Dagur - 14.11.1998, Side 17

Dagur - 14.11.1998, Side 17
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 - 33 LÍFIÐ í LANDINU Heimsborgimar í skýj unum Þorsteinn Þorsteins- son, sund- laugar- vörðurá Akureyri, spáirífugla himinsins - sem hann segirað búi yfirmiklum vísdóm. Heimabyggðin Hrísey segirÞorsteinn að sé Ijúfastur staða og búi yfirmikilli rómantík, ekki bara þeirrí sem IngólfurMargeirsson segirfrá. „Allt frá því að ég var barn hef ég haft lifandi áhuga á náttúru landsins, að spá í hennar ýmsu tákn og tilbrigði. Náttúrufar á æskuslóðum mfnum er lj'öl- breytt og því eignaðist ég náttúr- una að áhugamáli. Þennan áhuga hygg ég að öðru fremur hafi ég fengið frá móður minni; hún var ekki víðförul kona en horfði í litbrigði himinsins og sá heimsborgirnar í skýjunum og svo ótal margt annað," segir Þorsteinn Þorsteinsson, sund- laugavörður og fjölfræðingur á Akureyri. Að heyra í norðurljósimiun Þorsteinn Þorsteinsson er fædd- ur á Akureyri árið 1946, sonur hjónanna Þorsteins Baldvins- sonar, skipstjóra frá Stóru Há- mundarstöðum á Arskógsströnd og Olínar Pálsdóttur frá Borg- argerði í Dalsmynni í Grýtu- bakkahreppi. „Það má segja að þau hafi mæst á miðri leið með því að setja sig niður í Hrísey. I eyjunni sem er því sem næst á miðjum firði.“ Þorsteinn ólst upp í Hrísey, sem að hans mati er ljúfastur staða. Segir hann rómantík eyj- unnar vera Iíka því sem Ingólfur vinur hans Margeirsson hefur gert að yrkisefni í blaðagreinum, sjónvarpsþáttum og nú væntan- legri bók. „Ég er búinn að ferð- ast mikið um heiminn - hef komið til nærri 30 landa - en alltaf finnst mér Hrísey standa uppúr. Það er fuglalífið sem heillar, mannlífið, náttúrufegurð og þessi einstaka kyrrð. Frá Ak- ureyri er fjölskyldan ekki nema 45 mínútur í sumarbústaðinn út í eyju; í allt annan heim. í kyrrð sumarnóttanna þar og myrkur haust- og vetrarkvöldanna þeg- ar stjörnunar blika og norður- Ijósin lýsa upp himinhvolfið. Og í kyrrðinni finnst mér ég heyra norðurljósin þjóta um geiminn, þó frændi minn Þorsteinn stjarnfræðingur Sæmundsson þvertaki fyrir að svo sé.“ Ef audnutittlingar fljúga mildð... A hverjum Iaugardegi síðustu þrjú árin hafa Þorsteinn og Gísli Jónsson vinur hans, fyrrverandi menntaskólakennari á Akureyri, gefið út veðurspár sem þeir byggja á rannsóknum sem Þor- steinn gerir á atferli fugla á Ak- ureyri og nágrenni. Þessar at- huganir fara fram á föstudögum, en á laugardagsmorgnum prent- ar Gísla spána, myndskreytir og fjölfaldar. Hafa þessar spár farið nokkuð víða og vakið verðskuld- aða athygli, enda þær staðist ótrúlega oft. „Það er hegðunarmynstur fuglanna sem ég spái í og það segir okkur margt. Ég skal nefna þér nokkur dæmi um þetta; ef til dæmis mávarnir eru á flugi hátt yfir bænum er það næsta óbrigðull forboði þess að hvessa muni innan tíðar. Ef að auðnu- tittlingar og skógarþrestir fljúga mikið og syngja ótt og títt og eru áberandi órólegir er það tákn um hið sama. Hrafnar og snjó- tittlingar eru mjög góðar spáfuglar, en atferli þeirra getur verið margbreytilegt. Sumir fuglanna eru líka mjög góðir spáfulgar og sumar spárnar byggjast mikið á þeim. Við Gísli rýnum hinsvegar ekki í gömul fræði og tunglkomur einsog snillingarnir í veðurklúbbnum á Dalvík, en berum samt mikla virðingu fyrir þeim. Við látum okkur duga að fylgjast með fugl- um himinsins - en einsog við höfum sagt er þetta gert til þess að hafa gaman af þessu og koma að gömlum orðum um fugla og veðurfar ásamt vísukornum sem oftast fylgja.