Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 9

Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 9
 FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 25 ÁRAMÓ TALÍFIÐ í LANDINU Heimir Már Pétursson: ÞegarAI- þýðubandalagið samþykkti að fara í samfyikingu. Verð- bréfa- markað- uriiin „Mér finnst markverðasti þáttur- inn í viðskiptalífinu á árinu vera sala á fjölskyldufyrirtækjum eins og Hagkaupi og svo almennur áhugi hjá almenningi á hluta- fjárkaupum, bæði á bönkum og ríkisfyrirtækjum,“ segir Hildur Petersen, framkvæmdastjóri Hans Petersen. „Hlutabréfamarkaðurinn er að slíta barnsskónum og byija sinn þroskaferil og það er mjög HHdur Petersen: Áhugavert að fyigjast með þróun hlutabréfa- markaðsins. áhugavert að fylgjast með þeirri þróun og sjá hvert hún leiðir.“ Sam- iylkingiii ,/Etli eftirminnilegasta frétt árs- ins hvað mig varðar og þá sú gleðilegasta um leið hafi ekki verið fréttin um niðurstöðu at- kvæðagreiðslu á landsfundi al- þýðubandlagsmanna, þar sem mikill meirihluti flokksmanna samþykkti að fara í samfylkingu með Alþýðuflokki og Kvenna- lista," segir Heimir Már Péturs- son, framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins. „Það gerðist jú auðvitað ýmislegt annað og margt dökkt, en þetta stendur upp úr.“ Sverrir Ólafsson: Meðal annars landráðin á hálendinu. Kvótíim, erfðamál, Clinton... Sverrir Olafsson í Straumi segir mörg mál hafa komið upp á ár- inu þannig að lítill vandi sé að tína til eitt og annað. „Þar er fyrst til að taka kvótadóminn, það er ekki spurning, en kannski von um að vegna þess að við erum jú hamingjusamasta þjóð- in á jörðunni, þá verði kvótamál- in tekin í gegn og við fáum öll okkar kvóta. Svo eru það landráðin á há- lendinu, landráð Finns. En við fáum hálendið aftur, það er ekki spurning. Svo er það tottið hans Clintons og erfðakjaftæðið, þetta eru líka stórmál sem mikla umræðu hafa vakið. En öll þessi mál skipta miklu og sum hver geta bókstaflega ráðið lífi og dauða manna í Iandinu," segir Sverrir. Afdrifa- ríkur dómur „Það koma upp í hugann eldgos, jarðskjálftar og stríðsfréttir utan úr heimi og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Lilja Olafsdóttir spurð um eftirminnilegustu fréttina á árinu. En svo kemur dómurinn: „Eg held að kvóta- dómur Hæstaréttar sé eftir- minnilegastur. Staðan breytist svo mikið og dómurinn hefur svo víðtæk áhrif. Það er alls ekki að ég vilji gagnrýna dóminn, sfð- ur en svo, en þetta er svo af- drifaríkt og stórt mál.“ LHja Ólafsdóttir forstjóri SVR: „Kvótadómurinn!" ÓlöfRún Skúladóttir: Bankarnir, hitasóttin og gosið. „Breytingar á bankaumhverfi í víðum skilningi þess orðs,“ segir Ólöf Rún Skúladóttir, frétta- maður á Stöð tvö, spurð um eft- irminnilegustu frétt ársins. „Þá er ég bæði að vísa til þess sem gerðist í Landsbankanum í vor og þeirrar uppstokkunar sem þar varð með tilheyrandi manna- breytingum en einnig til sölu ríkisbankanna, nú síðast með gífurlegri þátttöku almennings í hlutaljárútboði Búnaðarbank- ans, og þess að Fjárfestingar- banki atvinnulífsins hóf starf- semi á árinu og var seldur að hluta. Einnig get ég nefnt hitasóttina sem herjaði á íslenska hrossa- stofninn sem eina af stóru frétt- um ársins en þar fór betur en á horfðist. Þá er ekki annað hægt en að nefna gosið undir rótum Grímsfjalls nú í desember, þótt slíkt sé nánast að verða daglegt brauð.