Dagur - 30.04.1998, Síða 8
24 -FIMHÍTUDAGUR 3 0. APRÍl. 199 8
rD^r
LÍFIÐ í LANDINU
• Smávegis útlitsgölluð heimil-
istæki eru oft seld með mjög
miklum afslætti. Stundum er
líka hægt að gera sölumönn-
um tilboð sem lækka verðið
enn.
• Kaupið miða eða árskort í
sund. Sund er ódýr og holl
íþrótt og svo sleppur maður
við að baða krakkana.
• Vönduð stígvél endast miklu
betur og oft geta systkini
notað þau hvert af öðru. Þó
þau séu dýrari í innkaupum,
þá margborgar sig að kaupa
þau.
• Kartöfluréttir eru ódýrir og
seðjandi. Fyrir utan að vera
afspyrnu góðir.
• Ódýr og góður hádegismatur
fyrir svanga krakka er: 1 egg,
steikt eða soðið, 1/4 ds. bak-
aðar baunir og 1 brauðsneið
með osti, kínakáli og gúrku.
Með þessu drekkist eitt glas
mjólk eða svo. I eftirmat er
gott að borða banana eða
epli.
Lúxemborg-
arar þegj a
einsog
steinar
Kauphóll Landsbréfa - Netscape
<#>
KAUPHÖLL ^
LANDSBRÉFA
Nú geta allir keypt og selt hlutabréf
- á vefnum: kaupholl.landsbref.is
* Ókeypis varsla verðbréfa.
•> 33% lægri söluþóknun vegna hlutabréfa.
* ítarlegt yfírlit um verðbréfaeign þína.
* Lágmarksviðskipti með hlutabréf einstakra fyrirtækja
aðeins 60 þúsund krónur.
Allar nánari upplýsingar fást hjá ráðgjöfum Landsbréfa.
Sæktu um aðgang
á v e f n u m
kaupholl.iandsbref.is
LANDSBREF HF.
1 /tu
k I. 0 6. 0 0 - 2 4. 0 0.
Bankamaður segist
trúa því að helmingur
spamaðar Gunnu og
Jóns sé ekki á skatta-
framtalinu
I smáríkinu Lúxembúrg, sem Is-
lendingar hafa átt góð samskipti
við frá því um miðja öldina eru
220 bankar starfandi. Það er
auðvitað ekki nein tilviljun. Lúx-
emborgarar eru búnir að koma
sér vel fyrir með þann atvinnu-
veg að geyma peninga fyrir fólk
víða að af jarðarkringlunni. Og
þeir eru þagmælskir ekki síður
en Svisslendingar.
Viðmælandi Dags, valdamað-
ur úr bankakerfinu, sem alls
ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði að frá Islandi ætti sér stað
stórfelldur fjárflótti vegna fjár-
magnstekjuskattsins sem lagður
hefur verið á.
„Menn segja þetta ekki upp-
hátt og fáir viðra það, alla vega
ekki við blaðamenn, en það er
auðvitað ljóst að þessir „offs-
hore“-sjóðir í Lúxemborg gefa
ekkert upp við íslensk stjórn-
völd, þótt eftir því yrði leitað.
Milli þessara landa er enginn
tvísköttunarsamningur í gildi.
Vilji menn láta fjármuni hverfa,
þá verða þeir að eiga það við
samvisku sína,“ sagði viðmæl-
andi blaðsins.
Hann sagði líka að fyrir
nokkrum árum hafi innistæður
fólks í bönkum hvorki verið
framtalsskyldar né skattskyldar.
Núna er staðan sú að innistæða
í banka er hvort tveggja, fram-
talsskyld og skattskyld ef farið er
yfir ákveðið hlutfall.
„Eg hugsa að helmingur eða
meira af öllum bankainnistæð-
um á íslandi séu ekki taldar
fram. Menn halda nú að þetta
séu stóru hákarlarnir sem eigi
þetta fé, en þeir eiga hlutabréf
og erlendar innistæður í bönk-
um. En það er ekki svo. Þetta er
bara venjulegt fólk, Jón Jónsson
og frú, sem eiga kannski frá
tveimur og upp í fimmtán millj-
ónir, kannski undir koddanum
þess vegna. Bankarnir þurfa
hins vegar ekki að tilkynna
skattyfirvöldum af hverjum þeir
eru að taka fjármagnstekjurnar.
Bankinn sendir bara eina ávísun
fyrir alla sína viðskiptavini til
ríkissjóðs," sagði heimild blaðs-
ins. Ennfremur telur heimildin
að fjármagnstekjuskatturinn
þýði í raun að íslendingar séu
farnir að leita útrásar fyrir spari-
fé sitt til að fjárfesta betur, - og
Iosna við óvinsælan íjármagns-
tekjuskatt. -JBP