Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 13

Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 13
I Karl Sigurbjörnsson tók við embætti biskups á árinu og þykir sumum sem hann hafi fært kristindóminn nær fólkinu. Vann afrek. Skaraðiframúrfjöldanum. Gerði góða hluti. Eröðrum til eftirbreytni. Þessarrök- semdirhefurfólk íhuga þegarþað tilnefnir mann ársins. Við hringdum ísaután íslendinga og leituðum eftirþeirra áliti. hingað heim í sumar og starfaði þá við erfðagreiningar hjá Kára,“ segir Dagur B. Eggertsson, læknanemi og rithöfundur. „I opinberu lífi vil ég líka tilnefna Kára sem mann ársins, fyrir að koma því í gegn, sem föður hans, Stefáni Jónssyni þing- manni Alþýðubandalagsins tókst aldrei; að láta Sjálfstæðisflokk- inn í einu og sama málinu ganga gegn allri sinni sannfæringu og hugmyndafræði; það er friðhelgi einkalífsins, persónufrelsi, við- skiptafrelsi, andstöðu við einok- un að ónefndu frelsi vísinda- anna. Geri aðrir betur.“ Jónína Benediktsdóttir. Fært trúna nær fólkinu „Eg er afskapiega hrifin af nýja biskupnum okkar, herra Karli Sigurbjörnssyni, og vi I velja hann sem mann ársins,“ segir Jónína Benediktsdóttir, líkams- ræktarfrömuður. „Karl er að færa hina kristnu trú nær fólk- inu í landinu þannig að hún verður daglegur hluti af lífi þess. Þetta kemur meðal annars til af því að Karl talar það tungumál sem fólkið skilur. Oft er talað um kristna trú þannig að maður upplifir sig ekki sem hluta af samfélagi þess, heldur sem að- skotahlut, en það gerist ekki þar sem Karl á í hlut.“ Sigfús Sigfússon. Sigurður er hæfur „Líkt og íjölmiðlar hafa gert til- nefni ég vin minn Sigurð Gísla Pálmason sem mann ársins,“ segir Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu. „Hann er hæfur í við- skiptum og framsýni hans sýndi sig vel við sölu á Hagkaupum í sumar. Þar er verið að gera að almenningshlutafélagi fyrirtæki sem nær allir landsmenn eiga viðskipti við. Síðan er Sigurður fínn náugi og afar góður í sam- skiptum öllum.“ Una Margrét Jónsdóttir. Náttúrufræðinguriim „Eg held ég útnefni Guðmund P. Ólafsson náttúrufræðing mann ársins, vegna baráttu hans gegn spjöllum á hálendinu. Þeir, sem hafa reynt að veija landið fyrir óbætanlegum skemmdum, eru menn ársins í mínum huga,“ segir Unga Margrét Jónsdóttir á tónlistardeild Ríkisútvarpsins, sem er vel þekkt sem einn full- trúa Islands í Kontrapunkti. Davíð Rúnar Gunnarsson. framkvæmdastjóri hátíðarinnar Halló Akureyri, er maður ársins," segir Davíð Rúnar Gunnarsson, útvarpsmaður og bíókóngur á Akureyri. „A fáum árum er Halló Akureyri orðin að fjölsóttustu útihátíð landsins og það er svona 70% honum að þakka. Þetta er flottur gaur og góður vinur sem hefur staðið sig vel.“ Ágústa Þorkelsdóttir. Ólafur og nyt jakortið „I mínum huga er Ólafur Arn- alds landnýtingarráðunautur maður ársins," segir Agústa Þor- kelsdóttir, húsmóðir á Refstað í Vopnafirði. „Hann hefur gert nytjakort yfir landið en fyrir það voru honum einmitt veitt Nor- rænu umhverfisverðlaunin á dögunum. Kortið kemur í góðar þarfir og mun veita miklisverðar upplýsingar um nýtingu á land- inu okkar í náinni framtíð. Þetta er hagsmunamál lokkar allra sem landið bygga - og nýta.“ Flottur gaur „Magnús Már Þorvaldsson, Bónusfegðar „Salan á Hagkaupum á árinu var auðvitað tímamótaviðburður í íslensku viðskiptalífi," segir Ein- ar Bárðarson, markaðsmaður í Reykjavík. „Þar sýndu Bónuss- feðgar góða takta í viðskiptum og við sameiningu Bónus og Hagkaupa eignuðust þeir fjórð- ungshlut í Baugi hf. Að ná þeim árangri og þá jafnframt þvf að ná vissum undirtökum í þessu stærsta verslunarfyrirtæki lands- ins verðskuldar það alveg að þeir Jón Asgeir og Jóhannes séu nefndir menn ársins." Ingibjörg Siglaugsdóttir. Tveir íþróttameim „Við hér í Laufási erum á þeirri skoðun að menn ársins séu tveir. Iþróttamenn eru þeir báð- ir; tugþrautarmaðurinn Jón Arn- ar Magnússon og skíðamaður- inn Kristinn Björnsson," segir Ingibjörg Siglaugsdóttir, hús- móðir í Laufási við Eyjafjörð. „Við á þessum heimili fylgjumst með íþróttum og af því kemur sjálfsagt þetta val okkar. Jón Arnar þekkjum við aðeins, hann var hér að vinna við torfhleðslu í gamla bænum fyrir fáum árum og gerði það gott þá. Og dreng- urinn er mikið gæðablóð.“ Helga Haraldsdóttir. Það verðskuldai Öm „Sundmaðurinn Örn Arnarson verðskuldar að vera nefndur maður ársins," segir Helga Har- aldsdóttir, deildarstjóri í sam- gönguráðuneytinu. „Mér finrist frábært fyrir æsku þessa lands að ungt fólk skuli ná jafn góðum árangri á alþjóðlegum vettvangi, rétt einsog Örn hefur svo sann- arlega gert. Og það er líka frá- bært fyrir þessa spræku sund- þjóð að það skuli vera í þeirra fþróttagrein sem þessi árangur næst.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.