Dagur - 04.07.1998, Side 9

Dagur - 04.07.1998, Side 9
 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 19 9 8 - 25 Einkaframtakið lifir! Fjöldinn allurafkomungufólkifernú fram á ýmsum sviðum atvinnulífsins meðfyrirtæki sem það á sjálft. Þau eru rétt komin yfir tvítugt en reka búðir, kaffihús, selja hesta, reka útvarp oggera upp bíó - reksturinn ermarg- vísleguren áhuginn sameiginlegur. Dagurkynnir til leiks ungt athafnafólk sem ætlar sér að gera það gott áAkureyri. Leó og Anna Jóna vildu reyna eitthvað nýtt og fóru út í verslunarrekstur. Úr Brynjuísniim í tískufatnað „Við ætlum að verða millar," segir Leó Fossberg Júlíusson og hlær spurður af hveiju hann fór út í verslunarrekstur. Hann ásamt unnustu sinni, Onnu Jónu Garðarsdóttur, festi kaup á tískuvöru- versluninni Contact á Akureyri ekki alls fyrir löngu. Þau eru bæði ung að árum, Leó er 23 ára og Anna Jóna tvítug. „Við vildum reyna eitthvað nýtt. Eg er búinn að vinna nánast frá þrettán ára aldri í versluninni Brynju og var orðinn leiður á því,“ segir Leó og segir fátt skylt með Brynjuísnum margrómaða og tísku- fötum. Anna Jóna segist sömuleiðis hafa fengið nóg af fyrri störfum. „Verslunin var ekki til sölu en við gerðum bara tilboð í hana og því var tekið,“ segir Anna Jóna. Parið unga segist ekki hafa reynslu af verslunarrekstri en þetta Ieggist vel í þau og þau eru ekkert hrædd um að reynsluleys- ið verði þeim að falli. Búðin hef- ur fengið nokkra andlitslyftingu. Nýjar innréttingar hafa verið settar upp og allt málað að nýju. Litlar áherslubreytingar verða þó og sömu vörur eru á boðstólnum og fyrir breytingarnar. Seldur er tískufatnaður en einnig er nokk- uð um snyrtivörur. „Við erum með fullt af merkjum. Við erum með einkaumboð fyrir Diesel og erum einnig með önnur merki, bæði fyrir dömur og herra. Þá erum við með stærri númer en fyrirrennarar okkar og viljum þannig koma til móts við stærra fólk. Maður mátti varla vera mikið yfir 170 sm á hæð. Þá var ekkert til,“ segja þau Leó og Anna Jóna. Með vinsælli búðum í bænum Að sögn Leós og Onnu Jónu hefur gengið vel þann stutta tíma sem þau hafa átt verslunina. „Það er nokkur hagnaður á þessu en það er svo stutt síðan við fórum út í þetta svo þetta á eftir að koma í ljós.“ Anna Jóna segir að kosturinn Hð sjálf- stæðan rekstur fram yfir skólann sé sveigjanlegi vinnutíminn auk þess sem þau ráða sér sjálf. „Það er gott að geta brugðið sér frá, sérstaklega ef maður er með barn.“ Fólk á öllum aldri sækir í verslunina. „Eg sá karl um fimmtugt hér um daginn en ætli markhópurinn sé ekki þetta 12-40 ára,“ segir Anna Jóna. „Við erum bjartsýn á að þetta gangi vel. Versl- unin er á góðum stað í bænum og ég mundi segja að þetta væri með vinsælli verslunum á Akureyri." Þormóður var á leið í skóla þegar tækifæri bauðst til að setja á fót verslun. „Ég sé ekki eftir því í dag.“ Áhættan borgaði sig „Eg var eiginlega á leið í skóla haustið ’97 þegar Siggi kom með þá hugmynd að opna snjó- og hjólabrettabúð hérna á Ak- ureyri. Eg sló til eftir nokkurra daga um- hugsun og sé ekki eftir því í dag,“ segir Þormóður Aðalbjömsson, 25 áraAkureyr- ingur, sem ásamt Sigurði Arna Jósefssyni er eigandi Holunnar á Akureyri. „Kostur- inn við þetta umfram skólann er kannski sá að hér er ég að fást við eitthvað sem ég hef virkilega áhuga á en eins og með skólann tekur e.t.v. meiri tíma að finna eitthvað sem vekur áhugann," segir Þor- móður. Þormóður og Sigurður stunduðu báðir snjóbrettin og kynntust þannig. Þormóð- ur segir að hugmyndin hafi verið að kynna snjóbrettaíþróttina fyrir Norðlend- ingum en svo urðu hjólabrettin einnig vinsæl. Mikill uppgangur hafi verið í þessum íþróttum á þessum tíma og hafi enn aukist eftir opnun búðarinnar í októ- ber 1996. Hvorki Þormóður né Sigurður höfðu reynslu af fyrirtækjarekstri. „Það verður að taka einhverja áhættu í lífinu. Þetta var auðvitað töluverð áhætta en hefur tekist rosalega vel upp og hér stöndum við í dag,“ segir Þormóður. Hann segir búðina hafa gengið vel. „Við getum alla vega borgað laun, borgað af lánum og keypt nýjar vörur. Það er velt- an, þannig gengur þetta.