Dagur - 25.07.1998, Side 9

Dagur - 25.07.1998, Side 9
■ .»!KHftíTr B • V ' \ I V f V A VI í» ? LAUGARDAGUR 25, V. 1« *5>\lf JÚLÍ 1998 - 25 barnahjúkrunarfræðingur og sinnir mikið fötluðum og lang- veikum börnum. Hún er í því starfi af lífi og sál. Um tíma gerðumst við stuðningsforeldrar og tókum að okkur fatlaðan dreng sem var hjá okkur í helg- ardvöl einu sinni í mánuði. Það er óskaplegt álag á foreldrum fatlaðara barna og erfitt fyrir flesta að setja sig í spor þeirra. Þessi reynsla hefur styrkt okkur öll og við leyfum okkur ekki að kvarta yfir smámunum eftir að hafa kynnst, kjarki, jafnaðargeði og dugnaði þeirra sem láta ekki áföllin buga sig.“ - Þið hjónin eruð húin að vera saman síðan þið voruð 17 ára, Hver heldurðu að sé lykillinn að góðu hjónabandi? „Hjón þurfa að vera afskap- lega góðir vinir, treysta hvort öðru, hafa sameiginleg áhuga- mál og rækta sambandið. I stjórnmálunum er það stundum dálítið erfitt vegna þess að mað- ur er mikið í burtu, vinnuálagið er mikið og maður er oft þreytt- ur og lúinn, með hugann við allt annað en Ijölskylduna þegar heim er komið. En við hjónin erum meðvituð um þetta og leggjum okkur fram við að rækta sambandið." - Mér er sagt að þú sért mikill iþróttamaður, hafir áhuga á hestamennsku, frjálsum íþróttum og knattspyrnu. „Það er reyndar mjög fátt sem ég hef ekki áhuga á. A sínum tíma keppti ég með KR í frjáls- um íþróttum og var mikið í fót- bolta. Eg er áhugamaður um íþróttir, er í líkamsrækt og hleyp og held mér í þokkalega góðu formi. Hestamennska er sameig- inlegt áhugamál okkar hjóna, sömuleiðis göngur og við förum alltaf einu sinni eða tvisvar á ári í slíka ferð. íMér líður aldrei betur en þeg- ar ég er kominn úr skarkala borgarlífsins og út í sveit. Eg á jörð vestur á Snæfellsnesi ásamt fleirum og er þar virkur þátttak- andi í ræktun æðarfuglsins, dúntekju og öðru sliku. Ég á mjög erfitt með að fara í frí bara til að gera ekki neitt. Eg nenni því ekki. Ég fer í frí til að takast á við önnur verkefni eins og gönguferðir, hestamennsku og sveitastörf." Ómerkilegur málfLutniugiir - Víkjum aðeins að bankamál- unum. Nú hefur þú orðið fyrir þvt oftar en einu sinni að gefa Al- þingi rangar upplýsingar, er það ekki óþægileg staða? „Það er mjög óþægilegt að lenda í slíkri stöðu. Ég óska eftir upplýsingum og verð að treysta því að þau fyrirtæki sem undir ráðuneytið heyra gefi réttar upp- lýsingar. Upplýsingar sem ég fékk frá Landsbankanum og Búnaðarbankanum voru ekki réttar og það er mjög alvarlegt að fara með rangar upplýsingar inn á Alþingi. Reynslan hefur kennt mér að svona upplýsinga- gjöf verður að vanda betur. Ég er ákveðinn f því að fara ekki með talnalegar upplýsingar inn í þingið nema Ríkisendurskoðun hafi staðfest að þær séu réttar. Þetta er ekki vantraust á þau fyrirtæki sem hlut eiga að máli heldur fyrst og fremst trygging fyrir því að upplýsingarnar séu réttar. Þetta getur hins vegar haft í för með sér að það mun taka lengri tíma að svara fyrir- spumum frá Alþingi heldur en annars hefði verið.