“ Stærsta kríuvarp í heimi Strax sem ungur maður fór Þor- steinn að vinna í Hrísey við fuglarannsóknir með Finni Guð- mundssyni, þeim þekkta fugla- fræðingi. Þá hefur Þorsteinn á síðari árum verið aðstoðarmaður sérfræðinga Náttúrufræðistofn- unar Islands við rannsóknir á ijúpunni - jafnframt því sem hlutverkum hefur stundum ver- ið snúið við og sérfræðingarnir hafa komið þessum alþýðu- manni og fjölfræðingi til aðstoð- ar. - „Sumarið 1994 tók ég mér frí frá störfum og vann við að kanna fuglalífið í Hrísey. Komu þar út ýmsar merkar niðurstöð- ur, sem ég hef þó enn ekki séð mér fært að gefa út enda væri það dýrt. En það sem ég komst meðal annars að og menn vissu ekki áður var að í Hrísey væri eitt stærsta kríuvarp í heimin- um. Ég gerði ýmsar talningar á þessu sem sérfræðingar Nátt- úrufræðistofunnar aðstoðuðu mig við - og síðan var farið yfir þetta og tölurnar umreiknaðar af Reiknistofnun Háskóla Is- lands þar sem staðfest var að alls verptu 25 þúsund kríupör í Hrísey.“ Síðustu átján árin hefur hann unnið í Sundlaug Akureyrar. „Ég kann mjög vel við mig í sund- lauginni; þar er prýðisgott starfsfólk og gott fólk sem þang- að kemur. I sundlauginni er ég búinn að kynnast mörgum, enda er þetta mikill samkomustaður meðal annars fyrir eldri íbúa bæjarins og ekki síst er ánægju- legt fyrir þá sem einir eru að fara í sund og hitta aðra. Við þetta fólk er gaman að ræða og af því má fræðast um margt. Þá má ekki gleyma skólabörnunum, stórum sem smáum, almenningi og öllum þeim ljölda ferða- manna sem kemur í Sundlaug Akureyrar." Fjölmargt að fíima í gömlum blöðum, En það er fleira en fuglar him- insins og kyrrðin í Hrísey sem heillar Þorstein. Löngum stund- um situr hann í lestrarsal Amts- bókasafnsins á Akureyri og flett- ir þar bókum og blöðum og Ieit- ar að efni sem tengist sögu eyj- unnar. „A safninu vinnur af- bragðsgott starfsfólk sem hefur verið mér innan handar um margt. Fundið meðal annars fyr- ir mig þessi gömlu blöð sem voru gefin út á Akureyri hér í eina tíð, þar er afar margt fróð- legt að finna. Þetta eru blöð einsog Norðri, Norðanfari, Norðlingur, Norðurljós ásamt síðari tíma blöðum einsog Degi, Norðurlandi, Verkamanninum, Alþýðumanninum og Islendingi. Auk þessa sem ég hef verið að blaða í mörgum annálaritum. Og síðan freistast ég auðvitað líka til þess að lesa fjölmargt annað efni sem mér finnst áhugavert, stundum kemst ég ekki yfir að Iesa nema fáeina mánuði í árgöngum þessara blaða sem ég er að fletta hverju sinni," segir Þorsteinn „Ég hef í þessu grúski mínu fundið heimildir um að í kring- um 1650 voru Hollendingar í Hrísey. Fyrst komu þeir og voru sumarlangt til að kanna aðstæð- ur ef svo má að orði komast. Ari síðar greina heimildir frá því að þeir hafi haft vetursetu í eyj- unni. Þetta var nokkuð sem ég vissi ekki um áður, en var gaman að finna. Margt annað skemmti- legt hef ég líka rekist á. En síð- an þætti mér líka gaman að finna eitthvað af myndum úr eynni frá fyrri tíð. Reikna má með að margar slíkar myndir séu til hjá eldra fólk og þegar það fellur frá er viðbúið að þær myndir lendi á vergangi og verði jafnvel hent. Því er mikilvægt að safna svona myndum saman, áður en það er um seinan.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.