Dagur - 06.11.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 06.11.1998, Blaðsíða 6
6 -FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 rD^tr ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk. : Lausasöluverð: Grænt númer: Símbréf augiýsingadeiidar: Simar auglýsingadeildar: Netfang auglýsingadeiidar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.800 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir omar@dagur.is 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Réttum hjálparhönd í fyrsta lagi Hræðilegar náttúruhamfarir hafa valdið stórfelldum hörm- ungum í nokkrum ríkjum Mið-Ameríku. Samkvæmt nýjustu fréttum hafa líklega um 22 þúsund manns annað hvort látið lífið eða týnst í þeim gífurlegu flóðum og aurskriðum sem felli- bylurinn Mitch hafði í för með sér. Verst er ástandið í tveimur fátækum ríkjum - í Níkaragúa sem hefur ekki lent í jafn alvar- legum náttúruhamförum síðan í jarðskjálftanum mikla árið 1972, og nágrannaríkinu Hondúras þar sem fellibylurinn gerði hvað mestan usla og lagði bágborinn efnahag þjóðarinnar að miklu leyti í rúst. 1 öðru lagi Þessir hræðilegu atburðir minna enn einu sinni á hversu lítils maðurinn má sín gagnvart náttúruöflunum. Það er sameigin- leg reynsla allra jarðarbúa að þegar feiknakraftar náttúrunnar brjótast út Iúta þeir í engu vilja mannsins. Það gildir jafnt um jarðskjálfta í löndum Mið-Asíu eða Japan, flóðbylgjur við strendur Asíuríkja eða snjóflóð og eldgos á Islandi. Aukin þekking og tækni getur vissulega gert manninum mögulegt að búa sig undir komandi áföll, hvort sem það eru flóð, gos, skjálftar eða ofsaveður, og reyna þannig að draga úr því tjóni sem slíkar hamfarir hljóta að valda í mannheimum. En náttúr- an mun áfram fara sínu fram. í þriðja lagi Hroðalegt ástand ríkir nú meðal þeirra sem þó lifðu af ham- farirnar í Mið-Ameríku. Matvæli eru af skornum skammti og mikil hætta á farsóttum sem vafalaust munu kosta mörg mannslíf til viðbótar næstu daga og vikur. Alþjóðlegt hjálpar- starf er þegar komið í gang, þótt mjög erfitt sé að koma nauð- synlegum vistum og hjálparfólki til þeirra staða þar sem neyð- in er mest. Islendingar verða að sjálfsögðu að taka myndarleg- an þátt í því að rétta þessu ógæfusama fólki í Mið-Ameríku hjálparhönd. Ellas Snæland Jónsson. Pólitísk blóðgjöf Eitt helsta fréttaefni á ljósvak- anum síðustu daga hefur ver- ið sú ákvörðun Samtaka um þjóðareign að ganga til liðs við flokk Sverris Hermannssonar. Þessi ákvörðun samtakanna hefur verið tíunduð í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum, fyrst að samtökin ætluðu að ganga til liðs við Sverri, síðan að þau væru búin að gera það og Ioks vegna þess að 7 manns gengu úr samtökunum vegna þess að þau gengu til liðs við Sverri. I einhveijum ell- efufréttatímanum sá Garri yfirlits- mynd af aðalfundi samtakanna, sem svo mikið er búið að fjalla um og brá þá illilega í brún. Þarna voru ekki nema 5-10 manns, eða mun færri en hittast alla jafna við hringborðið á Hótel Borg eða á fluguhnýtingarkvöldum í bíl- skúrnum hjá Garra. Samtök iim fluguhnýtingar Garri er mikill Kvennaustavin- ur og því tekur hann sárt að heyra allar fréttirnar um upp- lausn og dauða þessarar ágætu