Dagur - 31.12.1998, Síða 13
I
Karl Sigurbjörnsson tók við embætti biskups á árinu og þykir sumum sem hann
hafi fært kristindóminn nær fólkinu.
Vann afrek. Skaraðiframúrfjöldanum. Gerði
góða hluti. Eröðrum til eftirbreytni. Þessarrök-
semdirhefurfólk íhuga þegarþað tilnefnir
mann ársins. Við hringdum ísaután íslendinga
og leituðum eftirþeirra áliti.
hingað heim í sumar og starfaði
þá við erfðagreiningar hjá Kára,“
segir Dagur B. Eggertsson,
læknanemi og rithöfundur. „I
opinberu lífi vil ég líka tilnefna
Kára sem mann ársins, fyrir að
koma því í gegn, sem föður
hans, Stefáni Jónssyni þing-
manni Alþýðubandalagsins tókst
aldrei; að láta Sjálfstæðisflokk-
inn í einu og sama málinu ganga
gegn allri sinni sannfæringu og
hugmyndafræði; það er friðhelgi
einkalífsins, persónufrelsi, við-
skiptafrelsi, andstöðu við einok-
un að ónefndu frelsi vísinda-
anna. Geri aðrir betur.“
Jónína Benediktsdóttir.
Fært trúna nær fólkinu
„Eg er afskapiega hrifin af nýja
biskupnum okkar, herra Karli
Sigurbjörnssyni, og vi I velja
hann sem mann ársins,“ segir
Jónína Benediktsdóttir, líkams-
ræktarfrömuður. „Karl er að
færa hina kristnu trú nær fólk-
inu í landinu þannig að hún
verður daglegur hluti af lífi þess.
Þetta kemur meðal annars til af
því að Karl talar það tungumál
sem fólkið skilur. Oft er talað
um kristna trú þannig að maður
upplifir sig ekki sem hluta af
samfélagi þess, heldur sem að-
skotahlut, en það gerist ekki þar
sem Karl á í hlut.“
Sigfús Sigfússon.
Sigurður er hæfur
„Líkt og íjölmiðlar hafa gert til-
nefni ég vin minn Sigurð Gísla
Pálmason sem mann ársins,“
segir Sigfús Sigfússon, forstjóri
Heklu. „Hann er hæfur í við-
skiptum og framsýni hans sýndi
sig vel við sölu á Hagkaupum í
sumar. Þar er verið að gera að
almenningshlutafélagi fyrirtæki
sem nær allir landsmenn eiga
viðskipti við. Síðan er Sigurður
fínn náugi og afar góður í sam-
skiptum öllum.“
Una Margrét Jónsdóttir.
Náttúrufræðinguriim
„Eg held ég útnefni Guðmund
P. Ólafsson náttúrufræðing
mann ársins, vegna baráttu hans
gegn spjöllum á hálendinu. Þeir,
sem hafa reynt að veija landið
fyrir óbætanlegum skemmdum,
eru menn ársins í mínum huga,“
segir Unga Margrét Jónsdóttir á
tónlistardeild Ríkisútvarpsins,
sem er vel þekkt sem einn full-
trúa Islands í Kontrapunkti.
Davíð Rúnar Gunnarsson.
framkvæmdastjóri hátíðarinnar
Halló Akureyri, er maður ársins,"
segir Davíð Rúnar Gunnarsson,
útvarpsmaður og bíókóngur á
Akureyri. „A fáum árum er Halló
Akureyri orðin að fjölsóttustu
útihátíð landsins og það er svona
70% honum að þakka. Þetta er
flottur gaur og góður vinur sem
hefur staðið sig vel.“
Ágústa Þorkelsdóttir.
Ólafur og nyt jakortið
„I mínum huga er Ólafur Arn-
alds landnýtingarráðunautur
maður ársins," segir Agústa Þor-
kelsdóttir, húsmóðir á Refstað í
Vopnafirði. „Hann hefur gert
nytjakort yfir landið en fyrir það
voru honum einmitt veitt Nor-
rænu umhverfisverðlaunin á
dögunum. Kortið kemur í góðar
þarfir og mun veita miklisverðar
upplýsingar um nýtingu á land-
inu okkar í náinni framtíð. Þetta
er hagsmunamál lokkar allra
sem landið bygga - og nýta.“
Flottur gaur
„Magnús Már Þorvaldsson,
Bónusfegðar
„Salan á Hagkaupum á árinu var
auðvitað tímamótaviðburður í
íslensku viðskiptalífi," segir Ein-
ar Bárðarson, markaðsmaður í
Reykjavík. „Þar sýndu Bónuss-
feðgar góða takta í viðskiptum
og við sameiningu Bónus og
Hagkaupa eignuðust þeir fjórð-
ungshlut í Baugi hf. Að ná þeim
árangri og þá jafnframt þvf að
ná vissum undirtökum í þessu
stærsta verslunarfyrirtæki lands-
ins verðskuldar það alveg að þeir
Jón Asgeir og Jóhannes séu
nefndir menn ársins."
Ingibjörg Siglaugsdóttir.
Tveir íþróttameim
„Við hér í Laufási erum á þeirri
skoðun að menn ársins séu
tveir. Iþróttamenn eru þeir báð-
ir; tugþrautarmaðurinn Jón Arn-
ar Magnússon og skíðamaður-
inn Kristinn Björnsson," segir
Ingibjörg Siglaugsdóttir, hús-
móðir í Laufási við Eyjafjörð.
„Við á þessum heimili fylgjumst
með íþróttum og af því kemur
sjálfsagt þetta val okkar. Jón
Arnar þekkjum við aðeins, hann
var hér að vinna við torfhleðslu í
gamla bænum fyrir fáum árum
og gerði það gott þá. Og dreng-
urinn er mikið gæðablóð.“
Helga Haraldsdóttir.
Það verðskuldai Öm
„Sundmaðurinn Örn Arnarson
verðskuldar að vera nefndur
maður ársins," segir Helga Har-
aldsdóttir, deildarstjóri í sam-
gönguráðuneytinu. „Mér finrist
frábært fyrir æsku þessa lands
að ungt fólk skuli ná jafn góðum
árangri á alþjóðlegum vettvangi,
rétt einsog Örn hefur svo sann-
arlega gert. Og það er líka frá-
bært fyrir þessa spræku sund-
þjóð að það skuli vera í þeirra
fþróttagrein sem þessi árangur
næst.“