Dagur - 30.04.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 30.APRÍL 1998 - 23
Xfc^ur
LÍFIÐ í LANDINU
Tómas Hermannsson ráðgjafi hjá Kaupþingi Norðurlands. „Vil ekki ráðleggja neinum að fara út I kaup á bréfum I einstökum fyrirtækj-
um, nema fólk hafi þá sérstakan áhuga eða vilja til þess." - mynd: brink.
Hlutverk ráðgjafa hjá
verðahréfafyrirtækjun-
um er vandasamt og
finna þarflausnir sem
hæfafjárhag hvers og
eins. „Fátt stendur
fólki næren afkoma
þess, “ segir ráðgjafi
hjá Kaupþingi Norður-
lands.
„Auðvitað ráðum við fólki frá því
að taka miklar áhættu í fjárfest-
ingum sínum. Sé það mjög áfjáð
til þess arna spyrjum við það þá
einfaldlega að því hvort það sé í
raun tilbúið - ef í hart fer - að
tapa þeim peningum sem það
ætlar að leggja undir. Þá breytist
viðhorfið yfirleitt því fátt stend-
ur fólki eins nærri og afkoma
þess,“ segir Tómas Hermanns-
son, ráðgjafi hjá Kaupþingi
Norðurlands. Hans starf felst í
því að ráða almenningi heilt um
ávöxtun fjármuna sinna og þarf
þá að taka tillit til mismunandi
þarfa hvers og eins.
Erningabréf skila mestu
Tómas Hermannsson segir að
hjá Kaupþingi Norðurlands séu
það Einingabréfin sem skilað
hafi mestri ávöxtun. Meðaltalsá-
vöxtun var 10 til 12% á sfðasta
ári og jafnvel enn betri í sumum
tilvikum. Meðaltalsávötun Ein-
ingabréfa 6 hefur verið um 69%
sl. þijá mánuði og Einingabréf 8
hafa gefið um 41% ávöxtun. „Að
baki þessum bréfum standa
sjóðir sem eru byggðir upp með
mismundandi fjárfestinga-
stefnu,“ segir hann.
Hlutabréfakaup eru
áhættusðm
Altjend eru hlutabréfakaup
áhættusöm Ijárfesting „... og ég
vil ekki ráðleggja neinum að fara
út í kaup á bréfum í einstökum
fyrirtækjum, nema fólk hafi þá
sérstakan áhuga eða vilja til
þess. Hlutabréfsjóðirnir, sem
eiga hlut í fjölda fyrirtækja, hafa
komið vel út, þeir hafa gefið
góða ávöxtun og áhættan er ekki
eins mikil. Síðan gefa kaup í
þessum sjóðum skattaafslátt,
kaupi hjón t.d. bréf fyrir 260
þús. kr. á þessu ári gefur það
þeim skattafslátt sem nemur um
42.500 kr., sem þau myndu fá
greiddan út í ágúst á næsta ári,“
segir Tómas.
Hann segir að ungt fólk sem
kaupir verðbréf spái fyrst og
fremst í góða áxötun en eldra
fólkið kaupi ríkistryggða eignar-
skattsfrjálsa pappíra. Ungt fólk
eigi sjaldan miklar eignir og
þurfi því ekki að hafa áhyggjur
af eignaskatti.
„Ennfremur er áhættufælni
eða -sækni mjög mismunandi
eftir aldursskeiði. Þannig gefa
hlutabréf yfir lengra tímabil
mun betri ávöxtun en skuldabréf
og þannig hefur Hlutabréfasjóð-
ur Norðurlands gefið 18,2%
ávöxtun á síðustu sex árum - og
því eðlilegra að yngra fólk eigi
meira af hlutabréfum en skulda-
bréfum á því æviskeiði,“ segir
Tómas.
