Dagur - 30.04.1998, Side 10
26 - FIMMTUDAGUR 30.APRÍL 1998
LÍFIÐ t LANDINU
Upplýsingar gulls ígildi
RNANCE
r°'9 Y
6«fc loor Rewards!
rinatHóor
, nii
Tuo Apk 28 2:16PM Castgm UÆ. Tinw — U.S. Markdte close m 1 hour 44 nvinutes.
&6W 9887.75 -29S9 (-0.S4SS) Hastfcm 1622.52 +3.21 00,1895) S"ÍP 500 1084.28 *2.26 (-0.2195)
MYSE Volun\* 473,559,000 Mécdaa Vðlurr* 558,667,000 30-Yr Böftd 6 052« -0.011
Vohoo! Chot with Michael Bloomberg, Founder ond CEO of BioomberQ - 2pm PT / 5pm ET.
[ Get Quotes 1 Bosic
3 sqmbol lookuo
I inuncia) Mcws
Vf. Biyttl,-i«v<
euaíiacy.
us. POl
fr-'ifrrn'icna'
Stendiri) R Paw'i
PR Wtwivirt
tofixtKS tfir,
SECiÍÍIiM
Dfll£«yH25t
Portfolios(Trock your fovorite stocks here): i
RerirBncai-ttSii
CcniMBU & Iijfil Irrfty
r,f-.^rr.r. Cateftdar
Eh-hími C»l«Ml>r
S.Mpg|lw>mr
fjMCdll Clwiwy,
InvifOniPt Nt' Wcplf
Rte.wiSBii hdniiwi
Web Sltos
vjHiaLEjCMitfyass.
VlSno! rirur.rc .Jspatl
!te!t£
• Morkets: US, / Cansde / World
• Currencu Exchanae Rates
• Most Actives: 1L£, / Canada
• farnlnos Surorlses
• l-MtiSl.BmflS
• i.aa!Lesni£.r
• insurance Center ncwi
tatost Market News
• XMMa.Usyjjaal
• TheStreel com
; * uaaaiaiJiasitsaaiiEi
• The pnlinc Invgstpr
• Messaoe Boards
• 5H,flk..Cfta.t
• StPCK/MewsTlckflr
• Investment Challenge (Beta)rw
Tv»l:52PM
- Tue I :50PM
Coífee Pecmle oerks uo on meroer news - Tue t :4IPM
COPRECTFO - SAP uns TCI Salellite - Tue 1 :4IPM
US 2-ur note Dutch nucl lon hlnh nleid 5 677 nct - Tue l :40PM
Aaron.Rents 2.5 mln shr offerinn orlcefl - rue i kpm
Securltle.s.re.gulators fleny CanMS.trSfllffSl - Tuc I 29PM
- Tue i :26PM
- Tue I :25PM
US. stocks hlohermlddau. bul earlu rallu eases - Tue i -25PM
StiP rates PRIMESTAR Inc $400 mln snr sub notes r Tue 1:12PM
Tuel :10PM
PFSPAPrH Al FPT - finlnmnn'e nine llk clnrk nlrl,-s - Tne I .nnPM
Á fjármálasiðu Yahoo liggja leiðir til allra átta og hægt er að skoða hreyfingar á
mörkuðum um allan heim.
Intemetið hefurgjör-
breytt möguleikum
fólks til að fylgjast
meðþvísem erað
gerastá verðbréfa-
mörkuðum.
Það er stundum sagt að upplýs-
ingar séu gulls ígildi og má sjálf-
sagt til sanns vegar færa. A verð-
bréfamarkaði er þessi fullyrðing
hins vegar bjargfastur sannleik-
ur. Upplýsingar af öllu tagi hafa
áhrif á verð og gengi verðbréfa,
en hlutabréf eru viðkvæmust
fyrir verðsveiflum sem oftast
verða vegna nýrra upplýsinga.
Fylgsl með 11111 allan heim
Hagfræðingar tala gjarnan um
skilvirkan markað þar sem verð-
myndun er háð því að allir fjár-
festar fái upplýsingar á sama
tíma. Þess vegna eru ströng skil-
yrði fyrir því að eiga viðskipti
með hlutabréf þegar upplýsingar
um stöðu og rekstur fyrirtækja
eru gefnar upp. Þegar íslenskt
fyrirtæki á Verðbréfaþingi sendir
frá sér afkomutölur eru viðskipti
með bréf í því stöðvuð uns
tryggt er að allir hlutaðeigandi
hafí fengið eða haft tækifæri til
að nálgast upplýsingarnar. Þá
hefjast viðskiptin á ný.
