Dagur - 06.11.1998, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 -5
■'y^r&í^r*
Dtgur_
FRÉTTIR
Umræður á Alþingi í gær um flutning innheimtudeildar íbúðalánasjóðs
voru heitar og var Páll Pétursson m.a. sakaður um að hygla sínu kjördæmi.
Snarpar utandag-
skrárimiræður uröu á
Alþingi í gær um
flutning innheimtu-
deildar íbúðalána-
sjóðs til Sauðárkróks.
Hart var sótt að Páli Péturssyni
félagsmálaráðherra fyrir að sýna
Húsvíkingum lítilsvirðingu við
flutning innheimtudeildar
íbúðalánasjóðs til Sauðárkróks,
sem er í hans kjördæmi. Jóhanna
Sigurðardóttir sagði framkomu
Páls vera pólitískan hráskinna-
leik og framkoma hans gagnvart
25 starfsmönnum Veðdeildar-
innar, sem sagt var upp störfum,
vera fyrir neðan allar hellur. Hún
sagði að fólkið hefði heyrt um
flutninginn og uppsagnir þess í
fjölmiðlum. Og hún var líka
þungorð vegna þess að ekkert
væri gert til að finna þessu fólki
nýja atvinnu. Það væri skilið eft-
ir munaðarlaust í atvinnulegu
tilliti. Boðaði Jóhanna utandag-
skrárumræðu um framkomu ráð-
herra við þetta fólk.
Það var Steingrímur J. Sigfús-
son sem hóf utandagskrárum-
ræðuna. Hann sagði Bæjarstjóm
Húsavíkur, Verkalýðsfélag Húsa-
víkur og Verslunarmannafélag
Húsavíkur hafa skrifað Páli Pét-
urssyni félagsmálaráðherra bréf í
september. Þar var skorað á fé-
lagsmálaráðherra að velja íbúða-
lánasjóði stað á Húsavík eins og
þá var farið að ræða um í fjöl-
miðlum. Steingrímur sakaði Pál
um að sýna Húsvíkingum Iítils-
virðingu því hann hefði ekki
svarað bréfum þeirra.
Harðar ásakanir
Þá gerði Steingrímur því skóna
að Páll hefði sagt þinginu ósatt
þegar hann svaraði fyrirspurn á
Alþingi í október um þetta mál.
Þá sá Páll öll tormerki á að
Ibúðalánasjóðurinn gæti flust út
á Iand þar sem hann hafði lofað
starfsfólkinu að það myndi halda
sínum störfum í Reykjavík.
„Ráðherra minntist ekki einu
orði á að eitthvað annað væri í
bígerð, þ.e. að hluti starfseminn-
ar eða starfsemi tengd sjóðnum
kynni að flytjast út á land. Það
þarf að fá á hreint hvar málin
voru þá stödd þegar ráðherra
svaraði þessari fyrirspurn," sagði
Steingrímur J.
Hann spurði hvort ráðherra
hefði þá ekki vitað betur eða
leyndi hann þingið upplýsingum
um hvar málið væri á vegi statt?
Sagði ekki ósatt
Páll sagði í svari sínu að honum
hefðu borist bréf frá Húsavík. I
bréfi bæjarstjórnar hefði verið
óskað eftir því að Ibúðalánasjóð-
urinn yrði fluttur til Húsavík.
Varðandi fyrirspurnina í október
sagðist Páll hafa sagt að hann
gæti ekki flutt sjóðinn til Húsa-
víkur. Hins vegar hefði hann sagt
að verkefni Veðdeildar og ýmis
önnur verkefni sjóðsins gætu far-
ið vel á Iandsbyggðinni. Hann
sagðist taka á sig að hafa ekki
svarað bréfum Húsvíkinga strax
en nú hefði hann gert það.
Varðandi uppsagnir starfsfólks
Veðdeildar sagði Páll þær vera sér
óviðkomandi því Veðdeildin hefði
verið hluti af Landsbankanum.
Nokkrir þingmenn tóku til
máls og urðu nokkuð snarpar
orðræður. — S.DÓR
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriks-
son sem fann síld í Kolluál vestur
af Snæfellsnesi.