Gengið stjómast af ýmsum
þáttum
„Gengi hlutabréfa í fyrirtækjum
stjórnast af ýmsum þáttum en
einkum af tvennu. Fyrst og auð-
vitað að langstærstu Ieyti af af-
komutölum þeirra og framtíðar-
horfum, en síðan einhverjum
straumum og stemmningu sem
ekki er gott að útskýra í mörgum
tilvikum," segir Tómas Her-
mannsson. „Þegar einhver einn
aðili kaupir bréf í fyrirtæki, þar
sem sala hefur verið lítil á und-
an, vekur það áhuga og þannig
fer boltinn oft að rúlla án þess
að áþreifanlegt tilefni sé beint
til staðar. Stundum hagnast fólk
á þessu, en oftar ekki. Miklu
oftar er fjallað um þá sem hagn-
ast, en þá sem tapa.“
Ekkt frltt spil
Þó starfsfólk verðbréfafyrirtækja
sé með puttann á púlsi Ijármála-
lífsins hefur það sjálft ekki frítt
spil um eigin Ijárfestingar, því
ákveðnar siðareglur eru gild-
andi. Starfsfólki Kaupþings
Norðurlands er til dæmis
óheimilt að kaupa bréf í fyrir-
tækjum sem skráð eru á Opna
tilboðsmarkaðnum, enda nær
strangt eftirlit Verðbréfaþings Is-
Iands ekki yfir félög sem eru
skráð þar.
Hinsvegar segir Tómas að
fólk sem starfar í þessum geira
hafi frjálsar hendur um eigin
kaup á verðbréfum eða hluta-
bréfum í fyrirtækjum sem skráð
eru á Verðbréfaþingi, þó með
nokkrum veigamiklum undan-
tekningum. Þanning megi
starfsfólk Kaupþings Norður-
lands til dæmis ekki kaupa bréf í
félögum sem koma ný inná
markað í umsjón þess. Allur
gangur sé hinsvegar á því hvort
fólk sem starfar í þessum geira
taki þátt í viðskiptum á þessum
mörkuðum. -SBS.
Undur oq stormerki...
www visir is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Leikfélag
Akureyrar
Söngvaseiður
Tlie Sound of Music
eftlr Richard Rodgcrs og Oscar
Hammerstein II,
sýn. föst. 1. ntaíkl. 20.30
UPPSELT
sýn. laug. 2. maí kl. 20.30
UPPSELT
sýn. sunnud. 3.maíkl. 16.00
laus sæti
sýn.föst. 8.maíkl. 20.30
UPPSELT
sýn. laug. 9. maí M. 20.30
UPPSELT
sýn. sun. 10. maí kl. 16.00
sýn.föst. lS.maíkl. 20.30
sýn. laug. 16. maí kl. 20.30
sýn. mið. 20. maí kl. 20.30
sýn. fimm. 21. maí kl. 20.30
sýn. laug. 23. maí kl. 20.30
sýn. smm. 24. maí kl. 20.30
Síðustu sýningar
„Saltið er gott, en ef saltið missir selt-
una, með hverju viljið þér þá krydda
það? Hafið salt í sjalfum yður, og hald-
ið frið yðar á milli. “ 9. 50.
Markúsar-
guðspjall
Einleikur Aðalsteins Bergdal.
á Renniverkstæðinu.
Lýsing: IngvarBjömsson.
Leikmynd: Manfred Lcinkc.
Leikstjóm: Trausti Ólafsson.
sýn. fimmt. 30. april kl. 20.30
sýn. fiuunt. 7. maíkl. 20.30
sýn. fnnmt. 14.maíkl. 20.30
sýn. sunn. 17. maí kl. 17.00
síðustu sýningar á Akureyri
í Bústaðakirkju í Reykjavik
31.maíkl. 20.30
og 1. júníkl. 20.30
Gjafakort á Markúsarguðspjall
tilvalin fermingargjöf
Landsbanki íslands vcitir
handhöfum gull-dcbctkorta
25% afslátt.
Miðasalan er opin þriðjud.-flnuntud.
kl. 13-17, fðstud.-sunnud.
frain að sýningu.
Simsvari allan sólarhringinn.
Munið pakkaferðirnar.
Sími 462 1400
er styrktaraðili Lcikfélags Akureyrai'