Dagur - 25.06.1998, Qupperneq 6

Dagur - 25.06.1998, Qupperneq 6
22 - FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 LÍFIÐ í LANDINU L. D^ht Það varblíðskaparveð- urí síðustu viku þegar Kútterjóhanna lagði úrhöfn áAkureyri rétt eftirhádegi með far- þega ofan þilja á leið í siglingu um Eyjafjörð- inn. Skipstjórinn Níels Erlingsson leysti landfestamar og veður- barðir faereyskir sjómenn ýttu skútunni frá landi og komu vél- inni í gang. Við sigldum rólega út á PoIIiníi og karlarnir hífðu seglin upp með tilheyrandi köll- um og sviptingum. Fyrir rúm- um hundrað árum var skútan fyrst sjósett og það hafa eflaust margir sjóarar staðið á þilfarinu að draga sé björg í bú. Skútan er einstaklega falleg og virðuleg í allri sinni dýrð og sem betur fer tókst að bjarga henni frá votri gröf þar sem margar systur hennar hvíla nú með sögur sem aldrei verða sagðar til fulls, af hugrökkum sæförum og stór- brotnum ævintýrum frá fyrri tíð. Kútter Jóhanna er nú komin til sumardvalar, við Torfunefs- bryggju á Akureyri þar sem heimamönnum gefst kostur á að sigla um Eyjafjörðinn í sumar og njóta náttúrunnar við fiskveiðar og dýralíf. „Skútan var byggð í Grimsby á Suður-Englandi árið 1884 en var síðan keypt til Færeyja árið 1894,“ segir Níels Erlingsson skipstjóri. Arið 1981, þegar átti að sökkva henni, eins og þá tíðk- aðist með úr sér gengnar skútur var stofnað félag um varðveislu skútunnar sem fékk hana keypta á krónu. Skútan var gerð upp í sinni upprunalegu mynd og tók viðgerðin 7 ár. Draumórar í pabbanum Níels Jakob Erlingsson og sonur hans Erlingur Níelsson hafa nú leigt Kútter Jóhönnu, og verða um borð í sumar. Níels hafði gengið með þennan draum í maganum í nokkur ár þegar hann hafði samband við félag Kútter Jóhönnu. Níels bauð Er- lingi syni sínum að taka þátt í ævintýrinu, en Erlingi leist ekk- ert á þessa „draumóra" í pabba sínum til að byija með. Níelsi Níels Jakob Erlingsson og sonurhans Erlingur Níelsson hafa nú leigt Kútterjóhönnu, og verða um borð í sumar. Kútter Jóhanna leggst að Torfunefsbryggju á Akureyri. myndir: rut tókst þó að sannfæra son sinn og félagið tók vel í hugmyndina. Loksins var lagt í hann og skútan var sótt til Færeyja. Ferð- in tók fjóra sólarhringa og með henni kom tíu manna færeysk áhöfn, sem nú er farin aftur heim fyrir utan stýrimann og há- seta sem verða i áhöfninni f sumar auk Níelsar og Erlings. Níels hefur ekki komið á sjó í 30 ár og er nú orðinn skipstjóri í sumarfríinu og segir það kær- komna tilbreytingu. „Það eru margir sem skoðað hafa skútuna sem fá blik í augun, því Færey- ingar Iögðust oft að bryggju á Akureyri og þá hlupu litlir guttar um borð og fengu beinakex,11 segir Níels. Þeir feðgar ætla að leigja hana tvö næstu sumur, ef vel gengur en 25. júlí fer Kútter Jóhanna til vetrardvalar við bryggju í Vág og hefur nú þegar verið pantað pláss með henni í þá ferð. Skút- an er tilvalin fyrir veislur og hverskyns skemmtiferðir lengri eða styttri þar sem hægt er að fá veisluþjónustu um borð ef óskað er. „Viðtökurnar hafa verið von- um framar og við höfum mikla trú á að þetta eigi eftir að setja svip á bæinn og Iífga upp á ferðaþjónustu í Eyjafirði,“ segir Níels Erlingsson skipstjóri á Kútter Jóhönnu. -Rut Kvöldsigling í Firðinum Sáfarkostur sem býðst nútímavíkingum er harla ólíkurlangskip- unum frægu en ævin- týrið erengu að síður til boða hjá Langskip- um íJJafnarfirði sem bjóða mönnum upp á siglingu á nútíma vík- ingafleyjum. Það eru Ingi Þór Þorgrímsson og kona hans Margrét Jóna Jónsdóttir sem gera út gúmmí- bátana með skrímslahausunum og Islendingar eru helstu við- skiptavinirnir en ekki ferðamenn eins og maður hefði haldið. „Islendingar vilja söguna, hérna í kringum Bessastaði og Gálgahraunið er frá miklu að segja. I hrauninu voru menn hengdir, skornir niður og dysjað- ir,“ segir Ingi Þór. „Það er líka alveg bráðskemmtilegt að sýna fólki staði sem það hefur kannski verið á alla ævi en aldrei tekið eftir eða spáð í.“ Lagt er af stað við Fjörukrána og tekur ferðin um tvo tíma. Tengslin við víkingakrána eru þó óbein en stundum er fólki rænt í bátana og því síðan skilað á krána. „Það hefur enginn orðið sjó- veikur ennþá og menn eru Ijóm- andi ánægðir með að láta ræna sér, síðan er tilvalið fyrir sjálfvilj- uga að fara í kvöldsiglingu á sumrin," segir Ingi sem hefur siglt með fólk í þrjú ár. „Eg er að byggja þetta upp, smátt og smátt, og fer aðallega út um helgar og á kvöldin þó það fari aðallega eftir bókunum." Ingi Þór Þorgrímsson við stýríð, Jón Halldór Jónasson, ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðar, og Kristján Helgason, starfsmaður Upplýsingamiðstöðvar í Hafnarfirði.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.