Dagur - 31.12.1998, Síða 8
24 - FIMMVDAGUR 31. DESEMBER 1998
ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU
íslendingar eru fréttasjúkir, þaðfervartámilli mála. En hvað finnstokkureftirminnilegtþegarvið um áramót lítum til baka
ogskoðumfréttirliðins árs? Kári, Clinton, Keikó, kvótadómur?Þingstörfin eðaþorskstofninn?Eldgos,jarðskjálftar, óveður?
íþróttireða andans menn?Dagurleitarað eftirminnilegustufréttársins...
Kristín Halldórsdóttir: Óvænt
gagnagrunnsfrumvarp.
Gagna-
grunns-
munvarp
„Eg held að eftirminnilegasta
frétt ársins hafi verið þegar datt
óvænt inn á Alþingi frumvarp
um miðlægan gagnagrunn sem
fáir vissu um aðrir en heilbrigð-
isráðuneytið og Kári Stefáns-
son,“ segir Kristín Halldórsdóttir
alþingiskona. „Ég tala nú ekki
um það sem á eftir fylgdi. Það er
búið að vera allnokkuð og þetta
er mál sem gæti átt eftir að hafa
miklar afleiðingar, vonandi ein-
hverjar góðar en ég óttast að
þær verði slæmar."
Félagi
Clinton
„Það sem er aðalféttin og frétta-
efnið á árinu og það skondnasta
er allt fárið í kringum félaga
Clinton og hana skvísu," segir
Ragnar Sverrisson, kaupmaður í
JMJ á Akureyri. „Mér finnst
skondin og furðuleg öll sú um-
ræða í kringum það. Við erum
stundum að tala um að þing-
mennirnir okkar séu í skopleg-
um leikjum en það er hégómi
miðað við hvað þarna er í gangi
og hvernig Kaninn getur velt sér
upp úr þessu og hvað þetta
stjórnar mildu hjá þeim.“
Ragnar Sverrisson: Kaninn veltir sér
upp úr Clintonsmálum.
Broddi B. Bjarnason: Kosningarnar
og gott gengi framsóknarmanna.
Áróöur
fjölmiðla
Á innlendum vettvangi kemur
fyrst í hugann kosningamar í
vor,“ segir Broddi B. Bjarnason,
pípulagningamaður á Egilsstöð-
um, „og gott gengi framsóknar-
manna. Jafnframt slit F-Iistans á
samstarfi okkar í haust en mikill
léttir var því samfara og allt ann-
að og betra andrúmsloft að
starfa með sjálfstæðismönnum.
Einnig koma virkjanir upp í
hugann og umræður um þær og
hvað sá áróður sem íjölmiðlar
standa fyrir er gríðarlega ein-
hliða á móti þeim. Manni
blöskrar það stundum, bæði
hvað varðar ríkisljölmiðlana og
blöðin."
Kíjsrmigaiirslitiii
Smári Geirsson: Kosningaúrslit og
kvótadómur.
„Það eru mjög eftirminnilegar
fréttir af niðurstöðum sveitar-
stjórnarkosninga í vor,“ segir
Smári Geirsson, kennari og for-
seti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð.
„Ég var afskaplega ánægður með
úrslitin hér, í Fjarðabyggð, eins
og þetta heitir í dag, sameinað
sveitarfélag Eskifjarðar, Nes-
kaupstaðar og Reyðarfjarðar.
Oneitanlega var ég líka ánægður
með úrslitin í Reykjavík.
Annað sem vakti Iíka athygli
mína var kvótadómur Hæsta-
réttar. Hann er stórfrétt í sjálfu
sér og setur ansi margt í upp-
nám, ekki síst á landsbyggðinni
þar sem menn eru afskaplega
háðir kvótakerfinu og öllu sem
tengist því.“
Gunnar Hjálmarsson: Menningar-
umræða í kjölfar andláts Laxness.
Stefna til
vinstri
„Eftirminnilegasti atburður
þessa árs stendur ekki einn og
stakur, heldur samanstendur af
rás atburða og tengist uppstokk-
un í íslenskum stjórnmálum,"
segir Ögmundur Jónasson, al-
þingismaður og formaður BSRB.
„Síðastliðið vor stofnuðu
vinstri menn félagið Stefnu,
einskonar málefnavettvang til að
örva vinstrisinnað fólk, til að
beijast fyrir sjónarmiðum sínum
og nú hillir undir stofnun stjórn-
málasamtaka á Vinstri vængnum
sem gengur undir vinnuheitinu
Vinstrihreyfingin - Grænt fram-
boð. Fæðingunni lýkur ekki fyrr
en í byrjun næsta árs með form-
legri stofnun stjórnmálasamtaka,
en meðgangan var á þessu ári og
eru ýmsir atburðir sem henni
tengdust mér eftirminnilegir. Nú
á sér stað breytingaskeið í
pólítfkinni og er engan veginn
séð fyrir endann á því. Það er
þörf á því að skerpa línur og
áherslur í stjórnmálabaráttunni
og gera umhverfismálum hærra
„Nú á sér stað breytingaskeið f
pólítíkinni, “ segir Ögmundur Jónas-
son.
undir höfði en gert hefur verið
til þessa. Mér finnst ýmsir at-
burðir, sem tengjast umhverfis-
málum, eftirminnilegir; mótmæli
Guðmundar Páls Ólafssonar
með íslenska fánanum á hálend-
inu, fasta ungra hugsjónakvenna
nú um hátíðarnar til að vekja
þjóðina til vitundar um mikil-
vægi náttúruverndar og magnað-
ur baráttufundur í Háskólabíói.
Allt eru þetta vísbendingar um
vakningu í pólítíkinni."
Þverpólitísk samstaða
„Það var þegar þverpólitísk sam-
staða náðist í kjördæmanefnd-
inni,“ segir Siv Friðleifsdóttir al-
þingismaður spurð um eftir-
minnilegustu frétt ársins. „I
þessari nefnd eru fulltrúar allra
flokka og samstaða náðist um
tillögu að breytingum á kosn-
ingalöggjöfinni. Þetta mun hafa
mikil áhrif öllum í hag. Kjör-
dæmin stækka og það er betra
fyrir landsbyggðina. Að auki er
þetta gífurlega mikilvægt fyrir
framtíð Framsóknarflokksins.
Helmingurinn af fylgi flokksins
er á Reykjanesi og í Reykjavík en
það endurspeglast engan veginn
í áhrifamestu stöðum flokksins
og þingmannafjölda.
Mér þótti líka mjög vænt um
þegar tekin var skóflustunga að
nýjum barnaspítala. Sjúk börn
eru ekki sterkur þrýstihópur en
nú er verið að gera stórátak til
að bæta stöðu sjúkra og að-
standenda þeirra."
Siv Friðleifsdóttir: Áhrif breyttrar
kjördæmaskipanar verða mikil.
Lát HaUdórs Laxness
„Ég held að lát Halidórs Laxness
hafi verið einna eftirminnileg-
ast,“ segir Doktor Gunni, Gunn-
ar Hjálmarsson. „Við það og þá
menningarumræðu sem skapað-
ist í kjölfarið fór ég að Iesa
nokkrar bækur eftir hann, bæk-
ur sem ég hef ekki nennt að lesa
áður. Þessi umræða, þó hún
væri dálítið uppstríluð, var ágæt-
lega velkomin að mínu mati þó
leiðinlegt sé að menn þurfi að
deyja til að koma henni af stað.“