Dagur - 31.12.1998, Side 8

Dagur - 31.12.1998, Side 8
24 - FIMMVDAGUR 31. DESEMBER 1998 ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU íslendingar eru fréttasjúkir, þaðfervartámilli mála. En hvað finnstokkureftirminnilegtþegarvið um áramót lítum til baka ogskoðumfréttirliðins árs? Kári, Clinton, Keikó, kvótadómur?Þingstörfin eðaþorskstofninn?Eldgos,jarðskjálftar, óveður? íþróttireða andans menn?Dagurleitarað eftirminnilegustufréttársins... Kristín Halldórsdóttir: Óvænt gagnagrunnsfrumvarp. Gagna- grunns- munvarp „Eg held að eftirminnilegasta frétt ársins hafi verið þegar datt óvænt inn á Alþingi frumvarp um miðlægan gagnagrunn sem fáir vissu um aðrir en heilbrigð- isráðuneytið og Kári Stefáns- son,“ segir Kristín Halldórsdóttir alþingiskona. „Ég tala nú ekki um það sem á eftir fylgdi. Það er búið að vera allnokkuð og þetta er mál sem gæti átt eftir að hafa miklar afleiðingar, vonandi ein- hverjar góðar en ég óttast að þær verði slæmar." Félagi Clinton „Það sem er aðalféttin og frétta- efnið á árinu og það skondnasta er allt fárið í kringum félaga Clinton og hana skvísu," segir Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ á Akureyri. „Mér finnst skondin og furðuleg öll sú um- ræða í kringum það. Við erum stundum að tala um að þing- mennirnir okkar séu í skopleg- um leikjum en það er hégómi miðað við hvað þarna er í gangi og hvernig Kaninn getur velt sér upp úr þessu og hvað þetta stjórnar mildu hjá þeim.“ Ragnar Sverrisson: Kaninn veltir sér upp úr Clintonsmálum. Broddi B. Bjarnason: Kosningarnar og gott gengi framsóknarmanna. Áróöur fjölmiðla Á innlendum vettvangi kemur fyrst í hugann kosningamar í vor,“ segir Broddi B. Bjarnason, pípulagningamaður á Egilsstöð- um, „og gott gengi framsóknar- manna. Jafnframt slit F-Iistans á samstarfi okkar í haust en mikill léttir var því samfara og allt ann- að og betra andrúmsloft að starfa með sjálfstæðismönnum. Einnig koma virkjanir upp í hugann og umræður um þær og hvað sá áróður sem íjölmiðlar standa fyrir er gríðarlega ein- hliða á móti þeim. Manni blöskrar það stundum, bæði hvað varðar ríkisljölmiðlana og blöðin." Kíjsrmigaiirslitiii Smári Geirsson: Kosningaúrslit og kvótadómur. „Það eru mjög eftirminnilegar fréttir af niðurstöðum sveitar- stjórnarkosninga í vor,“ segir Smári Geirsson, kennari og for- seti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð. „Ég var afskaplega ánægður með úrslitin hér, í Fjarðabyggð, eins og þetta heitir í dag, sameinað sveitarfélag Eskifjarðar, Nes- kaupstaðar og Reyðarfjarðar. Oneitanlega var ég líka ánægður með úrslitin í Reykjavík. Annað sem vakti Iíka athygli mína var kvótadómur Hæsta- réttar. Hann er stórfrétt í sjálfu sér og setur ansi margt í upp- nám, ekki síst á landsbyggðinni þar sem menn eru afskaplega háðir kvótakerfinu og öllu sem tengist því.“ Gunnar Hjálmarsson: Menningar- umræða í kjölfar andláts Laxness. Stefna til vinstri „Eftirminnilegasti atburður þessa árs stendur ekki einn og stakur, heldur samanstendur af rás atburða og tengist uppstokk- un í íslenskum stjórnmálum," segir Ögmundur Jónasson, al- þingismaður og formaður BSRB. „Síðastliðið vor stofnuðu vinstri menn félagið Stefnu, einskonar málefnavettvang til að örva vinstrisinnað fólk, til að beijast fyrir sjónarmiðum sínum og nú hillir undir stofnun stjórn- málasamtaka á Vinstri vængnum sem gengur undir vinnuheitinu Vinstrihreyfingin - Grænt fram- boð. Fæðingunni lýkur ekki fyrr en í byrjun næsta árs með form- legri stofnun stjórnmálasamtaka, en meðgangan var á þessu ári og eru ýmsir atburðir sem henni tengdust mér eftirminnilegir. Nú á sér stað breytingaskeið í pólítfkinni og er engan veginn séð fyrir endann á því. Það er þörf á því að skerpa línur og áherslur í stjórnmálabaráttunni og gera umhverfismálum hærra „Nú á sér stað breytingaskeið f pólítíkinni, “ segir Ögmundur Jónas- son. undir höfði en gert hefur verið til þessa. Mér finnst ýmsir at- burðir, sem tengjast umhverfis- málum, eftirminnilegir; mótmæli Guðmundar Páls Ólafssonar með íslenska fánanum á hálend- inu, fasta ungra hugsjónakvenna nú um hátíðarnar til að vekja þjóðina til vitundar um mikil- vægi náttúruverndar og magnað- ur baráttufundur í Háskólabíói. Allt eru þetta vísbendingar um vakningu í pólítíkinni." Þverpólitísk samstaða „Það var þegar þverpólitísk sam- staða náðist í kjördæmanefnd- inni,“ segir Siv Friðleifsdóttir al- þingismaður spurð um eftir- minnilegustu frétt ársins. „I þessari nefnd eru fulltrúar allra flokka og samstaða náðist um tillögu að breytingum á kosn- ingalöggjöfinni. Þetta mun hafa mikil áhrif öllum í hag. Kjör- dæmin stækka og það er betra fyrir landsbyggðina. Að auki er þetta gífurlega mikilvægt fyrir framtíð Framsóknarflokksins. Helmingurinn af fylgi flokksins er á Reykjanesi og í Reykjavík en það endurspeglast engan veginn í áhrifamestu stöðum flokksins og þingmannafjölda. Mér þótti líka mjög vænt um þegar tekin var skóflustunga að nýjum barnaspítala. Sjúk börn eru ekki sterkur þrýstihópur en nú er verið að gera stórátak til að bæta stöðu sjúkra og að- standenda þeirra." Siv Friðleifsdóttir: Áhrif breyttrar kjördæmaskipanar verða mikil. Lát HaUdórs Laxness „Ég held að lát Halidórs Laxness hafi verið einna eftirminnileg- ast,“ segir Doktor Gunni, Gunn- ar Hjálmarsson. „Við það og þá menningarumræðu sem skapað- ist í kjölfarið fór ég að Iesa nokkrar bækur eftir hann, bæk- ur sem ég hef ekki nennt að lesa áður. Þessi umræða, þó hún væri dálítið uppstríluð, var ágæt- lega velkomin að mínu mati þó leiðinlegt sé að menn þurfi að deyja til að koma henni af stað.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.