stjórnmálahreyfingar. Frétta- flutningurinn um hvernig Samtök um þjóðareign voru lög inn á atkvæðareikning Frjálslyndaflokksins, flokks Sverris, varð hins vegar til þess að kveikja litla hugmynd sem hugsanlega gæti komið Kvennalistanum og kvenna- baráttu í landinu til hjálpar. Við strákarnir í fluguhnýting- V arklúbbnum stofnum einfald- Iega félag, „Samtök um huggu- legar fluguhnýtingar," og lýs- um síðan yfir stuðningi við Kvennalistann, enda sé það eini flokkurinn sem einhvern skilning hefur á hannyrðum. Gildir þá einu hvort það er fundaprjón eða fluguhnýting- ar. Nýttlíf „Samtök um huggulegar flugu- hnýtingar" hljóta þá að komast í fréttirnar og Kvennalistinn sem nú hefur á sér yfir- bragð stefnulauss rekalds fengi aftur merkingu og til- gang. Hann fengi á sig ásýnd hinnar eftirsóttu príma- donnu sem menn eru æstir í að fá að leiða til altaris. Frjálslyndi flokkurinn hans Sverris hefur einmitt fengið nýtt líf í umræðunni með blóðgjöfinni frá Samtökum um þjóðareign og jafnvel Garri var farinn að halda þessi flokk- ur væri eitthvað annað en nafnið. Þótt „Samtök um huggulegar fluguhnýtingar" muni að sönnu ekki verða þ'ölmenn, þá geta þau hiklaust gefið Kvennalistanum jafn mikið og ferskt blóð og Sam- tökin um þjóðareign hafa gefið Frjálslyndum ef ekki meira. Menn ættu því að búa sig und- ir endurkomu Kvennalistans í íslenska pólitík sem sjálfstæðs afls. GARRI ODDUR ÓLAFSSON skrifar Bardagiim við kolkrabbaim Þeir sem búa til íslensku bíó- myndirnar eru yfirleitt mun meira í sviðsljósinu en verk þeirra og stjörnurnar sem þeir framleiða á færibandi. Yfirleitt hefur það verið sá æsilegi bíó- gerðamaður Hrafn Gunnlaugs- son sem hefur séð um fjörið á þessum skemmtivettvangi. Hann hefur einstakt lag á að espa kol- lega sína og keppinauta og kom- ið sér einstaklega vel fyrir í kjaftaóðum fjölmiðlaheimi. I þeirri uppákomu sem bíó- myndaheimurinn hefur nú sett á svið er Hrafn hafður útundan. Samt tekst bærilega að sakfella og munnhöggvast og blanda kol- krabbanum sjálfum inn í hand- ritið, sem sýnist álíka óburðugt og þau kvikmyndahandrit sem séníin nota sem undirstöðu sinna verka. Isfilm og Islenska kvikmynda- samsteypan fara nú mikinn í fjöl- miðlaleik sínum og deila hástöf- um um hvaða íslenska bíómynd eigi að fá Óskarsverðlaunin, og þá milljarða sem þeim fylgja, að ári. Stórveldin sproksetja hvert annað og klögumálin ganga á víxl. Þegar yfir lýkur gæti deilan orðið sæmilegasta handrit til að framleiða spennumynd upp út. Hrafni yrði ekki skotaskuld úr því að sjóða blóð- ugt drama upp úr deilunni og gæti orðið verðugt verk- efni eftir að hann lýkur við hugverk sitt um þann snar- galna Jón þuml- ung, sem brátt tek- ur við að skemmta þjóðinni á hvíta tjaldinu. En hún er rétt að hrista af sér timbur- mennina eftir að vera búin að glápa sér til óbóta á snilldarverk- ið um þriggja klukkustunda fyll- erí á Grímsstaðaholtinu. Hagsmunir í húfi Ur því að kolkrabbinn er kominn í kvikmyndagerðina er ekki nema von að þar sé havarí og illindi. Samkeppnin um styrki er hörð og enn harðari um upphefðina að utan, eins og Óskarsverðlaun- in eru. Gleðilegt er að vita hve þjóðlegir íslensku bíógerðar- mennirnir eru. Aldrei dettur þeim í hug að þeir eigi í samkeppni við útlendinga, sem