Dagur - 31.12.1998, Síða 12

Dagur - 31.12.1998, Síða 12
28 - FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 ÁRAMÓ TALÍFIÐ Ólafur Ásgeirsson. Kári að gera merka hluti „Eg vel Kára Stefánsson, sem er að gera merka hluti sem munu koma mannkyninu til góða,“ segir Olafur Asgeirsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn á Akureyri. „Mér fínnst sjálfsagt að veittar séu upplýsingar um heilsufar Is- lendinga, úr því það getur breytt svo miklu í læknavísindum. En vissulega er Kári umdeildur, sem ég tel að helgist af öfund í hans garð. Þingmenn sem voru á móti frumvarpinu hygg ég að margir hafi talað gegn betri vitund.“ Olga Ágústsdóttir. Ingibjörg í sóku „Ingibjörg heilbrigðisráðherra er í sókn,“ segir Olga Agústsdóttir, fornbókasali á Akureyri. „Nú síðast var hún að sameina stóru sjúkrahúsin í Reykjavík og mér þótti hún snjöll að geta komið því máli í gegn án þess að marg- ir vissu. Svo er gagnagrunns- frumvarpið líka komið í gegn. Ingibjörg hefur spjarað sig vel í þessu ráðuneyti, betur en marg- ur annar og umdeildir hafa þeir verið, ráðherrarnir sem hafa á undan setið.“ ÓlafurB. Thors. Kári í mímini huga „I mínum huga er Kári Stefáns- son hjá Islenskri erfðagreiningu maður ársins," segir Olafur B. Thors, forstjóri Sjóvár-AI- mennra. „Kári hefur komið af stað einni umfangsmestu um- ræðu sem átt hefur sér stað lengi, það er um lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Ekki skal líta svo á að þetta sé sérstakur stuðningur minn við þau, en mér finnst sérstaklega ánæjulegt að Islensk erfðagrein- ing er fyrirtæki sem hefur gefíð fjölda ungra, vel menntaðra Is- lendinga tækifæri á að koma heim til vel iaunaðra starfa við sitt hæfí.“ LANDINU iris Kristjánsdóttir. Enginn Annan fremri „Mig langar til þess að velja Kofí Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna,“ segir sr. íris Krist- jánsdóttir, prestur í Hjallakirkju í Kópavogi. „Hann hefur víða komið að málum og stillt til frið- ar, til dæmis á milli Israels og Palestínumanna og í Irak, þó honum hafí ekki gefíst tækifæri til að miðla málum áður en kom til loftárása Bandaríkjamanna og Breta nú í desember. Mér fínnst enginn vera fremri en Annan í neinu tilliti.“ Samviska þjóðarinnar „Illugi Jökulsson er samviska þjóðarinnar og er maður ársins," segir Hörður Blöndal, hafnar- stjóri á Akureyri. „Þau mál frá árinu sem koma fyrst upp í hug- ann eru eftirlaun bankastjóra, gagnagrunnurinn og Kári, einka- væðing íjármálafyrirtækjanna og kvótamálin öll og nú síðast dóm- ur Hæstaréttar um þau. Það er hinsvegar Illugi sem tekur málin til umfjöllunar í útvarpinu og sýnir okkur hina hlið þeirra. Eg set mig í færi á fimmtudags- morgum að missa ekki af pistl- um hans.“ Ásdís Magnúsdóttir. Merk vísindakona „Mig langar til að velja Margréti Guðnadóttur prófessor fyrir hennar stórmerku vísindaniður- stöður sem nýlega var greint frá,“ segir Asdís Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs. „Þessar niðurstöður eru um hægfara veirusýkingu, það er eyðni og visnu, og það að hugsanlega sé hægt að vinna gegn þessu með bólusetningu. Nýlega var greint frá ævi og störfum Margrétar í löngu og ítarlegu blaðaviðtali og vakti þessi kona þá mikinn áhuga minn.“ Ságrái „Eigum við ekki að segja að sá grái sé maður ársins, það er Kári Stefánsson,“ segir Jón Ólafsson, bóndi á Kirkjulæk í Fljótshlíð. „Hann er skarpgáfaður maður sem hefur sýnt að hann þorir, vill og getur og hans vísindi eiga eftir að verða mörgum til gagns. Hann má að minnska kosti fá að vita allt um mig ef það getur einhverju breytt um heilsufar fólksins og þetta myndi ég segja alveg sama í hvaða flokki ég væri.“ Þórey Edda Elísdóttir. Vala - engin spuming „Það er engin spurning að Vala Flosadóttir er maður ársins," segir Þórey Edda Elísdóttir, stangarstökkvari úr FH. „Hún setti á árinu tvö heimsmet í stangarstökki og er fýrsti Islend- ingurinn sem það gerir. Fyrra metið var 4,42 m. og hið síðara 4,44 m. Þetta var góður árangur. Sjálf hef ég fulla trú á því að ég geti tilnefnt Völu sem mann árs- ins aftur á næsta ári, þar sem hún hefur verið að bæta sig mik- ið að styrk að undanförnu á æf- ingum sem ég hef verið með henni á úti í Svíþjóð. - Nei, það er engin samkeppni á milli okk- ar, við styðjum hvora aðra og hún er mín fyrirmynd." DagurB. Eggertsson. Kári í tvöfoldum skUningi „I mínu einkalífi er unnusta mín, Arna Einarsdóttir, maður ársins. Síðan ég kynntist henni í sumar hef ég liðið áfram feti ofar jörðu í ástarsælu en það á ég Kára Stefánssyni að þakka. Arna, sem er búsett í Svíþjóð og nemur þar læknisfræði, kom

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.