýðuflokksmenn kusu
að segja sig úr vistinni hjá Stein-
grími Hermannssyni, hringdi
Björn, sagðist eiga vindil af fínni
sortinni, og bað mig hafa sam-
band þegar ég teldi, að ríkisstjóm-
in færi frá, því þá ætlaði hann að
fíra í vindlinum. Ég lofaði að láta
hann vita. Eitthvað varð hann
fljótt óþolinmóður og hringdi
nokkrum sinnum og spurði jafn-
an: Má ég kveikja í núna? Nokkuð
dró úr hringingum eftir að Stein-
grímur Hermannsson dró sig í hlé
og hvarf af vettvangi flokksstjórn-
mála, en enn spurði Björn. Hann
hætti fljótlega að spyija sumarið
1995, og vindillinn er enn óreykt-
ur í sérstakri öskju, sem heldur
honum eins og nýjum. Þegar
hann er til moldar borinn lifir
áfram ýmislegt, sem hann kenndi
og benti afkomendum sínum á,
glöggskyggn og greindur sem
hann var. Að því leyti lifir hann
sjálfan sig. Næstyngstur tíu syst-
kina, sem öll eru látin, fékk hann
fátt í vöggugjöf annað en góða
heilsu, dugnað, og þrautseigju.
Fáir hefðu spilað betur úr þeim
gjöfum en hann.
Allt til loka hafði Björn Þórðar-
son brennandi áhuga á umhverfi
sínu. Þjóðmál í víðasta skilningi
voru honum ofarlega í huga, og
aldrei lá hann á skoðun sinni. I
þeim efnum miðlaði hann af
reynslu sinni frá tímanum áður
flokkar urðu til, og stjórnmál í
þeirra skilningi.
Trúnni hélt hann fyrir sig, en
kirkjuna, hina formlegu hlið trú-
arinnar, setti Björn í öndvegi.
Langt fram á síðasta aldursárið
fór hann með dætrum sínum og
tengdasonum í kirkjur hvar sem
hann kom. Hann heilsaði upp á
guðsmenn í flestum sóknum
landsins, og gaf þeim einkunnir,
ef ekki fyrir kennimennskuna, þá
að minnsta kosti fyrir ræðu-
mennsku, en þar var Björn á
heimavelli. Hann naut þess að
halda ræður, enda ágætur ræðu-
maður, og innihaldið var jafnan
þannig, að menn hlustuðu á með-
an ræðan var flutt, og hugsuðu
— m éitt
viSi’ L JvI7
% (i >98. ur 1.01 ŒhtfiMlÍ,o
Vmningas] 43. útdráttur 19. mars 1! Bifreiðavinning Kr. 2.000.000 Kr. ^ F *á D0.000 (tvöfaldur)
27423
Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
29584 36929 42594 55023
Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3541 6547 27492 29061 32460 35905
5498 19366 28744 29395 34484 38701
Húsbúnaðarvinn Kr. 10.000 Kr. 2( ingur 1.000 (tvöfaldur)
558 8935 18886 31195 41476 50048 61073 67798
873 9264 19522 34122 41678 50254 61161 69984
1879 11335 20131 35263 42248 52675 6132» 70809
1914 12039 20310 35296 42258 53659 62168 71651
2165 12085 20793 36259 42339 54055 62312 71816
3497 13398 24584 36566 45497 54676 63021 75300
3762 13601 25233 37271 46070 55497 63216 76432
4359 14151 28474 37846 46684 55718 63554 78830
4523 14156 29219 38026 47299 55996 63886 79076
5593 14825 29621 38092 48746 56852 64383
5841 16895 30162 40526 49229 58029 64580
7767 17026 30465 40563 49240 58152 65619
7953 17948 30901 40612 49736 60852 67461
Kr. 5.01 Húsbúnaðarvinningur )0 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
188 13760 22448 30948 39767 50630 64047 71695
798 13944 22789 31094 40157 51000 64386 71904
1145 14030 23025 31117 40197 51152 64524 71967
2368 14166 23364 31697 40357 51547 65156 72244
2603 14297 24370 31878 40372 52000 65362 72436
2616 15003 24492 31881 40777 52469 65386 72481
3111 15707 24576 31967 40844 52865 65460 72796
4585 15726 24642 32267 41089 53804 65483 732X6
4802 15767 25883 32415 41452 54134 65530 73254
5742 16457 26105 32679 41473 54230 65865 73698
5895 16818 26187 32887 42231 54407 66002 73758
6484 17525 26724 33317 42852 55436 66098 74478
6867 17646 27077 33401 43388 55903 66892 74588
7244 18219 27098 34060 43858 56712 67198 74690
7814 18558 27805 34209 44979 56967 67655 74704
8050 18565 28029 34305 45206 57387 68119 74890
8563 18770 28333 34723 45695 57549 68184 76071
9376 . 18784 28405 34915 45902 57708 68373 77000
9663 19749 28448 34962 45955 57930 68425 77010
10000 19773 28629 35058 46465 58748 68437 77243
10099 20065 29366 35464 46602 59228 68464 77504
10101 20178 29487 35572 47025 59490 68657 77525
10697 20436 29S01 36339 47558 59842 68709 77974
11588 20593 29533 36808 47786 60100 68731 78186
11702 20595 29556 36959 48644 60520 69005 78981
12274 21117 29608 37252 48750 61989 69429 79030
12454 21268 29711 37303 48781 62207 70207
12478 21659 29806 37887 49276 62393 70537
12532 21684 29855 38100 49820 62978 71004
12851 21950 29966 38737 50086 62991 71032
13244 22273 30680 39105 50342 63250 71334
13540 22300 30853 39201 50380 64038 71596
Naesti útdráttur fer fram 26. mars 1998 Hciraasíða á Interneti: Http:/Avww.itn.i*/das/