Möguleikar almennings til að
fylgjast með því sem er að ger-
ast á verðbréfamarkaði hafa
stóraukist við tilkomu Inter-
netsins. Nokkrar heimasíður
hér á Iandi fylgjast með við-
skiptum á verðbréfaþingi og
birta þau 15 mínútum eftir að
þau eiga sér stað.
Vefir Fjármálatorgs,
http://fjarmal.is og viðskiptavef-
ur Vísis http:www.visir.is birta
slíkar upplýsingar, auk þess sem
þar er að finna greinar um við-
skipti og upplýsingar um fyrir-
tæki á markaðnum.
Slíkir vefir eru þekktir erlend-
is og er hægt að fylgjast með
verðbréfamörkuðum víða um
heim á netinu. Vænleg leið til
að finna slíka vefi er að fara á
http://quote.yahoo.com/iu, en
þaðan liggja leiðir til allra átta í
fjármálaheiminum.
Keypt og selt á netinu
Það hefur líka færst í vöxt að
fólk geti keypt og selt verðbréf á
veraldarvefnum. Landsbréf hafa
til að mynda opnað Kauphöll á
netinu þar sem einstaklingar
geta keypt og selt bréf í fyrir-
tækjum á verðbréfaþingi, auk
annarra verðbréfa og sjóða á
vegum Landsbréfa. Menn geta
nálgast upplýsingar um Kaup-
hölíina og það sem er í boði á
slóðinni http://landsbref.is.
Astríður Þórðardóttir hjá
Landsbréfum segir þónokkurn
hóp fólks nýta sér þennan
möguleika, bæði til að kaupa í
sjóðum og til að kaupa og selja
hlutabréf. „Þeir sem eru byijaðir
að eiga viðskipti á netinu virðast
halda áfram og tilkoma þessara
viðskiptahátta eykur tíðni við-
skipta á þinginu."
Ásdís segir að einstaklingum
sem eru að Ieggja til hliðar sé al-
mennt bent á að kaupa í sjóðum
og mikil áhætta fylgi því að
kaupa og selja hlutabréf. „Menn
ættu ekki að taka þátt í þessu,
nema þeir hafí áhuga á að fylgj-
ast með gengi fyrirtækjanna og
séu tilbónir að taka áhættu.“
Hón segir hins vegar að margir
noti þennan möguleika til að
kaupa í innlendum og erlendum
sjóðum, enda sé þetta þægilegur
og fyrirhafnarlítill viðskiptamáti.
HH
insir
Viðskipti
Frfeltlr | Iþrólllr | VIAsHptl [ Veður | Smtaualýslnaar DV | forslaaT
rcfavefur
1.402 mfcr.
743rvfcr.
gsm.: 646rrfa,
bt/OT: II rrfct.
Þingfréttir
VIÐSKIPTI DAGSINS
á Verðbréfaþingi íslands
KI. 18:19,28X34.1999. Allar upfklgsingar iru mf8 15 míflúfn* ífinkuri.
AÐALUSTI
rkéhmt Féfeg Köup SölO Gengi Breyting Tfmi FJðlúi Pús. kr.
ar dagsfn fcasegQB löhn? ntóð rráíattc+kanrs ln skoóunl y.&im'sæs&J Hf. Eímskipifélaq ísUnds 6,25 6,25 6,25 0,8 « ♦ 15:08 i 160
Hra&fry stihús Eskifjar&ar hf. 8,12 8,15 8,10 0% 10:46 3 2.452
Lyfjaverstun íslands hf. 2,75 2,75 2,75 -1,7« 14:32 1 257
Oltuverslun íslands hf. 5,00 5,00 5,00 0» 11 :10 1 150
Samher jí hf. 7,22 7,25 7,25 3,6 « ♦ 1530 2 2.280
Sitdarvinnslan hf. 5,52 5,32 5,32 -1,4« ♦ 12:25 1 ^ 520
SR-Mji>t hf. 4,97 5,05 5,05 -2,8« ♦ 11 ;48 2 2317
tiptavakti Solusamtand tsl, fiskframt. hf 4,48 4,49 4,48 -2,5« ♦ 10:30 1 896
Teeknival hf. 5,00 5,02 5,00 -1,9« ♦ 1335 1 500
IMÉR* 1 1 Vinnslustö&in hf. 1,62 1,67 1,62 -4,6« ♦ 15:36 1 486
Þormó&ur rammi-Sdébery hf. 4,49 4,50 4,51 2,5« ♦ 1551 2 744
-<nti iivair>sí>átt Þróunarfétag íslands hf. 1^2: 1,55 1,52 1,3« 13:48 1 304
nlent inils' mar Sömiö/s /7 //.066
VAXTARLÍSTI
róttlr
i IKB
l'Ti
Féleg \ k’oup [ Se/o | Gengf | Breytfng | T/mi [ Fjöldr | Pus. Ar.