“ Breytmgar á bankamimverfi Aukmbjartsýni! „Það er margt sem kemur upp í hugann þegar farið er yfir at- burði ársins sem er að líða,“ seg- ir Sólveig Pétursdóttir alþingis- maður. „Eg nefni til dæmis það mikla frumkvæði ríkisstjórnar- innar að ganga rösklega til sölu á ríkisfyrirtækjum, eins og FBA, Landsbanka og Búnaðarbanka. Hér er farið inn á nýjar brautir sem lengi hefur verið talað um, en núverandi ríkisstjórn hrinti í framkvæmd. Þá hlýt ég að nefna dóm Hæstaréttar í svonefndu kvótamáli nú í desembar. Sá dómur þykir mér áhugaverður bæði sem alþingismanni og lög- fræðingi. Þar með er ég ekki að lýsa mig samþykka dómnum en auðvitað skiptir hann máli, slíkt er eðli dómsvaldsins í okkar þjóðfélagsskipan. En kannski er það eftirminni- legasta af öllu á árinu 1998 að mér virðist mönnum hafa aukist bjartsýni og þor í kjölfar góðrar tíðar í efnahagsmálum þjóðar- innar, sem vissulega hefur verið og hlýt ég að vilja þakka það fyrst og fremst styrkri stjórn á málefnum ríkisins undir forystu Sjálfstæðisflokksins." Málarekstur gegn Cfinton „Málareksturinn gegn Clinton Bandaríkjaforseta," segir Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri um eftirminnilegustu frétt ársins. „Hann segir svo ótrúlega sögu um tvískinnunginn hjá hinni bandarísku þjóðarsál. Það er dap- urlegt hvernig þessi óvægna um- fjöllun, smjattið og slúðrið um einkamál forsetans, æsifrétta- mennskan og pólitískt ráðbrugg hefur svert embættisferil vinsæls forseta með þeim hætti að hann bíður þess ekki bætur það sem eftir lifir af embættisferlinum. Þetta mál hefur líka skaðað álit og myndugleik Bandaríkjanna út á við. En einkamálin urðu að op- inberum málum og við fáránlegar aðstæður og undir álagi laug for- setinn frammi fyrir þjóð sinni. Það stendur upp úr. Því miður fyrir Clinton og Bandaríkin." Stefnu- breytmg Hæsta- réttar „Eg veit ekki hvort það er merki- legasta fréttin," segir Lúðvík Bergvinsson alþingismaður, „en það sem mér hefur þótt merki- legast á árinu er breytt stefna Hæstaréttar að taka þátt í sam- félagsþróuninni. Það hefur mér þótt merkilegt og það er til sam- ræmis við það sem dómstólar hafa verið að gera um nokkurt skeið víða erlendis og ég fagna því sérstaklega.“ Hann segist í Markús Örn Antonsson: Clintons- mál hafa skaðað myndugleik Bandaríkjanna út á við. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður fagnar stefnubreytingu Hæstaréttar. því sambandi ekki aðeins vera að horfa á kvótadóminn. „Þeir hafa komið víðar og ég horfi á þetta í aðeins stærra samhengi. Ég fagna því ef þetta er stefnu- breyting í Hæstarétti." Lát Guðrúnar Katrínar Hólmfríður Gísladóttir, Rauða krossinum, segir það ekki einfalt mál að rifja upp eitthvað eitt. „Þó held ég að lát Guðrúnar Katrínar forsetafrúar standi upp úr, það er mikill sjónarsviptir að þeirri konu,“ segir hún. „Og svo þetta með góðærið sem fór svo laglega hjá garði allra þeirra sem þurft hafa að leita sér hjálpar." Hólmfríður Gísladóttir: Sjónarsviptir að forsetafrúnni. Sólveig Pétursdóttir: Frumkvæði og styrk stjórn. Kvótadóm- urinn „Ég held að frétt ársins hljóti að verá kvótadómur- inn,“ segir Ómar Valdi- marsson, blaða- maður hjá At- hygli. „Hæsti- réttur er búinn Omar Valdi- að stugga við marsson: Hæsti- valdníðslunni, réttur stuggaði svo það virðist við valdniðsl- loks von til að unni. við getum bægt frá okkur því yf- irgengilega og siðlausa óréttlæti sem við höfum mátt búa við allt of lengi.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.