margir eru duglegir að búa til bíó. Heldur troða þeir skóinn hver niður af öðrum í keppninni um op- inberar styrkveit- ingar og upphefð að utan. Eitt eru þeir þó sammála um, það er að úthúða fjárveitinga- valdinu fyrir að gefa þeim ekki nógu mikla peninga. Samt afla þeir þjóðarbúinu gífurlegra tekna með óeigingjörnum hug- sjónum sínum. Ríkisstarfsmaður sem gæta á hagsmuna kvik- myndagerðar sendi nýverið frá sér skýrslu um þær gífurlegu upphæðir sem íslenskar kvik- myndir dæla inn í þjóðarbúið. Hann sýndi fram á með hræmulegum rökum, að ferða- mannastraumurinn til landsins væri einkum að þakka því að út- lendingarnir hafi sér íslenskar kvikmyndir sem valdi þeirri hug- ljómun að þeir flykkjast til lands- ins í stórum stíl. Með einfeldn- ingslegri reiknikúnst sjhrdi ríkis- starfsmaðurinn fram á að þjóð- hagslegur gróði af bíóunum væri marg- margfaldur miðað við þá upphæð sem þær kostuðu. Baráttan við kolkrabbann mun halda áfram og íslensk kvik- myndalist dæla ómældum upp- hæðum í efnahagskerfið og snill- ingar bíóanna deila og drottna eftir því sem þeir hafa aflsmuni til. En allt eru það aukaatriði, bara ef þeir gætu gert frambæri- legar bíómyndir. swttTaj Hefur myndast kol- krabbi í íslenskum kvikmyndaiðnaði? Edda Þórarinsdóttir fonnaðurFélags íslenskra leikara. „Eg vona að það sé ekki neinn kolkrabbi í kvik- myndagerð til - en íslenska kvikmyndasam- steypan er þó býsna sterk á þessum íslenska markaði. Kjara- samningar Félags íslenskra leik- ara sem gerðir voru við íslensku kvikmyndasamsteypuna fyrir rúmlega einu ári hafa verið fyrir- mynd annarra samninga í kvik- myndaleik. Það hafa verið góðir samningar fyrir okkar fólk, enda mun ítarlegri en aðrir þeir samn- ingar sem áður voru til um kvik- myndaleik." Ragnar Amalds rithöfundur ogfv. formaður stjómar Kvilimyndasjóðs íslartds. „Nei, það held ég að sé ofsagt. Eg held að kvik- myndagerð á Is- landi sé því mið- ur enn á slíkum brauðfótum að slík stóryrði eigi ekki við. Auðvitað er Islenska kvikmyndasamsteypan sterkari en önnur fyrirtæki sem starfa á þessu sviði hér á landi, en sigrar Friðriks vekja fremur með mér ánægju en óhug. Báðar myndirn- ar sem kepptu um tilnefningu til Oskarsverðlauna eiga heiður skilið, en kosningafyrirkomulag- ið er bersýnilega til skammar." ViHijálmur EgUsson fonnaður stjómar Kvilonyndasjóðs. „Islensku kvik- myndasam- steypunni hefur vaxið fiskur um hrygg á undan- förnum árum og það er bæði ánægjulegt og nauðsynlegt fyrir íslenskan kvik- myndaiðnað að öflug fyrirtæki séu fyrir hendi á því sviði innan- lands. Sem betur fer eru fleiri öflug fyrirtæki á þessu sviði, svo sem Saga Film að ónefndum Ijölda minni fyrirtækja. Ég hef ekki orðið var við að nein mis- munun hafi viðgengist í Kvik- myndasjóði, enda hefur Ágúst sjálfur nýlega gert ágætis bíó- mynd með stuðningi sjóðsins." Þórarinn Ágústsson framkvæmdastjóri Samvers á Akureyri. „Ef við viljum nota kolbrabba- heitið fyrir sterka bloltk af einhverjum toga þá held ég að þú getir fundið kol- krabbann alls- staðar, ekki síður í kvikmynda- iðnaði en hvar annars staðar þar sem samkeppni er til staðar. Menn skipa sér í fylkingar, rétt einsog býr í mannlegu eðli.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.