Dagur - 31.12.1998, Side 17
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 33
. : .
í'.'íi-; 1y£gi
............. iw'n ■ U'WI
. i iiMiwiin w«|r—^jfa—pMP
ÉÉ^ÉÉÉIÍ
~^'swr .
• ’ ■ ' . ,A’»'.3252iir
* «. . . - r--. . .
Við þökkum landsmönnum
gott og uppbyggilegt samstarf
I cíög lýkur Húsnceðisstofnun starfsemi sinni. Við þau
tímamót er margs að minnast úr rúmlega 40 ára starfi.
A síðari hluta þessarar aldar liefur íslenska þjóðin reist
sér vönduð og myndarleg húsakynni sem gerast
óvíða betri. Þetta hefur m.a. gerst með samstarfi
Alþingis og stjórnvalda, launþegasamtaka og
vinnuveitenda, lífeyrissjóða, banka og spari-
sjóða. En þó fyrst og fremst með þrotlausum
dugnaði og fórnfysi fólksins sjálfs, sem hefur
löngum lagt nótt við dag svo það mætti eignast
þak yfir höfuðið. Húsnæðisstofnunin hefur tekið þátt
í að ryðja brautina og lagt til mest af því langtímafé sem
til þessa hefur þurft.
Húsnæðisstofnunin hefur alltaf haft félagsleg sjónarmið
að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Lágir vextir húsnæðislána
hafa stuðlað mjög að góðum lífskjörum almennings.
Hún hefur veitt stórlán til að byggja mikinn fjölda sérstakra
eignar- og leiguíbúða fyrir aldraða, leiguíbúða fyrir
námsmenn og öryrkja, eignaríbúða fyrir efnalítið fólk og
til íbúðakaupa og liúsbygginga á almennum markaði.
Um 13 ára skeið hefur hún rekið sérstaka ráðgjafastöð
til aðstoðar við fólk í greiðsluerfiðleikum og hafa meira
en 10 þúsund fjölskyldur notið
góðs af starfsemi hennar. Um
áratugaskeið sá hún almenningi
einnig fyrir hagkvæmum húsa-
teikningum á lágu verði.
Á síðustu 30 árum hefur stofnunin
tvisvar beitt sér af miklum þunga
með stórfelldum lánveitingum til að
hamla gegn atvinnuleysi í byggingar-
iðnaðinum og tengdum ah'innugreinum. Síðustu sex
árin hefur hún lagt frarn rúmar 100 milljónir króna til
framfara og þróunar í byggingariðnaði og
húsnæðismálum.
Húsnæðisstoíhun hefur verið lífeyris-
sjóðunum í landinu mikil lyftistöng
undanfarin 10-15 ár með sölu hávaxta-
bréfa til þeirra; njóta lífeyrisþegar
góðs af því.
Húsnæðisstofnunin er ein stærsta lána
stofnun landsins nú er hún lýkur starfsemi sinni.
Utlán hennar til einstaklinga, sveitar-
félaga, stofnana og fyrirtækja nema
nú samtals um 233 milljörðum króna.
í sjóðum hennar er stór hluti af þjóðar-
auðnum fólginn.
Á þessum tímamótum viljum við þakka landsmönnum
samfylgdina, góð viðskipti og frábæra skilvísi síðustu
fjóra áratugina. Við þökkum núverandi og fyrrverandi
starfsmönnum vel unnin störfog kveðjum um leið og
við bjóðum arftaka okkar, hinn nýja Ihúðalánasjóð,
velkominn til leiks og óskum honum velfamaðar.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
- velferð í þágu þjóðar