Dagur - 31.12.1998, Page 17

Dagur - 31.12.1998, Page 17
 FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 33 . : . í'.'íi-; 1y£gi ............. iw'n ■ U'WI . i iiMiwiin w«|r—^jfa—pMP ÉÉ^ÉÉÉIÍ ~^'swr . • ’ ■ ' . ,A’»'.3252iir * «. . . - r--. . . Við þökkum landsmönnum gott og uppbyggilegt samstarf I cíög lýkur Húsnceðisstofnun starfsemi sinni. Við þau tímamót er margs að minnast úr rúmlega 40 ára starfi. A síðari hluta þessarar aldar liefur íslenska þjóðin reist sér vönduð og myndarleg húsakynni sem gerast óvíða betri. Þetta hefur m.a. gerst með samstarfi Alþingis og stjórnvalda, launþegasamtaka og vinnuveitenda, lífeyrissjóða, banka og spari- sjóða. En þó fyrst og fremst með þrotlausum dugnaði og fórnfysi fólksins sjálfs, sem hefur löngum lagt nótt við dag svo það mætti eignast þak yfir höfuðið. Húsnæðisstofnunin hefur tekið þátt í að ryðja brautina og lagt til mest af því langtímafé sem til þessa hefur þurft. Húsnæðisstofnunin hefur alltaf haft félagsleg sjónarmið að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Lágir vextir húsnæðislána hafa stuðlað mjög að góðum lífskjörum almennings. Hún hefur veitt stórlán til að byggja mikinn fjölda sérstakra eignar- og leiguíbúða fyrir aldraða, leiguíbúða fyrir námsmenn og öryrkja, eignaríbúða fyrir efnalítið fólk og til íbúðakaupa og liúsbygginga á almennum markaði. Um 13 ára skeið hefur hún rekið sérstaka ráðgjafastöð til aðstoðar við fólk í greiðsluerfiðleikum og hafa meira en 10 þúsund fjölskyldur notið góðs af starfsemi hennar. Um áratugaskeið sá hún almenningi einnig fyrir hagkvæmum húsa- teikningum á lágu verði. Á síðustu 30 árum hefur stofnunin tvisvar beitt sér af miklum þunga með stórfelldum lánveitingum til að hamla gegn atvinnuleysi í byggingar- iðnaðinum og tengdum ah'innugreinum. Síðustu sex árin hefur hún lagt frarn rúmar 100 milljónir króna til framfara og þróunar í byggingariðnaði og húsnæðismálum. Húsnæðisstoíhun hefur verið lífeyris- sjóðunum í landinu mikil lyftistöng undanfarin 10-15 ár með sölu hávaxta- bréfa til þeirra; njóta lífeyrisþegar góðs af því. Húsnæðisstofnunin er ein stærsta lána stofnun landsins nú er hún lýkur starfsemi sinni. Utlán hennar til einstaklinga, sveitar- félaga, stofnana og fyrirtækja nema nú samtals um 233 milljörðum króna. í sjóðum hennar er stór hluti af þjóðar- auðnum fólginn. Á þessum tímamótum viljum við þakka landsmönnum samfylgdina, góð viðskipti og frábæra skilvísi síðustu fjóra áratugina. Við þökkum núverandi og fyrrverandi starfsmönnum vel unnin störfog kveðjum um leið og við bjóðum arftaka okkar, hinn nýja Ihúðalánasjóð, velkominn til leiks og óskum honum velfamaðar. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS - velferð í þágu þjóðar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.