Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 12
28 - FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998
ÁRAMÓ TALÍFIÐ
Ólafur Ásgeirsson.
Kári að gera merka hluti
„Eg vel Kára Stefánsson, sem er
að gera merka hluti sem munu
koma mannkyninu til góða,“
segir Olafur Asgeirsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn á Akureyri.
„Mér fínnst sjálfsagt að veittar
séu upplýsingar um heilsufar Is-
lendinga, úr því það getur breytt
svo miklu í læknavísindum. En
vissulega er Kári umdeildur, sem
ég tel að helgist af öfund í hans
garð. Þingmenn sem voru á móti
frumvarpinu hygg ég að margir
hafi talað gegn betri vitund.“
Olga Ágústsdóttir.
Ingibjörg í sóku
„Ingibjörg heilbrigðisráðherra er
í sókn,“ segir Olga Agústsdóttir,
fornbókasali á Akureyri. „Nú
síðast var hún að sameina stóru
sjúkrahúsin í Reykjavík og mér
þótti hún snjöll að geta komið
því máli í gegn án þess að marg-
ir vissu. Svo er gagnagrunns-
frumvarpið líka komið í gegn.
Ingibjörg hefur spjarað sig vel í
þessu ráðuneyti, betur en marg-
ur annar og umdeildir hafa þeir
verið, ráðherrarnir sem hafa á
undan setið.“
ÓlafurB. Thors.
Kári í mímini huga
„I mínum huga er Kári Stefáns-
son hjá Islenskri erfðagreiningu
maður ársins," segir Olafur B.
Thors, forstjóri Sjóvár-AI-
mennra. „Kári hefur komið af
stað einni umfangsmestu um-
ræðu sem átt hefur sér stað
lengi, það er um lögin um
gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Ekki skal líta svo á að þetta sé
sérstakur stuðningur minn við
þau, en mér finnst sérstaklega
ánæjulegt að Islensk erfðagrein-
ing er fyrirtæki sem hefur gefíð
fjölda ungra, vel menntaðra Is-
lendinga tækifæri á að koma
heim til vel iaunaðra starfa við
sitt hæfí.“
LANDINU
iris Kristjánsdóttir.
Enginn Annan fremri
„Mig langar til þess að velja Kofí
Annan, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna,“ segir sr. íris Krist-
jánsdóttir, prestur í Hjallakirkju
í Kópavogi. „Hann hefur víða
komið að málum og stillt til frið-
ar, til dæmis á milli Israels og
Palestínumanna og í Irak, þó
honum hafí ekki gefíst tækifæri
til að miðla málum áður en kom
til loftárása Bandaríkjamanna og
Breta nú í desember. Mér fínnst
enginn vera fremri en Annan í
neinu tilliti.“
Samviska þjóðarinnar
„Illugi Jökulsson er samviska
þjóðarinnar og er maður ársins,"
segir Hörður Blöndal, hafnar-
stjóri á Akureyri. „Þau mál frá
árinu sem koma fyrst upp í hug-
ann eru eftirlaun bankastjóra,
gagnagrunnurinn og Kári, einka-
væðing íjármálafyrirtækjanna og
kvótamálin öll og nú síðast dóm-
ur Hæstaréttar um þau. Það er
hinsvegar Illugi sem tekur málin
til umfjöllunar í útvarpinu og
sýnir okkur hina hlið þeirra. Eg
set mig í færi á fimmtudags-
morgum að missa ekki af pistl-
um hans.“
Ásdís Magnúsdóttir.
Merk vísindakona
„Mig langar til að velja Margréti
Guðnadóttur prófessor fyrir
hennar stórmerku vísindaniður-
stöður sem nýlega var greint
frá,“ segir Asdís Magnúsdóttir,
formaður Stúdentaráðs. „Þessar
niðurstöður eru um hægfara
veirusýkingu, það er eyðni og
visnu, og það að hugsanlega sé
hægt að vinna gegn þessu með
bólusetningu. Nýlega var greint
frá ævi og störfum Margrétar í
löngu og ítarlegu blaðaviðtali og
vakti þessi kona þá mikinn
áhuga minn.“
Ságrái
„Eigum við ekki að segja að sá
grái sé maður ársins, það er Kári
Stefánsson,“ segir Jón Ólafsson,
bóndi á Kirkjulæk í Fljótshlíð.
„Hann er skarpgáfaður maður
sem hefur sýnt að hann þorir,
vill og getur og hans vísindi eiga
eftir að verða mörgum til gagns.
Hann má að minnska kosti fá að
vita allt um mig ef það getur
einhverju breytt um heilsufar
fólksins og þetta myndi ég segja
alveg sama í hvaða flokki ég
væri.“
Þórey Edda Elísdóttir.
Vala - engin spuming
„Það er engin spurning að Vala
Flosadóttir er maður ársins,"
segir Þórey Edda Elísdóttir,
stangarstökkvari úr FH. „Hún
setti á árinu tvö heimsmet í
stangarstökki og er fýrsti Islend-
ingurinn sem það gerir. Fyrra
metið var 4,42 m. og hið síðara
4,44 m. Þetta var góður árangur.
Sjálf hef ég fulla trú á því að ég
geti tilnefnt Völu sem mann árs-
ins aftur á næsta ári, þar sem
hún hefur verið að bæta sig mik-
ið að styrk að undanförnu á æf-
ingum sem ég hef verið með
henni á úti í Svíþjóð. - Nei, það
er engin samkeppni á milli okk-
ar, við styðjum hvora aðra og
hún er mín fyrirmynd."
DagurB. Eggertsson.
Kári í tvöfoldum skUningi
„I mínu einkalífi er unnusta
mín, Arna Einarsdóttir, maður
ársins. Síðan ég kynntist henni í
sumar hef ég liðið áfram feti
ofar jörðu í ástarsælu en það á
ég Kára Stefánssyni að þakka.
Arna, sem er búsett í Svíþjóð og
nemur þar læknisfræði, kom