Dagur - 25.06.1998, Side 1

Dagur - 25.06.1998, Side 1
f Jón Ásgeir framleiðir fluguhnýtingarefni m.a. úr íslenskum kálfahölum og selur til útlanda. Hann fékk strax viðbrögð þegar hann leitaði fyrir sér. Flugur úr íslenskum kálfahölum eru bestar! mynd: brink Enginjörð? Best að framleiða fluguhnýtingarefni úrkúa- hölum! JónÁsgeirHreinsson ergrafískur hönnuður íAðal- dal en framleiðir einnig fluguhnýtingarefni og selur út. „Eg vann á auglýsingastofum í Reykjavík I í 1 5 ár áður en við fluttum hingað. Ég var orðinn þreyttur á bransanum og ætlaði að gerast kúabóndi í Aðaldal en það var eng- in jörð á lausu. Þannig að ég sneri mér bara að kálfahölunum," segir Jón Asgeir Hreinsson, grafískur hönnuður í Aðaldal. íslenskt, nei takk Enga fékk Jón Ásgeir bújörðina en býr í gamla barnaskólanum í Aðaldal og hefur komið sér þar upp prýðis vinnuaðstöðu. Jón Ásgeir er sjálfmenntaður í hönnun- inni og segir verkefnin næg og í raun allt of mörg. „Ég anna þessu engan veginn. Það gætu þess vegna verið tveir auglýs- ingateiknarar hér í viðbót." Jón Ásgeir hef- ur undanfarið staðið í ströngu við að und- irbúa opnunina á Hvalamiðstöðinni á Húsavík sem var opnuð þann 17. júní. En Jón Ásgeir er ekki eingöngu í graf- ískri hönnun. Hann hefur einng getið sér gott orð fyrir að framleiða fluguhnýtingar- efni úr íslenskum dýrum og selt það út. „Hugmyndin kviknaði þannig að við vor- um nokkrir aðilar að hnýta í fluguhnýting- arklúbbi úr Aðaldalnum og frá Húsavík og mig vantaði alltaf fluguhnýtingarefni. Ég fór því að líta eftir efni og fékk að klippa nokkur hár úr kálfahölum á stöku stað en svo fór hugmyndin að fæðast. Það er nátt- úrulega vitleysa að flytja þessi efni inn.“ Upp úr síðustu áramótum fór Jón Ásgeir því að framleiða fluguhnýtingarefni fyrir innanlandsmarkað en gekk illa. „Ég held að Islendingar hafi bara ekki kveikt á per- unni. Ameríkaninn kveikti hins vegar strax. Efnið var upphafiega í íslenskum umbúðum og á þeim stóð að þetta væri al- íslenskt. Ég held að það hafi fælt Islend- inga frá. Við kaupum ekki gallabuxurnar frá Vír, við kaupum Levi’s." Sem ungmeyjarhár Jón Ásgeir sækir fluguhnýtingarefnið sitt í ýmsar skepnur, t.d. ísbirni, refi, geitur, hænur, rjúpur að ógleymdum kálfahölun- um. Evrópumarkaðurinn er að opnast fyr- ir Jón en hingað til hefur hann einungis framleitt fyrir Bandaríkjamarkað sem hann segir gríðarlega stóran. „Það besta við Ameríkanann er það að um leið og það er orðið erfitt að ná í vöruna er hún orðin ákveðið „rarítet“. Kálfahalinn íslenski er orðinn mjög mikið „rarítet" í Bandaríkjun- um því hann er ekki ósvipaður ísbjarnar- skinninu sem er bannað þar. Hann er því mjög eftirsóttur þar ytra sem og refurinn, geitin og rjúpan.“ Jón Ásgeir vinnur kálfahalana á ákveð- inn hátt. Beinin eru tekin innan úr og sldnnið þvegið. Þá er það lagt í mýkingar- efni „...og að lokinni vinnslu lyktar þetta sem ungmeyjarhár," segir Jón Ásgeir og tekur fram að engin eiturefni eru notuð við vinnsluna. Tryggja sig í ellinni Jón Ásgeir notaði veraldarvefinn til að koma sér á framfæri erlendis. „Ég sendi út fyrirspurnir og fékk strax viðbrögð og í dag anna ég engan veginn eftirspurn. Það er þó aðallega fyrir það að ég hef engan tíma fyrir þetta. Ég er alltaf að teikna.” Jón Ás- geir segist gjarnan vilja minnka við sig hönnunina og eyða meiri tíma í fluguhnýt- ingarefnið. Nú er undirbúningur fyrir haustið en þá er mesta eftirspurnin eftir efninu. „Nú eru allir að veiða en þegar haustar og helsta veiðitímabilinu lýkur fer menn að klæja í fingurna og vilja gera eitt- hvað tengt veiðiskapnum eins og að hnýta flugur.“ Jón Ásgeir hefur trú á þessum bransa og telur þetta geta orðið arðvænt á endanum. „íslenska hárið er ofsalega þétt. Islensku kálfahalarnir eru t.d. miklu þétt- ari en kálfahalar annars staðar. Hárin eru lengri og þéttari hér vegna tíðarfarsins. Þetta er eitthvað sem þeir erlendis hafa ekki séð áður,“ segir Jón Ásgeir. „Með þessu er ég líka að tryggja mér ákveðinn hluta í ellinni. Þegar ég er orðinn gamall maður get ég í sérvisku minni verið að dútla við þetta." -jv . . g æ ð i á frábæiu verði! UNIROYAL Sterk og vönduð jeppadekk fyrir íslenskar aðstæður Gúmmívinnustofan ehf. Réttarhálsi 2, sími: 587 5588 Skipholti 35, sími: 553 1055 Þjónustuaðilar um land allt. t

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.