Dagur - 06.11.1998, Side 13
Fö S T U p AGU R 6. N Ó V E MB E R X9A8. ~ í?
ÍÞRÓTTIR
Haukastelpur tap-
lausar á toppnum
Haukastelpnmar
halda sínu striki í 1.
deild kveuua og eru
enn taplausar á toppi
deildarinnar eftir 6
umferðir.
í fyrrakvöld fengu Haukarnir ÍR-
inga í heimsókn á Strandgötuna
og gjörsigruðu þær með níu
marka mun 23:14, þrátt fyrir að
þrjá lykilleikmenn vantaði í lið
Hauka.
En maður kemur í manns stað
og Hanna G. Stefánsdóttir sá um
að skora 9 mörk og Hekla Daða-
dóttir 8. Hjá ÍR var Katrín Guð-
mundsdóttir markahæst með 5
mörk.
í Víkinni mættust Reykjavíkur-
liðin Víkingur og Valur og fór þar
fram hörkuleikur sem endaði með
jafntefli 22:22, eftir að staðan í
hálfleik var jöfn 12:12. Liðin
skiptust á foiy'stu allan leikinn, en
Víkingur hafði þó náð þriggja
marka forskoti í fyrri hálfleik.
Kristín Guðmundsdóttir átti mjög
góðan leik fyrir Víking og var hún
markahæst með 9 mörk, en Halla
María Helgadóttir skoraði 6.
A Seltjarnarnesi fór fram leikur
Gróttu/KR og Stjörnunnar, þar
sem Stjaman rétt marði sigur
24:25. Þær Edda Kristjánsdóttir
og Helga Ormsdóttir voru marka-
hæstar Gróttu/KR og skoruðu 5
mörk hvor, en hjá Stjörnunni var
Ragnheiður Stephensen marka-
hæst með 7 mörk og Herdís Sig-
urbergsdóttir með 6.
A Akureyri vann Fram léttan
sigur á KA með átta marka mun
19:27. Marina Zovela átti stjömu-
leik með Fram og skoraði alls 13
mörk, en hin efnilega Jóna Björk
Pálmadóttir skoraði 6. Hjá KA
voru markahæstar Asdís Sigurð-
ardóttir með 5 mörk og Ama Páls-
dóttir með 4.
Leik FH og ÍBV var frestað.
Leikur Víkings og Vals í Víkinni var hörkuspennandi og endaði með jafntefii 22:22. Hér brýst Sigurlaug Rúnars-
dóttir í gegnum Víkingsvörnina og skorar eitt afsex mörkum sínum í leiknum.
Handbolti - 1. deild kvenna - Úrslit leikja
Valur Haukar Fram Stjarn. ÍBV Vík. FH Gr/KR KA ÍR
Valur 3.3. 7.11. 13.1. 25:14 6.2. 24:18 12.12. 29.11. 25.11.
Haukar ns.iiii. 13.1. 22:20 27.11. 24:21 12.12. 25:14 24.2. 23:14
Fram 24.2. 24:25 6.3. 14.11. 12.12. 30:23 34:23 17.1. 3.2.
Stjarnan 30:27 1.12. 28.11. 2.2. 3.3. 7.11. 6.2. 15.1. 37:20
ÍBV 5.1. 6.3. 3.3. 28:29 6.11. 6.2. 15.1. 29:21 1.12.
Víkingur 22:22 5.1. 21:21 14.11. 24.2. 6.3. 20:17 33:25 21:12
FH 3.2. 21:22 2.12. 24.2. 4.11. 28.11. 3.3. 34:17 5.1.
Grótta/KR 16:19 3.2. 5.1. 24:25 18:18 2.12. 14.11. 6.3. 24.2
KA 16:23 7.11. 19:27 17:24 12.12. 3.2. 27.1. 9.12. ^^■33.
ÍR <6.3. 6.2. 14:28 12.12. 18:26 16.1. 11:22 7.11. 27J1JL^^H
Staðan í 1. deild kvenna
í handknattleik
Haukar
Stjarnan
Fram
Valur
Víkingur
ÍBV
FH
Grótta/KR
KA
ÍR
L L T 1
6 6 0 0
6 5 0 1
6 4 11
6 4 11
6 3 2 1
5 2 12
5 2 0 3
6 0 15
6 0 0 6
6 0 0 6
Mðrk S
141:114 12
164:137 10
164:125 9
140:116 9
138:121 8
115:111 5
118:104 4
111:140 1
125:170 0
109:194 0
Úrslit í 6. um ferö
Haukar - ÍR 23:14
Víkineur - Valur 22:22
KA - Fram 19:27
Grótta/KR - Stjarnan 24:25
FH - ÍBV Frestað
Næstu leikir
I. deild kvenna
Föstud. 6. nóvember
Kl. 18:30 ÍBV - Víkingur
Laugard. 7. nóvember
Kl. 16:30 ÍR - Grótta/KR
Kl. 16:30 Stjarnan - FH
Kl. 16:30 KA - Haukar
Kl. 14:30 Valur- Fram
Nissandeildin
Föstud. 6. nóvember
Kl. 20:30 FH - ÍBV
Laugard. 7. nóvember
Kl. 16:15 Fram - Valur
Sunnud. 8. nóvember
Kl. 20:00 ÍR - Selfoss
KI. 20:00 HK - Grótta/KR
Kl. 20:00 KA - Stjarnan
Kl. 17:00 HK - Afturelding
2. deild karla
Föstud. 6. nóvember
Kl. 20:00 Völsungur - Hörður
Laugard. 7. nóvember
KI. 16:00 Fylkir - Þór Ak.
