Dagur - 31.12.1998, Side 9
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 25
ÁRAMÓ TALÍFIÐ í LANDINU
Heimir Már Pétursson: ÞegarAI-
þýðubandalagið samþykkti að fara í
samfyikingu.
Verð-
bréfa-
markað-
uriiin
„Mér finnst markverðasti þáttur-
inn í viðskiptalífinu á árinu vera
sala á fjölskyldufyrirtækjum eins
og Hagkaupi og svo almennur
áhugi hjá almenningi á hluta-
fjárkaupum, bæði á bönkum og
ríkisfyrirtækjum,“ segir Hildur
Petersen, framkvæmdastjóri
Hans Petersen.
„Hlutabréfamarkaðurinn er að
slíta barnsskónum og byija sinn
þroskaferil og það er mjög
HHdur Petersen: Áhugavert að
fyigjast með þróun hlutabréfa-
markaðsins.
áhugavert að fylgjast með þeirri
þróun og sjá hvert hún leiðir.“
Sam-
iylkingiii
,/Etli eftirminnilegasta frétt árs-
ins hvað mig varðar og þá sú
gleðilegasta um leið hafi ekki
verið fréttin um niðurstöðu at-
kvæðagreiðslu á landsfundi al-
þýðubandlagsmanna, þar sem
mikill meirihluti flokksmanna
samþykkti að fara í samfylkingu
með Alþýðuflokki og Kvenna-
lista," segir Heimir Már Péturs-
son, framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins. „Það gerðist jú
auðvitað ýmislegt annað og
margt dökkt, en þetta stendur
upp úr.“
Sverrir Ólafsson: Meðal annars
landráðin á hálendinu.
Kvótíim,
erfðamál,
Clinton...
Sverrir Olafsson í Straumi segir
mörg mál hafa komið upp á ár-
inu þannig að lítill vandi sé að
tína til eitt og annað. „Þar er
fyrst til að taka kvótadóminn,
það er ekki spurning, en kannski
von um að vegna þess að við
erum jú hamingjusamasta þjóð-
in á jörðunni, þá verði kvótamál-
in tekin í gegn og við fáum öll
okkar kvóta.
Svo eru það landráðin á há-
lendinu, landráð Finns. En við
fáum hálendið aftur, það er ekki
spurning. Svo er það tottið hans
Clintons og erfðakjaftæðið,
þetta eru líka stórmál sem mikla
umræðu hafa vakið. En öll þessi
mál skipta miklu og sum hver
geta bókstaflega ráðið lífi og
dauða manna í Iandinu," segir
Sverrir.
Afdrifa-
ríkur
dómur
„Það koma upp í hugann eldgos,
jarðskjálftar og stríðsfréttir utan
úr heimi og ég veit ekki hvað og
hvað,“ segir Lilja Olafsdóttir
spurð um eftirminnilegustu
fréttina á árinu. En svo kemur
dómurinn: „Eg held að kvóta-
dómur Hæstaréttar sé eftir-
minnilegastur. Staðan breytist
svo mikið og dómurinn hefur
svo víðtæk áhrif. Það er alls ekki
að ég vilji gagnrýna dóminn, sfð-
ur en svo, en þetta er svo af-
drifaríkt og stórt mál.“
LHja Ólafsdóttir forstjóri SVR:
„Kvótadómurinn!"
ÓlöfRún Skúladóttir: Bankarnir,
hitasóttin og gosið.
„Breytingar á bankaumhverfi í
víðum skilningi þess orðs,“ segir
Ólöf Rún Skúladóttir, frétta-
maður á Stöð tvö, spurð um eft-
irminnilegustu frétt ársins. „Þá
er ég bæði að vísa til þess sem
gerðist í Landsbankanum í vor
og þeirrar uppstokkunar sem þar
varð með tilheyrandi manna-
breytingum en einnig til sölu
ríkisbankanna, nú síðast með
gífurlegri þátttöku almennings í
hlutaljárútboði Búnaðarbank-
ans, og þess að Fjárfestingar-
banki atvinnulífsins hóf starf-
semi á árinu og var seldur að
hluta.
Einnig get ég nefnt hitasóttina
sem herjaði á íslenska hrossa-
stofninn sem eina af stóru frétt-
um ársins en þar fór betur en á
horfðist. Þá er ekki annað hægt
en að nefna gosið undir rótum
Grímsfjalls nú í desember, þótt
slíkt sé nánast að verða daglegt
brauð.“
Breytmgar á
bankamimverfi
Aukmbjartsýni!