“ - Þér hlýtur að þykja ósann- gjamt að stjómarandstaðan hafi krafist afsagnar þinnar vegna mála sem þú réðst ekki við? „Já, mér finnst það ósann- gjarnt. En ég hef líka skilning á því að stjórnarandstaða, sem býr við viðlíka málefnafátækt eins og þessi stjórnarandstaða, hafi ekki séð annað ráð en að grípa þetta tækifæri til að koma höggi á mig og þá ríkisstjómina um leið. En málflutningurinn var ómerkilegur." - Morgunblaðið hefur lagt nokkurt kapp á að tengja spill- ingu í bankakerfinu við Fram- sóknarflokkinn. Hefurðu skýr- ingu á því af hverju það er gert? „Ég veit ekki af hverju þessi tilhneiging er svo sterk á Morg- unblaðinu því þeir bankastjórar sem helst hafa verið gagnrýndir opinberlega eru ekki tengdir F ram sóknarfl okkn u m. “ - Er það kannski vegna þess að kom þessum málum sínum ekki fram. Næstu alþingiskosningar 1987 á Austurlandi reyndust honum ekki hagstæðar. í viðtali á kosninganóttina kenndi hann mér og Páli Péturssyni um ófarir sínar. Kannski hefur þetta setið í honum öll þessi ár. Ég veit það ekki." - Hver er skoðun þín á honum, hann er sérstæður persónuleiki? „Ég vil sem minnst um hann tala.“ - Heldurðu að hann eigi aftur- kvæmt í íslensk stjómmál eins og hann sjálfur heldurfram? „Ég hef litla trú á því.“ Sameining leiðir til sundr ungar senta fylgi. Þar verða ákafir um- hverfisverndarsinnar og vinstri flokkur í Iíkingu við það sem Steingrímur Sigfússon hefur boðað. Sameining vinstri manna mun þannig leiða til enn frekari sundrungar. Ég tel að það hafi aldrei verið tilgangur Alþýðu- flokksins að sameinast heldur kljúfa Alþýðubandalagið og flytja lungann af fylgi þess í Alþýðu- flokkinn. Eftir að hafa hlustað á formann Alþýðuflokksins fagna þvf í sjónvarpi að Alþýðubanda- lagið er að brotna upp í frum- eindir sínar þá er ég sannfærður um að þetta var hinn upphaflegi tilgangur en ekki sameining." - Finnst þér formenn A-flokk- anna vera sterkir formenn? vona. í upphafí var hún af pólit- ískum andstæðingum kölluð rík- isstjórn kyrrstöðu og afturhalds. En lítum á hvað þessi ríkisstjórn hefur gert. Menn töluðu um það f tuttugu og fimm ár að það væri nauðsynlegt að auka hlut stór- iðju í landinu. Því kom þessi rík- isstjóm í verk. Menn töluðu um það í fimmtán ár að það þyrfti að sameina fjárfestingarsjóði at- vinnulífsins. Því kom þessi ríkis- stjórn í verk. Menn töluðu um það í tíu ár að það þyrfti að formbreyta ríkisviðskiptabönk- unum. Þvf kom þessi ríkissjórn í verk. Frá stofnun lýðveldisins hafa menn rætt um að það þyrfti að koma á lögum um eignarhald á auðlindum í jörðu. Það hefur „Ég kæri mig ekki um að eftirmæli mín verði þau að ég hafi verið farsæll stjórnmálamaður en farsældin hafi fyrst og fremst verið fóigin í aðgerðaleysi. Ég er í póiitík til að láta liggja eftir mig breytingar, sem ég er sannfærður um að þjóðin mun njóta góðs af.“ myndir: þók kratamir á Mogganum vilja ekki hafa ykkur framsóknarmenn í ríkisstjóminni ? „Þetta gæti verið rétt hjá þér. Ritstjórarnir sem þarna sitja virðast áhugamenn um annað stjórnarmynstur.11 - Nú virðist Sverri Hermanns- syni vera mjög i mun að flæma þig úr embætti eins og skrif hans bera vitni um. Hver er ástæða þess? „Einhverra hluta vegna, og ég hef enga skýringu á því, hefur Sverri Iengi verið afskaplega mikið í nöp við mig. Það kom í Ijós á fyrsta degi mínum í ráð- herraembætti. Þá talaði ég á árs- fundi Seðlabankans og þar lýsti ég þeirri efnahagsstefnu sem ríkisstjórnin myndi beita sér fyr- ir, sem fælist meðal annars í því að lækka vexti. Eftir þá ræðu kallaði Sverrir mig opinberlega vaxtaflón. Það hefur komið í Ijós síðan hvor hafði rétt fyrir sér í þeim efnum.