Dagur - 21.11.1998, Page 14
30 - biA'U’G AR D A\G U R(\2 l.\K ÓVEMíDERl 1\9\9 «
X^HI-
Almennt er talað um tvær
megingerðir sykursýki, insúl-
ínháða og insúlínóháða.
Samtök sykursjúkra mæla ár-
lega blóðsykurí almenningi á
alþjóðadegi sykursjúkra, gefa
útfræðsluefni ogfleira.
Alþjóðadagur sykursjúkra var 14. nóvem-
ber og þá gengust Samtök sykursjúkra fyr-
ir blóðsykurmælingu fyrir almenning á
nokkrum stöðum á landinu. Sigurður Við-
ar Viggósson er formaður Samtaka sykur-
sjúkra en í samtökunum eru nú um 700
manns. Sigurður Viðar segist áætla að í
allt séu um 5.000 manns með sykursýki á
landinu en þar af séu um 2.500-3.000
sem um er vitað.
\
Tvær gerðir
Sykursýki (Diabetes Mellitus) er efna-
skiptasjúkdómur sem kemur fram þegar
brisið framleiðir ekki nægjanlegt insúlfn
eða þegar líkaminn getur ekki nýtt sér
insúlínið sem brisið framleiðir. Þetta verð-
ur til þess að sykur safnast fyrir í blóðinu
og veldur skemmdum á líffærum, svo sem
æðum og taugum.
Almennt er talað um tvær megingerðir
sykursýki. Þegar brisið framleiðir ekki
insúlín sem er manninum lífsnauðsynlegt,
er talað um insúlínháða sykursýki (týpu
1). Helstu einkenni sem fylgja þeirri gerð
velmegun
= sykur-
sýki?
eru stöðugur þorsti, tíð þvaglát, síþreyta,
óskýr sjón, stöðug svengd, skyndilegur
þyngdarmissir og pirringur. Hin gerðin,
insúlínóháð sykursýki (týpa 2), á sér stað
þegar líkaminn framleiðir ekki nægilega
mikið af insúlíni og/eða þegar hann hefur
misst getu sína til að nýta það insúlín sem
framleitt er. Helstu einkenni þessarar
gerðar sykursýki eru óskýr sjón, stöðugur
þorsti, óútskýranlegur þyngdarmissir, tíð
þvaglát, húðkvillar verða algengir og sár
gróa illa, ástæðulaus þreyta og dofi og sér-
kennileg tilfinning í höndum og fótum.
Hveijir fá sykursýki?
Allir geta fengið sykursýki og er insúl-
ínóháð sykursýki mun algengari. Hún
tengist að minnsta kosti eitthvað matar-
æði og lifnaðarháttum en insúlfnháð syk-
ursýki er erfiðari viðfangs. Hún er í sum-
um tilfellum meðfædd og lítið er vitað al-
mennt um það af hveiju menn fá sykur-
sýki.
- Getur maöur verið með einhvers konar
væga sykursýki sem
skaðar mann ékki ef
ústandið breytist
ekki?
„Væg sykursýki er
í rauninni ekki til,“
segir Sigurður.
„Insúlínóháð sykursýki getur þó verið
þannig undir þessum merkjum „væg“ að
fólk áttar sig ekki á einkennunum og get-
ur verið með þetta árum saman en svo
þegar þetta uppgötvast þá er þetta búið að
skemma mikið. Þetta er það sem við erum
að vekja athygli á með þessum blóðsykur-
mælingum á alþjóðadegi sykursjúkra."
- Forvamir felast þá einkum í fræðslu
með það að markmiði að fólk þekki ein-
kennin og geti leitað sér hjál-par t tíma.
Getum við talað um forvamir að því leyti
að með ákveðnu lífsmynstri geti fólk
minnkað hættuna á því aðfá sykursýki?
„Það er svo lítið vitað hvað veldur sykur-
sýki. Nú er faraldur í gangi í heiminum í
insólínóháðri sykursýki. Það er ýmislegt
sem veldur því, við höfum það of gott,
Sykursjúkir þurfa að sprauta sig til að fá insúlín - en misjafnlega oft.
erum of feit og hreyfum okkur of Iítið. In-
súlínóháð sykursýki er greinilega tengd
umhverfi og mataræði."