„Það er margt sem kemur upp í
hugann þegar farið er yfir at-
burði ársins sem er að líða,“ seg-
ir Sólveig Pétursdóttir alþingis-
maður. „Eg nefni til dæmis það
mikla frumkvæði ríkisstjórnar-
innar að ganga rösklega til sölu
á ríkisfyrirtækjum, eins og FBA,
Landsbanka og Búnaðarbanka.
Hér er farið inn á nýjar brautir
sem lengi hefur verið talað um,
en núverandi ríkisstjórn hrinti í
framkvæmd. Þá hlýt ég að nefna
dóm Hæstaréttar í svonefndu
kvótamáli nú í desembar. Sá
dómur þykir mér áhugaverður
bæði sem alþingismanni og lög-
fræðingi. Þar með er ég ekki að
lýsa mig samþykka dómnum en
auðvitað skiptir hann máli, slíkt
er eðli dómsvaldsins í okkar
þjóðfélagsskipan.
En kannski er það eftirminni-
legasta af öllu á árinu 1998 að
mér virðist mönnum hafa aukist
bjartsýni og þor í kjölfar góðrar
tíðar í efnahagsmálum þjóðar-
innar, sem vissulega hefur verið
og hlýt ég að vilja þakka það
fyrst og fremst styrkri stjórn á
málefnum ríkisins undir forystu
Sjálfstæðisflokksins."
Málarekstur gegn
Cfinton
„Málareksturinn gegn Clinton
Bandaríkjaforseta," segir Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri um
eftirminnilegustu frétt ársins.
„Hann segir svo ótrúlega sögu
um tvískinnunginn hjá hinni
bandarísku þjóðarsál. Það er dap-
urlegt hvernig þessi óvægna um-
fjöllun, smjattið og slúðrið um
einkamál forsetans, æsifrétta-
mennskan og pólitískt ráðbrugg
hefur svert embættisferil vinsæls
forseta með þeim hætti að hann
bíður þess ekki bætur það sem
eftir lifir af embættisferlinum.
Þetta mál hefur líka skaðað álit
og myndugleik Bandaríkjanna út
á við. En einkamálin urðu að op-
inberum málum og við fáránlegar
aðstæður og undir álagi laug for-
setinn frammi fyrir þjóð sinni.
Það stendur upp úr. Því miður
fyrir Clinton og Bandaríkin."
Stefnu-
breytmg
Hæsta-
réttar
„Eg veit ekki hvort það er merki-
legasta fréttin," segir Lúðvík
Bergvinsson alþingismaður, „en
það sem mér hefur þótt merki-
legast á árinu er breytt stefna
Hæstaréttar að taka þátt í sam-
félagsþróuninni. Það hefur mér
þótt merkilegt og það er til sam-
ræmis við það sem dómstólar
hafa verið að gera um nokkurt
skeið víða erlendis og ég fagna
því sérstaklega.“ Hann segist í
Markús Örn Antonsson: Clintons-
mál hafa skaðað myndugleik
Bandaríkjanna út á við.
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður
fagnar stefnubreytingu Hæstaréttar.
því sambandi ekki aðeins vera
að horfa á kvótadóminn. „Þeir
hafa komið víðar og ég horfi á
þetta í aðeins stærra samhengi.
Ég fagna því ef þetta er stefnu-
breyting í Hæstarétti."
Lát
Guðrúnar
Katrínar
Hólmfríður Gísladóttir, Rauða
krossinum, segir það ekki einfalt
mál að rifja upp eitthvað eitt.
„Þó held ég að lát Guðrúnar
Katrínar forsetafrúar standi upp
úr, það er mikill sjónarsviptir að
þeirri konu,“ segir hún. „Og svo
þetta með góðærið sem fór svo
laglega hjá garði allra þeirra sem
þurft hafa að leita sér hjálpar."
Hólmfríður Gísladóttir: Sjónarsviptir
að forsetafrúnni.
Sólveig Pétursdóttir: Frumkvæði og
styrk stjórn.
Kvótadóm-
urinn
„Ég held að
frétt ársins
hljóti að verá
kvótadómur-
inn,“ segir
Ómar Valdi-
marsson, blaða-
maður hjá At-
hygli. „Hæsti-
réttur er búinn Omar Valdi-
að stugga við marsson: Hæsti-
valdníðslunni, réttur stuggaði
svo það virðist við valdniðsl-
loks von til að unni.
við getum bægt
frá okkur því yf-
irgengilega og siðlausa óréttlæti
sem við höfum mátt búa við allt
of lengi.“