“ - Kanntu alls enga skýringu á þessari andúð hans? „Skýringar er kannski helst að leita frá þeim tíma þegar hann var menntamálaráðherra og ég var fulltrúi Framsóknarflokksins í nefnd sem var að koma saman frumvarpi um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna. Þar gekk Sverrir fram af miklum frunta- skap og frekju. Ég stóð gegn honum í þeim efnum og varði hagsmuni námsmanna. Hann - Viðhorf þitt til sameiningar vinstri manna, hvemig líst þér á þessar hræringar allar? „Ég hef frá upphafi verið þeirrar skoðunar að þessar til- raunir muni ekki ganga upp. Niðurstaðan verður líklega sú að „Ég man hins vegar ekki beturen núver- andiforseti íslands og núverandiforsætisrað- herra, að ógleymdum sendiherra íslands í Washington, hafi allir hlotið þennan vafa- sama heiður. Það má því segja að ég sé ígóð- um hóp. “ til verður stærri Alþýðuflokkur með fylgi í kringum 20 prósent, álíka stór í fyrstu kosningum eins og Framsóknarflokkurinn. Sameiningin Ieiðir trúlega til þess að á vinstri vængnum verði til að minnsta kosti tveir aðrir stjórnmálaflokkar með 5-10 pró- „Þau eru bæði ágætir stjórn- málamenn en eru hins vegar ekki þeir foringjar sem þarf. Fólkið sem ætlar sér að kjósa hreyfinguna vill nýjan leiðtoga fyrir hópinn og mun ekki sætta sig við að þessir leiðtogar taki að sér það hlutverk. Val á formanni mun valda enn frekari klofningi en nú er orðinn." - Nú er ég í vanda. Næsta spurning átti að vera hvort þú vildir heldur starfa með Sjálf- stæðisflokki eða sameinuðum flokki jafnaðarmanna eftir næstu alþingiskosningar. En þú hefur ekki trú á að sá flokkur verði til þannig að spumingin er ónýt. „Ég hef ekki trú á að sá flokk- ur verði til í þeirri mynd sem boðað er. Hvað varðar samstarf við slíkan flokk er það að segja að málflutningur sameiningar- sinna í garð Éramsóknarflokks- ins hefur verið einstaklega harð- ur, óvæginn og ómálefnalegur. Einstakir ráðherrar okkar hafa verið lagðir í einelti með rang- túlkunum og fúkyrðum en gagn- rýni á hinn stjórnarflokkinn hef- ur að sama skapi verið lítil. Mér sýnist Ijóst að með vinnubrögð- um sínum hafí áhrifamenn á vinstri vængnum skipulega og meðvitað spillt fyrir samstarfs- möguleikum við Framsóknar- flokkinn. Að auki hefur núverandi ríkis- stjórn náð mjög góðum árangri og mun betri en við þorðum að ríkisstjórnin nú gert. Þetta er ekki ríkisstjórn kyrr- stöðu og afturhalds heldur ríkis- stjórn framfara og framsýni. Framsóknarflokkurinn mun vinna með þeim flokkum sem treysta sér til að vinna áfram á þessari braut og það trúi ég að sjálfstæðismenn séu tilbúnir að gera.“ - Þú vilt halda áfram stjómar- sambandi við þessa ríkisstjóm, heyri ég. „I pólitík vita menn aldrei hvenær leiðir skilja, en þetta samstarf gengur vel.“ - En segðu mér nú hvort þú stefnir á það að verða formaður Framsóknarflokksins - jú, auðvit- að ætlarðu þér það með tíð og tíma. „Halldór Asgrímsson er ekki að hætta sem formaður Fram- sóknarflokksins og það er gæfa flokksins að eiga hann sem for- mann. Meðan Halldór gegnir því starfi velti ég því ekki fyrir mér.“ - En ef þú verður ekki ráðherra eftir næstu kosningar, hvað ger- irðu þá? „Þingmennska er fjögurra ára ráðningarsamningur við þjóðina. Og ef þjóðin kærir sig ekki um að endurnýja samninginn þá verða menn að leita sér að annarri vinnu. Þannig að þing- mennska er ekki mjög öruggt starf, en ég hef áhuga á að sinna því áfram.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.