Dagur - 01.04.1998, Side 2
2 -MIDVIKUDAGUR l.APRÍL 1998
FRÉTTIR
Hendir gaman að
eigin starfslokum
Kannski skiltid segi þaö sem segja þarf en Friðrik Sophusson fjármálaráðherra henti gaman að
orðrómnum um að hann væri að hætta í ríkisstjórninni á hádeg/sverðarfundi Versiunarráðs um
skattamál á Akureyri í gær. mynd: bös
Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra vill skera
skattstjóra á landsbyggð-
inni og breyta störfum yf-
irskattanefndar.
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
henti gaman að orðrómnum um að
hann væri að hætta í ríkisstjórninnni á
hádegisverðarfundi Verslunaráðs á Ak-
ureyri í gær. Friðrik var að svara fyrir-
spurn og sagði að hann gæti lofað því
að ekki yrði breyting á tilteknu skatta-
atriði á meðan hann væri fjármálaráð-
herra. „En þetta var kannski ekki stórt
loforð," sagði Friðrik og glotti.
Skattstjórar skomir
Friðrik kynnti fyrirhugaðar breytingar
á skattkerfinu og vék máli sínu m.a. að
breytingum á störfum yfirskattanefnd-
ar. Kærufrest yrði að Iengja úr 30 dög-
um í 3 mánuði. Þá yrði að breyta kerf-
inu þannig að kærendur fengju rétt til
að fá málskostnað endurgreiddan. Af
öðrum sviðum nefndi Friðrik að hann
væri áfram um að fyrirtæki fengju
heimild í framtíðinni til að fyrna við-
skiptavild. Hann vill jafnframt rétt til
samsköttunar móður- og dótturfyrir-
tækja og segir nauðsynlegt að lagfæra
refsi- og viðurlagaákvæði og samræma
skattframkvæmd. „Mér finnst full
ástæða til að leggja niður embætti
skattstjóranna á landsbyggðinni. Þá er
ég ekki að tala um að flytja allt báknið
suður, heldur eru rökin tvíþætt fyrir
þessu. Annars vegar breyting skatt-
framtala á tölvutækt form sem auð-
veldar alla vinnu og svo er nauðsynlegt
að koma í veg fyrir að ein málsmeðferð
fái mismunandi afgreiðslu eftir skatta-
umdæmum."
Hátt neysluskattshlutfaU
Friðrik sagði að hann teldi seinni tíma
breytingar á skattakerfinu hafa átt
mjög stóran þátt í að bæta efnahags-
umhverfið á Islandi. Stefnt væri að
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
lækkun tekjuskatts niður í 30% hjá fyr-
irtækjum og yrði hann þá með því
lægsta sem þekktist. Hann hefði verið
50% árið 1992. Fram kom í máli ráð-
herra að neysluskattar Islendinga eru
mun hærra hlutfall af heildarskatttekj-
um ríkissjóðs en í nágrannalöndunum,
þ.e.a.s óbeinir skattar. Friðrik sagði að
nágrannar okkar teldu þetta til fyrir-
myndar og stefhdu að lækkun beinna
skatta en meiri neyslusköttum eins og
hér. - BI>
í bakherbergjum Alþingis var
fullyrt í gær að þótt Friðrik
Sophusson segði af scr ráð-
herradómi á næstu dögum
myndi hann þó áfram sitja á
Alþingi. Ætlun hans sé að
ganga frá frumvarpi uin ný
kosningalög sem nú er til um-
ijöllunar á þingi, en þar er gert
ráð iyrir uppstokkun á núverandi kjördæma-
skipan. Hann ætli að minnsta kosti að sitja á
þingi til árainóta, en fari þá til starfa sem for-
stjóri Landsvirkjunar. Gangi þetta eftir er ljóst
að enn um sinn þarf Katrín Fjeldsted að bíða cft-
ir þingmaimstigninni - að vcra altjend í skáta-
hlutverkinu; ávallt viðbúin út þetta ár.
Það var einnig mál manna í
heitum þingpottum í gær að
tilraunir framsóknannanna til
að bera blak af Ingibjörgu
Pálmadóttur heilbrigóisráð-
herra í þingsölum í gær hefðu
verið hálf mislukkaðar. Það
var enda Össur Skarphéðins-
son sem stóð uppi með
pálmann í höndunuin - og vottvorð frá forseta
Alþingis upp á vasann um að ekkert væri at-
hugavert við störf hans sem formanns heilbrigð-
isnefndar Alþingis.