Kl. 14:00 Völsungur - Hörður
Kl. 16:30 Breiðabl. - Ögri
Sunnud. 8. nóvember
KI. 13:00 ÞórAk. - Hörður
ÍÞRÓTTA VIÐ TALIÐ
Áhersla lögð á hreyfiþroska hamaima
Kristinn
Guðlaugsson
íþróttafræðingur
ÞeirbræðurKristinn og
Janus Guðlaugssynir,
íþróttajræðingar, hafa urn
árabil starfrækt íþrótta-
skóla fyrirbörti á aldrin-
um 3ja til 6 ára. Kristinn,
sem eríþrótta- og tóm-
stundafuUtrúi á Álftanesi,
segirað í íþróttaskólanum
eigi alliraðfinna eittlivað
viðsitthæfi.
- Hvenær hófst þessi starfsemi
íþróttaskóli bamanna?
„Segja má að hugmyndin að
þessum skóla hafi vaknað í upp-
hafi árs 1990, eftir að íþrótta-
húsið var opnað hér í Bessa-
staðahreppi. Janus bróðir minn
sem býr hér á staðnum, var þá
með tíma fyrir krakkana hér í
íþróttasalnum og upp úr því
hófst þessi starfsemi. Sjálfur var
ég þá í námi við Iþróttakennara-
skólann á Laugarvatni og kom
heim um helgar til að hjálpa til
við kennsluna. Þetta varð strax
mjög vinsælt hér á Alftanesinu,
þannig að fljótlega færðum við
út kvíarnar og fengum Iíka inni í
íþróttahúsinu í Kaplakrika í
Hafnarfirði og vorum þá með
skólann á báðum stöðum eitt
árið. Þar að auki vorum við eitt
árið í íþróttahúsi KR-inga við
Frostaskjól, en þar hafa síðan
aðrir tekið við starfseminni og er
sá skóli enn starfræktur."
- Er þessi hugmynd komin
erlendis frú og veistu dæmi unt
að svipaðir skólar hafi verið
starfræktir erlendis?
„Eg hef ekki heyrt um neina
svipaða skóla erlendis og líklega
er þetta þá séríslenskt fyrir-
brigði. Sjálfur starfrækti ég þó
skóla í Osló þegar ég var þar við
nám í tvö ár, en það voru íslensk-
ir foreldrar þar ytra sem fengu
mig til þess. Þau höfðu heyrt um
skólann heima og vildu endilega
reyna þetta með sínum börnum.
Norðmenn hafa þó verið með
þetta í sinni skólastefnu, en það
er þá hugsað fyrir eldri krakka.
Það byggir meira á því að krakk-
arnir fá að prófa sig áfram f
íþróttum, áður en þau velja
ákveðnar greinar."
- Veistu til þess að þetta hafi
spurst tit fyrir landsteinana?
„Eg veit um eitt dæmi, en það er
kunningi minn sem býr í
Skotlandi, sem er nýbyrjaður
með skóla þar í Iandi. Hann
þekkti þetta héðan og var áður
leiðbeinandi í skólanum hjá okk-
ur.“
- Hafið þið orðið varir við
rnikinn áhugafyrir skólanum?
„Áhuginn er mjög mikill og
núna erum við með 120 börn í
skólanum. Það er því mjög líflegt
hjá okkur og yfirleitt koma for-
eldrarnir með börnunum. Hús-
næðið í Kaplakrika er líka mjög
hentugt og við höfum má segja
allt íþróttahúsið, sem er tveir
samliggjandi salir, til afnota."
- Hvernigfer kennslanfram í
íþróttaskólanum?
„Skólinn er starfræktur einu
sinni í viku, á laugardagsmorgn-
um. Krökkunum er sldpt í tvo
aldurshópa og byrjar yngri hóp-
urinn 3ja - 4ra ára klukkan 9:30
og eldri hópurinn 5-6 ára klukk-
an 10:30. Við leggjum sérstaka
áherslu á það að foreldrarnir séu
virkir í þessu með krökkunum og
mottóið er: „Hvað get ég gert fyr-
ir barnið mitt í dag til að efla
þroska þess.“ Þetta er setning
sem ríð viljum að hljómi í hug-
um foreldra á hverjum degi.
Við skiptum svo öllum hópn-
um niður í smærri hópa, sem
síðan raða sér niður á fjölcía æf-
ingastöðva um salinn. Þai leið
beinum viö þeim með hjálp for-
eldranna við ýmsar æfingar og
leiki og leggjum áherslu á mikla
hreyfingu."
- Hver er svo tilgangurinn og
markmiðin?
„Markmiðið er að bjóða börn-
unum upp á fjölbreytt og mark-
visst hreyfinám og uppeldislega
vandaða dagskrá, sem tekur mið
af þroskaþáttum þeirra. Allir eiga
að finna eitthvað við sitt hæfi,
þar sem keppni eða afrek eru
ekki í fyrirrúmi, heldur lögð
áhersla á hreyfinám og eflingu
þroskaþátta.
Rannsóknir hafa nefnilega
sýnt fram á, að grunnþjálfun þar
sem áhersla er lögð á alhliða lík-
ams- og hreyfiþroska og félags-
lega gott og jákvætt umhverfi,
hefur lykilþýðingu fyrir einstak-
linginn þegar fram í sækir. Það
er þannig umhverfi sem við leit-
umst c ið að skapa og með hjálp
foreldranna æilum við að n.
settu marki.“