I Engínviðskiptihaíaveriðícfóg.
HLUTABRÉFASJÓÐIR
Sjoður_____[ A'oi/p 1 Safð ( Gengi j ðreytmg | T/mi\ Fjöldi| Ft/s. Ar. |
Víða má finna sfður þar sem viðskipti á Verðbréfaþingi íslands eru sýnd 15 mínútum
eftir að þau eiga sér stað. Þar geta menn fyigst með gengi fyrirtækja og leitað
upplýsinga um þau.
Áhættan í lágmarki
Erlend vátryggingafyrirtæki eru
íhaldssöm í eðli sínu og taka
ekki mikla áhættu með söfnun-
arfé einstaklinga. Þá bjóða þau
upp á ýmsar öruggar leiðir hjá
stórum og gjaldþolnum erlend-
um fyrirtækjum, til dæmis með
samningum sem ná undir Ióx-
emborgísk Iög sem veita ríkisá-
byrgð á söfnunarlíftryggingum.
Áhættan er því í algjöru lág-
marki, til dæmis hjá bresku fyr-
irtækjunum Sunlife og Friends
Provident.
„Þumalputtareglan er só að ef
maður leggur fyrir 10 þósund
krónur á mánuði þá hefur mað-
ur safnað 1,8 milljónum króna
eftir tíu ára samningstímabil. Ef
um 25 ára samning er að ræða
er upphæðin 10 milijónir og
rómlega 16 milljónir eftir 30 ára
söfnun miðað við 10 prósenta
nafnávöxtun," segir Smári og
bendir á að upphæðin sé því
hærri og hagstæðari eftir því
sem söfnunin byrjar fyrr.
Hann kveðst gjarnan ráðleggja
fólki, sem vill setja 10.000 krón-
ur í líftryggingu, að setja ekki
alla upphæðina í sparnað heldur
hluta af henni í tryggingavernd.
-GHS
Líftryggingar má
kaupagegnum sjálf
stætt staifandi vá-
tryggingamiðlara sem
selja líftryggingarhjá
erlendum fyrirtækjum
sem em nánast
skraddarasaumaðar
fyrirhvem og einn.
Smári Ríkharðsson vátrygginga-
miðlari selur Iíftryggingar fyrir
erlend fyrirtæki og veitir mjög
persónulega þjónustu. Hann
hefur menntað sig sérstaldega í
hagfræði vátrygginga og reynir
að finna líftryggingu sem hentar
hveijum og einum ót frá þeim
þörfum sem viðkomandi hefur.
Þannig getur sjómaður, sem
reykir vindla, til dæmis haft aðr-
ar þarfir en reyklaus skrifstofu-
maður og tryggingafélögin geta
haft mismunandi kosti í boði.
Líftryggingar hafa um langt
skeið verið algengar hjá einstak-
lingum erlendis enda veita
bankar í ótlöndum ekki lán
nema einstaklingar séu með líf-
tryggingu á bak við sig, að sögn
Smára, meðan íslenskir bankar
biðja eingöngu um veð í steypu.
Erlendu fyrirtækin eru að sjálf-
sögðu með söfnunarlíftryggingar
í boði, þar sem samtenging er
milli hefðbundinnar líftrygging-
ar og sparnaðar. Ef tryggingar-
takinn fellur frá fá aðstandend-
ur hans ákveðna upphæð.
Sömuleiðis getur hann tekið alla
upphæðina ót við ákveðinn ald-
ur.
Erlendu fyrirtækin eru að sjálfsögðu með söfnunariíftryggingar i boði, þar sem samtenging er milli hefðbundinnar líftryggingar og
sparnaðar. Ef tryggingartakinn fellur skyndilega frá fá aðstandendur hans ákveðna upphæð. Sömuleiðis getur hann tekið alla
upphæðina út við ákveðinn aldur.