Dagur - 31.12.1998, Page 23

Dagur - 31.12.1998, Page 23
í>^ir FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 39 ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU 1. Nýtt andlit í stjórnmálum skip- aði 9. sæti á lista Reykjavíkur- listans fyrir borgarstjómarkosn- ingar nú í vor. Hvaða andlit var þetta? a) Anna og útiitið. b) Helgi Pétursson. c) Anna Geirsdóttir. 2. Afmæli ársins á Islandi var hald- ið í Perlunni þann 17. janúar á þessu ári, fimmtugsafmæli þar sem á annað þúsund manns mætti. Hvert var afmælisbarnið? a) Halldór Ásgrímsson. b) Davíð Oddsson. c) Mummi í Mótorsmiðjunni. 3. Hestamennska landands komst í uppnám vegna sjúdóma og á tímabili stefndi í að ekkert yrði úr Landsmóti hestamanna. En hver var þessi sjúkdómur? a) Kreuzfeldt Jacob riðuveikin. b) Hitasótt sem lagðist á hross. c) Hitasótt og kvefpest sem lagðist á hestamenn. 4. I apríl sögðu þrír bankastjórar Landsbanka íslands af sér vegna vafasamra mála. Sérstaklega þótti Sverrir Hermannsson á gráu svæði. Vegna hvers? a) Hélt veislur bankans heima hjá sér svo þau hjón fengju afgangana. b) Veiddi á kostnað bankans í Hrútafjarðará, sem hann Ieig- ir sjálfur. c) Notaði Z-una í pappírum til Ríksendurskoðunar. 5. Stórbruni varð í miðborg Reykjavíkur í júlí. Þar brann hús Nýja-bíós til kaldra kola. Það hefur nú verið selt til verslunar- fyrirtækis sem hyggst byggja nýtt hús á sama stað fljótlega á nýju ári. Hvaða fyrirtæki er þetta a) Nóatún. b) Bónus. c) Silli og Valdi. 6. Miklar umræður sköpuðust á ár- inu um hlutverk og skyldur for- seta Islands, einkum vegna ræðu sem hann flutti á Hólum í Hjaltadal síðla sumars. Hvað ræddi hann um þar? a) Fíkniefnavandann. b) Erfðavísindi. c) Niðurskurð til heilbrigðis- mála. 7. Nýtt sveitarfélag var myndað á árinu með sameiningu Selfoss við Eyrarbakka, Stokkseyri og Sandvíkurhrepp. Hvað heitir þetta sveitarfélag? a) Árborg. b) Árbyggð. c) Flóabær. 8. Rafiðnaðarsamband Islands og Félag járniðnaðarmanna áttu í haust í stríði við Landsvirkjun og fleiri. Um hvað var deilt? a) Rafiðnðararmenn og járn- smiðir voru að gera við Ölf- usárbrú og vildu ekki leyfa Halldóri Jónatanssyni for- stjóra Landsvirkjunar að aka yfir. b) Starfsmenn verktakafyrirtæk- isins Technopromexport fengu ekki greitt skv. íslensk- um samningum, sem vera bar. c) Lengja átti framkvæmdatím- ann án samráðs við starfs- menn. 9. Juri Resetov, sendiherra Rúss- lands á Islandi, mótmælti harð- Iega grein í íslensku dagblaði sem kom snemma á árinu og bar yfirskriftina „Róninn rís úr rekkju". Islensk stjórnvöld tóku undir orð sendiherrans. Um hvað fjallaði greinin? a) Bragðvondan rússneksan vodka. b) Drykkjuskap Borisar Jeltsín. c) Slæman aðbúnað á meðferð- arheimilum fyrir áfengissjúkl- inga í Rússlandi. 10. Nýr kaupfélagsstjóri kom til starfa hjá KEA á fyrstu mánuð- um árs. Hvað heitir hann og hvaða starfi gegndi hann áður. a) Eiríkur Sigurðsson, útibús- stjóri Islandsbanka á Akur- eyri. b) Ingi Björnsson, forstjóri Slippstöðvarinnar. c) Eiríkur Jóhannsson, svæðis- stjóri Landsbankans á Norð- urlandi. 11. Kosningabarátta í Hveragerði í vor var óvægin og tók óvænta stefnu með dreifibréfum með sleggjudómum. Þar var fullyrt? a) Að fjölskyldur ætluðu að flytja brott vegna geðsjúkra afbrotamanna sem ætti að vista í bænum. b) Að Framsóknarflokkurinn væri á móti jarðskjálftamæl- um sem ekki bætti úr skák í þessum jarðskjálftabæ. c) Áð flytja ætti hluta af starf- semi SÁA í bæinn. 12. Biðraðir aldarinnar mynduðust suður í Kópavogi snemma á ár- inu. Af hvaða tilefni var það? a) Vegna opnunar Raftækja- markaðar ELKO. b) Rýmingarsölu í verslun ÁTVR. c) Ameríski sjónvarpspredikar- inn blessaði íslenska alþýðu, án endurgjalds. 