Dagur - 06.11.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 - 11
Vapir.
ERLENDAR FRETTIR
Kapphlaup við tímairn
Þúsunda er enn saJkn-
að og margra ára upp-
byggingarstarf er
framundan.
Viðamikið björgunarstarf er nú
unnið um alla Mið-Ameríku við
erfiðar aðstæður eftir hamfarirn-
ar sem fylgdu fellibylnum Mitch.
Hvers konar tækjabúnað vantar,
símalínur eru eyðilagðar og íjöl-
margir vegir og brýr sömuleiðis.
Þeir sem lifðu af flóðin og aur-
skriðurnar eru víða einangraðir
og vita ekki sitt rjúkandi ráð.
Hjálparstarfsmenn og embætt-
ismenn í Hondúras og víðar í
íbúar í Guatemala bíða aðstoðar.
Mið-Ameríku sögðu að það
myndi taka mörg ár áður en lífið
kemst í samt lag aftur, en fátækt
hefur verið mikil fyrir víða á
þessum slóðum. Uppskera eyði-
lagðist að miklum hluta og tugir
þúsunda heimila og fyrirtækja
eru í rústum eftir fimm daga yfir-
reið fellibylsins.
„Sem stendur er þetta kapp-
hlaup við tímann," sagði Carlos
Flores Facusse, forseti Hondúras
í viðtali. „Það eru ennþá einangr-
uð svæði sem við höfum ekki get-
að náð til. Það er ómögulegt að
komast til þessa fólks."
Víða um Hondúras og víðar í
Mið-Ameríku svalt fólk og smit-
sjúkdómar eru farnir að breiðast
út. „Það sem blasir við er gríðar-
leg eyðilegging alls staðar, allt frá
samgöngukerfinu og samskipta-
kerfinu til Iandbúnaðarins og
mannslífanna," sagði Facusse.
„Astandið nær um landið allt.
Það eru hvergi nein svæði sem
eru ósnortin."
HEIMURINN
Kænimálmn á hendur Clmton flýtt
BANDARÍKIN - Bandarískir Ijölmiðlar skýrðu frá því í gær að
Repúblikanar á þingi ætli sér nú að hraða meðferð ákærumálsins á
hendur Bill Clinton forseta, eftir að hafa fengið heldur slaka útkomu
í kosingunum á þriðjudag. Kenneth Starr, rannsóknardómari, verður
eina vitnið sem kallað verður fyrir dómsmálanefnd fuiltrúadeildar-
innar. Nefndin tekur síðan ákvörðun í næstu viku um hvort kæran
fari formlega til umljöllunar í deildinni.
Sharon vill palestínska flóttamenn heim
ISRAEL - Svo virðist sem Ariel Sharon, utanríkisráðherra Israels, sé
að vinna að því að ná samkomulagi við Palestínumenn um langtíma
friðaráætlun. Meðal annars er meiningin að heimila þeim Palestínu-
mönnum, sem flúðu land í sex daga stríðinu árið 1967, að snúa aft-
ur. Palestínumenn hafa jafnan krafist þess að allir Palestínumenn,
sem flúið hafa styijaldarátök Israela og Palestínumanna frá þvf 1948,
fái að snúa aftur.
Grillaður kjúklingur 599 kr/stk.
Grillaður kjúklingur og franskar 799
Léttreyktur lambahryggur 797 kr/kg.
Bayonneskinka 987 kr/kg.
JL 1«
i* 1 - 't
-
^jr B w
§88 81 ,\
hB m m
i i s
||
ðk m
orðurpólnum
y'li
Vikulega frá og með 19. nóvember mun fylgja
Degi blað sem sérstaklega verður tileinkað
hátíðinni á „Norðurpólnum” á Akureyri.
í blaðinu verður dagskrá hátíðarinnar kynnt
og sagt frá þeirri starfsemi sem fram fer á
„Norðurpólnum”. Auk þess gefst
kaupmönnum og ferðaþjónustuaðilum
tækifæri á að koma þar auglýsingum á
framfæri.
Blaðið verður í sama broti og Dagur, sextán
síður og að hluta til prentað í fjórum litum.
Útgáfudagar eru eftirfarandi:
Fimmtudagurinn 19. nóvember
Fimmtudagurinn 26. nóvember
Fimmtudagurinn 3. desember
Fimmtudagurinn 10. desember
Fimmtudagurinn 17. desember
Blaðinu, ásamt Degi, verður þessa daga
dreift endurgjaldslaust inn á heimili á svæðinu
frá Blönduósi austur um til Neskaupsstaðar.
5% aukaafsláttur er gefinn af verði auglýsinga sem pantaðar eru fyrir 13. nóvember.
Allar nánari upplýsingar og pantanir auglýsinga eru hjá okkur á auglýsingadeild Dags.
Með bestu kveðju,
G. Ómar Pétursson sími 460-6191 og 893-3911
Gréta Björnsdóttir sími 460-6192
mmmmm
k , 4 -v \ \
r w-w ^
& 'jpfe vsjfe -
/ -• ■ . ' / ■/ / í’ ■