Síldvið
Snæfellsnes
Hafrannsóknaskipið Arni Frið-
riksson fann síld í Kolluál og á
Svörtuloftasviðum vestur af
Snæfellsnesi og kemur á óvart
hversu mikið magn er þar á ferð-
inni, eða allt að 200 þúsund
tonn. Óvenjulegt er að finna síld
á þessum slóðum á þessum árs-
tíma og hversu stór síldin er
syðst á því svæði sem rannsakað
hefur verið. Nokkrir síldarbátar
hafa verið á svæðinu en árang-
urinn hefur verið fremur rýr þar
sem síldin stendur mjög djúpt á
þessum slóðum. I haust er 51 ár
síðan Hvalfjörðurinn fylltist af
síld og algjört „æði“ rann á Is-
lendinga í gróðafíkninni.
Þessi síldarfundur vekur vonir
um að síldin sé alls ekki horfin á
þessum slóðum eins og margir
útgerðarmenn hafa haldið fram
um alllangt skeið, en margir
telja að stjórnun veiða á Suður-
landssíld hafi algjörlega farið úr
böndum á árum áður. Lítið hef-
ur orðið vart við síld fyrir Aust-
Ijörðum sem einnig er nokkuð
óvenjulegt ástand. — GG
Vilja uttekt á laitdbúnaðarráðuneytmu
I utandagskrárumræðu á Alþingi í gær ræddi
Lúðvík Bergvinsson um skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins.
Hann sagði óþolandi að stofnanir og ráðuneyti
brygðust ætíð við skýrslum Ríkisendurskoðunar
með því að segja þær rangar eða Hllandi. Hann
sagði að í þessari skýrslu kæmi landbúnaðar-
ráðuneytið þannig út að nauðsynlegt væri að op-
inber úttekt færi fram á starfsemi þess. Hann
nefndi dæmi um að það hefði tekið allt að 5 ár
að afgreiða eitt mál í ráðuneytinu.
Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra
sagði margt gott í skýrslunni en nokkur atriði
þar væru ekki rétt. Hann sagðist ekkert myndi hafa á móti því að
starfsemi ráðuneytisins yrði skoðuð. - S.DÓR
Starfsmenn Lyfjaverslunar fá biðlaim
Hæstiréttur hefur kveðið upp þann úrskurð að starfsmenn Lyfjaversl-
unar ríkisins, sem var einkavædd og breyttist í Lyfjaverslun Islands
hf., skuli fá biðlaun úr ríkissjóði, þar sem þeir hafi ekki fengið sam-
bærileg störf í nýja fyrirtækinu.
Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms, sem dæmdi í málum fimm
starfsmanna, sem fá samkvæmt dómunum allt frá 417 þúsund upp í
1,3 milljónir króna í biðlaun. Talið var að sömu ráðningarsamningar
og -kjör hefðu ekki gilt við hlutafélagsvæðinguna og kemur t.d. fram
að biðlaunaréttur fylgi ekki í nýja starfinu og lífeyrisréttindi eru önn-
ur. Við hlutafélagsvæðinguna og endurráðningarnar virðist ekki hafa
verið rætt um biðlaunaréttinn. Garðar Gíslason skilaði í Hæstarétti
séráliti um að sýkna bæri ríkið. - FÞG
Lúðvík Bergvinsson.
*
Agúst parf að
læra ao tapa
Hef hjálpað mörgiim
en aldrei staðið í vegi
fyrir neinirm. Hlýt þá
að reka bugsjónákol-
krabba, segir Friðrik
Þór.
„Mér finnst borið í bakkafullan
lækinn að heyra þetta frá Agústi
Guðmundssyni, vini mínum.
Það stóð nú til að við myndum
hjálpa honum við þessa mynd og
hann bauð mér upp á kampavín
á heimili sínu þegar úthlutað var
úr Kvikmyndasjóði. Eg hef aldrei
lent í neinum útistöðum við
hann en ég skýri þetta með því
að hann sé tapsár. Ég veit vel
hvað það er að tapa. Ég var í
mörg ár í Arvakri og tapaði oft.