13. „Enginn Brimarhólmur fyrir af- dankaða embættismenn." Af hvaða tilefni féllu þessi ummæli á árinu? a) Fleyg setning í nýju leikriti Ragnars Arnalds. b) Vestfirðingar mótmæltu því að gera ætti Sigurð Gizurar- son sýslumann á Hólmavík úr því hann stóð sig ekki í stykk- inu á Akranesi. c) Kristinn H. Gunnarsson um veru sína í Alþýðubandalag- inu. 14. Tókbaksvarnanefnd sendi snemma á árinu erindi til sveit- arfélaganna í landinu með hvatningarorðum. Hver voru þau? a) Að kosta kapps að ráða til sumarvinnu unglinga sem reykja vegna bágra félagslegra aðstæðna þeirra. b) Að refsa unglingum sem reykja með því að ráða þá ekki til sumarstarfa. c) Að banna notkun fínkorna neftóbaks. 15. Miklar deilur spruttu upp innan Sambands ungra framsóknar- manna á árinu vegna formanns- kjörs. Hver voru ágreiningsefnin a) Meint brögð í tafli við kjörið þar sem sitjandi formaður sigraði með einu atkvæði. b) Hvort SUF ætti að styðja Finn eða Siv í varaformanns- kjöri í flokknum. c) Fjöldi fulltrúa SUF í árlega sumar-grillveislu Halldórs As- grímssonar. 16. Dæmt var á árinu í máli nokk- urra þjóðþekktra manna sem efndu til hnefaleikasýningar, sem eru óheimilar skv. lögum. Hvaða menn voru þetta? a) Dr. Gunni og Jón Arnar Magnússon. b) Stefán Hilmarsson og Björn Leifsson í World Class. c) Bubbi Morthens og Fjölnir Þorgeirsson. 17. Snemma í vor var komið með mikla flotkví til Hafnarfjarðar og ekki gekk þrautalaust að koma henni hingað til lands. Hverjar voru þrautir þessar? a) Kvíin fékkst ekki tollafgreidd frá yfirvöldum f Skotlandi. b) Kvíin slitnaði aftan úr drátt- arbát sem dró hana til lands- ins og þurfti aðstoð tveggja varðskipa til að bjarga mál- um. c) Mikils ryðs af völdum seltu hefur orðið vart í kvínni eftir ferðalagið yfir hafið. Myndaspumingar: Myndir þessari líkar birtust oft- sinnis í blöðum á árinu. Það var inni á hálendinu sem Guð- mundur Páll Ólafsson flaggaði íslenska fánanum en af hvaða tilefni gerði hann það? a) Hann komst ekki til byggða í hátíðarhöldin á 17. júní. b) Hann var að mótmæla gerð uppistöðulóna Hágöngumiðl- unar. c) Hann var að mótmæla Sultar- tangavirkjun? 19. Kristján Jóhannsson kom norður á Akureyri í október og söng á fjölsóttum tónleikum. Af hvaða tilefni voru þeir haldnir? a) I minningu föður hans sem orðið hefði áttræður f fyrra. b) Til styrktar handboltadeild KA. c) Vegna byggingar tónlistarhúss á Akureyri. 20. Á fyrstu dögum ársins voru greidd atkvæði um boðun verk- falls sjómanna sem var sam- þykkt. Varð verkfallið langvinnt. Hver voru helstu deiluefni í verkfallinu? a) Of Iöng úthöld í Smugusigl- ingum. b) Lögleiðing sjálfvirks sleppi- búnaðar um borð í skip. c) Þátttaka sjómanna í kvóta- kaupum, sem ekki er skv. samningum. 21. Afhjúpaður var í sumar minnis- varði um Fjalla-Eyvind og Höllu og hetjulega baráttu þeirra á ör- æfum Islands á síðustu öld. Eru á myndinni listamaðurinn sem gerði verkið og einn af afkom- endum Eyvindar. Hvar er varð- inn staðsettur a) I Landmannalaugum. b) Við Litlu-Kaffistofuna í Svínahrauni. c) Á Hveravöllum. 22. Enginn gat verið maður með mönnum í fyrravetur nema sjá myndina Titanic sem gekk fyrir fullu húsi í bíóum svo mánuð- um skipti. Hvað sáu margir Is- lendingar alls þessa mynd? a) 50 þúsund. b) 80 þúsund. c) Vel yfir 100 þúsund. 23. Sleðamenn. Björgunarsveitir á Norðurlandi komu að umfangs- mikilli Ieit í íyrravetur að sleða- mönnum sem týndust. Tveir þeirra gengu til byggða og sjást þeir á þessari mynd en hinum var bjargað um síðir af Nýjabæj- arljalli. Hvaðan voru þessir sleðamenn? a) Frá Dalvík. b) Ólafsfirði. c) Grenivík. 24. I apríl síðastliðnum lét Friðrik Sophusson af embætti Ijármála- ráðherra og nú um áramótin lætur hann af þingmennsku. Hvaða ráðherraembætti öðru hefur Friðrik gegnt á stjórn- málaferli sínum. a) Viðskiptaráðherra. b) Iðnaðarráðherra. c) Dómsmálaráðherra. 25. Sjálfstæðismenn á Akureyri voru sigurvegarar kosninganna á Ak- ureyri í vor og náðu fimm full- trúum í bæjarstjórn. Fimmti fulltrúinn er lengst til hægri á þessari mynd. Hver er hún? a) Vilborg Guðmundsdóttir b) Vilborg Gunnarsdóttir c) Vilborg Halldórsdóttir. Könnun þessi er einungis sett frant til gamans og engin verð- laun eru í boði. Rétt svör verða birt tfyrsta blaði eftir áramót.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.