Lækning ekki þekkt
Lækning við sykursýki þekkist ekki. Með
insúlíngjöfum má halda insúlínháðri syk-
ursýki í skefjum, ásamt því að mæla blóð-
sykurinn reglulega, borða hollan mat og
halda sér í sæmilegri þjálfun. Insúl-
ínóháðri sykursýki er stjórnað með matar-
æði, töflum og þjálfun. Ef hinn sykursjúki
hefur þekkingu á hvernig hann getur haft
góða stjóm á sykursýkinni stendur fátt í
veginum fyrir því að hann geti lifað góðu
lífi. Það er lykilatriði að sjúkdómurinn sé
uppgötvaður snemma svo að lífsgæði við-
komandi skerðist sem minnst af völdum
hans. - HI
Deloitte &
Touche
IEndurskoðun Deloitte & Touche hf.
auglýsir eftir starfsfólki
Endurskoðun Deloitte & Touche hf. er rótgróið íslenskt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki sem
er aðili að alþjóðlega endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte Touche Tohmatsu.
Fyrirtækið hóf starfsemi árið 1952 og er nú rekið af ungum og fram-
sæknum stjórnendum með hæfu og vel menntuðu starfsólki í fullkomnu tæknilegu umhverfi. Aðal-
skrifstofa félagsins er í Reykjavík og útibú þess eru á 6 stöðum á landinu. Starfsemi Deloitte
Touche Tohmatsu er í 130 löndum og starfsmenn eru yfir 82.000. Endurskoðun Deloitte &
Touche hf. leggur mikið upp úr reglubundinni endurmenntun starfsfólks og býður upp á mögu-
leika á starfsþjálfun víðsvegar í heiminum hjá aðildarfyrirtækjum Deloitte Touche Tohmatsu.
Ákveðið hefur verið að sameina endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækin Endurskoðun Deloitte &
Touche hf. og Stoð-endurskoðun hf. og mun samruninn taka gildi frá og með 1. janúar 1999. Við
samrunann verður til eitt af stærstu fyrirtækjum sinnar tegundar á íslandi. Alls munu um 60
manns starfa hjá fyrirtækinu.
Við leitum að: Löggiltum endurskoðendum til að annast endurskoðun, gerð reikningsskila og veita viðskipta-
vinum okkar ráðgjöf á sviði reikningshalds og fjármála.
Viðskiptafræðingum með reynslu af endurskoðunarverkefnum, reikningsskila- og skattskila-
gerð og þjónustu á sviði reikningshalds.
Nýiega útskrifuðum viðskiptafræðingum eða viðskiptafræðinemum sem langt eru komn-
ir í námi.
Löggiltum endurskoðanda eða viðskiptafræðingi til að veita forstöðu útibúi okkar úti á
landi.
Deloitte Touche
Tohmatsu
Við gerum kröfu til þess að starfsfólk okkar sýni
frumkvæði, sé samstarfsfúst og hafi til að bera traust og áreiðanleika.
Við bjóðum sanngjörn laun í lifandi og notalegu starfsumhverfi og tækifæri til að takast á við fjöl-
breytt verkefni á sviði endurskoðunar og reikningshalds.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu okkar að Ármúla 40 í Reykjavík fyrir 15. desember nk.
HEILSUMOLAR
Það eru um það bil 3% líkur til
þess að barn erfi insúlínháða
sykursýki, sé móðir þess með
sjúkdóminn en um 9% líkur sé
það faðirinn. Ef báðir foreldrar
hafa hann hins vegar aukast lík-
urnar í 30%. Sérfræðingar segja
að lækningalíkur á insúlfnháðri
sykursýki séu orðnar svo góðar
að foreldrum sé nú sjaldan ráð-
lagt að sleppa barneignum þó
svo þeir hafi sjúkdóminn.
Reykingar
og hugsirn
Rannsóknir sýna að reykingar
hafa ekki aðeins slæm áhrif á
heilsu manna og auka mögu-
leika á því að þeir fái hjartasjúk-
dóma, heldur draga þær einnig
úr hæfileikum manna til að
hugsa. Heilinn starfar semsagt
heldur hægar í reykingamönn-
um.
Gefðu mér hendi
S k u r ð -
Iæknar við
Louisville
háskólann
eru að
undirbúa
f y r s t u
handar-
ágræðsl-
una þar
sem hend-
in kemur
frá öðrum en þeim sem missti
hana, þ.e. hendin er gefin.
Hendur þær sem bjóðast munu
vera flokkaðar eftir húðgerð og
lit. Þetta breytir miklu, því
margir hafa gervihendur sem
þeir myndu gjarnan vilja vera
lausir við og margir þeirra sem
deyja, vilja gjarnan að hlutar lík-
ama þeirra verði öðrum að
gagni.