Taugatitringurinn vegna borgarstjómarkosn-
inganna í vor fer greinilega mjög vaxandi. Borg-
arfulltrúar sjálfstæðismanna og Reykjavíkur-
listans moka út misgáfulcgum tillögum um
hvað eina og boða tii fréttamannafundar í hvert
sinn. í heita pottinum er fullyrt að báðar fylk
ingar áætli að eyða tugum milljóna í baráttuna
og sjálfstæðismcim sýnu meira.
Pétur J. Bjama-
son
framkvæmdastjóri Félags
rækju- oghörpudiskframleiðenda
og nýkjörinnformaður
Fiskifélagsins.
Samþykktarhafa verið
grundvallarbreytingar á
staifsemi og uppbyggingu
Fiskifélagsins. Tilgangurinn
er ekki síst sá að skapa
Fiskifélaginu afturþann
sess að vera samtök alls
sjávarútvegsins.
Tímamót í sögu Fiski-
félagsins
— / hverju eru breytingarnar fyrst og
fremst fólgnar?
„Veigamesta breytingin er kosning til
Fiskiþings. Þar voru áður 42 fulltrúar frá
fiskifélagsdeildunum, sem voru áhugafélög
fólks um sjávarútvegsmál í nánast öllum
sjávarplássum á Islandi, sem mynduðu
Fiskifélagið. Undanfarin ár hefur þetta
breyst vegna þess að starfsemi þessara
deilda hefur minnkað mjög mikið og því
hafa þær ekki verið sami samnefnarinn fyr-
ir sjávarútveginn og áður. Arið 1970 var
stofnuð svokölluð B-deild þar sem hags-
munasamtökin voru og þau kusu 14 fulltrúa
á Fiskiþing, en voru eftir sem áður í miklum
minnihluta."
—Hefur samnefnari Fiskiþings sem um-
ræðuvettvangur í sjávarútvegi farið þverr-
andi?
“Alveg tvímælalaust. Vægi Fiskifélagsins
og trúverðugleiki sem talsmaður sjávarút-
vegsins alls hefur farið minnkandi undan-
farin ár, að hluta til vegna áðurnefndrar
uppbyggingar. Einnig vegna þess að hags-
munasamtökin hafa orðið stærri og sterkari
og ýmis verkefni innan Fiskifélagsins hafa
færst yfir á hagsmunasamtökin auk þess
sem umræðan um sjávarútvegsmál hefur
meira verið þar. Með breyttri stjórnsýslu
hafa verkefni einnig verið að færast frá
Fiskifélaginu til Fiskistofu.
Staldrað var við og leitað svara við þeirri
spurningu hvort Fiskifélag væri nauðsynlegt
eða sameiginlegur vettvangur. Svarið var já-
kvætt og því var ráðist í að skapa Fiskifélag-
inu aftur þann sess að vera samtök alls sjáv-
arútvegsins og nýtur stuðnings allra hags-
munaaðila í sjávarútveginum að svo megi
verða. Ég held því að vægi Fiskiþinga verði
mun meira í framtíðinni."
— Munu Fiskiþing taka breytingum?
“Þar verða ekki á dagskrá málefni ein-
stakra greina sjávarútvegsins þar sem verið
er að sækja einhver mál á hendur öðrum
greinum sjávarútvegsins heldur fjallað um
málefni sjávarútvegsins í heild sinni en ekki
einstakar greinar hans. Búast má við að
hvert þing verði helgað ákveðnu málefni.
Samkvæmt þessum breytingum er Fiskifé-
laginu ætlað að verða meira áberandi í um-
ræðunni um sjávarútvegsmál og vinna að
verkefnum sem varða allan sjávarútveginn.
Mér finnst það Iíka eðlilegur vettvangur fé-
Iagsins, en fyrst þarf að efla trúverðugleik-
ann og þær forsendur hafa nú verið skapað-
ar.“
— Endurspeglar nýkjörin stjóm valda-
hlutföllin í Fiskifélaginu?
“Hagsmunasamtökin munu tilefna 39
fulltrúa á Fiskiþing. Auk mín sitja í stjórn
Ágúst H. Elíasson frá Samtökum fisk-
vinnslustöðva, Kristján Þórarinsson frá
LÍÚ, Kristján Loftsson frá LÍÚ, Guðjón A.
Kristjánsson frá FFSÍ, Helgi Laxdal frá Vél-
stjórafélaginu, Elínbjörg Magnúsdóttir og
Björn Grétar Sveinsson frá Verkamanna-
sambandinu og Örn Pálsson frá smábáta-
eigendum.“ — GG