Ég er hins vegar sannfærður um
að betri myndin hafi unnið,“ seg-
ir Friðrik Þór Friðriksson kvik-
„Ég vorkenni Ágústi en vona að
þetta ríði honum ekki að fullu, “
segir Friðrik Þór Friðriksson.
myndagerðarmaður.
I Degi í gær líkti Agúst Guð-
mundsson leikstjóri bjá Isfilm
fyrirtæki Friðriks Þórs, Islensku
kvikmyndasamsteypunni (IK),
við kolkrabba. Agúst sagði að
kjörnefndarmenn sem höfnuðu
kæru hans vegna Óskarsverð-
launaframlags íslendinga hafi
verið vilhallir IK og vanhæfir.
Friðrik segist vissulega þekkja
alla kvikmyndagerðarmenn á Is-
landi, enda hafi þeir allir komið
að sínu borði og beðið hann að
hjálpa sér.
Hugsj ónakolkrabbi
„Ég get varla bent á eitt dæmi
um að ég hafi hagnast á því sam-
starfi. Ég hef komist yfir peninga
vegna heppni og þess vegna
koma margir og biðja mig að
leggja peninga í annarra manna
kvikmyndir. Ég hef litið á það
sem hugsjónastarf, þannig að ég
er þá að reka einhvern hugsjóna-
kolkrabba. Ég hef aldrei staðið í
vegi fyrir einum eða neinum, en
hins vegar eru íjöldamörg dæmi
um að ég hafi hjálpað mönnum.
Ég vorkenni Agústi en vona að
þetta ríði honum ekki að fullu,“
segir Friðrik Þór. — RÞ
Apótekarar luuiu í Hæstarétti
Hjálp tH Mið-Ameríku
Hjálparstarf kirkjunnar hefur sent 1,5 milljóna króna framlag til
hjálparstarfs í Mið-Ameríku. Alþjóðaneyðarhjálp kirkna, ACT, mun
ráðstafa fénu til kaupa á teppum, tjöldum, lyQum, fatnaði, hitunar-
tækjum, vatnsdunkum, verkfærum og fleiri hjálpargögnum fyrir um
I 2 þúsund manns sem taldir eru í hópi þeirra verst settu.
Hjálparstarf kirkjunnar hvetur landsmenn til að leggja fórnarlömb-
um hörmunganna lið strax með framlagi á reikning þess, sem er
11502627.
Rauði Krossinn hefur ákveðið að verja 2 milljónum til hjálparstarfs-
ins í Mið-Ameríku og Akureyrardeild félagsins hefur jafnframt ákveð-
ið að leggja fram 200 þúsund ltrónur.
RíMð þarf að endur-
greiða apótekunun
nálægt 20 mflljónir
króna vegna ólöglegs
lyfj aeftirlitsgj alds.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur, þar
sem ríkið er dæmt til að greiða
Jóni Þórðarsyni apótekara í Ölf-
us apóteki 130 þúsund krónur, á
grundvelli þess að svokallað lyfja-
eftirlitsgjald hafi verið ólöglega
lagt á. Málið hefur fordæmi fyrir
aðra apótekara og getur kostað
ríkissjóð mikla fjármuni.
Lyfjaeftirlitsgjald, sem Lyfja-
eftirlit ríldsins innheimti af apó-
tekum landsins, var samkvæmt
þessu án nægilegrar stoðar í lög-
um og því ólögmætt að inn-
heimta það. Jón höfðaði málið sl.
vor í því skyni að fá lyfjaeftirlits-
gjaldið endurgreitt, með þeim
rökum að reglugerð sem heil-
brigðisráðherra setti um eftirlits-
gjald vegna lyfjaeftirlits árið
1996 ætti sér ekki stoð í lyfjalög-
um. Apótekarafélagið mótmælti
þessari gjaldtöku og var mál Jóns
prófmál.
Gjaldið er lagt á í samræmi við
veltu apótekanna og því má bú-
ast við að um talsverðar upphæð-
ir sé að tefla hjá stærstu apótek-
unum og f heild vart undir 20
milljónum lrróna. - FÞG