“ Holan er ný- lega flutt í annað húsnæði þar sem gamli staðurinn var orðinn allt of lítill fyrir starfsemina. „Við gerðum allt sjálfir, mál- uðum og innréttuðum. Það er miklu skemmtilegra, það verður meiri sál í þessu.“ Kukabuxur og kók I Holunni fæst allt sem viðkemur snjó- og hjólabrettum. „Við erum að selja föt. Þetta er náttúrulega ekkert annað þó menn kalli þetta kúkabuxur eða eitthvað annað. Það er ekkert til sem heitir beint brettaföt." Fyrir utan alls kyns fatnað eru einnig fáanlegir skór, úr, merkimiðar að ógleymdum sjálfum brettunum. „Við selj- um meira að segja kók hérna. Strákarnir eru oft þyrstir," segir Þormóður og hlær. „Þetta eru allt toppvörur og brettagaurar hér fyrir norðan eiga ekki að þurfa að leita neitt annað en til okkar." Þormóður og félagar eru hvergi nærri hættir. „Við stefnum á að halda 4-5 snjó- brettamót og koma upp aðstöðu uppi í Hlíðarljalli í vetur. Þá reynum við að gera meira fyrir „skeitarana.“ Við fengum styrk frá Iþrótta- og tómstundaráði Akureyrar til að halda hjólabrettamót á 17. júní sl. Við höfðum barist fyrir því lengi að fá styrki og aldrei gengið fyrr en núna. Við erum mjög þakklátir fyrir þennan styrk. Það er dýrt að halda svona mót. Pallurinn sem var notaður kostaði einn og sér um 300 þúsund krónur. Aðalatriðið er svo að fá einhverja aðstöðu hérna í bænum, helst inniaðstöðu. Nýja bæjarstjórnin hefur talað um að gera eitthvað. Eg vona bara að eitthvað verði úr því.“ Ingi Þór lítur á veitingareksturinn sem fyrst og fremst góða reynslu. Hábgert flipp „Við komum inn í þennan rekstur fyrir rúmum sjö vikum og við erum á fullu að breyta og bæta staðinn," segir Ingi Þór Ingólfsson, 25 ára Akureyringur sem rek- ur nú Ráðhúskaffi á Akureyri ásamt Mar- ínó Sveinssyni. „Það var haft samband við okkur að fyrra bragði. Okkur fannst þetta gott tækifæri og slógum til. Þetta var hálfgert flipp.“ Ingi Þór er lærður þjónn en þetta er frumraun hans í rekstri af ein- hverju tagi. Marínó er aftur vel sjóaður í bransanum og er í margs kyns rekstri. Hann er m.a. meðeigandi í Pizza ’67. „Eg lít á þetta sem reynslu og gott veganesti í framtíðina," segir Ingi Þór. Akureyringar seiuir til Ingi Þór segir ekki flókið að kaupa fyrir- tæki í dag. „Þetta er spurning um hvernig fyrirtæki þú ert að kaupa, í hvernig rekstri það er og hvað þú ert tilbúinn að leggja mikið af peningum í þetta.“ Upp- haflega var staðurinn hálfgerður skyndi- bitastaður og þá undir öðru nafni. Hann gekk heldur brösulega. „Menn hafa verið tregir við að fara út á virkum dögum og fá sér kaffi. Vín- og kaffihúsamenningin er að koma hingað. Eg er bjartsýnn. Sumarið lofar góðu við ætlum bara að hafa gaman að þessu.“ -jv Meðfæddur hestaáhugi Sigrún Brynjarsdóttir, tamningakona, er með meðfæddan hestaáhuga að eigin sögn og safnaði fyrir og keypti fyrsta hest- inn sjálf aðeins 10 ára gömul. Núna 15 árum síðar rekur hún fyrirtækið „íslands- hestar" ásamt bandarískum viðskiptafé- laga sínum, Will Covert, sem er 24 ára og kom inn í fyrirtækið árið 1995. Foreldrar þeirra beggja eiga í fyrirtækinu en Sigrún og Will eru aðalsprauturnar. „Við sjáum um tamningar, kennum, ræktum og höf- um flutt út, sl. 2 ár. Þetta fór hægt af stað þegar við byrjuðum árið 1993, en núna er þetta byrjað að rúlla. „Þetta var farið að hlaða svo utan á sig að það var bara í beinu framhaldi sem ég stofnaði fyrirtækið til þess að ná utan um þetta. Þetta var allmikil áhætta í upphafi þar sem ég byggði stórt hesthús, en for- eldrar mínir hafa stutt mig dyggilega auk þess sem ég vinn mjög mikið, allt árið um kring 14-15 tíma á sólahring. Fyrirtækið var aldrei stofnað til þess að græða á því enda er gróðinn enginn, þetta snýst bara um að þetta standi undir sér og gangi þokkalega sem það og gerir.“ Þau Sigrún og Will flækjast um allan heim til þess að leita að nýjum markaði, fara á sýningar eða keppa en helsti mark- aður þeirra er núna í Bandaríkjunum. Það er ekki stór markaður á Akureyri og í haust ætla þau að flytja fyrirtækið til Reykjavíkur til þess að geta stækkað við sig og komist í samband við fleira hesta- fólk. - RUT Sigrún Brynjarsdóttir og Will Covert eiga fyrirtækið íslandshesta. - mynd: rut

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.